Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
17. tbl. 82. árg.
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Siðbótarfrumvarp Hosokawa fellt
Ovissa um fram-
tíð stjórnarinnar
Tókýó. Reuter.
MORIHIRO Hosokawa, forsætisráðherra Japans, beið alvarlegan
ósigur í efri deild þingsins í gær þegar frumvarp hans um umbæt-
ur í japönsku stjórnmálalífi var fellt. 17 þingmenn Sósíalistaflokks-
ins, stærsta stjórnarflokksins, snerust gegn því og ríkir nú mikil
óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar, sem setið hefur í fimm mán-
uði. Ilosokawa kvaðst þó hvorki
nýrra kosninga að sinni.
Hosokawa vonast til að geta náð
samkomulagi við stjórnarandstöð-
una, Fijálslynda lýðræðisflokkinn,
um framgang frumvarpsins fyrir
þinglausnir, sem verða 29. janúar
eða eftir viku, en það þýddi, að ríkis-
stjórnin yrði að gefa verulega eftir
gagnvart honum í ýmsum málum.
Til að hnekkja niðurstöðunni í efri
deild þarf annaðhvort tvo þriðju
atkvæða í sérstakri nefnd samein-
aðs þings, sem hefur það hlutverk
að skera á hnútinn í svona málum,
eða tvo þriðju af 511 atkvæðum í
neðri deild. I efri deildinni eru þing-
menn 252.
Útþynntar umbætur?
Frumvarp Hosokawa felur í sér,
ætla að segja af sér né boða til
að tekin verði upp einmenningskjör-
dæmi en talið er, að það kerfi hafi
minni spillingu í för með sér en
hlutfallskosningakerfið. Auk þess
verða viðurlög við pólitískri spill-
ingu stóraukin.
Frumvarp Fijálslynda lýðræðis-
fiokksins, sem neðri deildin felldi í
síðustu viku, þótti sniðið fyrir stóru
flokkana og auk þess voru í því
ákvæði, sem heimiluðu stjórnmála-
mönnum að taka við framlögum frá
stórfyrirtækjum. Ef Hosokawa nær
að semja við Fijálslynda lýðræðis-
flokkinn hlýtur að koma fram nýtt
frumvarp, einhvers konar samsuða
beggja, en að öðrum kosti eru dag-
ar stjórnarinnar taldir.
Reuter
Kátir stjórnarandstæðing-ar
ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar á japanska þinginu, Fijálslynda lýðræðisflokksins, kættust mjög
þegar siðbótarfrumvarp Hosokawa forsætisráðherra var fellt í efri deildinni og klöppuðu fyrir niður-
stöðunni. Nú verður Hosokawa að gera annað tveggja, að semja við stjórnaraudstöðuna eða fara frá.
Lorena Bobbitt
Lorena
Bobbitt
sýknuð
Manassass, Virginíu. Rcuter.
LORENA Bobbitt var sýknuð
af ákæru um að hafa skorið
getnaðarlim undan manni
sínum af ráðnum hug og ill-
girni. Komst kviðdómur að
þeirri niðurstöðu að hún
hefði ekki ráðið gjörðum síri-
um vegna stundarbijálæðis
er hún framkvæmdi afskurð-
inn.
Verjendur Lorenu Bobbitt
héldu því fram að áralangar
misþyrmingar hefðu valdið sál-
arflækjum sem leitt hefðu til
bijálæðiskasta. Bar hún því við
að maður hennar, John Wayne
Bobbitt, hefði nauðgað sér 23.
júní sl. en í framhaldi af því
skar hún liminn af honum. Tók
það lækna um 10 stundir að
sauma hann aftur á. Var John
Bobbitt sýknaður af nauðgun-
arákæru í nóvember sl.
Stefnuyfirlýsing Viktors Tsjernomýrdíns, forsætisráðherra Rússlands
Boðar ankiim stuðning við
gjaldþrota ríkisfyrirtæki
Moskvu, Washington, London. Reuter.
VIKTOR Tsjernomýrdín, forsætisráðherra Rússlands, hyggst ein-
beita sér að því að koma í veg fyrir hrun ríkisrekinna stórfyrirtækja
í iðnaði sem mörg eiga í gríðarlegum fjárhagserfiðleikum. Þetta kom
fram á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar hans í gær en allir róttæk-
ir umbótasinnar í fyrri sljórn hafa yfirgefið hana að einum undan-
skildum. Bandarísk stjórnvöld segjast ætla að reyna að hafa gott
samstarf við nýju sljórnina og ráðgjafar Borís Jeltsíns forseta segja
hann vera staðráðinn í að standa við umbótaáætlanir sínar.
Reuter
Aftur
bestá
ísnum
ENSKA
skautaparið
Jayne Torvill og
Christopher
Dean urðu Evr-
ópumeistarar í
listdansi á skaut-
um í Kaup-
mannahöfn í
gærkvöldi.
Mörgum rennur
seint úr minni
ísdans þeirra við
lagið Bolero sem
færði þeim gull-
verðlaun á
Ólympíuleikun-
um í Sarajevo
árið 1984.
Sjá „Spenn-
andi keppni"
á bls. 47.
/íar-Tass-fréttastofan rússneska
hafði eftir Tsjernomýrdín að fjöldi
stórfyrirtækja væri nú lamaður.
„Við verðum að finna leiðir til að
aðstóða þessi fyrirtæki, það_ verður
að koma þeim í gang og láta þau
afla tekna fyrir ríkissjóð“, sagði
ráðherrann. Hann sagði að verð-
bólga í Rússlandi yrði mun meiri á
árinu en gert hefði verið ráð fyrir
og umbótasinnar fullyrða að hann
hyggist leysa vanda gömlu stórfyr-
irtækjanna með aukinni seðlaprent-
un og tilheyrandi óðaverðbólgu.
Tugmilljónir manna vinna hjá
stórfyrirtækjunum, sem mörg hafa
í reynd verið gjaldþrota lengi og
óttast þeir atvinnuleysi ef markaðs-
öflin fái að ráða framtíð þeirra.
Bandaríski hagfræðingurinn Jeff-
rey Saehs og sænskur starfsbróðir
hans, Anders Aslund, hafa verið
ráðgjafar Rússlandsstjórnar í þrjú
ár. Þeir sendu Jeltsín bréf í gær
og sögðust ekki geta veitt frekari
ráð þar sem þeir væru algerlega
andvígir stefnu Tsjernomýrdíns.
„Það getur verið að Jeltsín hafi
leyst upp gamla þingið en' hann
hefur tekið upp stefnu þess“, sagði
breska blaðið Financial Times í
gær. Blaðið spáði því að stefna
nýju stjórnarinnar, sem væri ekki
.umbætur heldur „miðjuleið til öng-
þveitis“, myndi valda óðaverðbólgu
og gera eftirleikinn auðveldan fyrir
hinn öfgafulla þjóðernissinnaflokk
Vladímírs Zhírínovskíjs. Fjölmiðlar
og stjórnmálaskýrendur á Vestur-
löndum telja flegtir að umbóta-
stefna Jeltsíns sé nú í mikilli hættu
og benda einnig á vaxandi áhrif
þjóðernissinna á utanríkistefnuna.
Sjá „Tsjeriiómýrdín óttast
hrun risafyrirtækjanna
gömlu“ á bls. 22.
♦ ♦ ♦
Fúkyrðin
verri en
barsmíðar
Edinborg. Reuter.
SKOSK kona fékk skilnað frá
manni sínum í gær á þeirri for-
sendu að hann hefði blótað henni,
börnum þeirra og jafnvel barna-
börnum þrotlaust í 46 ár.
Nigel Thomson dómari sagði, er
hann veitti Isabellu Harrower skiln-
að, að nú væri svo komið að 21
mánaðar gamall ömmudrengur
liefði numið hinn óguðlega fúkyrða-
forða af afa sínum, Peter, og væri
farinn að feta í fótspor hans. Brygði
sá stutti fyrir sig svívirðingum í
tíma og ótíma.
„Látláus fúkyrðaflaumur var
henni óbærilegri en barsmíðar öðru
hverju," sagði Thomson. Isabella
og Peter Harrower gengu í hjóna-
band árið 1947.