Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
ARSALIR hf.
Fasteiqnasala
Sigtúni 9-105 Reykjavík.
C 62 43 33
Björgvin Björgvinsson,
lögg. fasteigna- og skipasali
Félag Fasteignasala
Opið í dag kl. 11-16.
Safamýri. Falleg 4ra herb. íb. á
2. hæð m. bílsk. Laus strax. Verð
8,4 millj.
Bauganes. Ca 100 fm ágæt íb.
á efri hæð í tvíb. ásamt 50 fm
bílsk. Verð 8,5 millj. Laus strax.
Vitastígur. Mikið endurn. 3ja
herb. íb. á 2. hæð. Verð 5,8 millj.
Rekagrandi. Mjög falieg 4ra
herb. íb. með bílskýli. Parket og
flísar á gólfum. Frábært útsýni.
Verð 9,8 millj.
Vesturbær - Kóp. 190 fm par-
hús ásamt innb. bílsk. Skipti á
minni eign koma til greina.
Fiskakvísl. Vandað 214 fm enda-
raðh. með 38 fm bílsk. V. 15,8 m.
Tjarnarmýri. Nýtt mjög vandað
267 fm raðhus m. bílskúr. Verð
17 millj.
Grænamýri. Giæsii. nýtt 256 fm
einbhús m. bílskúr. Til afh. strax.
Vantar allar stærðir
fasteigna á skrá.
Skoðum og verðmetum
samdægurs.
Höfum til sölu eða leigu
atvinnuhúsnæði af
ýmsum stærðum og gerðum.
Verslunarhúsnæði
BORNIN OKKAR
„Ef vel tekst til á heils-
dagsskóli eftir að skila
margfalt til baka þeim
fjármunum, sem í hann
voru lagðir. Heilsdags-
skóli barna í Reykjavík
er eitt brýnasta verk-
efnið á vegum borgar-
inar. “
eftir Brynjólf
Mogensen
Börnin eru það dýrmætasta sem
við eigum. Samt virðist það svo,
að við höfum ekki tekið nógu mikið
tillit til þarfa þeirra. Við höfum
ekki séð fyrir afleiðingar breyttra
þjóðfélagshátta og umhverfið er of
mikið miðað við þarfir fullorðinna.
Það er ekki fyrr en á síðustu árum
að gildismat þjóðarinnar breytist
og börnin hafa eignast kröftuga
málsvara.
Börnin og slysin
Slys á börnum eru algengari hér
á landi en annars staðar. Ekki er
um að kenna neinni sérstakri
ástæðu heldur er um samverkandi
þætti að ræða. Upplýsingar frá
slysadeild Borgarspítalans um háa
slysatíðni barna hafa vakið verð-
skuldaða athygli. Nauðsynlegt er
að samræma og styrkja forvarnar-
starf. Borgarspítalinn hefur um
árabil verið leiðandi í meðferð á
slösuðum börnum, þrátt fyrir að þar
sé ekki til staðar barnadeild. Á
Borgarspítalanum eru meðhöndluð
18-20 þúsund börn á hveiju ári
án þess að stil staðar sé barna-
deild. Þörfin fyrir barnadeild er
mikil. Ekki verður lengur við unað.
Flutningur barnadeildar Landa-
kotsspítala á Borgarspítala og sam-
eining Landakots og Borgarspítala
er nauðsynleg af íjórum ástæðum:
1. Að slösuð og veik börn fái
samfellda meðferð sömu aðila allan
tímann á Borgarspítala og að ekki
þurfi að flytja þau á annað sjúkra-
hús þegar þau fara að braggast.
2. Hæfileg samkeppni leiðir til
aukinnar hagræðingar.
3. Að foreldar veikra barna eigi
í flestum tilfellum val um á hvaða
sjúkrahús börnin eru meðhöndluð.
4. Að fullorðnir eigi í flestum til-
fellum val um á hvaða sjúkrahúsi
þeir eru meðhöndlaðir.
Beðið er eftir leyfi frá heilbrigðis-
ráðherra fyrir sameiningu Borgar-
spítala og Landakots og rekstri
barnadeildar á Borgarspítala.
Framtíð Borgarspítalans er í hönd-
um heilbrigðisráðherra.
Börnin og skólinn
Við íslendingar eigum því láni
að fagna, að búa við eitt besta
menntakerfi, sem um getur. Flestir,
sem hafa burði til þess, geta stund-
að nám við sitt hæfi, þökk sé góðu
menntakerfi. I þjóðfélagsþróun síð-
ustu áratugar hefur ekki orðið sam-
hliða þróun í skólamálum barna
fyrr en á allra síðustu árum. Við
vinnum langan vinnudag. Urðu
börnin okkar útundan í lífsgæða-
kapphlaupinu og hvers vegna? Er
þetta hluti af skýringu á hárri slysa-
tíðni barna og auknu ofbeldi?
í skólamálum er orðin á veruleg
breyting í Reykjavík. Það er farið
að starfrækja heilsdagsskóla. Starf-
semin hefur farið vel á stað og
verið mjög vel tekið? Ef vel tekst
til á heilsdagsskóli eftir að skila
margfalt til baka þeim fjármunum,
sem í hann voru lagðir. Heilsdags-
skóli barna í Reykjavík er eitt brýn-
asta verkefnið á vegum borgarinar.
I heilsdagsskóla verður meiri tími
fyrir foreldra til að sinna börnunum.
Það er a.m.k. reynsla undirritaðs,
erlendis frá. Ég tel líklegt að slysa-
tíðni barna muni lækka og ofbeldi
minnka, því í góðum heilsdagsskóla
Brynjólfur Mogensen
muni aðgæsla, sjálfsvirðingogsam-
kennd nemenda aukast. Heilsdags-
skóli skilar sér í betra þjóðfélagi
heldur en við búum við í dag.
Niðurlag
Það er vel, að börnin okkar hljóti
verðskuldaða athygli og að þjóðfé-
lagið sinni þeim betur en áður. Til
þess að búa börnunum betur í hag-
inn þurfum við að vera meðvituð
um þarfir þeirra. Heilsdagsskóli
barna í Reykjavík varð til af þörf
og á eftir að skila þjóðfélaginu
mjög miklu. Barnadeild á Borgar-
spítala er augljós þörf.
Höfundur er yfirlæknir
slydsadeildar Borgarspítala.
Kjördæmaþing reyk-
vískra sjálfstæðismanna
Til sölu eða leigu ca 450 fm
glæsilegt verslunarhúsn. við
Grensásveg ásamt 127 fm
lager á jarðhæð. Góð
greiðslukjör og hagst. verð.
Rauðarárstígur. 290 fm mjög
gott verslunarhúsnæði, til sölu
eða leigu. Laust strax.
624333
xZterkur og
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík heldur kjör-
dæmaþing í Reykjavík laugar-
daginn 22. janúar nk. Þingið er
haldið á Hótel Sögu, Átthagasal,
og hefst það kl. 10 árdegis.
í fréttatilkynningur segir að til
umræðu verði bæði lands- og borg-
armál. Rætt verður hvort Reykjavík
eigi að vera fleiri en eitt kjördæmi.
Fulltrúar nokkurra sjálfstæðisfé-
laga í Reykjavík fjalla um það hver
séu brýnustu viðfangsefnin á sviði
borgarmála og landsmála. Og fram-
bjóðendur í prófkjöri til borgar-
stjórnar flytja stutt ávörp og taka
þátt í almennum borgarmálaum-
ræðum. Þingið er opið öUum reyk-
vískum sjálfstæðismönnum.
Síðdegis verður aðalfundur Full-
trúaráðsins haldinn. Um kvöldið
gangast sjálfstæðisfélögin í Reykja-
vík fyrir þorrablóti.
011 Kfl 01 07fl L^RUS Þ’ VALDIMARSS0N framkvæmdastjori .
C I I Vv'b I 0 / W KRISTINNSIGURJ0NSS0N, HRL.löggilturfasteignasau
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Á góðu verði við Álfheima
Sólrík 3ja herb. íbúð tæpir 90 fm á 1. hæð við Álfheima. Þvegið á
rúmgóðu baði. Sólsvalir. Ágæt nýstandsett sameign. Vélaþvhús á jarð-
hæð.
Nýtt timburhús - hagkvæm skipti
Glæsilegt einbýlishús á útsýnisstað við Fannafold á tveimur hæðum
um 165 fm. Bílskúr - verkstæði tæpir 40 fm. Húsnæðislán til 40 ára kr.
3 millj.
Á kyrrlátum stað í Skerjafirði
Nýlega stækkað og endurbyggt mjög gott timburhús á einni hæð rúm-
ir 150 fm. Ný sólstofa. Ræktuð eignarlóð 816 fm með gróðurhúsi.
Skipti mögul. á 3ja herb. íb. í vesturborginni eða nágrenni.
Kirkjuteigur - gott lán - gott verð
Sólrík 3ja herb. kjíb. í reisulegu þríbhúsi. Sérhiti. 40 ára húsnæðislán
kr. 3,3 millj. Vinsæll staður.
Neðra Breiðholt - endaíbúð - gott lán
Mjög góð 3ja herb. ib. á 3. hæð. Parket. Góðir skápar. Ágæt sam-
eign. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj.
Nýlegt steinhús - eignaskipti
Einbýlishús á útsýnisstað við Jöldugróf 132 fm með 5-6 herb. íbúð.
Kjallari 132 fm íbúðar- og/eða vinnuhúsnæði. Sérbyggður bílskúr 49
fm. Tilboð óskast.
Á söluskrá óskast:
Eignir í gamla bænum, mega þarfnast endurbóta. Ennfremur góðar
íbúðir með bílskúrum, sérhæðir, einbýlishús og raðhús. Margskonar
eignaskipti.
• • •
Opiðídag kl. 11-14.
Margskonar eignaskipti.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 728. þáttur
Örnólfur Thorlacius heldur
áfram að fræða okkur með sín-
um hætti, og umsjónarmaður
birtir með þökkum:
„Kæri Gísli!
Margra alda hefð er fyrir því
að þýða evangelium sem guð-
spjíill. Samstofna orð í ensku og
sömu merkingar er gospel. Því
nefni ég þetta að nú er að ryðja
sér til rúms trúarleg tónlist sem
kölluð er gospel-tónlist. Hvað er
því til fyrirstöðu að kalla hana
einfaldlega guðspjallatónlist'?
Oft sést og heyrist orðalag
eins og „sænski forsætisráðherr-
ann“ eða „þýski sendiherrann“.
Betur kann ég við að ræða um
forsætisráðherra Svía eða sendi-
herra Þýskalands. Sjálfsagt er
þetta orðhengilsháttur eða sér-
viska en þetta þarf þó ekki allt-
af að fara saman. Árið 1949
hlutuðust Rússar til um það að
generáll í Rauða hernum og
hetja frá Stalíngrad, Konstantín
Konstantínóvítsj Rokossovskí,
varð yfirmaður pólska hersins
og varnarmálaráðherra Pól-
lands. Tæplega hefur hann verið
„pólskur varnarmálaráðherra".
Og Grímur Thomsen sat um
skeið í sendiráðum Danakon-
ungs í Þýskalandi, Belgíu og
Frakklandi. Hefði þá átt að kalla
hann „danska sendifulltrúann“?
Warum einfach wenn es auch
kompliziert geht? eða „hví ein-
falt ef hægt er að hafa það flók-
ið?“ er haft eftir Þjóðverjum. Á
þessum síðustu og verstu tímum
atvinnuleysis er stundum talað
um atvinnutækifærí. Þegar ný-
verið var í ríkisútvarpinu rætt
um slík tækifæri - eða hörgul
á þeim - benti kona mín á það
að þetta hefðu til skamms tíma
verið kölluð störf.
Nýyrði eru stundum skemmti-
leg. Þegar Guðmundur G. Þórar-
insson verkfræðingur kenndi
vetrarlangt stjömufræði í
Hamrahlíð lagði orðhagur sam-
kennari okkar til að fyrirbæri
sem á fræðimáli er kallað pré-
cession yrði á íslensku nefnt
framsókn. (Þess má geta að í
Almanaki Þjóðvinafélagsins frá
því um aldamót er grein um
framsóknarkenningu Darwins.
Það eru því fleiri en marxistar
og fijálshyggjumenn sem geta
sótt vísindalega kjölfestu til er-
lendra fræðimanna.)
Sjálfur fékkst ég í háskóla við
eldi frumdýra. Það voru ánægju-
ieg húsdýr og ekki háð bú-
marki, enda sá ekki högg á vatni
þótt bóndinn missti milljón í
vaskinn. Sum tylla þessi
smásæju kvikindi sér á vatns-
botn eða vatnaplöntur með sepa
sem á engilsaxnesku kallast
hoidfast. Sama heiti er haft um
þá parta frumdýra sem þau
hanga saman á meðan þau eðla
sig. Þetta hef ég kallað íhald og
hefur það fram yfir íhaldið sem
afabróðir minn Jónas frá Hriflu
varaði við að til er af því fleir-
tala, íhöld.
Hér á ég líklega að taka til
mín viðvörun frá öðrum og eldri
Jónasi sem líka var frændi minn:
„Hættu nú, herra, hér mun koma
verra!““ ^
Hvenær sem straumar stefna
að strönd, þeir er vinna grand,
enn munu öldur brotna
utan við Sand,
og-þá mun hinn þungi ómur,
þjóðlegi, sterki rómur
aðvara lýð og land.
(Steingrímur Baldvinsson í Nesi
í minningarljóði um Guðmund á Sandi.)
★
Og þá er annar hluti af þulu
Jóns Helgasonar, sjá síðasta
þátt:
Flakkari er víðförull,
framgjam og stundum svörull.
Bundinn við klakk var böggull,
bræddur oft tólgarkögguli.
Hugdeigur talinn heigull.
Harður í jörðu deigull.
Villuráfandi vingull,
vingsar í klukku dingull.
Hvimleiður reynist hvikull,
hálfu þó verri svikull.
Þungur er dreginn drösull.
Dettinn má teljast hrösull.
Nóg kryddar matinn negull.
Næmur við járn er seguil.
Heimskauta miilum möndull.
Margvafinn strangi göndull.
Stór er í hafi stökkull,
stendur und húsi sökkull.
★
Ævafornt er það fyrirbæri,
að systkin væru látin heita nöfn-
um sem eitthvað áttu sameigin-
legt. Landnámsmaður einn átti
alimörg börn, og voru nöfn
þeirra allra með Vé að fyrra lið,
Védís, Végeir o.s.frv.
Torfhildur Þorsteinsdóttir
(Hólm), f. 1845, var fyrst síns
nafns hérlendis, svo að ég viti.
Afi hennar hét Torfi, en eldri
systir Ragnhildur.
Ein íslensk kona ber nafnið
Bekkhildur, fædd í Eyjafirði
1902. Systir hennar hét Berg-
hildur. Bekkhildur mun ekki
tengjast nafninu Kvíabekkur,
eins og dæmi eru til um ættar-
nafnið Beck. Lárus Zophonías-
son amtsbókavörður hefur hins
vegar sýnt mér að skömmu áður
en mærin var skírð, andaðist þar
í sveit í blóma aldurs síns kona
að nafni Rebekka. Tilgátan um
uppruna nafnsins í Nöfnum ís-
lendinga virðist því vera lauk-
rétt.
Þess hefur áður verið getið,
að Þingeyingar voru harðsnúnir
á 19. öld að búa til ný nöfn sem
hófust á Sigur, svo sem Sigur-
björn, Sigurgeir og Sigurjón.
Þeir virðast einnig hafa fundið
upp nafnið Sigurvin. Einn mað-
ur hét svo á landi hér 1855, eins
árs, Sigurvin Sigurðsson, Þing-
eyingur. Bróðir hans hét Bald-
vin.
★
Hann litli Jón skaut Gunnu systur sína
á sextán skrefa færi og tókst að hitta;
þá sagði móðir hans, hún stóra Stína:
„Sá stutti verður einhverntíma skytta!"
(Úr Ljóðum handa bctra fólki.
Helgi Hálfdanarson þýddi.)