Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 framtíð Islands eftir Guöna Einarsson ■ LÍFRÆN ræktun og heilsufæði hefur ver- ið vaxandi þáttur í lífsstíl undanfarinna ^^^^^^ugmyndin um að maðurinn sé það sem ■ _ hann neytir fékk byr undir báða vængi á 6. og 7. áratugnum. Áhugi á náttúru- legri fæðu og lífrænni (organic) tengd- ist afturhvarfi hippa og langþreyttra borgarbúa til náttúrunnar og einfalds lífernis. Lífræn rækt- un efldist til mótvægis við sívaxandi notkun tilbú- ins áburðar og skýföll af skordýraeitri á þrautp- ínt akurlendi. Framleiðsla landbúnaðarafurða er orðin mjög tæknivædd á Vesturlöndum. Fram- leiðslugetan er víða keyrð upp með líftækni og lyfjagjöf, en afurðimar bera þess merki. Bragð- gæði tapast, varan endist verr en ella og notkun vaxtaraukandi hormóna við kjötframleiðslu setur mark sitt á útlínur neytenda. Verslanir sem seldu náttúruvörur og heilsu- fæði spruttu upp. Vöxtur þessarar verslunar- greinar virtist engan enda ætla að taka í þrjá áratugi, meðal annars vegna þess að viðskiptin færðust æ meir úr almennum heilsuvörum yfir í lífrænt r.æktaðar og vistvænar afurðir. Nú er svo komið að heilsufæða er vart markaðshæf nema hún sé framleidd með lífrænum aðferðum. Eftir 30 ára vaxtarskeið heilsubúða varð skyndileg stöðnun í upphafi þessa áratugar. Tal- ið er að þá hafi einfaldlega verið komið að endi- mörkum vaxtarins, það er að ekki hafi verið til nýir kaupendur sem vildu leggja á sig auka erf- iði við að leita uppi heilsubúðir og borga hærra en almennt markaðsverð fyrir lífrænar vörur. Sömuleiðis var ljóst að óhagkvæmur rekstur litlu verslananna stóðst ekki harðnandi samkeppni af hálfu stórmarkaða. Sala heilsufæðis og náttúru- fæðu hefur í vaxandi mæli færst inn í stórmark- aði, sem bjóða upp á þessar vörur í bland við aðrar. Allar stórmarkaðakeðjur í Bretlandi bjóða nú upp á matvörur framleiddar með lífrænum aðferðum, einkum ávexti og grænmeti. Hér á landi bjóða margar stórverslanir upp á gott úr- val af vistvænum og jafnvel lífrænum matvörum. Hærra verð en á almennum matvælum og óstöðugt framboð lífrænna og vistvænna afurða eru helstu þröskuldarnir í vegi markaðssetningar í dag. Það hefur reynst erfitt að bjóða lífrænar vörur, einkum ferskvörur, allan ársins hring. íslenskur landbúnaður og lífrænar vörur ára. Þrátt fyrir þá ógn sem sumir telja heilsubylgjunni stafa nú af vaxandi nautna- hyggju álíta aðrir að miklir vaxtarmögu- leikar séu í framleiðslu og sölu vistvænna og lífrænna afurða. ísland er tiltölulega hreint og ómengað land. Að mati erlends sérfræðings, Carl Haest, eiga íslensk mat- væli góða möguleika á mörkuðum lífrænna og vistvænna matvæla í heiminum. Samtök íslenskra bænda, landbúnaðarráðu- neytið og stofnanir landbúnaðarins settu í nóvem- ber síðastliðnum á fót starfshóp sem falið var að kanna markaðsmöguleika íslenskra matvæla erlendis á forsendum hollustu, hreinleika og gæða. Baldvin Jónsson var ráðinn erindreki starfshópsins en hann var þá kominn í kynni við IFOAM, alþjóðleg samtök framleiðenda lífrænna afurða. Meira en 500 stofnanir, samtök, framleið- endur, söluaðilar og einstaklingar í 85 löndum eiga aðild að IFOAM. Hlutverlr samtakanna er að vera alþjóðlegur vettvangur þeirra sem vinna að lífrænni ræktun. IFOAM stuðlar að rannsókn- um, menntun og þjálfun, skoðanaskiptum meðal félagsmanna og fræðslu fyrir almenning. Loks vinnur IFOAM að samræmingu alþjóðlegra staðla um ræktun, framleiðslu og sölu lífrænna afurða. Morgunblaðið/RAX Haldnar eru vísindaráðstefnur annað hvert ár, til skiptis í ólíkum heimshlutum. IFOAM gegnir ráðgjafahlutverki fyrir Sameinuðu þjóðirnar, FAO, WHO, EB og fleiri alþjóðastofnanir. Enn sem komið er á Baldvin Jónsson einn íslendinga beina aðild að IFOAM. Hann sótti ráðstefnu samtakanna, sem haldin var í Balti- more í haust, og hitti þar marga áhrifamenn í framleiðslu og markaðssetningu lífrænna og vist- vænna afurða. Fulltrúar samtakanna komu hingað í ’septem- ber síðastliðnum og áttu fund um lífræna ræktun með Mýrdælingum. Sú heimsókn þótti mjög gagnleg og varð upphaf að nánari samvinnu við IFOAM. í framhaldi af því var ákveðið að bjóða Carl Haest hingað til lands og er þetta er önnur heimsókn hans til landsins. Haest dvaldi hér í liðinni viku og heimsótti ýmsa framleiðendur landbúnaðarvara og stofnanir landbúnaðarins ásamt Baldvin Jónssyni og Arnaldi Bjarnasyni formanni starfshópsins. Carl Haest er í forystusveit þeirra sem vinna að aukinni framleiðslu og markaðssetningu líf- rænna matvara í heiminum. Haest er Hollending- ur en hefur búið lengi í Belgíu. Sjálfur neytir hann náttúrulegrar fæðu og er mikill áhugamað- ur um vistvæn og lífræn málefni. Hann hefur veitt forstöðu fyrirtækjum sem bæði framleiða og selja vistvænar og lífrænar afurðir. Þá hefur hann verið forseti samtaka belgískra framleið- enda og dreifenda slíkra vara og gjaldkeri IFO- AM. Nú um stundir er mestum tíma hans varið við ráðgjafarstörf meðal annars fyrir stórmarkað- akeðjurnar DELHAIZE í Belgíu og Tengelmann í Þýskalandi auk viðskipta- og landbúnaðarráðu- neytis Argentínu. Fjallalömb og grænmeti Áætlað er að lífrænar afurðir nemi nú einung- is um 1% af matvörumarkaði Evrópu en velta samt yfir 300 milljörðum íslenskra króna á ári. Haest telur raunhæft að ætla að lífræn fram- leiðsla verði að jafnaði um 5% af alþjóðlegum matvælamarkaði á næstu 5 árum. I einstökum vörutegundum, til dæmis grænmeti á borð við kartöflur, gulrætur og rófur, er markaðshlutdeild í stórmörkuðum nokkurra nágrannalanda okkar nú þegar um 10%. Lífrænar mjólkurvörur hafa jafnvel hærri markaðshlutdeild. Carl Haest var búinn að heimsækja nokkur íslensk matvælafyrirtæki þegar blaðamaður hitti hann og Baldvin Jónsson. Hvernig leist gestinum á það sem hann hafði séð? „Ég hef fengið stað- festingu á því sem ég hafði gert mér í hugar- Iund,“ sagði Carl Haest. „Framleiðslukerfi mat- vælaiðnaðarins eru mjög fullkomin og afköstin ekki á kostnað gæðanna. Islendingar bera skyn- bragð á gæði eins og hér má sjá á öllum sviðum, ekki bara þeim sem lúta að matvælum. Þið haf- ið gott hráefni, sem er grundvöllur góðrar fram- leiðslu. Það er ekki þar með sagt að þið fáið umsvifalaust vottorð um að afurðirnar teljist líf- rænar. Ýmsu þarf að breyta til að svo geti orð- ið, þó mismiklu eftir framleiðslugreinum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.