Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
EFNI
Ráðningarstofan
fær nýtt hlutverk
LEITAÐ hefur verið eftir hentugu húsnæði fyrir Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar, þar sem núverandi húsnæði nægir engan veginn
þeim fjölda, sem þangað leita í viku hverri. Þá standa skipulagsbreyt-
ingar fyrir dyrum og fær Ráðningarstofan nýtt nafn, Vinnumiðlun
Reykjavíkurborgar.
Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri sagði við fyrri umræðu um fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar, að
skipulagsbreytingar stæðu fyrir dyr-
um á Ráðningarstofu Reykjavíkur-
borgar. Sagði hann að vænta mætti
tillagna um framtíðarlausn á næst-
unni. Þær athuganir sem fram hafa
farið miði að því að atvinnuleysis-
skráning og vinnumiðlun á veg^um
Ráðningarstofunnar og skráning
sumarvinnu unglinga verði undir
sama þaki og ef til vill einnig Vinnu-
skólinn.
Starfsemin efld
Sagði borgarstjóri að starfsemin
yrði efld og að ákveðið hafi verið að
hún breytti um nafn um leið og hún
flytti í nýtt húsnæði fyrir mitt þetta
ár. Eftir það mun hún heita Vinnu-
miðlun Reykjavíkurborgar. Nafnið
gefí til kynna þá viðhorfsbreytingu
sem orðið hefur í erfiðu atvinnu-
ástandi og flóknari vinnumarkaði.
„Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar
verður gert kleift að láta til sín taka
í allri umræðu um vinnumiðlun, at-
vinnuleysistryggingamál og önnur
málefni, sem snerta hag atvinnu-
lausra," sagði Markús. „I því sam-
bandi gerist sú spuming sífellt áleitn-
ari, hvort ekki megi einfalda mjög
alla afgreiðlsu innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins og gera það skil-
virkara, til dæmis með hliðsjón af
því fyrirkomulagi, sem komið hefur
verið á í Noregi.“
Morgunblaðið/Þorkell
Þröngft setinn bekkurinn
RÁÐNINGARSTOFA Reykjavíkurborgar býr við þröngan húsakost
eins og sjá má. Vinnuaðstaðan er ekki upp á marga fiska þegar
þrír starfsmenn, þær Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Steinunn Hjartar
og Anna Helgadóttir, eru saman um eitt skrifborð.
Lögreglustjóraembættið ætlar að innheimta 250 milljónir króna í sektir í ár
Hátt hlutfall lögreglusekta
hefur fymst undanfarin ár
HJÁ embætti lögreglustjórans í Reykjavík er stefnt að því að inn-
heimta allt að 250 milljónir króna í hvers kyns sektir á þessu ári.
Verið er að gera átak í sektarinnheimtu hjá embættinu en undan-
farin ár hefur að sögn Sigríðar Stefánsdóttur Iögfræðings lijá
embættinu hátt hlutfall lögreglusekta í innheimtu hjá embættinu
fyrnst, en þar er t.a.m. um að ræða sektir sem ökumenn eru krafð-
ir um vegna vægari hraðakstursbrota og þeirra brota í umferðinni
sem ekki sæta dómsmeðferð. Slík mál fyrnast yfirleitt á tveimur
árum. í því skyni að hraða innheimtu og bæta innheimtuhlutfallið
er nú farið að gera fjárnám í eignum þeirra sem dæmdir hafa
verið til sektargreiðslu og þeim sem vilja greiða án þess að farið sé
í ítrustu aðgerðir býðst nú að skipta greiðslum og greiða með
greiðslukortum.
Stór hluti þeirra sekta sem inn-
heimtar eru hjá lögreglustjóraemb-
ættinu eru lögreglusektir og lög-
reglustjórasáttir vegna ýmis konar
minniháttar afbrota sem heimilt er
að ljúka með þessum hætti án þess
að mál séu borin undir dómstóla.
Málin fymast eftir 2 ár frá broti
sé fyrningekki rofin með sérstökum
hætti þannig að unnt sé að bera
þau undir dómstóla. Að sögn Sigríð-
ar hefur mikill fjölda þessara lög-
reglu- og lögreglustjórasekta fyrnst
árlega í Reykjavík til þessa.
Einnig innheimtir lögreglustjóra-
embættið fyrir Fangelsismálastofn-
un þær sektir sem dómarar dæma
menn til að greiða í þeim málum
sem ganga alla leið til dóms. Síðan
í haust hefur verið beitt lagaheim-
ild til þess að gera fjárnám í eigum
dómþola til þess að hraða inn-
heimtu þessara sekta. Frá því í
haust hafa verið gerð rúmlega 100
fjárnám ýmist í fasteignum eða
lausafé, t.d. bílum, í eigu hinna
dæmdu og er verið að senda fyrstu
uppboðsbeiðnimar til sýslumanns
um þessar mundir.
Hægt að semja um greiðslur
Frá áramótum var tekin upp sú
nýbreytni við alla sektarinnheimtu
hjá lögreglustjóranum í Reykjavík
að bjóða mönnum sem eiga ógreidd-
ar sektir að semja um greiðslu
þeirra og skipta greiðslu annað
hvort með greiðslusamningum eða
greiðslukortasamningum. Sé
greiðslum skipt hækkar fjárhæðin
ekki heldur tekur lögreglustjóra-
embættið á sig að greiða þann
kostnað og það álag sem greiðslu-
kortafyrirtækin krefjast fyrir þessa
greiðslumiðlun.
Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur
gera áætlanir ráð fyrir að embættið
innheimti 250 milljónir króna í sekt-
um í ár. Ekki liggur fyrir hve há
fjárhæð hefði innheimtist í fyrra
en að sögn Sigríðar liggur fyrir
stór bfínki mála frá liðnum árum
sem áhersla verður lögð á að
hreinsa upp og reyna að forða frá
fymingu þar sem hætta getur verið
á slíku.
Virt óperusöngkeppm í New York
Olafur
í 3. sæti
ÓLAFUR Ámi Bjarnason tenór-
söngvari vann til þriðju verð-
launa í óperusöngkeppni sem
fram fór í New York í vikunni.
Keppnin var haldin á vegum
Singer Development Foundation
og fór fram dagana 4. og 5. jan-
úar sl. í úrslit komust alls 32
óperusöngvarar.
Heimsþekkt tónlistarfólk skipaði
sjö manna dómnefnd sem skar úr
um röð söngvara í efstu sætunum,
svo sem sópransöngkonan Renata
Scotto, Marilyn Hom, messósöng-
kona, og Henry Lewis, hljómsveit-
arstjóri. Margir upprennandi
óperusöngvarar tóku þátt í keppn-
inni, þar á meðal söngvarar sem
þegar hafa staðið á sviði Metro-
politan-ópenmnar.
Ólafur Ámi söng í keppninni
aríur eftir Verdi og Puccini sem
tryggðu honum þriðja sætið og
hlaut hann fimm þúsund dollara í
verðlaun eða liðlega 350 þúsund
krónur.
Skrifað undir samning
Ólafur Ámi hefur nýverið skrif-
að undir samning við Columbia
Ölafur Árni Bjarnason
Artist Management en á vegum
þeirrar umboðsskrifstofu starfa
margir af þekktustu óperusöngvur-
um samtímans. Fyrstu verkefni
Ólafs í samvinnu við þennan um-
boðsaðila verða hlutverk Alfredcs
í La Traviata í óperunni í Palma á
Mallorca í mars og aprílmánuði nk.
og hlutverk Pinkertons í Madam
Butterfly í Köln haustið 1995 und-
ir stjóm James Conlon.
Um þessar mundir syngur Ólaf-
ur hlutverk Manricos í II Trovatore
Verdis og prinsinn í Rusalka eftir
Dvorak í óperuhúsinu í Gelsenk-
irchen í Þýskalandi.
Viðræður hefj-
ast eftir helgina
—Leitað lausna á Sólheimadeilunni á grund-
velli tillagna félagsmálaráðherra
„ÞETTA er nákvæmlega það sem ég var að hvetja formanninn til að
leggja fyrir fulltrúaráðið strax á þriðjudaginn var sem hefði getað
sparað okkur mikil átök í fjölmiðlum. Mér urðu það mikil vonbrigði
að ekki var tekið á þessu máli strax og ég kynnti þessar tillögur fyr-
ir formanni stjórnar Sólheima á þriðjudagsmorguninn var,“ sagði
Ólafur Skúlason, biskup íslands, um samþykkt fulltrúaráðs Sólheima
á föstudag um að skipa þriggja manna nefnd til að leita eftir Iausn
á Sólheimadeilunni á grundvelli tillagna félagsmálaráðherra.
„Það er sjálfsagt að taka á
þessu núna og reyna að tryggja
hag heimilisins sem allra best, sem
átti að vera það eina sem vekti
fyrir mönnum," sagði Ólafur.
Málið í höndum biskups
Ólafur sagðist eiga von á að strax
eftir helgina hæfust viðræður um
lausn á deilunni. Sagðist hann
hafa fengið staðfest hjá Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra að í bréfinu sem hún sendi
inn á fund fulltrúaráðsins kæmi
fram að hún teldi að málið væri
nú í höndum biskups og að hún
teysti honum til að finna á því
skynsamlega niðurstöðu.
Ekki náðist í framkvæmda-
stjóra Sólheima í gær.
Tekinn með
sexjakka
ÞJÓFUR braust inn í verslun við
Laugaveg í fyrrinótt og hafði á
brott með sér þijá leðurjakka og
þijá ullaijakka. Hann fékk ekki
að njóta fengsins lengi, því Iög-
reglan greip hann skömmu síðar.
Lögreglunni var tilkynnt um að
þjófur væri að athafna sig í verslun-
inni Mótor á Laugavegi 39 um kl.
fjögur um nóttina. Tilkynnandi sá
manninn fara af vettvangi skömmu
síðar og fylgdi lögreglan sömu leið.
Þjófurinn komst ekki langt því hann
var gripinn á bak við Kjörgarð á
Laugavegi 59, með jakkana sex í
fanginu.
A
► 1-52
Það tekst með ratsjár
- hví ekkl þyrlur?
►Ýmsir telja að Ratsjárstofnunin
geti orðið fyrirmyndin að rekstri
Islendinga á þyrlubjörgunarsveit-
inni. /10
NATO fetar sig í tóma-
rúm fyrrverandi lepp-
ríkja
►Fyrrum kommúnistaríkjum boð-
ið að ganga til tvíhliða samninga
umnáið hemaðarsamstarf á sögu-
legum fundi leiðtoga NATO-ríkj-
anna. /18
Ekki æskilegt að
þyngja refsingar
►Þór Vilhjálmsson, fyrrum forseti
Hæstaréttar íslands, ræðir í við-
tali um Hæstarétt, stöðu dómstól-
anna og refsipólitík. /16
Lífræn framtíð íslands
►ísland á góða möguleika á að
verða fyrst til að njóta viðurkenn-
ingar sem „lffrænt" land, að mati
Carl Haest. /22
►
B
► l-32
Þrælaeyjar
►Þar lenti Sigurður Teitsson af
Islandi í ómældum hremmingum
og þaðan komi dökki þrællinn
Hans Jónatan, sem endaði uppi á
íslandi og á hér marga afkomend-
ur, m.a. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra. /1
Ég vil ekki hætta að
gráta
►S-ameríska skáldkonan Isabel
Allende í viðtali, en hún verður
fyrirferðarmikil í reykvísku listalífi
næstu vikurnar. /10
Frá Kínverjum til
kónga
►Áhugafólk í Reykjavík efnir
reglulega til grímudansleikja og
það er ekkert til sparað, að búning-
arnir verði sem óvenjulegastir. /16
BÍLAR
► l-4
Skattar á bíleigendur
hækka
►Nema alls 17,6 milljörðum á
árinu, sem er liðlega 7% hækkun
milli ára. /1
FASTIR ÞÆTTIR
15b
20b
22b
22b
22b
22b
23b
28b
28b
30b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2/6/BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1/4
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 26
HelgÍ8pjall 26
Reykjavíkurbréf 26
Minningar 28
íþróttir 46
Útvarp/sjónvarp 48
Gárur 61
Mannlífsstr. 6b
Kvikmyndir 14b
Dægurtónlist
Fólk 1 frétlum
Myndasögur
Brids
Stjömuspá
Skák
Bíó/dans
Bréf til blaðsins
Velvakandi
Samsafnið