Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 4
"f 4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 ERLEIMT INNLENT Samið um Yarnar- liðið SAMNINGAR tókust í vikunni á milli fulltrúa Bandaríkjanna og íslands um veru vamarliðsins hér á landi. F-15 þotum hersins verður fækkað úr 12 í 4 á næstu 12 mánuðum. Gert er ráð fyrir áframhaldandi veru þyrluflug- björgunarsveitarinnar hér og verða hafnar viðræður á milli þjóðanna um hvort íslendingar geti yfírtekið rekstur sveitarinn- ar á grunni verktöku og með þjálfun Bandaríkjamanna. Will- iam J. Perry, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og Jón Baldvin Hannibalsson undirrit- uðu samkomulagið á þriðjudag. Einnig er stefnt að því a'ð fækka hermönnum um 380 fram til ársins 1997. Framlög til framkvæmda lækka um 15% FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja- víkur var lögð fram í vikunni. Lækka skatttekjur borgarinnar um 56 milljónir frá 1993. Fram- lög til framkvæmda lækka um 15%, úr 8,9 milljörðum króna á síðasta ári í 7,5 milljarða árið 1994. Viðræður í strand HVORKI hefur gengið nér rekið í viðræðum aðila sjómanna og útgerðarmanna til lausnar sjó- mannavekfallinu sem hófst á ERLENT NATO býður Friðar- samvinnu LEIÐTOGAR Atlantshafs- bandalagsins (NATO) koma saman til fundar í Brussel á morgun, mánudag. Nokkur fyrr- um austantjaldsríki hafa sótt um að fá inngöngu í bandalagið og bættist Litháen í þeirra hóp á miðvikudag. Ekki er talið að úr því verði fyrst um sinn en búist er við að leiðtogar' NATO sam- þykki að bjóða þessum ríkjum til Friðarsamvinnu, sem felur í sér gagnkvæmt varnarsamstarf og er talið geta leitt til aðildar að NATO einhvem tíma í fram- tíðinni. A1 Gore varaforseti Bandaríkjanna sagði að Friðars- amvinnan ætti að draga úr ótta ríkja sem lægju milli NATO-ríkj- anna og Rússlands í kjölfar rússnesku þingkosninganna. Finnar vilja aðild að EB SIGUR þjóðemisöfgamanna í Rússlandi er talinn hafa valdið því að nú er meirihluta Finna hlynntur aðild að Evrópubanda- laginu (EB)_. Samkvæmt nýrri Gallup-könnun segjast 53% kjós- enda vera samþykk aðildinni en 47% era henni andvíg. Deilt um dauða Gamsakhúrdía ZVIAD Gamsakhúrdía fyrrum forseti Georgíu svipti sig lífí á gamlársdag og tók þann kost heldur en falla í hendur óvinum sínum, að því er ekkja hans, Manana, sagði á miðvikudag. Innanríkisráðuneytið í Tbilisi sagði ekki rétt með farið, Gams- akhúrdía hefði ekki stytt sér ald- ur heldur verið skotinn í Grosníj í Suður-Rússlandi. Náinn sam- miðnætti á nýársdag. Viðræð- urnar siglu í strand á miðviku- dag og í kjölfarið gerðu aðilar deilunnar Davíð Oddssyni, for- sætisráðherra, grein fyrir stöðu mála. Sagði Davíð að ríkisstjom- in myndi kanna með hvaða hætti hægt vari á koma í veg fyrir kvótakaup sjómanna, til dæmis með lagasetningu. í kjölfar þess fóra viðræðumar í enn meiri hnút. Uppgrip hjá trillusjómönnum TRILLUSJÓMENN á Suður- nesjum hafa setið einir að fisk- mörkuðum í vikunni og fengið gott verð fyrir aflann. Vegna sjómannaverkfallsins hefur afli þeirra verið nánast sá eini sem hefur verið í boði. Einnig hafa markaðsskilyrði verið hagstæð í Bandaríkjunum og hátt verð fengist fyrir fisk sem fluttur er þangað. Gott veður hefur verið á miðunum og veiði góð. Eldur í Þjóðminjasafninu ELDUR kviknaði í þaki Þjóð- minjasafnsins á miðvikudag efítr að glóð frá logsuðu hafði komist í þakklæðningu hússins. Eldurinn var slökktur á skammri stundu og húsið reyklosað. Eng- ar skemmdir urðu munum í safninu. Deilur um Sólheima í KJöLFAR deilna um fjárhags- vanda Sólheima í Grímsnesi á milli Péturs Sveinbjamarsonar, formanns fulltrúaráðs og fram- kvæmdastjómar Sólheima, og Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- málaráðherra samþykkti fulltrú- aráðið að skipa þriggja manna nefnd til þess að leita eftir lausn á deilunni. verkamaður forsetans fyrrver- andi flækti málið er hann hélt því fram daginn eftir að hann hefði hitt Gamsakhúrdía sprellif- andi á nýjársdag. Aspirín dregur úr myndun blóðtappa LITLIR skammtar af aspiríni koma að góðu gagni gegn sjúk- dómum í æðakerfinu og draga úr myndun blóðtappa, segir í breska læknablaðinu British Medical Joumal um nýja könnun á áhrifum lyfsins. Notkun þess getur minnkað líkur á hjarta- slagi um fjórðung hjá þeim sem þegar hafa fengið vægari hjartaáföll. Norðmönnum boðið tollfrelsi strax við inngöngu í EB EVRÓPUBANDALAGIÐ (EB) hefur boðið Norðmönnum toll- fijálsan markaðsaðgang fyrir fískafurðir frá og með þeim degi sem Noregur gengur í bandalag- ið, samkvæmt upplýsingum norska blaðsins Aftenposten. Fischer afþakkar 350 milljónir BOBBY Fischer hefur hafnað tilboði um fímm milljónir dala, jafnvirði 350 milljóna króna, í verðlaunafé fyrir skákeinvígi sem fyrirhugað er á milli hans og skákkonunnar Judit Polgar, að sögn spænska skákblaðsins Jaque. Fallast þýskir grænfriðungar á hvalveiðar? MARGIR frammámenn þýskra grænfriðunga telja ekki lengur stætt á því að halda kröfunni um algjört hvalveiðibann til streitu í ljósi þess að flestar hvalategundir era ekki Iengur í neinni útrýmingarhættu. I nýj- asta tölublaði vikuritsins Die Zeit kemur þetta fram og sagt að málið verði rætt á opinskáan hátt á alþjóðlegum fundi Gre- enpeace-samtakanna sem hald- inn verður í Þýskalandi í haust. VIKTORÍA II, gylta í Loddiswell á Bretlandi, gaut á fimmtudag 31 grís og er það Bretlandsmet en fyrra metið vora 30 grísir í einu goti. Á myndina vantar tvo af grísunum en þeim heilsast öllum ágætlega. Vetrarhörkur raska lífi í norðausturríkjunum New York. Reuter. VETRARHÖRKUR ríkja nú í norðausturrílqum Bandaríkjanna og höfðu a.m.k. fimm manns beðið bana í gær af völdum slyddu, fros- tregns og snjóa. Loka hefur þurft opinberum stofnunum og skólum. Einna verst er ástandið í Fíladelf- íu þar sem yfirvöld létu loka flestum opinberum stofnunum og opinberar samgöngur aðrar en starfsemi neð- anjarðarbrauta lögðust niður vegna frostregns og hálku. Neyðarástandi var lýst yfír vegna snjókomu en meðal vega sem lokuðust með öllu var þjóðvegur 95, helsta hraðbrautin á borgarsvæðinu. Strætisvagnaþjónusta í New Jers- ey lamaðist sömuleiðis í gær og fyrradag og hundruð árekstra urðu á glerhálum hrað- og safnbrautum við New York-borg. Víða Iágu bif- reiðar, ýmist á hvolfi eða hliðinni, sem hráviði á götum Nýja Englands. „Hér ríkir algjör ringulreið. Ástandið á vegum úti er vægast sagt hræðilegt," sagði lögreglumaður í Hartford í Connecticut. Miklar tafír urðu á flugsamgöngum á svæðinu frá Pennsylvaníu til Maine vegna snjóa eða ísingar á flugbrautum. Af ísraelar sleppa föngum Jórdan- ir semja við PLO Nahal Oz, Amman, Túnisborg. Reuter. ÍSRAELSK stjórnvöld leystu á föstudag úr haldi 101 palestínskan fanga til að greiða fyrir því að viðræðurnar við Frelsissamtök Palestínu, PLO, um hernumdu svæðin gangi greiðlegar. Fangarnir áttu aðeins eftir að af- plána nokkrar vikur í viðbót. ísraelar halda enn um 12.000 Palestínumönn- um í fangelsi fyrir ýsmar sakir, eink- um fyrir þátttöku í uppreisninni á hemumdu svæðnunum, intifada. Jórdanía og PLO gerðu í gær samning um efnahagssamstarf og gerir hann m.a. kleift að hefja á nú bankastarfsemi á Vesturbakkanum. Fulltrúar PLO þybbuðust lengi við og vildu ekki undirrita samninginn fyrr en búið væri að semja við Isra- ela um brottflutning heija af her- numdu svæðunum. Næsta Iota friðarviðræðnanna hefst á morgun í egypskum strandbæ. sömu sökum lokuðust tvær af fjórum flugbrautum Kennedy-flugvallarins í New York á föstudag. Hálfs metra djúpur nýfallinn snjór lá yfír Boston á föstudagskvöld og spáð var að dýptin yrði einn metri Samkvæmt útreikningunum tapast 1,4 milljarðar dollara vegna aukins kostnaðar í heilbrigðiskerf- inu við að gera að sáram þeirra sem fyrir vopnunum verða. Töpuð framleiðni vegna fjarvera særðra og fötlunar nemur 1,6 milljarði dollara á ári og árlegt efnahags- legt tjón vegna ótímabærs dauða er metið á 17,4 milljarða dollara á ári. Útreikningar við UCSF á efna- hagstjóni af völdum byssunotkun- ar eru hinir fyrstu sem gerðir era í Bandaríkjunum. Wendy Max hagfræðingur og helsti höfundur útreikninganna segir að þeir hafí verið gerðir af mikilli varfærni. Séu tölurnar líkast til of lágar og Viacom-Blockbuster bauð í gær 6,5 milljarða dollara í 50,1% hluta- bréfa í Paramount sem á samnefnt kvikmyndaver í Hollywood, Simon & Schuster og Prentice-Hall útgáfufyr- irtækin, New York Knicks horna- boltafélagið og New York Rangers ísknattleiksliðið. Áður höfðu eigendur Paramount tekið 5,5 milljarða tiíboði QVC-sam- þegar veðrið, sem ósköpunum í norð- austurríkjunum sex veldur, yrði geng- ið yfír seint í gærkvöld, laugardag. Þeir einu sem kætast yfír veðrinu era forstöðumenn skíðasvæða. Um- svif þeirra hafa ekki verið meiri í fjölda ára, en þar er mikil fönn og færi gott eftir mikið ofankafald í sex stóréljum frá jólum. gefí jafnvel ekki nógu rétta mynd af því efnahagstjóni sem byssan veldur í Bandaríkjunum. Útreikn- ingarnir byggðust á skýrslum frá 1985 en það ár hlutu 268.000 manns skotsár í Bandaríkjunum. Þar af létust 31.556 og 65.127 varð að dveljast langdvölum á sjúkrahúsi. Tilboð um að skila inn skotvopn- um og hljóta leikföng að verð- mæti 100 dollarar í staðinn varð til þess að 1.502 skotvopnum var skilað á tveimur síðustu vikum í Brooklyn-hverfínu í New York. Verða frekari tilraunir af þessu tagi gerðar í þeirri von að dragi úr meðferð skotvopna. steypunnar í New York í sömu hluta- bréf en frestur sem aðrir fjárfestar höfðu til að yfirbjóða QVC rann út á miðnætti á föstudagskvöld að stað- artíma í New York. Tilboð Viacom- Blockburster stendur til 21. janúar og samkvæmt ákvæðum sem gilda um tilboðin hefur QVC rétt til að svara því. Tjón vegna byssunnar 20 milljarðar dollara San Francisco, New York. Reuter. KOSTNAÐUR vegna skotvopna í Bandaríkjunum verður ekki að- eins mældur í mannslífum. Jafnframt hefur verið reiknað út við Kaliforníuháskólann í San Francisco (UCSF) að efnahagslegt tjón af völdum skotvopna nemi 20 milljörðum dollara á ári eða 1.460 milljörðum króna. Risar renna sam- an og vilja vaxa New York. Reuter. VIACOM-kapalsjonvarpsfyrirtækið og Blockburster-myndbandafyrir- tsekið voru sameinuð siðdegis a föstudag1. Sögðust forráðamenn hins nýja fyrirtækis ætla að skapa nýjan beljaka á heimsvísu með því að kaupa Paramount-kvikmyndafyrirtækið og það sem því fylgir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.