Morgunblaðið - 09.01.1994, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIVIA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
37
ATVINNUA UGL YSINGA R
Ferðamálafulltrúi
Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja aug-
lýsir starf ferðamálafulltrúa á Suðurnesjum
laust til umsóknar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist stjórn Ferðamálasamtaka Suð-
urnesja, Hafnargötu 12, 230 Keflavík, fyrir
24. janúar nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
samtakanna í síma 92-15575, hjá Krist-
birni Albertssyni, formanni, sími 92-12934
og Jónínu Guðmundsdóttur, sími 92-12806.
Lögfræðingur
Lögfræðingur óskar eftir starfi strax.
Margt kemur til greina.
Hef reynslu af innheimtu og uppgjörsmálum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„L - 14762, fyrir 18. janúar.
„Au-pair“/ráðskona
í Connecticut, USA
MIÐSTÖÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870 880
Opið hús í Breiðholtskirkju, Mjódd, mónudaga kl. 12-15
og safnaðarheimili Dómkirkjunnar fimmtudaga kl. 12-15.
Á DAGSKRÁ
mánudaginn lO.janúarkl. 13.00:
Opið hús i upphafi árs.
Kynning á starfi Miðstöðvarfólks í atvinnuleit.
Allir atvinnulausir eru hvattir til að mæta
og taka þátt í umræðum um atvinnuleysi
og möguleika til útbóta.
Kaffiveitingar.
Fundarstaður: Breiðholtskirkja,
Mjódd, jarðhæð.
Endurskoðun
Viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði eða
maður vanur uppgjörs- og skattamálum ósk-
ast hið fyrsta til starfa á endurskoðunarstofu.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 15. janúar 1994, merktar: „E - 8287“.
Námsráðgjafi
Námsráðgjafa vantar í forföll til 1. maí í heilt
starf við Breiðagerðis-, Fossvogs- og
Réttarholtsskóla.
Upplýsingar gefur Haraldur Finnsson, skóla-
stjóri Réttarholtsskóla, í síma 32770 eða
í heimasíma 685771.
„Au pair“ í Munchen
Einhleyp, ung, þýsk kona með eitt barn ósk-
ar eftir „au pair“ stúlku sem fyrst (helst í
gær). Þarf að vera 19 ára eða eldri. Einhver
þýskukunnátta æskileg, þó ekki skilyrði.
Upplýsingar í síma 98-11049 eftir kl. 19.00.
Barnagæsla
Óskum að ráða barngóða manneskju, sem
reykir ekki, til að gæta tveggja barna í Vestur-
bænum. Vinnutími breytilegur og æskilegt
að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 15. janúar merktar: „Börn - 12867“.
Stúlka, 21 árs eða eldri, óskast til þess að
sjá um tvö 12 og 13 ára gömul börn og vinna
almenn heimilisstörf. Verður að vera góður
bílstjóri, reglusöm og má ekki reykja.
Töluvert af íslendingum í nágenninu. Banda-
rískt vegabréf eða „grænt kort“ æskilegt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Connecticut."
Skrifstofustjóri
Grafískur hönnuður
- umbrot
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að
ráða grafískan hönnuð, vanan umbroti á
Macintosh eða PC-tölvum.
Eingöngu vanur maður kemur til greina.
Upplýsingar gefur Jón í síma 678844.
Sjónvarpshandbókin.
Traust fyrirtæki, með 100 millj. kr. ársveltu,
leitar eftir skrifstofustjóra og stjórnanda
tölvubókhaldskerfis.
Starfið er fólgið í stjórn skrifstofudeildar,
færslu fjárhags- og launabókhalds, auk þess
að aðstoða framkvæmdastjóra fyrirtækisins
við daglegan rekstur.
Skilyrði er að umsækjendur séu með mennt-
un í viðskiptafræðum og/eða reynslu, sem
meta má sambærilega og hafi mikinn áhuga
á fjármálastjórn og viðskiptalífi.
Leitað er eftir framtakssömum og heiðarleg-
um starfsmanni, sem hefur hreint sakavott-
orð og er tilbúinn að vinna á reyklausum
vinnustað.
Umsóknum, með upplýsingum um fjölskyldu-
hagi, launaóskir, menntun og fyrri störf, sé
skilað til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 20. janúar
í umslagi, merktu: „Skrifstofustjóri - 4689“.
Bókhald - aukavinna
Ef þú ert vön/vanur bókhaldi er hér kjörið
tækifæri til þess að skapa sér aukatekjur.
Við erum fyrirtæki í framleiðslu staðsett í
Reykjavík og okkur vantar starfskraft til þess
að vinna við bókhald á skrifstofum okkar.
Hæfniskröfur:
Við gerum engar sérstakar kröfur um mennt-
un, en hins vegar er nauðsynlegt að viðkom-
andi hafi reynslu í færslu og afstemmingum
bókhalds. Við notum Opus-Allt bókhalds-
kerfi, en ekki er skilyrði að viðkomandi hafi
reynslu í því sérstaklega. Þá þarf viðkomandi
að vera áreiðanlegur, sveigjanlegur í samskipt-
um og æskilegt er að viðkomandi reyki ekki.
Starfið:
Starfið felst í útskrift reikninga, færslu og
afstemmingum bókhalds.
Vinnutfmi:
Vinnutími er á laugardögum og eftir atvikum
á sunnudögum eða skv. nánara samkomu-
lagi. Reiknað er með að viðkomandi vinni
að meðaltali 8 klst. á viku.
Laun:
Eru samkomulagsatriði.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir um að leggja
inn umsóknir inn á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „B - 8288“, fyrir 15. janúar nk.
Vinnslustjóri
á frystitogara
Öflugt útgerðarfyrirtæki á landsbyggðinni
óskar að ráða vinnslustjóra á frystitogara.
Starfið:
Ábyrgð á skipulagningu og stýringu
vinnslu/framleiðslu um borð ásamt almenn-
um vinnslustörfum.
Hæfniskröfur:
Leitað er að aðila með fiskvinnsluskólarétt-
indi og reynslu af verkstjórn. Aðeins kemur
til greina topp starfsmaður með árangurs-
ríkan starfsferii.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
eða Torfi Markússon frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Vinnslustjóri", fyrir
19. janúar nk.
RÁÐGARÐURhf.
ST]ÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688
fBORGARSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Á deild B-4, sem er öldrunarlækningadeild
með lyflækningar og bæklunarskurðlækning-
ar sem sérgreinar, eru lausar stöður hjúkrun-
arfræðinga nú þegar.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Á deild B-5 eru lausar stöður hjúkrunarfræð-
inga nú þegar.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Á Hvítabandi, öldrunardeild, er laus 60%
staða hjúkrunarfræðings á næturvaktir.
Sjúkraliðar
Á deildum B-4 og B-5 eru lausar stöður
sjúkraliða nú þegar. Starfshlutfall samkomu-
lagsatriði.
Möguleiki er á barnaheimilisplássi.
Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jens-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 696358.
Almennt
skrifstofustarf
Laust er til umsóknar starf hjá þekktu þjón-
ustufyrirtæki. Um er að ræða framtíðarstarf
sem meðal annars felur í sér símavörslu,
tölvuinnslátt, innheimtu og önnur almenn
skrifstofustörf. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi gott vald á íslensku og ensku ásamt
því að vera drífandi og þjónustulundaður.
Æskilegt er að umsækjendur hafi bíl til um-
ráða.
Umsóknum óskast skilað til auglýsingadeild-
ar Mbl. fyrir 17. janúar 1994 merktar:
„Starf - 1994“.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
*
Oskum að ráöa framkvæmdastjóra til starfa
hjá framleiðslufyrirtæki á sviði byggingaiðnaðar
á höfuðborgarsvæðinu.
Starfssvið framkvœmdastjóra:
1. Dagleg framkvæmdastjóm fyrirtækisins.
2. Yfírstjóm framleiðslu-, markaðs-, og
fjármála.
3. Framkvæmdastjóri annast hagsmuni
fyrirtækisins og samningagerð fyrir hönd
þess.
4. Framkvæmdastjóri hefur fmmkvæði að
stefnumörkun og mótun framtíðarmarkmiða í
samvinnu við stjóm og aðra stjómendur
fyrirtækisins.
Við leitum að manni með verk- eða
tæknifræðimenntun og/eða reynslu á sviði
byggingaiðnaðar.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
"Framkvæmdastjóri 010" fyrir 15.janúar n.k.
Hagvai ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir