Morgunblaðið - 22.01.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
I
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svæði undir bensínstöð
í JAÐRI útivistarsvæðis við gatnamót Hlíðarbrautar og Borgarbrautar, vestan Glerárgils, er gert ráð
fyrir að reist verði bensínstöð, en tillaga að breytingum á aðalskipulagi Akureyrar sem hún hefur í för
með sér liggur frammi almenningi til sýnis.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar
Bensínstöð við jaðar útivist-
arsvæðis vestan Glerárgils
TILLAGA að breytingu á aðal-
skipulagi Akureyrar 1990 til
2010 þar sem gert er ráð fyrir
4.000 fm lóð fyrir bensínstöð í
norð-vestur horni útivistarsvæð-
is vestan Glerárgils, við gatna-
mót Hlíðarbrautar og Borgar-
brautar liggur frammi almenn-
ingi til sýnis á Skipulagsdeild
Akureyrarbæjar, en frestur til
að gera athugasemdir við fyrir-
hugaðar breytingar á aðalskipu-
lagi er til 14. mars næstkomandi.
Tilefni breytingarinnar er um-
sókn frá olíufélagi um lóð fyrir
bensínstöð, en ekki hafði verið gert
ráð fyrir fleiri slíkum stöðvum í
Glerárhverfi á því tímabili sem aðal-
skipulagið nær yfír.
Umrædd lóð er á svæði sem skil-
greint er sem vemdunarsvæði og
umlykur neðri hluta Glerárgils sem
er á náttúruminjaskrá, en í aðal-
skipulagi er gert ráð fyrir að allt
Glerárgil verði verndunarsvæði. Það
er hluti útivistarsvæðis þar sem nú
þegar er nokkur trjárækt og um
það liggur göngustígur. Lóðin er á
jaðarsvæði hins eiginlega vemdun-
arsvæðis.
Vandað verði til
mannvirkjagerðar
Fram kemur í greinargerð með
breytingartillögunni að byggingar
og önnur mannvirki muni hafa áhrif
—á umgjörð útivistarsvæðisins og
verði því lögð á það áhersla að vand-
að verði til allra mannvirkja á lóð-
inni þar sem um svo áberandi stað
í nánd mikilvægra útivistarsvæða
og gönguleiða sé að ræða. Taka
þurfí fullt tillit til umhverfissjón-
armiða hvað varðar landformun,
efnisval og útlit og byggingar þurfí
allar að falla vel að umhvefinu. Þá
er við það miðað að tijágróður
muni með tímanum hylja bensín-
stöðina þannig að hún sjáist ekki
frá göngustígnum um útivistar-
svæðið.
Skóvinnustofa Harðar í Hafnarstræti
Isklær og mannbrodd-
ar renna út í háJkunni
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ísklær í hálkutíð
ISKLÆR hafa runnið út eins og heitar lummur
í hálkutíðinni siðustu daga og þá hafa margir
keypt sér mannbrodda til að setja undir skóna,
þannig að það hefur verið mikið að gera hjá
Herði Hafsteinssyni skósmiði á Akureyri að und-
anförnu.
MIKIL hálka hef-
ur verið á götum
Akureyrar síðustu
daga og hafa hjón-
in Hörður Haf-
steinsson og Lilja
Stefánsdóttir, sem
reka Skóvinnu-
stofu Harðar í
Hafnarstræti,
varla undan að
selja ísklær undir
skó og þá hefur
sala á mannbrodd-
um verið afar mik-
il að undanförnu.
„Það er búið að
vera ansi mikið að
gera enda mjög hált
úti, þessi veðrátta
undanfarið minnir á
Suðurlandið," sagði
Hörður.sem einmitt
er alinn upp á því
svæði.
ísklærnar eru
festar undir hælinn
á skónum, en
mannbroddunum
aftur á móti smeygt
upp á skóinn, en
einnig er hægt að
setja klær undir all-
an skósólann. „Það er langörugg-
ast, en jafnframt líka dýrasta
lausnin og fólk verður þá að fóma
skónum alveg og nota þá bara í
hálkunni," sagði Lilja.
Rauði lampinn
í Borgarbíói
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
mun sýna kínversku myndina
Rauða lampann á morgun,
sunnudag kl. 17 og mánudag kl.
18.30.
Þetta er ein af myndunum sem
keppti við Börn náttúrunnar um
Óskarinn sem besta erlenda mynd-
in, en hún ijallar um 19 ára stúlku
sem gerist fjórða eiginkona auðugs
kínversks aðalsmanns. Hún lendir
fljótlega í hatrammri baráttu eigin-
kvennanna um að fá rauða lampann
fyrir framan dyrnar hjá sér en það
þýðir að húsbóndinn muni sofa hjá
viðkomandi eiginkonu.
(Fréttatilkynning.)
Mest eldra fólk
Langflestir úr hópi viðskipta-
vina eru eldra fólk og hefur
straumurinn verið stöðugur á
vinnustofuna í hálkutíðinni síðustu
daga. „Það er dálítið áberandi að
fólk kemur eftir að það hefur dott-
ið í hálkunni og kannski meitt sig,
en aðrir sýna fyrirhyggju,“ sagði
Lilja.
--------» ♦ ♦----------
■ ÍÞRÓTTAMAÐUR Þórs 1993
verður útnefndur í hófí í Hamri í
dag laugardaginn 22. janúar, kl.
13.30. Jafnframt verður kunngjört
val á bestu íþróttamönnum einstakra
deilda, þ.e. í körfuknattleik, hand-
knattleik, knattspymu og skíðum.
Að þessu sinni hlutu níu íþróttamenn
tilnefningu í kjörinu: Geir Kristinn
Aðalsteinsson, Jóhann Samúelsson,
Sævar Árnason, Hlynur Birgisson,
Júlíus Tryggvason, Birgir Örn Birg-
isson, Hafsteinn Lúðvíksson, Jóhann
Þórhallsson og Rögnvaldur Ingþórs-
SOn. (Fréttatilkynning.)
r
jfókftóur
r
a
morgun
V.
ASKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Agnes
Sigurðardóttir prédikar. Sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Kaffisala
Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir
messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Gideonfé-
lagar kynna starf sitt. Ræðumaður
Magnús Þorleifsson verslunarmað-
ur. Barnakórinn syngur undir stjórn
Erlu Þórólfsdóttur. Kirkjukaffi eftir
messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Barnastarf í safn-
aðarheimili á sama tíma í umsjá
Maríu Ágústsdóttur.
GRENSÁSKIRKJA: Heimsókn í Bú-
staðakirkju kl. 10.30. Farið frá
Grensáskirkju kl. 10.30. Ath. breytt-
an tíma. Messa kl. 14. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Sr. Gylfi Jóns-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðsluer-
indi kl. 10 um Biblíuútgáfur á liðnum
öldum. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Messa og barnasamkoma kl. 11.
Guðspjall dagsins:
(Matt. 6.). Er þér biðjist
fyrir.
Sr. Sigurður Pálsson. Barnakór
Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi
Kristín Sigfúsdóttir.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
HÁTEIGSKIRKJA:Messa kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Hámessa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur III) syngur. Barna-
starf kl. 13 í umsjá Hauks Jónasson-
ar og Jóns Stefánssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Organisti Ronald Turner.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Þórarins Björnssonar.
NESKIRKJÁ: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Guðsþjónusta kl.
14. Gideonfélagið kynnt. Geir Jón
Þórisson pródikar. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr: Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Hákon
Leifsson. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Eirnýjar og Báru. Fundur
með foreldrum skírnarbarna eftir
messu, þar sem sr. Jón Ragnarsson
flytur erindi um skírnarfræðslu kirkj-
unnar.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þór Hauksson.
Barnaguðsþjónustur á sama tíma í
Árbæjarkirkju, Ártúnsskóla og Se-
lásskóla. Organleikur: Sigrún Stein-
grímsdóttir. Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Kvöldmessa í samvinnu við
UFMH kl. 20.30. Altarisganga. Ný
tónlist. Kaffi á eftir. Organisti Daní-
el Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Biskup (slands Herra Ólafur Skúla-
son vísiterar söfnuðinn og prédikar.
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu
við Bjarnhólastíg kl. 11. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Máté-
ová. Guðsþjónusta kl. 18. Altaris-
ganga. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son, organisti Lenka Mátéová.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Org-
anisti Ólafur Finnsson. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson,
héraðsprestur þjónar. Barnastarf á
sama tíma. Kór Hjallakirkju syngur.
Organisti Kristín G. Jónsdóttir. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Biskup íslands Herra
Ólafur Skúlason vcsiterar söfnuðinn
og prédikar í guðsþjónustunni-
Dómprófastur sr. Guðmundur Þor-
steinsson ávarpar kirkjugesti í lok
guðsþjónustunnar. Kór Kópavogs-
kirkju syngur undir stjórn Arnar
Falkner organista. Skólakór Kárs-
ness syngur stólvers undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson prédikar. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Söguhornið kemur aft-
ur. Valgeir Guðjónsson riður á vað-
ið. Eftir guðsþjónustu verður fugl-
unum gefið. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa