Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐJÐ SUNNUDAGUR 9. JANUAR 1994
NATO fetar sig í tóma-
rúm íyrrverandi leppríkia
Boga Mr Arason
ÞEGAR leiðtogar NATO-ríkjanna
setjast á rökstóla í Brussel á
mánudag bíður þeirra eitt erfiðasta
úrlausnarefni
Atlantshafsbandalagsins frá
stofnun þess árið 1949. Eitt helsta
umræðuefnið verður hvernig
skilgreina eigi hlutverk
Atlantshafsbandalagsins í
framtíðinni nú þegar sameiginlegur
óvinur aðildarríkjanna, Sovétríkin
og kommúnísku leppríkin, er liðinn
undir lok. Þá verða leiðtogarnir að
gera upp við sig hvort heimila eigi
aðild fyrrverandi kommúnistaríkja
í Mið- og Austur-Evrópu að
bandalaginu og hvernig fylla eigi
upp í tómarúmið sem skapast hefur
í öryggismálum grannríkja
Rússlands án þess að ögra rússneska
birninum og hætta á að kalt stríð
blossi upp að nýju.
Boðað var til leiðtogafundarins fyrir hálfu
ári að frumkvæði Bandaríkjaforseta,
sem hugðist setja framtíð NATO á oddinn í
upphafí þessa árs. Helstu markmiðin voru
að skilgreina hlutverk bandalagsins eftir lok
kalda stríðsins, að greiða fyrir inngöngu
LEIÐTOGAFUNDUR NATO
Leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins efna til fundar í Brussel á mánudag og þriðjudag og búist
er við að þeir hafni beiðni Mið-Evrópuríkja um að fá inngöngu og tryggingar í öryggismálum bráðlega og
staðfesti stuðning sinn við Borís Jeltsín Rússlandsforseta
HELSTU UMRÆÐUEFNIN
„Friðarsamvinna"
Áætlun um tvíhliða samninga um samvinnu I
varnarmálum við fyrrverandi austantjaldsriki og
óháð Evrópuríki, Leiðir ekki sjálfkrafa til aðildar
að NATO en gæti greitt fyrir henni síðar.
Þróunin í Rússlandi og áhrif þjóðernissinnans
Vladímírs Zhírfnovskíjs.
i
Evrópuríki taki á sig meiri kvaðir innan NATO.
Bandalagið veiti Vestur-Evrópusambandinu
aðgang að mikilvægum hernaðarlegum eignum
á hættutímum. Sveigjanlegri yfirstjórn til að
auðvelda ný verkefni, svo sem friðargæslu á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Hættan á útbreiðslu kjarnavopna, efna- og
Æi sýklavopna, einkum vegna hruns Sovétríkjanna
“•^" tyrrverandí.
\ Fyrrverandi lýðveldi Júgóslaviu. NATO hefur
j boðist til að framfylgja friðaráætlun í Bosníu verði
’ hún undirrituð.
heimsótti Borís Jeltsín Rússlandsforseti Pól-
vetja og Tékka og sagði að hann hefði ekk-
ert á móti því að þeir gengju í Atlantshafs-
bandalagið. Nokkrum vikum síðar kúventi
hann hins vegar og sagði að Rússar gætu
ekki sætt sig við að NATO stækkaði í aust-
ur, að öllum líkindum vegna þrýstings frá
rússneska hernum, sem lítur enn á NATO
sem ógnun við öryggi Rússlands. Jevgení
Prtmakov, yfírmaður rússnesku leyniþjón-
ustunnar erlendis, varaði við því að ef Mið-
Evrópuríkin gengju í NATO neyddust Rússar
til að grípa til hernaðarlegra gagnaðgerða.
Rússar sögðu ennfremur að þegar Varsjár-
bandalagið leið undir lok hefði þeim verið
talin trú um að Atlantshafsbandalagið yrði
einnig lagt niður eða því
gjörbreytt.
Mikið fylgi þjóðernis-
sinnans Vladímírs Zhír-
ínovskíjs í þingkosningun-
um 12. desember jók
vanda Bandaríkjamanna
og NATÖ. Margir af emb-
ættismönnum Clintons litu
svo á að stækkun NATO
í austur yrði vatn á myllu
Zhírínovskíjs og græfi
undan Borís Jeltsín.
Bandarikin og Kanada em einnig ÍNATO
REUTER
nokkurra fyrrverandi kommúnistaríkja í Mið-
Evrópu og fá Frakka til að taka þátt í hernað-
arsamstarfinu innan NATO.
Þriðja markmiðið virðist ætla að nást að
hluta, því Frakkar hafa ákveðið að senda
varnarmálaráðherra sinn og æðsta yfirmann
hersins á fundi bandalagsins í fyrsta sinn í
28 ár. Ólíklegt er hins vegar að framtíð
bandalagsins ráðist á fundinum og ljóst er
að ákvörðun um Ijölgun aðildarríkjanna verð-
ur frestað.
Skömmu áður en boðað var til fundarins
Samvinna í þágu friðar
Búist er við að leiðtogar
NATO-ríkjanna gefi út al-
menna yfirlýsingu um að
aðildarríkjunum kunni að
fjölga einhvern tíma í
framtíðinni, en án þess að
nefna lönd eða tilgreina
hvenær af inngöngunni
geti orðið.
Þess í stað bjóða leiðtog-
arnir öllum kommúnista-
ríkjunum fyrrverandi svo-
kallaða „Friðarsamvinnu“,
tvíhliða samninga um náið
hernaðarsamstarf, svo
sem sameiginlegar heræfingar, þjálfun her-
manna til friðargæslu og annarra verkefna,
sameiginlegar varnaráætlanir og endurnýjun
vopna- ogtækjabúnaðar í samræmi við staðla
NATO.
Með því að bjóða öllum ríkjunum slíka
Líkomsrækl fyrir venjulegl fólk
- konur 09 kcirlci
Monoðorkort oðoins kr. 3.900
100% órongur
6 vikno íitubronnslunámskoið hoíst 1 1. jon.
Vikulog viktun og íullkomin íitumæling
Tokmorkoð pláss - pantið strox
100% árangur
og góð persónuróðgjöf
Sími 678835
Rögnu Bachmann,
Gym húsinu, Suöurlandsbraut 6,
símar 678835, 678383,
hs. 13066
tocdi&