Morgunblaðið - 22.01.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
5
Þorrinn í
Nausti á af-
mælisári
NAUSTIÐ við Vesturgötu, elzta
veitingahús landsins, verður 40
ára í haust. Naustið byrjaði fyrst
allra veitingahúsa að bjóða uppá
þorramat í trogum, eða árið
1958.
Síðan þá hefur ekkert ár fallið
úr og enn á ný býður Naustið lands-
mönnum upp á ekta íslenzkan mat
á þorranum. Að sögn Harðar Sigur-
jónssonar veitingamanns verður
hinn hefðbundni matur á boðstólum
og eins sjaldgæfar en rótgrónar
tegundir hjá Naustinu, s.s. súrsaðir
selhreifar. Fyrir þá sem eru lítið
fyrir súran mat er boðið uppá hangi-
kjöt, svið, saltkjöt og fleira. Hörður
segir að mikið sé búið að panta.
Lifandi tónlist er á föstudags- og
laugardagskvöldum. Ragnar
Bjarnason spilar á píanó og syngur.
------»-»-♦-----
Veiðistjórí til Akureyrar
Kom starfs-
mönnum í
opna skjöldu
ÁKVÖRÐUN umhverfisráðherra
um að flytja starfsemi veiðistjóra
til Akureyrar kom starfsmönn-
um í opna skjöldu. Ekkert sam-
ráð var haft við starfsfólk að
sögn Páls Hersteinssonar veiði-
stjóra sem segist ekki flylja með
stofnuninni norður.
„Ég get ekki farið sjálfur," sagði
Páíl. „Fyrir mér er það einfaldlega
val á milli fjölskyldunnar og starfs-
ins og þá er ekki spurning um hvort
ég vel.“ Þrír starfsmenn eru í fullu
starfi hjá stofnuninni auk þriggja
annarra í hlutastarfi sem samtals
er tæplega eitt starf. Sagði hann
að þeir væru í svipaðri aðstöðu og
hann varðandi flutninginn.
Páll sagðist hafa sent ráðherra
greinargerð um sína afstöðu eftir
að ákvörðunin var tekin. Hann
sagðist enn sem komið er ekki vilja
segja til um hvort hann segði starfi
sínu lausu. Ákvörðun um flutning
hafi komið öllu starfsmönnum á
óvart. Við þá hafi aldrei verið rætt.
------» ♦ ♦-----
Prófkjör í
Hafnarfirði
um næstu helgi
{ frétt af prófkjöri Sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði sem birtist í
blaðinu í gær, brenglaðist setning
í inngangi og fyrirsögn var röng.
Þar átti að standa, að prófkjörið
yrði um aðra helgi en ekki næst-
komandi helgi. Þetta kemur raunar
fram í textanum þar sem segir að
prófkjörið verði dagana 29. og 30.
janúar. Þá var ranglega farið með
nafn eins frambjóðandans, Ásdísar
G. Konráðs. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
mánaða ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bilum I eigu Brimborgar!
1 O O % Á B Y R G Ð
Opið laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Það getur verið töluverð áhætta að kaupa notaðan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt að útlit bílsins sé í lagi en fæstir
hafa getu né aðstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða
ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bílum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bflar af þessum tegundum eru yfirfarnir af
þjónustumiðstöð Ijrimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áður en bflarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt.
Ábyrgðin gildir til sex mánaða eða að 7500 km. og allt er i ábyrgð nema yfirbygging bílsins. faxafeni > ■ sími 91- 685870