Morgunblaðið - 28.12.1993, Page 64
SÍmG69nBmfslMBRÉFN69^WI, ‘pÓSTHÓLF^ÍmO^/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
Hlaðið í brennu
'
NU er víða dregið í bálkesti til gamlárskvölds. Og þeir enn grannt með hleðslunni og leggja auðvitað
þótt vélar hafi leyst brennustrákana af hólmi, fylgjast síðustu hönd á verkið. Og svo þarf að vakta brennuna.
Kennaradeildin
á Akureyri
50% fall í
íslensku
2% lækk-
un drátt-
arvaxta
Tilkynningar um uppsagnir
Ekkert verður úr kaupum Jökuls á rækjutogara frá Noregi
HELMINGUR nemenda í kennara-
deiid Háskólans á Akureyri hlaut
falleinkunn í íslensku á prófum á
haustmisseri og tæplega helming-
ur í stærðfræði. Niðurstaðan var
betri í öðrum fögum. Allir stúdent-
ar fengu inngöngu í deildina í
haust. Með hliðsjón af árangrinum
þykir hins vegar koma til greina
að velja nemendur úr hópi um-
sækjenda.
Guðmundur Heiðar Frímannsson,
forstöðumaður kennaradeildar, sagði
enga eina skýringu á háu fallhlut-
falli í greininni. Hann sagði nemend-
■ur með mjög mismunandi undirbún-
ing að baki og ef til vill mætti segja
að uppbygging námsins á-haustmiss-
eri hefði ekki hentað hópnum. Tvö
stór námskeið í íslensku og stærð-
fræði settu svip sinn á námið.
Fram kom í samtali við Guðmund
að uppbygging námsins, bakgrunnur
nemenda og kennara yrðu tekin til
gaumgæfilegrar athugunar. „Við
vonum að kennslukönnun þar sem
nemar sögðu álit sitt á ýmsu er varð-
ar deildina gefi okkur einhverjar vís-
bendingar," sagði Guðmundur meðal
annars.
Sjá frétt á bls. 28.
------♦ ♦ ♦-----
Herferð gegn
bruggurum
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
dreift lista með ýmsum upplýsing-
um um grunaða bruggara og sölu-
menn þeirra til allra lögreglu-
stöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Mun lögreglan á næstunni hafa
afskipti af þeim.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar eru á þessum lista upplýsingar
_um bílnúmer mannanna og annað
er þá varðar. Lögreglumenn munu á
næstu dögum hafa afskipti af þess-
um mönnum hvar sem til þeirra sést
þyki ástæða til. Þeir hafa heimild til
að rannsaka, hvort í bifreiðum þeirra
sé áfengi, enda liggi fyrir rökstuddur
grunur um að það sé ætlað til ólög-
legrar sölu.
Gunnar Sigurðsson sagði að upp-
sagnir hefðu borist vinnumálaskrif-
stofunni vegna boðaðs sjómanna-
verkfalls. Hann sagði að menn væru
að tryggja sig gegn því að sitja
uppi með launakostnað ef boðað
sjómannaverkfall yrði langt og
væntanlega kæmu uppsagnirnar
ekki til framkvæmda ef ekki yrði
af verkfalli. Gunnar sagði að ekki
væri um mörg fyrirtæki að ræða,
en þetta væru mjög óvanalegar upp-
sagnir á þessum árstíma. Hann
sagði að það sem af væri desember
hefðu líklega borist um 200 upp-
sagnir. I nóvember hefðu borist 313
og hluti af þeim væri í fiskyinnslu
samanborið við 245 í fyrra. í októ-
ber hefðu uppsagnir verið 183 sem
væri verulega minna en í fyrra þeg-
ar uppsagnir voru 455.
Bannað að fara í Smuguna
SEÐLABANKI íslands hefur
ákveðið að lækka dráttarvexti
um tvö prósentustig frá og
með 1. janúar. Dráttarvextir
í janúar verða því 16% en voru
18% í desember.
Þá lækkaði Seðlabankinn vexti
við innlánsstofnanir 21. desember.
Á útlánahlið er ávöxtun í kaupum
Seðlabankans á ríkisvíxlum nú
5,5% á ári en í öðrum ríkistryggð-
um verðbréfum 6,5%. Þetta felur
í sér 0,5 prósentustiga lækkun á
ávöxtun.
Á innstæðuhlið verður sala inn-
stæðubréfa í Seðlabankanum með
4,75% vöxtum á ári, en það felur
í sér 0,25% lækkun vaxta að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Seðlabankanum.
ÚTLIT er fyrir að ekkert verði úr kaupum útgerðarfélagsins
Jökuls hf. á Raufarhöfn á kanadíska rækjutogaranum Arctic
Sea. Jökull hafði gerð samning um kaupin við norska bankann
sem á togarann en á síðustu stundu fékk bankinn þau fyrirmæli
frá yfirvöldum að selja skipið ekki til íslands nema gegn skilyrði
um að það fari aldrei til veiða í Smugunni í Barentshafi. Á það
gat útgerðarfélagið ekki fallist þó fyrirhugað sé að gera skipið út
á rækju og þar af leiðandi ekki til veiða í Smugunni.
Norski bankinn Christia bank
og Kreditkassen, sem nú er í eigu
norska rikisins, eignaðist rækju-
togarann eftir gjaldþrot kana-
disku útgerðarinnar. Skipið hafði
upphaflega verið smíðað fyrir
Færeyinga og gert út þaðan und-
ir nafninu Arctic Prawns. Jökull
hf., sem gerir út skuttogarann
Rauðanúp ÞH-160, festi kaup á
rækjutogaranum og var fyrir
nokkru búið að gera samning um
kaupin með fyrirvara um fjár-
mögnun. Þorsteinn Óli Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Jökuls hf.,
sagði að í samningunum hefðu
ekki verið sett nein skilyrði varð-
andi veiðar skipsins í Smugunni
umdeildu. Jökull hefði uppfyllt öll
atriði fjármögnunarinnar en á
lokastigi hefði norski bankinn
fengið fyrirmæli að ofan um að
setja það skilyrði fyrir sölunni að
skipið verði aldrei sent til veiða í
Smugunni.
Utilokað að fallast á skilyrðið
Arctic Sea er rækjutogari og
er fyrirhugað að gera hann þann-
ig út frá Raufarhöfn. Þar af leið-
andi verður hann ekki sendur í
Smuguna. Þorsteinn Óli sagði þó
Formaður Samtaka fiskvinnslustöðva um yfirvofandi sjómannaverkfall
íslandi ef Jökull þyrfti að selja
það. Svo gætu aðstæður breyst
þannig að fyrirtækið þyrfti að
breyta um útgerðarhætti og hugs-
anlega senda það í Smuguna.
Þorsteinn sagði að kaupin væru
því úr sögunni ef Norðmennirnir
héldu sig við þessi skilyrði eins
og þeir virtust ætla að gera.
Hefur áhrif á atviimu um
sex þúsund starfsmanna
Norski bankinn ætlaði að fjár-
magna hluta kaupanna en ekki
er um að ræða neina niður-
greiðslu norska ríkisins á vöxtum
vegna kaupanna.
Þorsteinn Óli sagði að þessi
breytta afstaða norsku seljend-
anna hefði komið fram í kjölfar
umræðna í Noregi um ummæli
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra um rétt íslendinga til veiða
í Smugunni. Sagði hann að svo
virtist sem Norðmenn hafi hert
afstöðu sína til íslendinga.
ARNAR Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir
að búast megi við að verkfall sjómanna, sem boðað er í byrjun árs-
ins, hafi áhrif á atvinnu um sex þúsund starfsmanna í fiskvinnslu-
stöðvunum víða um land og þar séu Vestfirðir undanskildir enda
hafi verkfall ekki verið boðað þar. Tilkynningar um fjöldauppsagn-
ir hjá fiskvinnsluhúsum víða um land hafa einnig borist vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytisins að undanförnu og er það nýtt á
þessum árstima, að sögn Gunnars Sigurðssonar hjá vinnumálaskrif-
stofunni. Það sem af er desember hafa borist um 200 uppsagnir frá
fiskvinnsluhúsum á suðvesturhorninu, á Suðurlandi, Vesturlandi og
Austurlandi.
fjölmörg fyrirtæki í fiskvinnslu væru
Jólastoppið framlengist
Arnar Sigurmundsson sagði að
í hefðbundnu jólastoppi sem hæfist
venjulega um 15. til 20. desember.
Ef verkfall sjómanna kæmi til fram-
kvæmda um áramót myndu þau fyr-
irtæki ekki fara í gang þá og stopp-
ið framlengjast sem verkfallinu
næmi. Auk þess hefðu fjölmörg önn-
ur fyrirtæki sagt upp kauptrygging-
arsamningi við starfsfólk með fjög-
urra vikna fyrirvara sem hefði það
í för með sér að það fólk færi út
af launaskrá í lok fyrstu viku janúar
og inn á atvinnuleysisskrá en ráðn-
ingarsamningur gilti áfram. Til við-
bótar væri fjöldi starfsfólks í fisk-
vinnslu lausráðið og það fólk yrði
einnig án atvinnu meðan verkfallið
stæði yfir. Að öllu samanlögðu muni
stöðvun fiskiskipaflotans í byijun
janúar ná til um sex þúsund starfs-
manna í fiskvinnslustöðvunum og
þá séu Vestfirðirnir ekki inni í mynd-
inni enda hafi verkfall ekki verið
boðað þar. Reikna megi með að verk-
fallið nái til um fimm þúsund sjó-
manna. Að auki megi búast við að
verkfall hafi veruleg áhrif á ýmiss
konar þjónustu við fiskiskipaflotann.
„Maður hefur verulegar áhyggjur
af þessu ástandi og síðast en ekki
síst vegna þess að maður veit að
víða í fyrirtækjum eru það mikil
vandræði fyrir að þau mega illa og
ekki við því að stöðvast," sagði Arn-
ar. Hann benti á að verkfalhð tefldi
í tvísýnu síldveiðum, en það væri
takmarkað hve lengi væri hægt að
stunda þær með árangri auk þess
sem stöðvun loðnuflotans gæti gert
það að verkum að menn yrðu í vand-
ræðum með að ná loðnukvótanum.
Kaupin úr sögunni
KANADÍSKI rækjutogarinn
Arctic Sea, áður Arctic Prawns,
sem Jökull hf. á Raufarhöfn
hafði samið um að kaupa.
útilokað að fallast á það skilyrði
að skipið yrði aldrei sent þangað.
Það myndi rýra verðgildi þess á