Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 29 Þórður Þórðar son - Minning Fæddur 17. maí 1901 Dáinn 31. desember 1993 Um leið og gamla árið kvaddi okkur, kvaddi líka aldraður hafn- firskur heiðursmaður þessa veröld sem við lifum og hrærumst í. Það var jafnaðarmaðurinn og mannvin- urinn Þórður Þórðarson, fyrrverandi framfærslufulltrúi, verkstjóri og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Hann andaðist á St. Jósefsspítala á gaml- ársdag 1993. Þórður Þórðarson var fæddur í Ranakoti í Stokkseyrarhreppi 17. maí 1901. Faðir hans var Þórður Þorvarðarson, bóndi fyrst í Traðar- holti og síðar í Ranakoti. Þórður Þorvarðarson var mesti atgervismaður, gegndi m.a. störfum fjallkóngs og var fengsæll formaður, þegar hann fór að sækja sjóinn. Þórður Þorvarðarson kvæntist Guð- ríði Jónsdóttur frá Syðsta-Kekki og meðal bama þeirra var Valgerður, sem lengi var húsfreyja á Kolviðar- hóli, fræg fyrir myndarskap og gest- risni. Guðríður Jónsdóttir andaðist þeg- ar flest barna þeirra Þórðar Þorvarð- arsonar voru uppkomin. Eftir það bjó hann nokkur ár í Traðarholti með ráðskonu, en hún veiktist og lamaðist og hætti þá Þórður Þor- varðarson búskap þar. Aldamótaárið flytur Þórður Þor- varðarson að Ranakoti til Guðbjarg- ar Sigurðardóttur. Guðbjörg hafði verið gift Jóni Filipussyni og búið með honum í Uppranakoti. En þau hjónin skildu og fór Jón burt með eldri soninn, Guðjón, en yngri sonur- inn, Marsveinn, sem seinna átti heima í Hafnarfirði, var heima hjá Guðbjörgu móður sinni. Hann var þriggja ára, þegar þau Þórður og Guðbjörg tóku saman og hófu bú- skap í Ranakoti. Það var 27 ára aldursmunur á þeim Þórði og Guðbjörgu, hann fæddur 24. apríl 1840, hún fædd 12. september 1867. Þórður Þor- varðarson var því 61 árs þegar Þórð- ur sonur hans fæddist, en Guðbjörg 33 ára. Síðar -bættust tvær dætur í hópinn, Amdís og Guðrún. Guðbjörgu og Þórði, hjónunum í Ranakoti, kom vel saman þrátt fyrir aldursmuninn. Hún var forkur dug- leg, en hann var orðinn slitinn og heilsan farin að bila. Þórður Þórðar- son var aðeins fimm ára, þegar hann missti föður sinn. Það var á sjálfa jólanóttina 1906. Þessi jólanótt greyptist í huga hins fimm ára sveins og mörgum áratugum síðar rifjar Þórður Þórðarson upp þessa at- burði. Hann segir svo frá: „Faðir minn var fremur lasinn á það var þessi miklá samviskusemi og iðni, sem einkenndi hana alla tíð. Hún var ánægð með að vera innan um fólk og vann í raun miklu lengur en hún hafði heilsu til. Hún datt í vinnunni og slasaðist illa. Braut tvo hryggjarliði og bar í rauninni aldrei sitt barr eftir það. Enginn nema sá sem reynir veit hvað það er að vera sífellt með sárar kvalir, en þannig var líf Veigu síð- ustu þrjú árin. Hún léttist um 20 kg og var í raun skuggi af sjálfri sér. Svo núna síðustu mánuði færðist hún öll í aukana, fékk aftur áhuga á ýmsu sem hún hafði aflagt. Heilsan virtist mun betri, allt var bjartara framundan. Hún ráðgerði meira að segja ferðalög. Þá kom kallið, sem við öll vitum af, en fæstir búa sig undir. En það gerði Veiga, henni var vel ljóst, eftir endurtekin hjartaáföll og króníska lungnaveiki, að hún gat farið hvenær sem var. Gekk frá öllum sínum mál- um á besta veg. Var tilbúin bæði andlega og veraldlega. Gamla sam- viskusemin var söm við sig. Afkomendur Veigu og Einars eru nú 15. Ég og fjölskylda mín sam- hryggjumst þeim öllum og óskum þeim um leið til hamingju með að eiga aðeins góðar og fallegar minn- ingar um þau bæði. Blessuð sé minning þín. Unnur Konráðs. aðfangadaginn. Jón hálfbróðir minn kom — hann bjó í Traðarholti með Margrétu móður Friðriks Bjarnason- ar tónskálds og þeirra bræðra. Ekki man ég til að hann kæmi með neinn glaðning til okkar bræðranna. Um kvöldið kom til okkar gamall maður, sem bjó á næsta bæ fyrir austan vatnið, Hraunhlöðu, sem hef- ur ranglega verið skírð Hraukhlaða. Hann hét Kristján Hreinsson. Við Marsveinn vorum komnir upp í og vorum í rúmi fyrir aftan mömmu rúm, en Dísa systir svaf hjá henni. Faðir okkar lá í rúmi þar á móti. Ég hafði verið vanur að sofa hjá föður mínum, sem hafði hið mesta dálæti á mér og kallaði mig „litla félaga". Kristján sat fyrir framan okkur bræðurna og vaggaði Guð- rúnu. Þá segir hann við mömmu: „Ég sé að hveiju vindur. Þú hleypur aust- ur eftir, þegar allt er afstaðið." Fað- ir minn þakkaði honum fyrir. Við Marsveinn skildum um hvað var að ræða, fórum að orga og sofn- uðum út frá því. Við vöknuðum ekki fyrr en um morguninn og þá segir Marsveinn: „Nú er pabbi dáinn.“ Við sáum að það var búið að taka allt úr rúminu. Móðir mín hafði setið á rúm- stokknum hjá föður mínum löngu eftir að við bömin vomm sofnuð. Hún hafði hallað sér út af og sofnað stundarkorn. Þegar hún vaknaði, virtist henni faðir minn vera með hressasta móti. Hún spurði, hvort það væri ekki rétt að hún færi fram og hitaði kaffi- sopa. Hann tók létt undir það. Hún fór og kom aftur með kaffíð. Rétt á eftir var eins og hann næði eki andanum og að stundu liðinni var hann örendur. Hún bað guð að gæta barnanna, sem öll sváfu — það elsta nýlega orðið níu ára, það yngsta mánaðar- gamalt. Hún hljóp austur að Hraun- hlöðu, í blindbyl um miðja nótt. Allt var á hjami og vatnið lagt. Það er ekki langt austur að Hraunhlöðu, en það hefur aldrei getað liðið skemmri tími en hálf klukkustund þar til hún var komin aftur og Kristján með henni. Þau gengu frá öllu eins og þurfti. En svo fast sváfum við krakkarnir, að ekkert okkar rumskaði. — Þetta var jólanótt, sem ekki gleymist." Þórður Þórðarson fékk því snemma að kenna á hörðum lífskjör- um og erfiðri lífsbaráttu. Marsveinn, níu ára, Þórður, fímm ára og Arn- dís, tveggja ára, vom áfram hjá móður sinni og aðstoðuðu hana eftir megni við búskapinn. En Guðrún litla fékk skjól hjá Höllu móðursyst- ur sinni á Stokkseyri. Ekkjan vildi ekki hætta að búa, því að þá hefðu börnin farið hvert í sína áttina. Hún var kjarkmikil og hamúr dugleg. Fjölskyldan stóð fast saman og barðist hörðum höndum fyrir lifibrauði sínu. Hver og einn gerði það sem hann orkaði og með samheldni og dugnaði tókst þeim að vinna fyrir sér, halda heimilinu saman. En það segir sig sjálft, að oft var lífsbaráttan hörð og krafðist ein- beitni, dugnaðar, lífsvilja og trúar. Þannig var lífíð sem mótaði Þórð Þórðarson og gerði úr honum þann manndómsmann, sem einkenndi hann alla ævi. Það var þessi lífsreynsla, lífskjör og umhverfi, ásamt þeim góðu eigin- leikum er honum voru gefnir í vögg- ugjöf, sem mótaði og myndaði skap- gerð hans og lífsviðhorf, blés honum mannúð í bijóst, ræktaði réttlætistil- fínningu hans, lét hann dreyma um betra þjóðfélag, þar sem heiðarleiki, manngöfgi og jafnrétti réði ríkjum. Það var engin tilviljun að hann gerð- ist jafnaðarmaður, eins og þeir ger- ast bestir. Um fermingu er Þórður kominn til Vestmannaeyja á vertíð, fyrst í aðgerð, síðan á bát, fyrst sem há- seti en er orðinn happasæll formaður áður en mörg ár líða. Tuttugu og tveggja ára er Þórður Þórðarson orðinn verkstjóri við Flóaáveituna og gegndi því starfi meðan það verk stóð yfír. Þá var hann vegavinnuverkstjóri um skeið og vörubílaakstur stundaði hann um hríð á Stokkseyri. Hinn 20. júlí 1929 kvæntist Þórð- ur Arnþrúði Grímsdóttur. Arnþrúður var fædd 30. maí 1905, dóttir hjón- anna Helgu Þorsteinsdóttur og Gríms Bjamasonar, sem bjuggu að Nýborg á Stokkseyri. Vorið 1930 fluttu þau hjónin til Hafnarfjarðar með Sigurð, elsta son sinn, á fyrsta ári. Og í Hafnarfirði áttu þau heima allt til æviloka. Heimili þeirra einkenndist af rausn og myndarbrag. Þau hjónin studdu hvort annað í blíðu og stríðu og önnuðust böm og heimili samhuga og samhent. Börnin urðu þtjú talsins, Sigurð- ur, f. 14. september 1929, Þorgrím- ur Trausti f. 4. nóvember 1930 og Guðbjörg Hulda f. 18. febrúar 1933. Þórður og Arnþrúður áttu barnaláni að fagna og eiga nú marga afkom- endur, sem eru hið mesta myndar- fólk. Amþrúður Grímsdóttir lést 14. apríl 1985 og hafði þá átt við veik- indi að stríða í allmörg ár. Starfsferill Þórðar Þórðarsonar er mikill að vöxtum, fjölþættur og stendur víða. Hann gegndi margvís- legum verkum fyrir Hafnarfjarð- arbæ, var þar verkstjóri, fram- færslufulltrúi, bæjarfulltrúi, auk þess að starfa í fjölmörgum nefndum á vegum bæjarfélagsins. Öll þessi störf annaðist Þórður af nærfærni og trúmennsku, sem félagar hans og skjólstæðingar kunnu vel að meta. Þórður Þórðarson var skapríkur en félagslyndur maður og störf hans á sviði félagsmála eru hreint ótrúleg að vöxtum. Hann var afburða hjálp- samur, velviljaður og vinmargur, raungóður og réttsýnn, duglegur og drenglyndur og mátti ekki vamm sitt í neinu vita. Það kom því eiginlega af sjálfu sér, að slíkur maður hlaut að skipa sér í raðir alþýðuflokksmanna og verða þar einn af traustustu og ötu- lustu liðsmönnum í baráttunni fyrir jafnaðarstefnunni, beita sér fyrir rétti lítilmagnans og gegn órétti og forréttindum þeirra sem meira máttu sín. Þar var hugurinn hiklaus og hjartað með í verki. Þórður Þórðarson var formaður Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar um langt árabil, var fulltrúi á fjöl- mörgum Alþýðuflokksþingum og fáir voru jafningjar hans við að vinna fólk til fylgis við Alþýðuflokkinn og jafnaðarstefnuna, ekki síst þegar kosningar fóru í hönd. Það munaði um hann í kosningabaráttunni. Það var því vel við hæfí, þegar hann var gerður að heiðursfélaga í Alþýðu- flokknum. Þórður var félagi í Verkamanna- félaginu Hlíf, gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, var m.a. formaður félagsins árin 1935, 1936 og 1938. Hann þekkti örbirgð og réttleysi verkafólksins á þeim árum. Hann vildi leggja hönd á plóginn og ryðja brautina fyrir afkomuöryggi og rétt- indum hins vinnandi manns. Hann lá ekki á liði sínu í þeirri baráttu. Félagar hans í verkalýðshreyfing- unni vottuðu honum virðingu sína og traust með því að gera hann að heiðursfélaga í Hlíf. Verkstjórafélagið naut krafta Þórðar og var hann formaður þar í nokkur ár. Og þar sem annars stað- ar kunnu menn að meta Þórð og störf hans. Hann var gerður að heið- ursfélaga þess félags. Þórður Þórðarson var mikill dýra- vinur og sýndi það bæði með orðum og athöfnum. Hann fylgdist grannt með því að húsdýrahald í Hafnar- firði væri með þeim hætti að sómi væri að, bæði hvað snerti aðbúnað og fóður. Og fuglarnir á læknum voru góðvinir Þórðar og þáðu frá honum margan brauðbitann. Þetta kunni Dýraverndunarfélag Hafnfírð- inga að meta, þegar það gerði hann að heiðursfélaga sínum, en hann var forseti þess félagsskapar frá árinu 1953 og allt til dauðadags. Samvinnumaður var Þórður og átti sæti í stjórn Kaupfélags Hafn- fírðinga í mörg ár. Hann gegndi forystu og stjórnarstörfum í Bygg- ingarfélagi alþýðu og hann tók þátt í starfí Krabbameinsfélagsins í Hafnarfirði og var þar í stjórn um árabil, svo að eitthvað sé nefnt. Þórður Þórðarson var einlægur trúmaður og gegndi ýmsum trúnað- arstörfum á vegum kirkjunnar. Hann var í stjórn kirkjugarðanna, var kirkjuvörður og meðhjálpari. Margir munu lengi minnast Þórðar í kirkjunni við meðhjálparastörfín, virðulegur, hátíðlegur og hjartahlýr öldungur. Við, alþýðuflokksmenn og aðrir samferðamenn Þórðar Þórðarsonar, eigum honum margt að þakka. Vin- áttuna, baráttugleðina, hjartahlýj- una, æðruleysið, áhugann á að ryðja góðum málefnum brautina, en allt var þetta svo einkennandi fyrir Þórð Þórðarson. Hann hefur nú kvatt að loknu góðu dagsverki. Minningin um hann er okkur jafnaðarmönnum í Hafnar- fírði góð fyrirmynd. Mennimir deyja en verkin lifa. Vinir drúpa höfði í virðingu og þökk. Ástvinum Þórðar Þórðarsonar, afkomendum hans, tengdafólki og vinum sendi ég samúðarkveðjur. Guð blessi góðan dreng. Guð blessi minn- ingu Þórðar Þórðarsonar. Hörður Zóphaníasson. Fallinn er frá Þórður Þórðarson fyrrverandi framfærslufulltrúi og verkstjóri hjá Hafnarfjarðarbæ. Þórður lifði tímana tvenna — var fæddur rétt eftir aldamótin og því 92 ára gamall þegar kallið kom á gamlársdag. Hann kom því að ís- lensku samfélagi með margvísleg- um hætti frá einum tíma til annars á þessari öld. Og var oft mótandi um gerð umhverfisins — samfélags- ins — í störfum sínum að stjórnmál- um og félagsmálum. Það er óhætt að fullyrða að með Þórði er genginn einn traustasti liðsmaður Alþýðuflokksins í Hafn- arfírði. Um áratugaskeið var Þórður vakandi og sofandi í baráttunni fyrir betra samfélagi, auknum jöfn- uði og réttlæti. Og taldi alla tíð að kraftmikill og sterkur Alþýðuflokk- ur væri nauðsynlegur til að koma þessum háleitu markmiðum áfram. Þórður Þórðarson gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðuflokkinn. Hann var bæjarfull- trúi og sat í ýmsum nefndum og ráðum fyrir flokkinn frá einum tíma til annars. Og þótt árin færðust yfir hann breyttist ekki hinn mikli áhugi Þórðar á framgangi jafnaðar- stefnunnar og hann var ævinlega boðinn og búinn til að veita Alþýðu- flokknum lið. í síðustu bæjarstjórn- arkosningum í Hafnarfirði sat Þórð- ur í heiðurssæti á lista flokksins, þá 89 ára gamall. Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði og víðar sjá nú á bak traustum og góðum forystumanni. Það er svo margt að þakka að leiðarlokum. Og svo margs að minnast. Þórður var málafylgjumaður og gaf sig ekki í orðræðum. Var fastur fyrir og trúr sínum hugsjónum. Hann kallaði hlutina sínum réttu nöfnum. Andstæðingar í pólitík hrukku oft undan beittum brandi hans — hin- um kynngimagnaða málflutningi. Á hinn bóginn var hann svo ljúfur og mildur í umgengni og hvers manns hugljúfi. Stuðningur hans við þá sem minna mega sín í samfélaginu segir þá sögu alla. Ekki síður for- ysta hans í Dýraverndunarfélagi Hafnarfjarðar, þar sem hann gegndi formennsku um langt árabil. Eg sendi eftirlifandi ættingjum og vinum Þórðar Þórðarsonar hug- heilar samúðarkveðjur að leiðarlok- um. Við Hafnarfjarðarkratar mun- um minnast Þórðar Þórðarsonar og merkra starfa hans fyrir Alþýðu- flokkinn og Hafnarfjörð. Hvíli hann ífriði. Guðmundur Árni Stefánsson. Fallinn er frá sæmdarmaðurinn Þórður Þórðarsson, fyrrum bæjar- fulltrúi hér í Hafnarfirði. Þórður gegndi fjölmörgum trún- aðarstörfum fyrir Hafnarfjarðarbæ. Hann var bæjarfulltrúi 1962-66, en hafði áður setið í bæjarstjóminni sem varabæjarfulltrúi 1959-1962. Þórður var lengi framfærslufulltrúi bæjarins og sinnti hann því starfi af einstakri alúð og samviskusemi, þannig að enn þann dag í dag eru _ menn að minnast starfa hans í þágu þeirra sem minna máttu sín. Þeim sem þekktu Þórð kom ekki á óvart hversu vel hann vann starf sitt sem framfærslufulltrúi, því Þórður var einlægur jafnaðarmaður og hafði óbilandi trú á stefnu jafnaðarmanna. Til eru margar sögur af því hversu vel Þórður brást við erindum lítil- magnans og oft veitti hann fé úr eigin vasa til að létta undir með þeim sem á aðstoð þurftu að halda. Af öðrum trúnaðarstörfum sem Þórður vann hér í bæ má nefna að hann sat í stjórn Byggingarfélags alþýðu í fjölda ára, var formaður stjórnar verkamannabústaða 1971- 1975. Of langt mál yrði að telja hér upp öll þau störf er Þórður sinnti, en hann var einstaklega vinsæll starfsmaður og kom víða við. Ég kynntist Þórði persónulega þegar ég ungur gekk í raðir félags ungra jafnaðarmanna, en þá var hann formaður Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar og stýrði hann því félagi af þeirri festu sem honum ein- um var lagið. Seinna áttum við sam- an marga stundina í flokksbarátt- unni og það var gott að hafa Þórð með sér í kosningaslag, því þar fór maður sem þekkti flesta bæjarbúa v og maður sem Hafnfirðingar báru traust til. Nú er lokið dagsverki Þórðar Þórðarsonar og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka honum fyrir hönd bæjarbúa öll hans störf í þágu bæjarfélagsins, en þau voru öll unn- in af alúð og hjartahlýju. Bæjarbúar minnast mikilshæfs manns með þökk í hjarta. Fjölskyldu Þórðar Þórðarsonar eru hér sendar innilegustu samúð- arkveðjur. Ingvar Viktorsson. Við systkinin í Háukinn nutum þeirra forréttinda fram yfir önnur barnabörn ömmu og afa, þeirra Arn- þrúðar Grímsdóttur og Þórðar Þórð- arsonar, að foreldrar okkar byggðu með þeim íbúðarhús og bjuggu amma og afi á efri hæðinni og mamma og pabbi á þeirri neðri. Þetta varð til þess að við ólumst upp með ömmu og afa í sama húsi og var mikill samgangur á milli hæða. Að leiðarlokum kemur margt upp í hugann frá æsku okkar. Til dæmis laumuðumst við oft til að athuga hvað væri í matinn á efri hæðinni áður en við settumst að borðum á þeirri neðri og endaði það stundum þannig að við borðuðum hjá ömmu og afa, ef okkur leist betur á matinn þar. ♦ - Við munum öll eftir því hvað afi var duglegur að segja okkur sögur og lesa fyrir okkur á kvöldin, þegár við áttum að fara að sofa og alltaf endaði hann þessar sögustundir með því að lesa með okkur bænirnar. Síðar kenndi hann okkur sjálfum að lesa. Ekki munum við heldur gleyma þeim mörgu ferðum sem við fengum að fara með afa upp í kartöflugarð til þess að hjálpa honum eins og það var kallað af okkur, þó að hjálpin hafi mest verið í því fólgin að borða með honum nestið sem amma hafðL útbúið til ferðarinnar. Afí var mikili dýravinur og lagði mikla áherslu á að við myndum eftir að fóðra fugl- ana á veturna og hjá honum gátum við alltaf fengið hvort sem var brauð handa öndunum eða korn handa smáfuglunum. Að lokum viljum við þakka fyrir að hafa notið handleiðslu og góðrtu samverustunda með afa. Guð blessi minningu hans. Systkinin Háukinn 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.