Morgunblaðið - 22.01.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
21
Deila Samheija og Sjómannafélags Eyjafjarðar vegna tvíburatrollveiða
Sjómenn gera kröfu um
hækkun á skiptahlutfalli
Messur
■ AKUREYRARPRESTAKALL:
Sunnudagaskólinn kl. 11, munið
kirkjubílana. Fjölskyldumessa verð-
ur kl. 14. Ungmenni aðstoða. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og fjöl-
skyldna þeirra. Æskulýðsfundur
verður í kapellunni kl. 17 á morgun.
Biblíulestur verður í Safnaðarheimil-
inu nk. mánudagskvöld kl. 20.30.
■ GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur
Samherji kannar hvort bráðabirgðalögin nái til fyrra samkomulags um uppgjör
SJÓMENN á togurum Samlierja, Margréti EA og Oddeyrinni
EA, höfnuðu á fundi hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar í gær
að róa á sama uppgjöri og var fyrir áramót, en tilboð þess
efnis hafði borist frá útgerðinni, að sögn Konráðs Alfreðsson-
ar formanns félagsins. Akveðið hefur verið að leggja Oddeyr-
inni EA í kjölfar deilunnar og eins vegna kvótaleysis. Sam-
heiji er að skoða hvort bráðabirgðalögin nái til samkomulags-
ins sem gert var upp á fyrir áramótin.
Undirmönnum á togurunum
tveimur var sagt upp störfum síð-
astliðinn mánudag í kjölfar
ágreinings um uppgjör og hefur
lítið þokast í samkomulagsátt í
vikunni. Eftir að sjómenn höfnuðu
því að fá uppgert á sama hátt og
var fyrir áramót, segir Konráð að
boltinn sé hjá Samheijamönnum.
Uppsagnarfrestur undirmann-
anna rennur út næstkomandi
mánudag og sagði Konráð að ef
ekkert gerðist í málinu um helgina
yrðu um 40 sjómenn atvinnulausir
í kjölfarið.
Þungt hljóð
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrsti viðskiptavinurinn
■ >7
**’StSf§< '■ikx
i 1
HANNA Stefánsdóttir varð sú fyrsta til að versla
í nýrri verslun, Kjörbúðinni Kaupangi sem opnuð
var í gær. Verslunin er þar sem Matvörumarkað-
urinn var áður, en sem kunnugt er varð Sæborg
hf. sem rak verslunina gjaldþrota fyrir nokkru.
Skiptastjóri tók tilboði tveggja heildsala, Valgarðs
Stefánssonar hf. og Valdemars Baldvinssonar og
Bautans/Bautabúrsins í eignir þrotabúsins í vik-
unni og var ný verslun opnuð þar í gærmorgun.
Hanna býr skammt frá, í Víðilundi og var hin
ánægðasta með að geta á ný keypt inn j nám-
unda við heimili sitt. Það var Svanhildur Guð-
mundsdóttir verslunarstjóri sem tók á móti Hönnu
og færði henni blóm í tilefni af því að hún var
fyrsti viðskiptavinur verslunarinnar.
Togarar Samheija, Margrét og
Oddeyrin, hafa verið á svokölluð-
um tvíburatrollveiðum og snýst
ágreiningurinn m.a. um hvernig
skipta eigi aflaverðmæti milli
tveggja skipa sem hlut eiga að
veiðunum. Konráð sagði að félag-
ið hefði krafist þess að fá hærri
skiptaprósentu fyrir mannskapinn
um borð, eða þá sömu og gildir
fyrir frystitogara. Miðað við 24
menn í áhöfn vildi sjómannafélag-
ið því fá 31,5% af því sem eftir
er til skiptanna fyrir mannskapinn
þegar búið væri að draga 25%
kostnaðarhlut útgerðarinnar frá
heildaraflaverðmætinu. „Við vor-
um tilbúnir til að deila þessum
hlut í 28 staði í stað 24 eins og
vera ætti samkvæmt frystitogara-
samningum, en útgerðin bauð upp
á sama uppgjör og var fyrir ára-
mót, þar sem skiptaprósentan er
lægri,“ sagði Konráð. „Það er
mjög þungt hljóð í okkar mönnum,
nú hefur verið ákveðið að leggja
Oddeyrinni og við það er lífsbjörg-
inni kippt frá mannskapnum fyrir-
varalaust."
Álitamál
Þorsteinn Már Baldvinsson
framkvæmdastjóri Samheija
sagði að Oddeyrinni yrði lagt
næstu mánuði. Hann sagði ýmis
álitamál uppi vegna ágreinings
útgerðarinnar og sjómanna. „Það
er álitamál hvort bráðabirgðalögin
sem sett voru um daginn næðu
til þess samkomulags sem við
vorum að gera upp á án athuga-
semda og við erum að skoða það
mál núna,“ sagði Þorsteinn.
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
SÍK, KFUM/KSH, Háaleitisbraut
58-60: Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. „Ég mun gefa yður
nýtt hjarta" (Esek. 36,26nn). Upp-
hafsorð hefur Þóra Harðardóttir.
Ræðumaður Ragnar Gunnarsson.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Barna-
gæsla og barnasamkoma á sama
tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 11 helg-
unarsamkoma og sunnudagaskóli.
Lt. Sven Fosse talar. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Erlingur Níelsson
talar. Leikhópur frá Kefas tekur
þátt.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17. Öllum opið.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Mosfellskirkju kl. 14. Rútuferð frá
safnaðarheimilinu kl. 13.30. Barna-
starf í safnaðarheimilinu kl. 11. Bíll
frá Mosfellsleið fer venjulegan
hring. Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
13 í Kirkjuhvoli. Guðsþjónusta kl.
14. Fermd verðurTinna Eyjólfsdótt-
ir, Bæjargili 32, Garðabæ. Sóknar-
prestur.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta í Hrafn-
istu kl. 13. Guðsþjónusta með altar-
isgöngu í Víðistaðakirkju kl. 14. Kór
Víðistaðakirkju syngur. Organisti
Úlrik Ólason. Ólafur Jóhannsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Fermingar-
börn aðstoða. Barnakórinn syngur
ásamt kirkjukór. Organisti Ölafur
Finnsson. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Elfn
Jóhannsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Magnús Guðjónsson predikar
og þjónar fyrir altari. Organisti
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu að lokinni
guðsþjónustu. Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku
sunnudagaskólabarna, ferming-
arbarna og foreldra þeirra. Sr. Sig-
fús Baldvin Ingvason prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Keflavík-
urkirkju syngur, organisti og stjórn-
andi Einar Örn Einarsson. Prestarn-
ir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Barn
borið til skírnar. Organisti Gróa
Hreinsdóttir. Unglingastarfið kl.
20.30. Baldur Rafn Sigurðsson.
SJÚKRAHÚS Keflavíkurlæknishér-
aðs: Guðsþjónusta kl. 13.20. Baldur
Rafn Sigurðsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnastarf-
ið kl. 11. Messa kl. 14. Fermingar-
börn taka þátt í athöfninni. Kaffi-
veitingar í safnaðarheimilinu eftir
messuna sem fermingarbörn og
foreldrar þeirra annast. Sókn-
arprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta á
bænadegi kirkjunnar kl. 11. Hjörtur
Magni Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta
á bænadegi kirkjunnar kl. 14. Hjört-
ur Magni Jóhannsson.
GARÐVANGUR, dvalarheimili aldr-
aðra í Garði: Helgistund kl. 15.30.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Samvera
10-12 ára barna kl. 17.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa kl.
14. Ágúst Einarsson guðfræðingur
prédikar. Tómas Guðmundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Kaffi
eftir messu.
ODDAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Skírn. Organisti Halldór Óskars-
son. Sunnudagaskóli í grunnskólan-
um Hellu kl. 11. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14.
Almenn guðsþjónusta á Hraunbúð-
um kl. 15.15. Kl. 20 unglingafundur
KFUM & K í Landakirkju.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sérstakt erindi
til foreldra og annarra forráða-
manna barna um bænina. Kristján
Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
ustaj dag laugardag kl. 11. Stjórn-
andi Haukur Jónasson. Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag kl. 13 í safn-
aðarheimili. Stjórnandi Axel Gú-
stafsson. Messa sunnudag kl. 14.
Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta i Borgarneskirkju kl.
11.15. Sóknarprestur.
og bænastund kl. 13.00 í dag, laug-
ardag. Barnasamkoma kl. 11, eldri
systkini og/eða foreldrar hvattir til
að koma með börnunum. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kirkjukaffi kvenfélags-
ins verður í safnaðarsalnum að guðs-
þjónustu lokinni. Fundur æskulýðs-
félagsins kl. 17.30. Systrakvöld
mánudagskvöldið 24. janúar kl.
20.30.
■ HJÁLPRÆÐISHERINN:
Helgunarsamkoma kl. 11 á morgun,
sunnudagaskóli kl. 13.30, bæn kl.
19.30, almenn samkoma kl. 20.
Mánudag ki. 16 er heimilasamband
þar sem allar konur eru velkomnar.
■ KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyr-
arlandsvegi 26 á Akureyri: Messa
í dag, laugardag, kl. 18 og á morg-
un, sunnudag, kl. 11.
Hörð kosningabarátta krefst
sterkra frambjóðenda
Inga Jóna Þórðardóttir
Rétt
kona á
réttum
stað.
Inga í
annað
sætið
Úrslit kosninga geta ráðist
af vali í prófkjöri. Höfum
þetta í huga þegar við
veljum framboðslista fyrir
kosningarnar í vor og
stillum upp sigurlista!
Stuðningsmenn
Ingu Jónu Þórðardóttur
Skrifstofa stuðningsmanna,
Vesturgötu 2, (Álafoss-
húsinu). Símar 16560 og
16561. Opið 10-22.