Morgunblaðið - 09.01.1994, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994
Eðvald Hinriksson
Mikson - Minning
Mig langar til að þakka þér í
nokkrum orðum fyrir ánægjuleg
kynni til margra ára. Okkar langa
samtal nokkrum dögum fyrir fráfall
þitt verður mér lengi í minni. Það
er myndarlegur hópur íslendinga
sem hugsar hlýtt til þín nú þegar
þið Sigga eruð aftur sameinuð. Þú
varst stoltur og máttir líka vera
það, af Jóhannesi, Atla og Önnu og
tíu bamabömum. Báðir urðu strák-
arnir fyrirliðar íslenska landsliðsins
í mörg ár hvor um sig og báðir
urðu þeir dáðir atvinnumenn erlend-
is.
Menn minnast þín fyrir vingjam-
legt viðmót og fagmannleg vinnu-
brögð á stofu þinni í Hátúni. Þaðan
fór margur bjartsýnni og alþekkt
var kapp þitt við að gera íþrótta-
menn keppnisfæra aftur eftir
meiðsli. Það vafðist fyrir sumum að
skilja til hlítar þitt „prfvat" tungu-
mál sem var bræðingur úr nokkrum,
en aðalatriðin skiluðu sér.
Heilsan var farin að gefa sig og
þú sjálfsagt hvíldinni feginn, en
bömin og bamabömin halda merki
ykkar Siggu á lofti.
Blessuð sé minning þín. Öllum
syrgjendum bið ég huggunar í
harmi.
Halldór Einarsson.
í dag er kvaddur Eðvald Hinriks-
son nudd- og sjúkraþjálfari. Eðvald
var 82 ára er hann lést í St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði.
Fyrstu kynni mín af Eðvald vom
á sjúkrastofu vestur á Melavelli í
Reykjavík haustið 1955.
Er ég knúði dyra og leitaði ásjár
sjúkraþjálfarans vom þar fyrir tveir
þekktir borgarar og erlendur hljóm-
listamaður af gyðingaættum ásamt
illa höldnum starfsmanni úr rúss-
neska sendiráðinu, sem þá taldi um
flömtíu manns. í þá daga tíðkuðust
ekki símapantanir hjá sjúkranudd-
umm, fólk kom og mat sjálft hvort
þáð dokaði við eða ekki eftir aðstoð
eða lækningu.
Mikið orð fór af hæfileikum Eð-
valds Hinrikssonar sem sjúkranudd:
ara og þjálfara í boltaíþróttum. í
dag kveðja vinir hann með þakk-
læti í huga fyrir lækningar og þjálf-
un æskulýðs í íþróttahreyfingunni.
Vinsældir og árangur í starfí
BÚSETI
Sími 25788.
BÚSETI HSF., HAMRAGÖRÐUM, HÁVALLAGÖTU
24, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 25788, FAX 25749.
SKRIFSTOFAN ER OPIN KL. 10-15 ALLA VIRKA
DAGA. LOKAÐ í HÁDEGINU KL. 12-13.
FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
TIL ÚTHLUTUIMAR í JANÚAR 1994
Aðeins félagsmenn, innan eigna- og tekjumarka,
geta sótt um þessar íbúðir.
ENDURSÖLUÍBÚÐIR:
Staður: Stærð: mJ Hæð: Laus í:
Frostafold 20, Reykjavík 4ra 88 7 apríl '94
Garóhús 4, Reykjavík 4ra 115 3 júní '94
Berjarimi 1, Reykjovík 4ra 87 3 mars '94
Suðurhvammur 13, Hafnarfirði 4ra 102 1 mars/apríl '94
Trönuhjalli 17, Kópavogi 3jo 87 3 opríl '94
Eiðismýri 22, Seitjarnarnesi 3jo 73,4 3 febr. '94
Garðhús 2, Reykjovík 3ja 79 3 febr. '94
Garðhús 2, Reykjovík 3ja 79 2 júní '94 (eðo fyrr)
Berjarimi 1, Reykjovík 2ja 49 1 febr. '94
NÝJAR ÍBÚÐIR:
Stoður: Staerð: m2 Áætl.afhend.:
Tindasel 1d, Reykjavik 4ra 119 apríl '95
Tindasel le, f, g, Reykjovík 5 115,4 apríl '95
Skólatún ), Bessast.hreppi 4ra 105,1 maí '95
ALMENNAR ÍBÚÐIR
TIL ÚTHLUTUNAR í JANÚAR ’94
Allir félagsmenn þ.á.m. þeir, sem eru yfir eigna- og/eða tekju-
mörkum, geta sótt um þessar íbúðir. Búsetugjald (leiga) er
hærra en í félagslegu íbúðunum.
ENDURSÖLUÍBÚÐIR:
Staður: Stæró: m! Hæó: laus í:
Birkihlíð 2a, Hafnarfirói 3ja 74,6 3 mars '94
Staður:
Arnarsmóri 4-6, Kópavogi
Arnarsmóri 4, Kópavogi
Skólatún l, Bessast.hreppi
NÝJAR ÍBÚÐIR:
Stæró: m!
3ja 79,8
2jo 54, l
2jo 68,7
Áætl. afhend.:
júní '94
júní '94
maí '95
Hvernig sótt er um íbúð:
Umsóknir um íbúðirnar verða að hafa borist skrifstofu Búseta
fyrir 20. þessa mánaðar á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan
úr gildi.
Félagsmaður, sem sækir um nú og fær ekki íbúð, verður að
sækja um á ný.
Upplýsingar um skoðunardaga íbúða og/eða teikningar fást á
skrifstofu Búseta.
Til að umsókn sé gild er áríðandi að skattayfirlit (staðfest frá
skattstjóra) síðustu þriggja ára fylgi henni. Einnig er áríðandi
að félagi skuldi ekki félagsgjöld. Félagsgjöld má greiða með
greiðslukorti. Það nægir að hringja inn greiðslukortsnúmerið.
VINSAMLEGA SKILIÐ UMSÓKNUM INN FYRIR KL. 15
FIMMTUDAGINN 20. JAN. NÆSTA AUGLÝSING BIRTIST í
MORGUNBLAÐINU SUNNUDAGINN 6. MARS ’94.
BUSETI
Homiogörðum, Hóvallagötu 24, ÍOI Reykjovík, sími 25788.
Eðvalds leiddu til þess að Sigríður
Bjamadóttir eiginkona Eðvalds og
hann reistu stórglæsilega nudd- og
sjúkrastofu í Hátúni 8 hér í borg.
Sjúkrastofan var að auki vel búin
hita-, rafmagns- og örbylgjulækn-
ingatækjum sem slasaðir og sjúkir
nutu góðs af fyrir tilstuðlan þekk-
ingar og hæfíleika Eðvalds og að-
stoðarfólks. í dag eru að störfum
nuddarar sem Eðvald leiðbeindi og
þjálfaði. Þessir sjúkranuddarar hafa
getið sér gott orð fyrir hæfileika
og eru virtir af því fólki sem til
þeirra leitar. Þegar Eðvald lauk
störfum hafði undiritaður af og til
notið góðs af starfseminni í Hátúni
8 og á þaðan uppbyggilegar minn-
ingar, ekki aðeins um ágæti nudds
og saunabaða, heldur einnig oft al-
vöruþrungnar samræður um lífíð
eins og það gengur fyrir sig hjá
sumum einstaklingum og. heilum
þjóðum. Enda voru þar oft saman-
komnir menn úr æðstu stöðum þjóð-
félagsins, menn úr erlendum sendi-
ráðum í Reykjavík, pólitískir and-
stæðingar og almennir borgarar,
allir með einn ásetning, að viðhalda
heilsunni undir handarjaðri Eðvalds
Hinrikssonar. Fáum duldist sem
nutu návistar við Eðvald að þar fór
óvenju styrkur persónuleiki, fullur
mannkærleika til hinna sjúku. Og í
vaxandi mæli, því verr sem þeir
voru á sig komnir líkamlega eða
andlega.
Undirritaður hefur ekki kynnst
jafn einlægum föðurlandsvini sem
Eðvald Hinrikssyni, enda hafði hann
fyllt hóp hinna kjarkmestu sona
Eistlands í baráttu, sem þröngvað
var upp á þjóð hans, á skákborði
seinna heims stríðs — stríðs sem
hann og eistneska þjóðin áttu ekki
upptök að — en lék alla þegnana
svo illa að fá dæmi eru til saman-
burðar.
Ég minnist orða Eðvalds þegar
hann af magnþrunginni innlifun og
reynslu sagði: „Drengir mínir, stríð
er andhverfa hins góða — skynsam-
legar rökræður fara fyrir róða —
skyndiákvarðanir eru teknar — ör-
yggisleysið er ógnþrungið og inni-
lokunarkenndin nær undirtökum."
Eistneska þjóðin varð að þola
herleiðingu heija Stalíns. Síðan
fagnaði þjóðin þýska hemum sem
rak Rússa út úr landinu. Sá fögnuð-
ur stóð ekki lengi. Deildir úr þýska
hemum tóku að handtaka hugsan-
lega andstæðinga nýja herleiðingar-
hersins. Sagan er ekki enn öll sögð.
Nú fyrst hefst hámark skelfingar
og villimennsku. Her Stalíns er aft-
ur kominn, þess umkominn að
hrekja þýska herinn aftur út úr Eist-
landi. Foringjar Rauða hersins em
nú fullir hefndar og hermenn þeirra
fara um ruplandi og rænandi og
engum er hlíft sé hann grunaður
um að vera hallur undir andstæðing-
inn.
Eðvald Hinriksson er á þessum
örlagatímum hermaður eistnesku
þjóðarinnar ásamt kjörkuðum ung-
um mönnum sem enn héldu lífí eða
höfðu enn ekki verið fangelsaðir.
Þeir halda til skógar, lifandi vitni
um voðaverk innrásarhers Stalíns
og Hitlers. Þegar hér er komið sögu
er ekki um annað að ræða en að
flýja landið til Svíþjóðar. Sé forsjón-
in þeim hliðholl, á flóttinn að heppn-
ast og það gekk eftir.
Eðvald Hinriksson hefur aldréi
farið í launkofa með reynslu sína,
heldur á afgerandi hátt sagt frá
henni með því að gefa út bók sem
lýsir og riíjar upp hörmungar eist-
nesku þjóðarinnar á stríðstíma og
skrifað margar blaðagreinar um
sama efni. Fjöldi þeirra sem flúið
gátu lönd hemumin af Rússum hef-
ur átt fullt í fangi með að veija
feril sinn, sérstaklega þeir sem börð-
ust við Rauða herinn og komust
undan til að halda áfram baráttu
fyrir frelsi Eistlands ásamt öðrum
þjóðum. Eðvald Hinrikssyni hefur
því hlýnað um hjartarætur þegar
okkar dugandi ríkisstjóm ásamt
Alþingi varð fyrst allra þjóða til að
viðurkenna að nýju sjálfstæði Eist-
lands, Lettlands og Litháens.
Maður að nafni Símon Wiesenthal
var eins og tugir milljóna manna í
Evrópu svo ógæfusamur að nánustu
ættingjar og vinir vom felldir eða
myrtir í stríðinu. Eins var komið
hjá Eðvald Hinrikssyni, nánir ætt-
ingjar og vinir myrtir í sama stríði.
I lok stríðsins efndu sigurvegar-
amir til réttarhalda víða í Evrópu.
Numberg-réttarhöldin vom þekkt-
ust og alheimi vom sýnd réttarhöld-
in á kvikmyndatjaldinu og hryllings-
myndir til stuðings ákæmm sigur-
vegaranna. Allflestir hinna ákærðu
vom hengdir eða dæmdir til lífstíð-
arfangelsis.
Með Numberg-réttarhöldunum
lýkur seinna heimsstríði samkvæmt
alþjóðasamningi helstu þjóða heims-
ins. Símon Wiesenthal fínnur sig
knúinn að halda stríðinu áfram. I
krafti fjármagns og heiftar safnar
hann liði hinna hatursfullu sem áttu
um sárt að binda. Hann hefur ein-
stæða fullnægingarherferð sem nú
þegar hefur leitt af sér mannrán,
dauðadóma, áralanga einangmnar-
vist alsaklauss fólks sem ónákvæm-
ir aðilar hafa talið bijóta reglur um
stríðsrekstur. Slíkum pappímm tek-
ur Símon fegins hendi og hermaður
Símonar, Efraim Zuroff, veifar
þessum pappímm hér á landi. Minn-
ugur þess að í 35 ár var umheimin-
um talin trú um að dagsönn skjöl
frá leyniþjónustumönnum Stalíns
væri að finna í ríkisskjalasafni Pól-
lands. Um dauða mörg þúsund
pólskra liðsforingja sem þjóðin dáði
vegna hugrekkis og landvama. Stór
hluti þjóðarinnar trúði ekki þessum
ömggu heimildum. Svo kemur sann-
leikurinn í ljós: Rússar myrtu alla
foringjana sem þeir höfðu kennt
öðmm um í Katyn-skógi. Sá sem
hefur manndóm í sér til að viður-
kenna þetta er sjálfur Gorbatsjov.
Blákalt segir Efraim Zuroff hér á
landi: Fyllilega er hægt að treysta
pappímm leyniþjónustumanna Stal-
íns.
Engin heilvita maður getur treyst
þessum pappíram. Hvað um pappír-
t ana um Kurt Waldheim forseta
Austurríkis? Hvað um Wallenberg,
Svíann sem bjargaði hundmðum
manna af gyðingaættum úr höndum
nasista í Ungveijalandi? o.s.frv. Sá
sem skrifar þessa minningargrein
biður aðstandendur Eðvalds afsök-
unar á að draga hér fram umtalaða
pappíra, en er þess fullviss að þess
er þörf.
Ohjákvæmlegt er að draga fram
sættir Páfagarðs og gyðingdóms um
sl. áramót vegna krossfestingar
Krists. Páfagarður hefur um þús-
undir ára ásakað gyðinga um eitt
mesta ódæði sögunnar, að kross-
festa Jesú Krist „Mannssoninn".
Biblían segir að Símonarsonur
ískaríot „Júdas“ hafi með kossi
svikið Jesú fyrir nokkrar talentur,
„krónur". Símon Wiesenthal-stofn-
unin er að detta í sömu gryfju og
Júdas Símonarson.
Símon Wiesenthal-stofnunin elur
Reynimelur 23 - opið hús
Til sölu efri hæðin í þessu fallega húsi. Ibúðin, sem er
143 fm, er glæsileg og skiptist í saml. stofur, 3 svefnh.,
eldhús og baðherb. Massívt parket. Tvennar svalir.
Stór gróinn garður. Nýtt þak, gler og rafm. 25 fm bílsk.
Áhv. 6,8 millj. húsbréf. Verð 11,9 millj. íbúðin, sem
er laus strax, verður til sýnis f dag, sunnudag, frá kl.
14-17. Skipti á minni eign möguleg.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar11540ogi:1700.
EIÐISMYRI30
íbúðir fyrir fólk 60 ára og eldra
Nú eru hafnar framkvæmdir við íbúðir fyrir fólk
60 ára og eldra við Eiðismýri 30, Seltjamamesi.
í húsinu verða 26 íbúðir alls; 2ja og 3ja
herbergja. Seltjamameskaupstaður mun kosta
og reka sameiginlegan matsal í húsinu, en stutt
er í margvíslega þjónustu fyrir eldri borgara við
Skólabraut. Þá má benda á nálægð hússins við
verslunarkjaman Eiðistorgi, sundlaug og
heilsugæslustöðina.
íbúðimar eru mjög vandaðar með hlöðnum og
pússuðum milliveggjum. Berið saman verð og
gæði.
Byggjendur eru Byggingafélag Gylfa og
Gunnars hf., sem hefur á undanfömum árum
skilað nær 300 þjónustuíbúðum af sér til
ánægðra kaupenda í samvinnu við Félag eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni.
ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR
GEFUR SVAN FRIÐGEIRSSON Á
BYGGINGADEILD FÉLAGS ELDRI
BORGARA, BORGARTÚNI 31,
SÍMI 621477, MILLI KL. 9.00 OG 12.00.
i■ f$ f f 1.f f* v.v. wí