Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
Tillögur „þríhöfðanefndar“ til sjávarútvegsnefndar og hagsmunaaðila
Viðskipti með aflaheimild-
ir fari fram á Kvótaþingi
HEIMILT verður að færa aflamark á milli skipa í eigu sama að-
ila, en öll viðskipti með aflamark á milli útgerða önnur en jöfn
skipti verða að fara um opinn tilboðsmarkað, Kvótaþing, ef tillög-
ur þær sem svonefnd „þríhöfðanefnd“ hefur sent frá sér verða
að veruleika. Sú krafa verður gerð til Kvótaþings að kaupendur
og seljendur viti ekki hveijir af öðrum, svo þeir geti ekki sam-
mælst um undirboð.
í tillögunum sem ríkisstjórn
sendi sjávarútvegsnefnd í gær er
lagt til að settur verði upp tilboðs-
markaður, Kvótaþing, sem á að
Valur Valsson bankastjóri ís-
landsbanka segir að rekstraráætl-
anir fyrir árið i ár, geri ráð fyrir
áframhaldandi aðgerðum til að
auka hagkvæmni og spara í
rekstri. Þannig sé ráðgert að
meðalstöðugildi á þessu ári verði
668, þannig að stöðugildum fækk-
ar um nálægt 60 á þessu ári. Jafn-
framt sé að því stefnt að heildar-
rekstrarkostnaður lækki áfram og
nemi lækkunin á þessu ári a.m.k.
á milli 100 og 200 milljónum
króna.
Á liðnu ári voru þijú útibú ís-
landsbanka sameinuð öðrum og
hefur útibúum þá verið fækkað
um 10 eða 25% frá árinu 1990,
að bankinn tók til starfa. Að með-
altali voru stöðugildi í íslands-
Kærður fyrir
brot gegn
ungumpiltum
RÚMLEGA þrítugur Reykvík-
ingur hefur verið kærður fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur
ungum piltum.
Piltamir tveir, sem maðurinn
er sakaður um að hafa brotið gegn,
eru 14 ára gamlir. Morgunblaðið
fékk staðfest hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins að þangað hefði bor-
ist áð kæra á hendur manninum
og verið væri að vinna að rann-
sókn málsins. Frekari upplýsingar
um meint brot mannsins fengust
ekki.
annast viðskipti með allt það afla-
mark sem flyst á milli skipa. Und-
antekningar frá því eru að heimilt
verður að færa aflamark á milli
banka á liðnu ári 726, en það svar-
ar til fækkunar um 71 stöðugildi
frá árinu 1992. Frá árslokum 1989
til ársloka 1993 fækkaði starfs-
fólki bankans um 21,6%.
skipa í eigu sama aðila og leyfð
eru skipti á jafnverðmætum afla-
heimildum. Verður mat á jafnvirði
kvótanna byggt á samtímaverði
aflamarks á opinbera tilboðsmark-
aðinum. Til að koma í veg fyrir
undirboð er sú meginkrafa gerð
til markaðsviðskiptanna að kaup-
andi og seljandi viti ekki hver af
öðrum þannig að þeir geti ekki
sammælst um kaupin áður en þau
eru gerð.
Fyrirkomulag viðskiptanna
verður með þeim hætti að seljandi
kvóta tilkynnir Kvótaþingi um
magn og lágmarksverð þeirra fisk-
tegunda sem hann hefur ákveðið
að selja af tiiteknu fiskiskipi.
Kvótaþingið kannar hvort tilboðs-
gjafinn hefur heimild til að ráð-
stafa kvótanum og eins hvort afla-
heimildimar séu fyrir hendi. Að
öllum skilyrðum uppfylltum er til-
boðið skráð.
Sá sem óskar að kaupa afla-
heimildir tilkynnir það til Kvóta-
þings og tilgreinir magn, tegundir
og verð og fyrir hvaða fiskiskip
heimildimar era. Áður en tilboð
er skráð kannar Kvótaþing meðal
annars hvort skipið hefur aflahlut-
deild af þeirri tegund sem um
ræðir og að greiðslutrygging sé
fyrirliggjandi.
Viðskiptin eiga síðan að vera
með líkum hætti og á Verðbréfa-
þingi þannig að sá sem býður
hæsta verðið fær fyrstur kvóta og
þannig koll af kolli þar til kauptil-
boð fer undir hæsta sölutilboð. Ef
ekkert boð er jafnhátt eða hærra
en lágmarksverðið sem seljandi
hefur sett upp fyrir ákveðna teg-
und fer engin sala fram. Þegar
viðskiptin hafa farið fram sendir
Kvótaþing tilkynningu til Fiski-
stofu sem skrásetur flutning kvót-
ans milli skipanna.
Nefndin sem útbjó tillögurnar
var skipuð af sjávarútvegsráð-
herra í kjölfar setríingar bráða-
birgðalaga vegna sjómannaverk-
fallsins. Hlutverk hennar var að
gera tillögur um hvernig koma
mætti í veg fyrir að viðskipti með
aflaheimildir hefðu óeðlileg áhrif
á skiptakjör og einnig að undirbúa
nauðsynlega löggjöf í þeim efnum.
í nefndina vora skipaðir ráðuneyt-
isstjórarnir Árni Kolbeinsson sem
er formaður, Ólafur Davíðsson og
Þorkell Helgason.
Eldsvoði í Vill-
ingaholtshreppi
Heimilis-
hundurinn
gerði viðvart
Selfossi.
ELDUR kom upp í íbúðarhúsi
að Kolsholti III í Villingaholts-
hreppi laust fyrir kl. 22 í gær-
kvöld. Heimilishundurinn
gerði húsráðendum viðvart og
náðu þeir að slökkva eldinn
áður en slökkvilið kom á stað-
inn.
Eldsins varð vart þannig að
lassie-hundur sem var í kjallaran-
um opnaði dyr og kom upp í íbúð-
ina. Þegar heimilisfaðirinn ætlaði
með hann niður aftur þá gaus
reykurinn á móti honum. Upptök
hans vora í kyndingu í kjallaran-
um. Húsráðanda tókst að slökkva
eldinn með slökkvitækjum og urðu
skemmdir mjög óverulegar.
Slökkviliðið á Selfossi var kallað
á staðinn en þegar það kom að
hafði húsráðandi þegar ráðið
niðurlögum eldsins. Slökkviliðs-
menn gerðu því ekki annað en
ganga úr skugga um að allt væri
í lagi.
Að Kolsholti búa hjón með tvö
börn og var farið með bömin yfir
á næsta bæ á hlaðinu en í Kols-
holti era þrír bæir.
Sig. Jóns.
------» ♦ »----
Bankamenn
ganga frá
samningum
SAMBAND íslenskra banka-
manna hefur gengið frá lqara-
samningum við bankana. Samn-
ingurinn gildir til ársloka og er
hliðstæður þeim samningum sem
gerðir hafa verið á vinnumarkaði
undanfarna mánuði, hvað varðar
ákvæði um láglaunabætur og
orlofsuppbót. AHsheijarat-
kvæðagreiðsla um samninginn
fer fram 7. og 8. febrúar.
Að auki er í samningnum ákvæði
um aukinn uppsagnarfrest starfs-
manna. Fresturinn lengist úr þrem-
ur mánuðum í sex fyrir starfsmenn
sem starfað hafa í tíu ár eða náð
45 ára aldri. Áður þurfti starfsmað-
ur að uppfylla bæði skilyrðin til að
hafa sex mánaða uppsagnarfrest,
en nú eru rúmlega 100 bankamenn
á atvinnuleysisskrá. Þá era í samn-
ingnum ákvæði um aukna starfs-
menntun bankamanna. Ákveðið var
að Bankamannaskólinn hæfi starf-
semi að nýju en hún hefur legið
niðri undanfarin misseri og fær
Samband íslenskra bankamanna nú
aðild að rekstri skólans.
Vetur konungur ræður ríkjum
Morgunblaðið/Kristinn
MIKIÐ vetrarveður gekk yfir landið í gær og áttu bílar víða í erfiðleikum. Allt innanlandsflug féll niður og
má því segja að samgöngur hafi meira eða minna verið lamaðar. Þessi mynd sýnir vegfarendur í erfiðleikum
á Suðurlandsvegi í gærdag, snjó skóf inn á vélar bifreiða, sem drápu á sér.
Hagræðing og sparnaður í íslandsbanka hf.
Rekstrarkostnaður 480
milljónum lægri en 1991
ÁRIÐ 1993 lækkaði rekstrarkostnaður íslandsbanka um 250
milljónir króna, miðað við árið 1992, eða um 7,7%. Á síðustu
tveimur árum hefur rekstrarkostnaður samtals lækkað um 480
milljónir króna, þannig að árið 1992 lækkaði rekstrarkostnaður
bankans um 230 milljónir króna, miðað við árið 1991.
í dag
Bosníudeilan____________________
Owen lávarður hyggst halda áfram
friðarumleitunum í Bosníu 22
Mest verðbólga 1983_____________
Verðbólga náði sér á skrið fyrir
um 20 árum, náði hámarki 1983,
varð þá 84%, en hefur hjaðnað jafnt
og þétt síðan 24-25
Vilji löggjafans
Innlendur vettvangur um laga-
ákvæði varðandi innflutning land-
búnaðarafurða 25
Leiðari
Niðurstaða Hæstaréttar 24
ogÞriíinn
lcika 14hlutverk
IHorQimXitnbíb
Lesbók Menning/Listir
► Þjóðernishyggja, alþjóða- ^ Magnús Pálsson myndlistar-
hyggja og Evrópa - Hóladóm- maður - Af tónleikum Kammer-
kirkja: Ein brann en tvær fuku - músfkklúbbsins, söngtónleikum
Kúba, fögur og framandi - Co- og gítartónleikum - L.A. frumsýn-
usteau, rannsakari hafdjúpanna ir Barpar - Sýning á Sóloni
Grunaðir um að stela
varahlutum vamarliðs
ÞRÍR íslenskir starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa
undanfarið verið yfirheyrðir vegna gruns um að þeir hafi stolið
varahlutum í bíla frá hernum. Málið mun ekki hafa reynst eins alvar-
legt og í fyrstu var talið, en þó þykir ljóst að varahlutum hafi verið
stolið í einhverjum mæli undanfarin ár.
Bifreiðir varnarliðsins eru all-
flestar sendar út fyrir vallarsvæðið
til viðgerða. Grunur kom upp um
að starfsmenn hefðu ýkt bilanir og
látið varnarliðið kaupa varahluti,
sem engin þörf var fyrir. Varahlut-
ina hafi menn svo nýtt í eigin þágu.
Varnarliðið rannsakaði málið
sjálft í fyrstu, en óskaði síðan eftir
því að rannsóknarlögreglan á Kefla-
víkurflugvelli tæki við rannsókn
þess, þar sem íslenskir starfsmenn
áttu í hlut. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er málið ekki talið
eins alvarlegt og heryfirvöld höfðu
ætlað.
Óskar Þórmundsson, yfirlög-
regluþjónn, sagði að rannsókn
málsins hefði staðið yfir undanfarn-
ar tvær vikur, en eftir helgina
skýrðist hvenær eða hvort málið
yrði sent ríkissaksóknara til ákvörð-
unar.