Morgunblaðið - 22.01.1994, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
Sýknaðir af ákærum
um svik og skjalafals
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær þijá menn, þar á meðal
Jón Magnússon hæstaréttarlögmann, af ákæru um umboðssvik og mis-
notkun skjals, tilraun til fjársvika og hlutdeild í þeim brotum. í niður-
stöðum dómsins segir að skýrt hafi komið í Uós að grundvöllur opin-
berrar rannsóknar og ákærunnar í málinu hafi verið veikur.
Upphaf málsins var það að lög- vegar og virðist það einkum stafa
fræðingur Málningar hf. lagði fram
kæru á hendur kaupmanni í Reykja-
vík fyrir meðferð á veðskuldabréfi.
í kærunni sagði að kaupmaðurinn
hafi árið 1986 fengið að hagnýta sér
lánsrétt fyrirtækisins í verslunarl-
ánasjóði og í því skyni hafi fyrirtæk-
ið gefið út veðskuldabréf fyrir 5
milljónir króna sem maðurinn hafi
áritað og veðsett fasteign sína til
tryggingar á og síðan fengið lánsféð
í eigin hendur. Bréfíð hafi farið í
vanskil og maðurinn leyst það til sín
fyrir 11 milljónir króna í september
1992 og selt það þriðja manni fyrir
2 milljónir og jafnframt leyst fast-
eign sína úr veðböndunum.
Síðan hafi hæstaréttarlögmaður
reynt að innheimta 11 milljónir króna
út á bréfið hjá Málningu, án þess
að bréfið veitti raunverulega kröfu á
hendur Málningu. Hæstaréttarlög-
maðurinn hafi hafnað kröfu um að
afhenda fyrirtækinu bréfið að nýju
heldur stefnt Málningu í nafni fyrr-
greinds kaupanda kröfunnar. Óskaði
lögfræðingur Málningar eftir því að
við rannsókn málsins yrði upplýst
um þátt þess manns og hæstaréttar-
lögmannsins í málinu og þá hvort
þeir væru með refsiverðum hætti að
reyna að hafa fé af Málningu.
Eftir lögreglurannsókn höfðaði
ríkissaksóknari opinbert refsimál
gegn mönnunum þremur; kaup-
manninum, þeim sem sakaður var
um að hafa keypt af honum kröfuna
og Jóni Magnússyni, hæstaréttarlög-
manni en hann var sakaður um hlut-
deild í svikum hinna.
Ekkert kom fram sem studdi
ákæruna
Í dómi Guðjóns St. Marteinssonar
héraðsdómara er rakin framburður
hinna ákærðu og ýmissa vitna. í nið-
urstöðum dómarans segir að ekkert
hafí komið fram í málinu sem styðji
fullyrðingar í ákæruskjali um að
stjóm Málningar hafi heimilað kaup-
manninum að nýta lánsrétt félagsins
hjá Verslunarlánasjóði í þeim til-
gangi að ráðstafa fjárhæðinni til
greiðslu á skuld einkafyrirtækis
hans. Þvert á móti sé sannað að sótt
hafi verið um lánið vegna nýbygging-
ar kaupmannsins og samið hafi verið
um það munnlega að til þeirrar bygg-
ingar hafi lánsféð átt að renna.
Fram kemur í niðurstöðum dómar-
ans að ekki hafi verið staðið sem
skyldi að samskiptum og samningum
milli kaupmannsins og verslunar
hans annars vegar og Málningar hins
af persónulegum tengslum þess fólks
er hlut átti að máli.
Sá sem kærði þekkti ekki
bakgrunn málsins
„Þessir samskiptaörðugleikar og
dráttur [...] á fjárhagsuppgjöri þess-
ara aðila er að mati dómsins veikur
grunnur til að byggja á ákæru eftir
að annar málsaðilinn kærði til lög-
reglu. En hvorki með kærunum né
síðar voru lögð fram skjöl eða önnur
gögn sem eru til þess fallin að renna
stoðum undir staðhæfingar í ákæru-
skjalinu um að samskipti og athafnir
[kaupmannsins] sem lýst er í ákæru-
skjalinu séu saknæmar. Hins vegar
virðist ljóst [...] að um tvö mál er
að ræða, annars vegar umdeilt upp-
gjör vegna viðskiptaskuldarinnar og
hins vegar uppgjör vegna þess að
[kaupmaðurinn] fékk ekki lánsféð í
hendur eins og honum hafði verið
lofað og samið var um,“ segir í dóm-
inum.
Síðan segir að athygli veki að lög-
fræðingur Málningar, sem lagði fram
kærubréf þau sem hleyptu rannsókn
málsins af stað, hafí ekki vitað um
ýmis atríði í bakgrunni málsins, þar
á meðal til hvers lánið hafi átt að
ganga og hvort fyrirtækið eða kaup-
maðurinn fékk lánsfjárhæðina f
hendur.
„Grundvöllur opinberu rannsókn-
arinnar var þannig veikur og í raun
ákærunnar einnig og hefur þetta að
mati dómsins komið skýrar í ljós við
dómsmeðferð málsins," segir í dómi
Héraðsdóms.
Um ákærur yfir kaupanda skulda-
bréfsins og hæstaréttarlögmannin-
um segir í dóminum að ekkert sé
komið fram sem gefi til kynna að
kaupandinn hafi þekkt hvernig sam-
skiptum kaupmannsins og Málningar
hafí verið háttað eða að hann hafí
vitað að kaupmaðurinn hafí ekki átt
kröfu á fyrirtækið samkvæmt
skuldabréfínu. Rakið er að lögmaður-
inn og kaupandinn hafi í sameiningu
ákveðið að öllum vörnum skyldi
hleypt að í einkamáli því sem höfðað
var gegn Málningu til innheimtu
bréfsins og þar sem fulltrúi lög-
mannsins veitti bréfinu viðtöku til
innheimtu frá kaupandanum telur
dómurinn sannað að lögmaðurinn
hafí enga vitneskju haft um skulda-
bréfíð og/eða hugsanlegan ágreining
vegna þess fyrr en lögfræðingur
Málningar hafði samband við hann
eftir sendingu innheimtubréfs frá
fulltrúa á lögmannsstofunni.
Ekkert var saknæmt við
viðskiptin
Ekkert gefí til kynna að hæstarétt-
arlögmaðurinn hafí þá vitað um það
hvemig viðskiptunum hafí verið hátt-
að, „en svo sem lýst er hér að fram-
an var ekkert saknæmt við þau við-
skipti,“ segir í dóminum. Síðan er
rakið að lögmaðurinn sé ákærður
fyrir að hafa fylgt eftir innheimtutil-
raunum eftir að hafa fengið upplýs-
ingar frá lögfræðingi Málningar um
að kaupmaðurinn sjálfur en ekki
Málning væri hinn raunverulegi
skuldari frá upphafi. Dómarinn segir
að mótbámr lögfræðings Málningar
hafí ekki getað verið þess eðlis að
hæstaréttarlögmaðurinn hafí á þeim
forsendum mátt vita að kaupmaður-
inn væri hinn raunverulegi skuldari.
Þessi ályktun af þeirri staðreynd
hvað lögfræðingur Málningar vissi
lítið um sjálfan bakgrunn útgáfu
skuldabréfsins og hvað hann hafði
fengið litlar upplýsingar frá forsvars-
mönnum Málningar hf.
Áfrýjun við
dómsuppkvaðningu
Sakbomingarnir þrír vora því allir
sýknaðir af ákæram og veijendum
þeirra dæmd samtals 675 þúsund
króna málsvamarlaun úr ríkissjóði.
Við uppkvaðningu dómsins lýsti
ákæravaldið yfír áfrýjun dómsins til
Hæstaréttar.
Morgunblaðið/Júlíus
Göte Magnússon sendiherra Svía sæmir Atla Heimi Sveinsson orðunni
við athöfn í sendiráðinu í gær.
Atli Heimir Sveinsson
sæmdur sænskri orðu
ATLI Heimir Sveinsson tónskáld hefur verið tilnefndur af Karli Gustav
Svíakonungi til riddara Hinnar konunglegu norðurstjörnuorðu, I. gr.
Sendiherra Svíþjóðar, Göte Magnússon, afhenti Alta Heimi Sveinssyni
riddaramerkið við hádégisverð í sendiráðinu föstudaginn 21. janúar sl.
Atli Heimir Sveinsson hlýtur orð-
una fyrir framlag sitt til samvinnu
á tónlistarsviðinu milli Svíþjóðar og
íslands. Verk hans hafa m.a. verið
flutt í Gautaborg af dómorganistan-
um Henrik Janson og í Norrköping
af sinfóníuhljómsveitinni þar. Harin
hefur samið verk fyrir Maros ens-
amblen og unnið með Ríkiskonserter
og Fílharmoníuhljómsveitinni í
Stokkhólmi.
Konunglega norðurstjörnuorðan
var stofnuð árið 1748 af Friðriki I.
konungi. Hún er nú aðeins veitt er-
lendum ríkisborguram.
Stjóm Stéttarsambands bænda um afleiðingar dóms Hæstaréttar
Búvörulög takmarka
ekkí ínnflutningmn
Athugum hvar lagasetningin brást, segir Egill Jónsson
EGILL Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar Alþingis, hefur ákveðið
að kalla nefndina saman kl. 8 á mánudagsmorgun til að fara yfir dóm
Hæstaréttar í skinkumálinu og segir hann að að meta þurfi hvað hafi
brugðist í lagasetningu Alþingis í desember þegar samþykktar voru
breytingar á búvörulögunum. í ályktun sem stjórn Stéttarsambands
bænda hefur sent frá sér, segir að samkvæmt dómi Hæstaréttar séu
forsendur búvörusamningsins brostnar og ekki unnt að takmarka inn-
flutning landbúnaðarvara eftir ákvæðum búvörulaganna.
Egill segist hafa leitað álits sér-
fræðinga á því í desember hvort
breytingarnar á búvöralögunum, sem
þá vora samþykktar, tryggðu að for-
ræði innflutningsmála væra hjá land-
búnaðarráðherra og að takmörkun á
innflutningi búvara yrði óbreytt þótt
Hæstiréttur kæmist hugsanlega að
þeirri niðurstöðu að innflutningur
Hagkaups á skinku í haust væri
heimill. „Það var mat hinna fróðustu
manna sem ég leitaði til að þótt
Hæstaréttardómurinn félli á þennan
veg myndi breytingin á lögunum taka
af öll tvímæli um þetta. Nú liggja
fyrir í umræðunni miklar efasemdir
um það og í ljósi þess hlýtur málið
að verða skoðað," sagði hann.
Sinfóní uhlj óms veit
æskunnar og Zukofsky
eftir Atla Heimi
Sveinsson
Það var einkennilegt að hlusta
á Sinfóníuhljómsveit æskunnar
spila án Zukofskys þann 14. janúar
sl. Svo nátengt er nafn hans starfi
hljómsveitarinnar.
Þetta voru þokkalegir tónleikar,
en heldur ekki meira. Sá árangur,
sem náðist kann að nægja einhverj-
um, en ekki nærri öllum. Ekki var
um framför að ræða, allt líkt og
áður, en tæplega þó. Christofer
Adey er góður stjómandi, en hann
hafði ekkert nýtt, né ferskt, fram
að færa. Við eigum alveg eins góða
stjórnendur hér heima, og hvers
vegna þá að leita langt yfír
skammt? Það vantaði smitandi eld-
móð og andlegt gneistaflug Zukof-
skys. Það heyrðist greinilega og
viðbrögð áheyrenda voru eftir því:
moðvolg. Ef gestastjómendur hafa
„Zukofsky á hér
trygga aðdáendur. Við
mælumst til að hann
verði fenginn hingað,
til að taka við stjórnar-
taumunum á ný.“
ekkert áður ósagt fram að færa,
eru þeir ónauðsynlegir. Við getum
fengið hingað fjölda manna á borð
við Adey. Sagan mun bara endur-
taka sig. Miðlungsmennskan vinn-
ur á, snilldin verður á ur.danhaldi.
Það er ég ekki ánægður með.
Hvar er til ráða?, Það eitt að fá
Zukofsky hingað aftur.
Honum gekk nefnilega prýðilega
að starfa hér. Krakkamiryora him-
inlifandi, elskuðu hann. Áheyrend-
ur stórhrifnir. Verkefnaval var
metnaðarfullt og spennandi.
Framfarir stórstígar. En svo kom
stjórn sem misskildi hlutverk sitt:
'vildi stjóma listinni í staðinn fyrir
að þjóna henni, þá fór allt upp í
loft. Svo fór kjaftagangurinn um
Zukofsky af stað, en’ í smábæ er
hann skætt vopn í höndum þeirra,
sem æfðir era að beita því.
Við þekkjum þetta um þessar
mundir, þegar prófkjörsfaraldur
gengur yfir borgina, og kosninga-
skjálfti er í algleymingi. Margir eru
snillingar í rógburði án þess að
vita það.
Enginn hélt því fram að Sukof-
sky væri ekki nógu góður. Þvert á
móti: hann var kannski of góður.
Enginn hélt því fram að hann segði
ósatt eða væri undirförull. Þvert á
móti: hann var hreinskilinn og
sagði sannleikann umbúðarlaust.
Zukofsky á hér trygga aðdáend-
ur. Við mælumst til að hann verði
fenginn hingað, til að taka við
stjómartaumunum á ný. Annars
mun Sinfóníuhljómsveit æskunnar
Atli Heimir Sveinsson
staðna. Þá munu krakkamir missa
áhugann og áheyrendur hverfa.
Þegar framfarir verða engar í list-
inni, tekur stöðnun við, loks aftur-
för. Lágkúran mun verða alls ráð-
andi og listin flýr annað. Það verð-
ur að hindra.
Höfundur er tónskáld.
Egill vildi ekki fullyrða hvort nauð-
synlegt væri að breyta lögunum en
sagði augljóst, að hafi Alþingi orðið
á við lagasetninguna, yrði að taka
það til athugunar. „Þá er sérstaklega
nærri landbúnaðarnefnd Alþingis
höggvið því að hún hafði forræði
málsins í Alþingi og ber ábyrgð á
þessum texta eins og um hann var
fjallað á Alþingi,“ sagði Egill.
Egill sagði aðspurður að áform
Bónuss um innflutning kalkúnalæra
á næstunni væru ekki samrýmanleg
þeim ásetningi sem hafí falist í af-
greiðslu laganna á Alþingi. „Ég mun
Ieggja mig fram um það þegar þing
kemur saman aftur að við náum
valdi á hvað hefur bragðist í þessari
lagasetningu. Það liggur alveg fyrir
að með þessum lagabreytingum vor-
um við að færa innflutningsmálin í
þetta alþjóðlega umhverfí GATT og
EES, en við voram ekki að breyta
landbúnaðarpólitíkinni með það fyrir
augum að allur innflutningur yrði
frjáls,“ sagði Egill.
Alþingi bæti úr með
lagasetningu
í ályktun stjórnar Stéttarsam-
bands bænda á fimmtudag vegna
dóms Hæstaréttar í skinkumálinu
segir: „Hinn 11. mars 1991 gerði
Stéttarsamband bænda búvörasamn-
ing við ríkisvaldið, sem í 9. gr. kveð-
ur á um að forsenda samningsins sé
að reglum verði ekki breytt eða
ákvarðanir teknar um innflutning
búfjárafurða þannig að teflt verði í
tvísýnu því jafnvægi og þeim árangri
sem stefnt er að í samningnum.
Með breytingu á lögum um inn-
flutning hinn 17. nóvember 1992
hefur 9. gr. búvörusamningsins tví-
mælalaust verið brotin, þar sem laga-
breytingin felur í sér að ekki er unnt
eftir ákvæðum búvörulaga að tak-
marka innflutning landbúnaðarvara,
skv. nýföllnum dómi Hæstaréttar.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar eru
því forsendur búvörusamningsins
brostnar og skorar stjóm Stéttar-
sambands bænda á Alþingi að bæta
úr því með lagasetningu nú þegar.“