Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 Guðrún Emarsdóttir frá Hemru - Minning Fædd 17. júní 1914 Dáin 31. desember 1993 í sama mund og kirkjuklukkurn- ar hringdu út gamla árið barst fregnin um að æviskeið Guðrúnar Einarsdóttur væri á enda runnið. Á nýjársnóttina reikaði hugurinn víða og ýmsar myndir og minningar frá samfýlgd okkar í nær 40 ár komu fram í hugann. Við vorum tengdar fjölskylduböndum, hún gift elsta bróðurnum, ég þeim yngsta. Ég man vel hvenær ég hitti hana fyrst, “*■ það var á skemmtun hjá lögreglu- mönnum, vaktaball minnir mig að þeir lögreglubræður hafí kallað það. Mikið var konan hans Ólafs fín, falleg og myndarleg. Frá og með þessu kvöldi hófst vinfengi okkar, sem aldrei bar skugga á. Gott var að koma á Bergþórugöt- una, setjast í eldhúskrókinn og spjalla. Alltaf var mér tekið sem sérstökum aufúsugesti og ekki bara mér, öllum var tekið þannig. Þegar ég kom þarna fyrst var Jóhanna móðir Guðrúnar á heimilinu og syn- imir tveir á unglingsaldri. Fólkið stórt og íbúðin lítil en gjömýtt. Þar var samt sjálfsagður gististaður v fyrir ættingjana utan af landi í Reykjavíkurferðum. Þar sem er hjartarúm, þar er líka húsrúm. Það átti við um þau hjón bæði, þau voru höfðingjar heima að sækja, hjálpsöm og greiðvikin hver sem í hlut átti. Guðrún fæddist 17. júní 1914 í Hemru í Skaftártungu. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhanna Jóns- dóttir frá Hemru og Einar Bergsson bóndi á Mýrum í Álftaveri. Hann var mikill dugnaðarmaður. Einar drukknaði í Kúðafljóti 1918 aðeins rúmlega þrítugur. Þau hjónin eign- uðust son, Bjama, sem var ári yngri en Guðrún systir hans og ólst hann upp með móður sinni. Hann lést einnig á besta aldri, var skipvetji á togaranum Sviða sem fórst 1941. Guðrún ólst upp í Hemru hjá afa sínum og ömmu, þeim Hildi Vigfús- dóttur og Jóni Einarssyni hrepp- stjóra. Hún minntist þeirra oft og með ástúð og hlýju sem og Hemru og heimilisfólksins þar. Hún giftist 1939 Ólafi Guðmundssyni, sem lengi var lögregluþjónn hér í borg og margir þekkja. Seinna vann hann hjá Sjónvarpinu um árabil og var landvörður í Skaftafelli fyrstu árin eftir opnun þjóðgarðsins þar. Guðrún var þar líka og féll dvölin þar vel. Hún var félagslynd og þama hitti hún marga kunnuga og eignaðist góða vini. Eldri sonur þeirra hjóna er Bjarni Einar flugvirki. Kona hans er Guð- rún G. Árnadóttir. Elsta dóttir þeirra, Þorbjörg, er gift Óskari Syeinssyni. Þau eiga soninn Bjama. Næst í röðinni er Hildur, sem átti sérstakt rúm í hjarta ömmu sinnar, og yngst er Elín. Yngri sonurinn, Guðmundur, verslunarmaður, er alnafni afa síns, Guðmundar Ólafs- sonar frá Sörlastöðum, fyrrv. kenn- ara á Laugarvatni og víðar. Kona hans er María Ólafsdóttir. Böm þeirra eru Ólafur, Sigrún, gift Sig- þóri Einarssyni, og Björg. Ekki er ofmælt að segja að fjöl- skyldan var Guðrúnu eitt og allt. Ekkert skyldi til sparað sem stuðlað gæti að heill og hamingju fólksins hennar. Hún hafði mikinn metnað fyrir þeirra hönd, gladdist með þeim á góðum stundum og þjáðist með þeim er á móti blés. Guðrún var vel greind kona og mikil húsmóðir, snillingur í höndum og vandvirk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. En hún var heilsuveil lengst af ævinni og háði það henni mjög. Stuttu áður en þau Ólafur giftu sig veiktist hún mjög hastar- lega og þótti ganga kraftaverki næst að henni skyldi batna. Að hennar mati upphófst heilsuleysið þama. Það ágerðist svo með árun- um og segja má að síðsutu árin hafi verið samfelld þrautaganga. Æ sjaldnar prýddi hún fjöl- skyldusamverurnar okkar. En þeg- ar hún var með virtist hún ótrúlega hress, alltaf vel klædd, andlitið svo slétt og fallegt. Ég hafði oft orð á því hvað hún liti vel út eins lasin og hún væri og hún svaraði jafnan að ef hún treysti sér ekki til að vera eins og manneskja þá færi hún hvergi. Já, það er margs að minn- ast og ekki tök á því að tala um nema fátt eitt. En ég verð aðeins að nefna 17. júní. Þá var afmælis- dagur Guðrúnar og fastur liður í hátíðarhöldunum hjá okkur hjónum að setjast að hlöðnu veisluborði hjá Gunnu og Óla eftir að hafa verið í bænum. Lífið er ferðalag þar sem skipt- ast á skin og skúrir, en allar leiðir liggja heim. Og nú er Gunna mín komin heim. Efst í huga er þakk- læti fyrir samfylgdina og trygga vináttu og söknuður að samveru- stundirnar skyldu ekki verða fleiri. Sé hún kært kvödd. Megi góður Guð halda verndarhendi yfir fjöl- skyldunni hennar sem hún bar svo mjög fyrir bijósti, nú á nýju ári og um alla framtíð. Áslaug Eiríksdóttir. Á nýju ári kveðjum við Guðrúnu Einarsdóttur, frænku okkar. Hún lést á Landspítalanum í Reykjavík á síðasta degi gamla ársins, á áttug- asta aldursári. Þótt hún væri ekki bráðung í árum talið, þá var hugur- inn ungur og minnið óskert. Hún Guðrún var kona sem við vorum stoltar af að eiga að frænku og vinkonu. Hún var frænka sem ekki bara opnaði dyr sínar og heimili fyrir okkur, heldur einnig fang sitt og hjarta. íbúðin þeirra Gunnu og Óla á t Eiginmaður minn og faðir, JÖRGENSÖLVASON, lést 25. desember í Kaupmannahöfn. Jakobína Helgadóttir, Sölvi Sölvason. t Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA KRISTJANA KARLSDÓTTIR, andaðist á heimili sínu 5. janúar sl. Útför hennar verður gerð frá Kópavogs- kirkju miðvikudaginn 12. þ.m. kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á heimahlynningu Krabba- meinsfélagsins. Werner Rasmusson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR frá Hemru, Bergþórugötu 57, Reykjavík, er lést 31. desember sl., verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Skálatúnsheimilið í Mosfellsbæ. Ólafur Guðmundsson, Bjarni E. Ólafsson, Guörún G. Arnardóttir, Guðmundur Ólafsson, María Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Faðir minn, afi og langafi, MAGNÚS V. FINNBOGASON mag. art., Drápuhlíð 32, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hans, eru vinsamlegast beðnir að láta Krabbameinsfélag íslands eða aðrar líknarstofnanir njóta þess. Hjördís Magnúsdóttir, Kristín Anna Einarsdóttir, Guðmundur Örn Einarsson, Helga Einarsdóttir, Helga Hálfdánardóttir og barnabarnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, fóstur- faðir, afi og iangafi, ODDGEIR HJARTARSON, Hólmgarði 33, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. janúar kl. 13.30. Lilja Margrét Oddgeirsdóttir, Paul Oddgeirsson, Kristjana Gísela Herbertsdóttir, Markúsína Guðnadóttir, Erlingur Reinhold Herbertsson, Sonja Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLÍNU HÖGNADÓTTUR, sem andaðist á elliheimilinu Grund 29. desember sl., verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðnir. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á elliheimilið Grund eða Slysavarnafélag íslands. Unnur Hafdís Einarsdóttir, Sigurður Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar og móðursystir, RANNVEIG JÓNASDÓTTIR fyrrv. handavinnukennari, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 10. janúar kl. 13.30. Guðbjörg Jónasdóttir Birkis, Ásta Jónasdóttir, Regína Birkis, Svanhildur Bjarnadóttir. Bergþórugötunni er ekki stór, en hjartarýmið var mikið og gerði það að verkum að baminu sem þar kom fannst það stíga inn í stórhýsi. Við- tökumar vom á þann veg að barn- ið varð þátttakandi í ævintýri, þar sem allt gat gerst. Og við vorum ekki þær einu sem nutu gestrisni þeirra. Þeir voru margir sem áttu erindi á Bergþórugötuna og sóttu gleði og styrk til húsráðenda. Alúð og áhugi á gestinum var í fyrirrúmi. Þangað var alltaf svo hlýlegt og gott að koma, hvort sem var í gistingu, jólaboð til að spila púkk eða í kaffisopa og rabb, eftir þramm um Laugaveginn. Af þeim fundum fómm við jafnan léttar í lund, því hlýjan og glaðværðin sem einkenndu móttökurnar fylgdu okk- ur áleiðis. Gunna frænka fylgdist með upp- vexti okkar og gengi af áhuga frá fyrstu stundu. Það veitir börnum og unglingum styrk þegar þeir feta sig eftir torgengnum götum í átt til fullorðinsára að finna umhyggju og ástúð nákominna fylgja sér. Af sama áhuga spurði hún um börn okkar allt fram á síðasta dag, því ósjaídan tókum við upp tólið og skiptumst á fréttum. Með því móti héldust tengslin, þótt oft liði of langur tími á milli heimsókna. Við systur emm þakklátar fyrir að hafa átt hana Gunnu okkar að og kveðjum hana með söknuði. Eft- ir lifir minningin um glæsilega konu sem fegraði umhverfi sitt hvar sem hún kom með reisn sinni og virðu- leik. Við og fjölskyldur okkar sendum Olafí, Bjarna, Guðmundi og fjöl- skyldum þeirra hugheilar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að blessa minningu Guðrúnar Einarsdóttur. Brynhildur Anna og Þorgerður. ♦ Á gamlársdag, um það leyti sem landsmenn bjuggust til þess að fagna nýju ári, lést í Landspítalan- um í Reykjavík frænka mín, Guðrún Einarsdóttir. Guðrún fæddist í Hemru í Skaft- ártungu 17. júní 1914. Hún var dóttir hjónanna Jóhönnu Jónsdóttur frá Hemm og Einars Bergssonar frá Kálfafelli í Fljótshverfi er skömmu áður höfðu hafíð búskap á heiðarbýlinu Svartanúpi í Skaft- ártungu. Eftir tveggja ára búsetu í Svarta- núpi fluttust foreldrar hennar að Mýmm í Álftaveri. Fór mikið orð af búskap þeirra Jóhönnu og Einars fyrir dugnað og myndarskap. Ekki varð þeim þó langrar sambúðar auðið, því að Einar drukknaði í Kúðafljóti árið 1918 aðeins þijátíu og þriggja ára að aldri. Áuk Guðrúnar eignuðust þau hjónin soninn 'Bjarna er var ári yngri en hún. Guðrún ólst upp í skjóli afa síns og ömmu að Hemm og naut þar mikils ástríkis, bæði þeirra og síðar móðursystkina sinna, Guðrúnar og Valdemars, er þar tóku Við búi eft- ir foreldra sína. Jóhanna stóð fyrir búi á Mýrum um nokkurra ára skeið eftir fráfall manns síns en fluttist síðan með Bjarna son sinn út í Rangárvalla- Blomastofa FriÖfinns Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Simi 31099 Opíð öll kvöld til ki. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öil tiiefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.