Morgunblaðið - 09.01.1994, Page 28

Morgunblaðið - 09.01.1994, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 Rannveig Jónas- dóttir — Minning Fædd 18. október 1903 Dáin 2. janúar 1994 Rannveig móðursystir okkar hef- ur lagt upp í sína hinstu för. Rann- veig var fædd að Brekku í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu og ólst þar upp til sjö ára aldurs, þegar hún fluttist með foreldrum sínum til Sauðár- króks þar sem faðir hennar tók við embætti héraðslæknis. Á Sauðár- króki ólst hún upp í stórum systk- inahópi á hinu merka og gestrisna heimili læknishjónanna Hansínu Benediktsdóttur og Jónasar Krist- jánssonar. Var hún elst fimm barna þeirra hjóna, og eru nú eftirlifandi systurnar Guðbjörg og Ásta. Auk þess átti hún fjögur uppeldissystk- ini. Rannveig bjó á Sauðárkróki til 1937 og kenndi þar handavinnu, en fluttist þá til Reykjavíkur og kenndi áfram handavinnu, fyrst við Miðbæjarskólann og síðan við Aust- urbæjarskólann til 1970, þegar hún lét af störfum. Fór sérstakt orð af afköstum hennar jafnt sem vand- virkni í hannyrðum. Rannveig giftist ekki né eignað- ist börn, en systkinabörn hennar urðu henni sérlega kær og síðan " þeirra börn og barnabörn. Gekk hún ævinlega undir nafninu „frænka“, og margir ungir fjölskyldumeðlimir nefndu hana einfaldlega „frænku ömmu“. Rannveig reyndist fjöl- skyldu sinni einstök hjálparhella, alltaf reiðubúin að rétta hjálpar- hönd; sitja hjá veikum bömum eða taka að sér barnagæslu þegar með þurfti, og frá hennar iðnu höndum streymdu fallega unnar flíkur til smáfólksins. Sérstakt samband myndaðist milli Rannveigar og okk- ar undirritaðra strax í bernsku, og leit hún fremur á okkur sem dætur en systradætur. Okkur báðum reyndist hún frábærlega vel, hlý og góð og ávallt reiðubúin til aðstoðar ef á þurfti að halda. Það kom því af sjálfu sér, þegar til þess dró að hún þurfti sjálf á umönnun að halda, að í okkar hlut kæmi að annast um hana, og tókumst við það hlutverk á hendur með mikilli ánægju. Síðastliðið ár varð henni að mörgu leyti erfítt, en reynt var að gera allt sem í mannlegu valdi stóð til að létta henni ævilokin. Rannveig hafði alla tíð mikið yndi af ferðalögum og fór í margar utanlandsferðir, fyrst á yngri ámm í námsferðir, síðan í fjölmargar ferðir til ýmissa landa Evrópu, og hafði af því óblandna ánægju. Það var því einkar táknrænt, að þegar að leiðarlokum var komið talaði hún jafnan um að hún væri á ferðalagi, og ævinlega var ferðinni heitið á sama stað, norður í Skagafjörð, sem hún unni mjög og taldi fallegustu sveit á íslandi og þó víðar væri leit- að. Þar vildi hún að ferðalaginu lyki. Að lokinni langri samferð viljum við frænkurnar þakka henni yndis- lega samfylgd svo lengi sem við munum eftir okkur, og óskum henni góðrar heimkomu. Þegar líða tók á ævina hlakkaði hún mest til hinsta ^ferðalagsins, því það var að hennar dómi æsilegasta ferð lífsins. Hún trúði einlæglega og vonaði, að handan grafar yrði tekið á móti henni útbreiddum faðmi af foreldr- um, systkinum og öðrum nánum ættingjum, og vonum við að henni hafí orðið að þeirri ósk sinni. Guð blessi minningu Rannveigar frænku. Regína Birkis, Svanhildur Bjarnadóttir. Á morgun verður jarðsungin í ''Fossvogskapellu Rannveig Jónas- dóttir, sem lengi var handavinnu- kennari í Austurbæjarskólanum, en hún lézt á Elliheimilinu Grund laust eftir áramót, rúmlega níræð að aldri. Hún var ein af beztu vinkonum móður minnar og um margra ára- -tuga skeið einn af fastagestunum og heimilisvinunum á bernskuheim- ili mínu. Við andlát hennar rifjast því upp margar minningar frá þeim árum. Rannveig fæddist 18. október 1903 á Brekku í Fljótsdal, dóttir hjónanna Jónasar Kristjánssonar, sem var landsfrægur læknir, eink- um á sviði náttúrulækninga, og konu hans, Hansínu Benediktsdótt- ur, Kristjánssonar prests á Grenjað- arstað í Suður-Þingeyjarsýslu. Á Brekku ólst Rannveig upp, þar til hún fluttist með foreldrum sínum til Sauðárkróks árið 1911, þar sem Jónas var lengst af héraðslæknir, og var þar í foreldrahúsum ásamt fjórum yngri systkinum sínum, unz hún hleypti heimdraganum til Reykjavíkur og stundaði nám í Kennaraskólanum, og lauk þaðan handavinnukennaraprófi árið 1937, en fór sama ár til Svíþjóðar til frek- ara náms og þjálfunar. Þegar heim kom stundaði hún handavinnu- kennslu, fyrst sem forfallakennari við Barnaskólann á Sauðárkróki, en síðar við gamla Miðbæjarskólann og Austurbæjarskólann, þar sem hún starfaði síðan sem aðalkenn- ari, þar til hún varð að hætta kennslu sökum aldurs. Hún var allt- af ógift og bamlaus. Á læknisheimilinu á Sauðárkróki dvaldist langömmusystir mín, Re- bekka Ólafsdóttir, sem Jónas hafði kynnst á þeim tíma, sem hann stundaði héraðslækningar austur í Fljótsdal, og aðstoðaði Rebekka hann við hjúkrun og umönnun sjúkl- inga upp frá því, auk þess sem heita má, að hún hafi um leið verið ráðskona á hinu umsvifamikla heimili. Það hefur engum blandast hugur um, sem heyrt hefur þær læknisdætumar tala um Rebekku, hverrar virðingar og væntumþykju hún naut af þeirra hálfu fyrir það mikla og fórnfúsa starf, sem hún vann á heimilinu, svo og hjálpsemi hennar og umhyggju fyrir fjölskyld- unni allri. Það voru ófáir ættingjar Re- bekku, sem ekki komust í kynni við læknisfjölskylduna á Sauðárkróki að meira eða minna leyti, enda komu þeir aldrei svo til Sauðár- króks, að þeir færu ekki til fundar við Rebekku og dvöldust jafnvel hjá henni þar á heimilinu. Þannig mun kynni þeirra móður minnar og læknisdætra hafa borið að, en móð- ur minni sagðist svo frá, að þær Rannveig hafi einhvern tíma orðið samskipa austan af landi, og við komuna til Sauðárkróks hafí eitt- hvað tafið för skipsins þaðan, sem gerði móður minni kleift að heim- sækja Rebekku á meðan, og Rann- Fædd 29. janúar 1923 Dáin 3. janúar 1994 Hún Veiga systir er dáin. í þijú ár hef ég vitað að þetta gat gerst hvenær sem var, samt kemur það á óvart, samt er það svona sárt. Rannveig fæddist á ísafirði 29. janúar 1923. Hún var hin sjötta í röð átta bama hjónanna Þorbjargar Sveinbjörnsdóttur og Konráðs Jens- sonar, sjómanns og síðar veitinga- manns á ísafírði. Sex elstu börnin fæddust með um tveggja ára millibili. Það var ljúft að vera yngst í þessum tápmikla hópi. Fjölskyldustærðin þótti orðin hæfileg og tekin var fjölskyldumynd. Áfallið kom þegar Veiga var sjö ára. — Eg fæddist! Allt í einu hætti hún að vera yngst, athyglin og eftir- lætið færðist yfír á nýja bamið og ekki nóg með það, stuttu seinna var ætlast til að hún passaði króann líka. Auðvitað varð hún afbrýðisöm, en það sýnir best manngildi hennar að aldrei, ekki í eitt einasta skipti á ævinni, hefur hún sýnt mér annað en væntumþykju. Það sem mér finnst mest einkenn- veig hafi orðið þess áskynja, hvert ferð hennar hafi verið heitið, og bauð henni samfylgd heim í læknis- húsið. Upp frá því má heita, að þær hafí orðið óijúfanlegar vinkonur. Ég minnist þess líka allt frá upp- hafi, að mikill samgangur hafi ver- ið milli þeirra, og mörg voru þau sporin, sem Rannveig átti inn á bemskuheimili mitt, og þá ósjaMan til að aðstoða móður mína, enda með afbrigðum hjálpsöm. Ég tala nú ekki um, ef málið snerist um handavinnu eða saum af einhveiju tagi, þá var alltaf leitað til Rann- veigar, enda alltaf boðin og búin til að aðstoða okkur mæðgurnar eins og hægt var með það sem þurfti á þeim sviðum. Ef ég lenti í einhveijum vandræðum með pijón- les, sem ég var að vinna við, og von var á Rannveigu í eina af ótal heimsóknum sínum lítilla erinda, sem hún gerði ærið oft, þá var allt- af viðkvæðið hjá móður minni: „Bíddu með þetta, þangað til Rann- veig kemur, þá sýnir hún þér, hvernig bezt er að gera þetta. Hún hefur alltaf verið svo flink við allt svona lagað.“ Og ekki brást það, frekar en fyrri daginn. Það stóð ekki á Rannveigu að leysa úr mál- inu, og móðir mín hafði lög að mæla, hvað snilli Rannveigar í handavinnu viðkom, enda lærði ég margt af henni, þegar hún líka hjálpaði mér með skylduvinnuna í skólanum, sem ekki reyndist alltaf sem auðveldust, og hún hlaut fyrir það mikla aðdáun hjá mér. Oft sát- um við báðar með einhver handa- vinnuverkefni milli handanna í heimsóknum hennar á bernsku- heimili mitt, meðan móðir mín tók til veitingar fram í eldhúsinu, enda var handavinna sameiginlegt áhugamál okkar Rannveigar, og ég er ekki frá því, að hún hafi ekki síður glætt áhuga minn á því en amma mín gerði. Rannveig kom líka oft með handavinnuverkefni sín heim til okkar til þess að sýna okk- ur hvað hún væri að vinna að þá stundina, og þá var mikið dáðst að handbragði hennar, ef um ísauma var að ræða. Marga fagra munina fengum við mæðgurnar líka að gjöf frá henni, sem hún hafði töfrað fram með saumnálinni, og verða alltaf stofuprýði. Rannveig hafði mjög gaman af að ferðast til útlanda og kynnast framandi menningarheimum, jafnt sem þekktum. Ósjaldan kom hún í heimsóknir til okkar eftir ferðalög til útlanda til að segja okkur ferða- sögur sínar, og kom þá alltaf fær- andi hendi. Heimili Rannveigar var heimur út af fyrir sig og bar vott um smekkvísi hennar og fegurðarskyn. Það blandaðist heldur engum hugur um, sem þangað kom, að þar bjó mikil handavinnukona, sem hafði yndi af því að skrýða heimili sitt andi fyrir skaplyndi Veigu var ótrúleg samviskusemi. Þótt henni dauðleiddist að hafa okkur litlu systur sínar með sér í leikjum, sundi, beijaferðum eða öðru, tók hún okkur alltaf með og kvartaði aldrei. Hún átti glaða og skemmtilega æsku á ísafirði. Að loknu gagnfræðaprófi fór hún að vinna í verslun og síðan á Vitanum, veitingahúsi pabba og mömmu. Á Vitanum kynntist hún eigin- manni sínum, Éinari Sigurðssyni, sem var vélstjóri á bát frá Vest- mannaeyjum, en ættaður frá Hvoli í Hvolhreppi. Einar var gull af manni, dverghagur á járn sem tré. Hann var mágur Binna í Gröf og svo góður vélstjóri að honum tókst ævinlega að halda gömlu Gullborginni gang- andi, sem nálgaðist kraftaverk, að kunnugra sögn. Þau giftu sig á ísafirði 9. desem- ber 1943, en byijuðu sinn búskap í Vestmannaeyjum og bjuggu þar lengst af fram að gosinu 1973. Þar áttu þau fallegt einbýlishús, sem nú hvílir undir hrauni. Eftir gosið bjuggu þau hér í Reykjavík, þar til Einar lést af slys- Rannveig Konráðs- dóttir — Minning fallegum munum, sem hún hafði saumað, pijónað og heklað. Rannveig var líka mikill barna- vinur og hafði gott lag á börnum. Systkinabörn hennar og þeirra af- komendur jafnt sem börn vinkvenna hennar nutu þess í ríkum mæli. Umhyggja hennar og væntumþykja í okkar garð var ómæld, svo og trygglyndi, sem þeir fengu að reyna, sem eignuðust hana fýrir vinkonu. Hún var trúkona mikil, og sér- staklega var hún sannfærð um, að lífinu lyki ekki við enda þessa jarð- lífs, heldur tæki annað og betra við að því loknu, þar sem hún kæmist á fund vina og vandamanna. Von- andi hefur henni orðið að ósk sinni i þeim efnum. Að leiðarlokum færi ég fram þakkir mínar fýrir allt það góða og gjöfula, sem hún lét mér og foreldr- um mínum í té, og sérstaklega fyr- ir allar þær góðu, ómetanlegu leið- beiningar, stuðning og hjálp, sem hún veitti mér á handavinnusviðinu og ég hef búið að síðan. Ég bið Guð að blessa hana fyrir það og vera með henni, þar sem hún er nú. Blessuð sé minning Rannveigar Jónasdóttur. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Hún Rannveig mín er dáin, það er lífsins saga. Rannveig Jónasdóttir handa- vinnukennari var dóttir Jónasar Kristjánssonar læknis og Hansínu Benediktsdóttur konu hans. í æsku kynntist ég þessu fólki, en Jónas var þá héraðslæknir í Skagafjarðar- sýslu og læknisíjölskyldan á Sauð- árkróki var aðaluppistaða gestrisni og menningar á Sauðárkróki. Rann- veig ólst upp á þessu mikla menn- ingarheimili ásamt fjórum alsystk- inum og fjórum fóstursystkinum. Rannveig var elst af systkinum sín- förum 8. febrúar 1980. Síðan bjó Veiga með yngsta syni sínum þar til hann gifti sig, en sl. tvö ár hefur hún búið ein. Veiga og Einar eignuðust fímm börn, þau eru: 1. Arnar, f. 1945, f.k. Þorbjörg Einarsdóttir, þeirra sonur Einar Orn. S.k. Jakobína Sigurbjörnsdóttir, þeirra sonur Sturia. 2. Þorbjörg, f. 1947, maki Jón Ólafsson, börn: Einar Veigar, Jó- hanna Margrét og Yr. um og Regína var næst, en Regína dó þegar hún var 18 ára og Rann- veig saknaði hennar alla tíð, þær höfðu verið svo samrýndar. Læknisheimilið á Sauðárkróki var alltaf mannmargt. Þar var einn- ig mikil gestanauð og það nálgaðist að það væri eins og hótel. Þar sat húsfreyjan í öndvegi og pijónaði og saumaði á alla á heimilinu og féll aldrei verk úr hendi og allir á heimilinu urðu að vinna sín verk. Þar sem Rannveig var elst, varð hún að nokkru leyti í forystu ásamt móður sinni að vinna heimilinu. Rannveig var mikil garðyrkju- kona og þær mæðgur settu upp fallegan garð við læknishúsið. Þar vann Rannveig öllum stundum á sumrin og þessi garður var svo fall- egur að hann var annálaður um héraðið. Eftir að fjölskyldan var sest að í Reykjavík, á Gunnarsbraut 28, var haldið áfram við ræktunina og nýr garður varð til og þessi garður varð auðvitað líka til sóma. Rannveig var líka afkastamikil handavinnukona og fór í Kennara- skólann og útskrifaðist þaðan sem handavinnukennari. Hún kenndi öll sín starfsár við Austurbæjarskólann í Reykjavík. Hún prýddi heimili sitt og vina sinna með fallegri handa- vinnu og ég er þakklát fyrir það sem hún gaf mér af list sinni. Þegar Kvennadeild Skagfirð- ingafélagsins í Reykjavík var stofn- uð árið 1963, gekk Rannveig þar til liðs af heilum hug, því að hún var í hjarta sínu fyrst og fremst Skagfirðingur alla tíð og unni fírð- inum sínum fagra umfram önnur byggðarlög. Hún vann mikið fyrir Kvennadeildina fyrir basara og þetta var allt svo listilega gert. Ég átti því láni að fagna að við vorum nágrannar hér í Stigahlíðinni yfir 20 ár, og það var mikill sam- gangur á milli heimilanna. Rann- veig var trölltrygg vinum sínum og einnig greiðug og gjafmild. Hún vildi gera allt sem hún gat fyrir frændfólk sitt. Henni þótti mjög vænt um systkinabörn sín öll og systradætur hennar, Regína og Svanhildur, voru henni sérstaklega kærar, enda reyndust þær henni frábærlega vel þessa síðustu mán- uði sem hún átti við mesta van- heilsu að stríða, en þann tíma dvaldi hún á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Þessar tvær frænkur hennar hugsuðu um hana eins og hún væri þeirra önnur móðir. Þær kölluðu hana líka alltaf frænku og fylgdust með henni eftir því sem hægt var í þessari seinustu legu. Ég veit að Rannveigu fannst hún aldrei geta fullþakkað það. Áð endingu þakka ég henni ómet- anlega tryggð og vináttu sem aldr- ei bar skugga á. Ég fagna með henni heimkomunni og bið góðan guð að varðveita hana alla tíð. Guðrún Þorvaldsdóttir. 3. Konráð, f. 1948, maki Unnur Þórarinsdóttir, böm: Rannveig og Silja. 4. Siguijón, f. 1948, maki Anna Sverrisdóttir, börn: Yngvi Þór og María. 5. Jóhann, f. 1961, maki Ása Þor- kelsdóttir. Hjónaband þeirra stóð í 37 ár og var farsælt, raunar bæði ákaflega þægilegar manneskjur. Einar þénaði oftast vel og í Vestmannaeyjum vann hún aldrei úti, heimilið raunar stórt og allt saumað og pijónað heima. Veiga var mjög dugleg, eitt sinn tók hún t.d. upp á því að mála allt húsið á meðan Éinar var á sjónum. Þau ferðuðust töluvert, bæði heima og erlendis, og nutu þess bæði tvö. Eftir dauða Einars hélt Veiga áfram að ferðast og fór víða. Mér er mjög minnisstæð ferð sem við fórum í saman til gömlu Sovét- ríkjanna. Þar skoðuðum við átta borgir. Sú ferð er ógleymanleg. Að vera hjá þeim á Þjóðhátíð var yndislegt. Oft voru gestir mun fleiri en heimafólk. Betri gestgjafar fyrir- finnast ekki. Ög Veiga kunni öll Þjóð- hátíðaljóðin og söng við raust, ger- samlega laglaus, en kátust allra. Það voru dýrðardagar. Þegar upp á land kom fór Veiga að vinna hjá Nóa-Siríus. Hún var ótrúlega afkastarnikil, vegna þess að aldrei sá maður hana flýta sér. En

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.