Morgunblaðið - 22.01.1994, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
Owen lávarður hyggst halda áfram friðarumleitunum í Bosníudeilunni
Þing- Rússlands vill aflétta
refsiaðgerðum gegn Serbum
Moskvu, Lundúnum, París, Genf, Sarajevo. Reuter.
ÞING Rússlands hvatti í gær stjórn landsins til að beita sér fyrir því
að refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Serbum vegna stríðsins
í Bosníu yrði aflétt. Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, kvaðst reiðubúinn að heimila loftárás í Bosníu ef
sérlegur fulltrúi sinn þar, Yasushi Akashi, færi fram á það. David
Owen lávarður, samningamaður Evrópubandalagsins (EB) í Bosníu-
deilunni, kveðst ekki ætla að segja af sér þrátt fyrir ályktun Evrópu-
þingsins um að nýr samningamaður verði skipaður og nýjum aðferð-
um verði beitt til að koma á friði í júgóslavneska lýðveldinu fyrrver-
andi.
Neðri deild rússneska þingsins,
dúman, samþykkti ályktun um að
refsiaðgerðunum yrði aflétt með
288 atkvæðum gegn aðeins tveim-
ur. Átta fulltrúar sátu hjá.
í ályktuninni segir ennfremur að
dúman hafí miklar áhyggjur af
umræðum innan Atlantshafsbanda-
lagsins um möguleikann á því að
gera loftárásir á skotmörk í Bosníu.
„Dúman er þeirrar skoðunar að það
sé ekki aðeins ógjörningur að binda
enda á stríðið með ofbeldisaðgerð-
um, heldur geti slíkt þvert á móti
leitt til enn grimmilegri átaka og
aðeins valdið íbúum landsins enn
meiri hörmungum." Rússar hafa í
aldaraðir litið á Serba sem banda-
menn sína.
Boutros-Ghali fól fulltrúa sínum,
Akashi, að leggja fram áætlun um
hugsanlegar hernaðaraðgerðir í
Bosníu. Hann sagði í gær að hann
myndi heimila loftárás ef hinar
stríðandi fylkingar reyndu að koma
í veg fyrir að hollenskir hermenn
tækju við störfum kanadískra her-
manna í landinu. Öryggisráð Sam-
einúðu þjóðanna hefur veitt Bout-
ros-Ghali vald til að heimila loftá-
rásir í Bosníu.
Ætlar að þrauka út veturinn
Owen lávarður sagði á fimmtu-
dagskvöld, eftir að Evrópuþingið
hafði hvatt EB til að skipa nýjan
samningamann í hans stað, að það
væri ekkert leyndarmál að hann
vildi losna við þetta erfiða starf.
Hann hefði hins vegar lofað utan-
ríkisráðherrum EB-ríkjanna að
halda áfram friðarumleitunum „út
þetta erfíða tímabil“. „Forgangs-
verkefni okkar er að tryggja að
Bosníumönnum berist hjálpargögn
í vetur. Þessi vetur gæti auðveld-
lega reynst hörmulegur,“ sagði
hann.
Thorvald Stoltenberg, samninga-
maður Sameinuðu þjóðanna, kom
Owen til varnar og sagði að ekki
væri hægt að kenna honum um að
ekki hefur tekist að koma á friði.
„Enginn hefur lagt eins mikið af
mörkum og lagt jafn hart að sér í
langan tíma til að koma á friði í
Bosníu og Owen lávarður,“ sagði
Stoltenberg. Owen hefur reynt að
semja um friðsamlega lausn á Bos-
níudeilunni frá því í september
1992.
Francis Briquement hershöfð-
ingi, yfirmaður friðargæsluliða
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, lét
svo um mælt í gær að embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna og EB
ættu ekki að ræða við leiðtoga
hinna stríðandi fylkinga því þeir
hefðu margoft sýnt að þeim væri
ekki treystandi til að standa við
samninga sína.
Embættismenn ríkja sem sent
hafa friðargæsluliða til Bosníu ræða
nú hvort það þjóni tilgangi að vera
með 12.000 hermenn í landinu þeg-
ar vetri lýkur. Allar hinar stríðandi
fylkingar hafa ráðist á friðargæslu-
liðana og það er nánast ógjörningur
fyrir þá að sinna hlutverki sínu í
landinu vegna bardaganna.
Malcolm Rafkind, varnarmála-
ráðherra Bretlands, sagði í gær að
Bretar myndu ekki kalla hermenn
sína heim nema Sameinuðu þjóðim-
ar ákvæðu að hætta starfseminni.
Ekkert lát á
þjóðernishreinsunum
Serbar hafa undanfarna daga
myrt að minnsta kosti átta múslima
og Króata og ráðist 90 sinnum á
hverfi þeirri með byssum og hand-
sprengjum til að flæma þá í burtu
í Banja Luka, stærstu borginni á
yfirráðasvæði Serba í Bosníu. Emb-
ættismenn Sameinúðu þjóðanna
segja að ekkert lát sé á „þjóðernis-
hreinsunum" Serba á svæðinu.
Allar hinar stríðandi fylkingar
hafa gerst sekar um ofsóknir gegn
óbreyttum borgurum, en Serbar
hafa gengið lengst og flæmt hund-
ruð þúsunda múslima og Króata frá
heimkynnum sínum í Bosníu.
Reuter
Kaldar hvílur
KULDARNIR í Bandaríkjunum hafa kostað tugi manna lífið, þar á meðal marga, sem hvergi eiga höfði sínu að
halla nema kannski á bekkjum almenningsgarðanna. Hér í Lafayette-garðinum í Washington, steinsnar frá
Hvíta húsinu, hafast nokkrir við undir dúkum, sem breiddir hafa verið yfir þá og bekkina. Veðurfræðingar sögðu
í gær að frosthörkurnar væru í rénun og búast mætti við að hitinn færi upp fyrir frostmark um helgina eða í-
byrjun næstu viku.
Róttækir umbótasinnar hverfa úr ríkisstjórn Rússlands
Tsjemómýrdín óttast hrun
risafyrirtækjanna gömlu
UMBÓTASINNAR í Rússlandi eru margir felmtri slegnir yfir niður-
stöðu stjórnarkreppunnar er hófst með afsögn Jegors Gajdars efna-
hagsmálaráðherra, eins aðalhöfundar þeirra róttæku umskipta frá
miðstýringu í átt til markaðsbúskapar sem hafin var fyrir tveim
árum. Aðeins einn róttækur umbótasinni er nú eftir í ríkissljórn
Viktors Tsjernómýrdíns forsætisráðherra, það er Anatolíj Tsjúbajs,
sem annast hefur einkavæðingu. Tsjernómýrdín segir að hægar verði
farið í sakirnar í markaðsvæðingu. Enn er óljóst hver þáttur Borís
Jeltsíns forseta er í mannabreytingunum; einn af helstu ráðgjöfum
hans, Viktor Ujúshín, fullyrti í gær að forsetinn væri ekki að leggja
róttækri umbótastefnu fyrir róða.
Ráðherra
segir
af sér
GUY Coeme, aðstoðarforsætis-
ráðherra Belgíu og tveir aðrir
háttsettir ráðamenn Sósíalista-
flokksins sögðu af sér í gær
vegna mútuhneykslis sem vald-
ið hefur miklúm deilum i land-
inu að undanförnu. Mennirnir
þrír eru allir grunaðir um að
hafa tekið við mútum í tengsl-
um við kaup á ítölskum Agusta-
þyrlum árið 1988. Forseti
landshlutastjórnarinnar í
Vallóníu, Guy Spitaels og einn
af ráðherrum hans, Guy Mat-
hot, hafa ásamt Coeme vísað
ásökununum harðlega á bug
en þeir munu nú verða yfir-
heyrðir. Coeme sagði að fjöl-
miðlar hefðu staðið fyrir áróð-
ursherferð gegn sér og beitt
orðrómi, lygum og slúðursög-
um.
Kröfum Sinn
Fein hafnað
BRESK stjórnvöld höfnuðu í
gær kröfum Sinn Fein, stjóm-
málaarms hryðjuverkasamtak-
anna IRA, um að betur yrði
útskýrt hvað fælist í samkomu-
lagi stjóma Bretlands og ír-
lands um að hvetja til friðar-
samninga milli kaþólikka og
mótmælenda á Norður-írlandi.
Albeif Reynolds, forsætisráð-
herra íra, gagnrýndi á fimmtu-
dag Sinn Fein fyrir að ætla sér
tvo mánuði til að segja endan-
lega álit sitt á hugmyndum
hans og Johns Majors, forsætis-
ráðherra Breta.
Fullnægja
ekki skilyrð-
um EB
VERÐBÓLGA í Svíþjóð, 4.8%,
og Austurríki, 3,5%, var nógu
há í desember til þess að ríkin
tvö, sem bæði hafa sótt um
aðild að Evrópubandalaginu
(EB), fullnægðu ekki skilyrðum
sem sett hafa verið fyrir þátt-
töku í væntanlegri mynteiningu
EB fyrir aldamót. írar, Bretar,
Danir, Hollendingar, Frakkar
og Belgar fullnægðu skilyrðun-
um, einnig Norðmenn og
Finnar.
Eitur í fjörum
hreinsað
YFIRVÖLD í Hollandi segja að
loka verði 100 km langri sand-
fjöru á strönd landsins um helg-
ina vegna eiturefnamengunar..
Fjöldi manna vinnur nú að því
að hreinsa fjöruna, búinn hlífð-
arklæðnaði. Um 200.000 tunn-
ur með sveppaeitrinu Apron
Plus 50 DS eru sagðar vera á
floti á Norðursjó, tugþúsundir
hefur þegar rekið á land. Er
talið að þær hafi komið úr
frönsku fragtskipi sem missti
hluta af farminum fyrir borð i
óveðri í desember. Alitið er að
eitrið geti borist á land í Þýska-
landi og Danmörku næstu
daga.
Öldruðum
bannað að ala
börn
FRANSKA öldungadeildin
samþykkti í gær lög sem kveða
á um bann við því að konur sem
komnar eru úr barneign fái að
ala glasaböm. Einnig var sam-
þykkt að setja strangari skil-
yrði fyrir glasafrjóvgun, m.a.
að mæðurnar séu í traustu sam-
bandi við karl. Lagt var bann
við því að átt væri við fóstur
til að „framleiða betri“ börn.
Iljúshín sagði að vissulega bæri
að harma brottför umbótasinna á
borð við Jegor Gajdar og Borís Fjod-
orov úr stjórn en umbótum yrði
haldið áfram. Forsetinn þyrfti að
að taka tillit til breyttra aðstæðna,
m.a. styrks þjóðernisöfgamanna og
kommúnista á nýja þinginu. „En
það er ekkert óðagot á honum,
hann flýr ekki úr einu virkinu í
annað. Hann hvikar hvergi frá
sannfæringu sinni“, sagði ráðgjaf-
inn í samtali við Reuters-fréttastof-
una.
Umbótasinninn Anatolíj Sobt-
sjak, borgarstjóri í Pétursborg, var
á öðru máli. „Síðustu breytingar á
stjórninni eru stórhættulegar“,
sagði hann á fréttamannafundi.
„Mér finnst yfirlýsingar stjórnar-
innar núna minna á yfirlýsingar
[þjóðernisöfgamannsins Vladímírs]
Zhírínovskíjs“. Dagblaðið
Sevodníja, sem er hallt undir sjónar-
mið Zhírínovskíjs, gaf í skyn að
mannabreytingum Tsjernomýrdíns
mætti jafna við hallarbyltingu og
sagði að sett hefði verið á laggirnar
„samsteypustjórn" til bráðabirgða.
Borís Fjodorov spáði því .að nú
tæki við tímabil óðaverðbólgu, tekin
yrði upp sama stefnan og í Úkraínu
þar sem ráðamenn hafa ýtt á undan
sér öllum ákvörðunum um markaðs-
umbætur með þeim afleiðingum að
efnahagsgrundvöllur ríkisins er að
hrynja. Hann sagði að þetta væri
einmitt þróunin sem Zhírínovskíj
vonaði að hæfist.
Vestrænir efnahagssérfræðingar
eru yfirleitt á sama máli, þeir telja
að hægfara umbætur, sem Tsjerno-
mýrdín boðar, séu ekkert annað en
tilraun til að fresta óhjákvæmileg-