Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
29
Orð vega þungt
eftir Gunnar
Salvarsson
Um síðustu páska heyrði ég í
útvarpi endurtekinn kafla úr erindi
sem þjóðkunnur maður hafði lesið
upphátt í þessu sama útvarpi rúm-
lega þrjátíu árum áður. Það brá
fyrir hæðni í rödd mannsins þegar
hann sagði frá því að Grænlending-
ar væru svo miklir „skrælingjar“
að þeir hefðu ekki einu sinni orð
yfir „guðslambið". Þessi orðafátækt
átti, að því mér skildist, hvort
tveggja í senn að lýsa lágu menn-
ingarstigi grænlensku þjóðarinnar
og frumstæðri tungu þeirra. Slík
niðurlægjandi viðhorf til ólíkra
þjóða og tungumála voru í fullu
gildi á þessum tíma án þss nokkrum
þætti það tiltökumál. Það þurfti
reyndar ekki þjóðir til; innanlands
voru auðmýkjandi viðumefni brúk-
uð um ýmsa minnihlutahópa án
þess _svo mikið að menn ypptu öxl-
um. Í dag blygðast maður sín fýrir
það eitt að kalla fram þessi ljótu
orð eins og „fáviti“ og „aumingi"
sem þóttu fyrir aðeins fáeinum ára-
tugum réttmæt lýsing á tilteknum
þjóðfélagshópum. Þá voru líka börn
sem þurftu á stuðningi að halda í
almennum skóla kölluð „afbrigði-
leg“ af löggjafanum; hvunndags
gengu þau hins vegar undir nafninu
„tossar".
Fatlaðir og ófatlaðir
A síðustu áram hafa verið gerðar
heiðarlegar tilraunir til þess að
fækka þessum opinberu brenni-
merkingum, hugsunarhátturinn er
í þá átt að einstaklingurinn fái not-
ið hæfileika sinna, jafnvel þó að
þeir séu á einhvern hátt skertir í
samanburði við eitthvert landsmeð-
altal. í samræmi við þessa hug-
myndafræði var til að mynda reglu-
gerð um sérkennslu í landinu endur-
skoðuð fyrir fáeinum árum og hætt
að skilgreina kennslutímaþörf fyrir-
fram eftir „fötlun eða tilteknum
erfiðleikum nemenda“, eins og
sagði í greinargerð nefndarinnar
sem endurskoðaði reglugerðina.
Þess í stað var álitið skynsamlegt
að líta á börnin með sérþarfimar
sem „fötluð". Sérkennslureglugerð-
in og grunnskólalögin (einnig lögin
um málefni fatlaðra 1992) sem
fylgdu í kjölfarið undirstrikuðu það
viðhorf að þjóðinni hefði verið skipt
í tvennt, fatlaðir annars vegar,
ófatlaðir hins vegar. Með lagasetn-
ingunni var kveðið á um að stefnt
skyldi að „samskipan fatlaðra og
ófatlaðra nemenda í heimaskóla",
en það fyrirbæri hefur oftar er ekki
verið nefnt „blöndun".
Það var sjálfsagt tímabært að
hætta að draga þjóðina í dilka.
Nógu illt orð fer af landbúnaðinum
og sauðkindinni þó ekki sé verið
að minna á réttir þegar verið að
ræða þá „sem minna mega sín“ í
þjóðfélaginu, eins og stundum er
sagt á auðmýkjandi hátt með til-
heyrandi vorkunnsemi. En þó gáfu-
legt hafi verið að hætta flokkun
barna með ólíkar þarfir var skyn-
samlegt að leysa eina brennimerk-
inguna af hólmi eða annarri? Erum
við ekki hvert og eitt okkar með
sínu sniðinu? Rúnar Helgi Haralds-
son mannfræðingur og fleiri hafa
réttilega bent á, að þegar sagt er
að einhver sé fatlaður felur það
einnig í sér að sá hinn sami er
minna virði en aðrir, minna virði
en þeir ófötluðu.
Umtalsverður munur er líka á
því hvort talað er um að einhver
sé fatlaður eða hvort sá hinn sami
hafi eða eigi við tiltekna fötlun að
stríða, því í fyrra tilvikinu er gefið
ranglega til kynna að fötlunin sé
höfuðeinkenni einstaklings, en í síð-
ara tilvikinu að um einhveijar
hindranir geti verið að ræða í sam-
spili einstaklings og umhverfís.
Lagabókstafurinn upphefur and-
stæðumar, fatlaður/ófatlaður og
festir að því leyti ranglætið í sessi
og kyndir undir samfélagslega við-
horfið til einstaklingsins, að hann
sem einstaklingur sé minna virði
en aðrir.
Blöndunarstefnan í skólamálum
landsins er brennd sama merki
ójöfnuðar. Þó henni sé ætlað það
háleita hlutverk að skapa jöfnuð
milli þessara tveggja hópa, fatl-
aðra/ófatlaðra, felst einlægt í gem-
ingnum að þeim verðminni er
„blandað" saman við þann verð-
meiri, leiðin liggur frá því óæðra
til hins æðra, frá sérskólunum til
almennu skólanna.
Ef markmið okkar er réttlátara
þjóðfélag með áherslu á gildi ein-
staklingsins, eins og sýnist að sumu
leyti vera markmið lagasetningar
síðustu ára, verður að stíga skrefið
til fulls og viðurkenna einstakling-
ana eins og þeir eru, með þeim frá-
vikum sem gerir mannlífið fjöl-
skrúðugt. Stefnan um „blöndun“
ber með sér yfírbragð kúgunar, þar
sem meirihlutinn telur minnihlutan-
um fyrir bestu að tileinka sér gildis-
mat sitt. Réttlátara þjóðfélag fæst
ekki með drottnunargirni meirihlut-
ans, ekki heldur með samúð, aðeins
með gagnkvæmri virðingu milli ein-
staklinganna sem mynda samfélag-
ið; í slíku samfélagi fá einstakling-
amir tækifæri til að vera þeir sjálf-
ir, ef þeir samsama sig sem heyrn-
arlausir, svo dæmi sé tekið, eiga
þeir að hafa þann rétt. Það er frá-
leitt af samfélaginu að stimpla þá
„fatlaða".
Heyrnarlausir rændir
nafnspjaldinu
Það er einmitt einkar áhugavert
að skoða þessa þróun út frá sjónar-
hóli heymarlausra vegna þess að
hugtakið „heyrnarlaus" er í senn
félagsleg brennimerking samfé-
lagsins en jafnframt stolt og ein-
kenni málminnihlutahópsins sem
hefur íslenskt táknmál að móður-
máli. Þegar „nýi“ hugsunarháttur-
inn í sérkennslumálum gerði alla
nemendur sérskólanna „fatlaða“ í
stað þess að þeir vora áður til-
greindir heyrnarlausir, blindir,
þroskaheftir o.s.frv., var það gert
í anda manngildis til að koma í veg
fyrir samfélagslega brennimerk-
ingu. Það hafði ef til vill tilætluð
áhrif fyrir einhveija hópa samfé-
lagsins, en ekki heyrnarlausa. Þeir
voru í raun rændir „nafnspjaldinu“
sínu, sem tilgreindi stöðu þeirra í
samfélaginu. Skyndilega vora þeir
hluti af ótilgreindum fjölda sem var
„fatlaður", sviptir sérkennum sín-
um og sérstöðu. Það hefur líka
komið á daginn að flest það sem
talið er hæfa „fötluðum" verður líka
að gilda um heyrnarlausa sam-
kvæmt yfirvaldanna boði, jafnvel
þó það fari í bága við hagsmuni
heyrnarlausra, eins og til að mynda
„blöndun".
Að nota hugtakið „fatlaður“ um
heyrnarlausa er sérdeilis óviðeig-
andi og allt að því óafsakanlegt
þegar búið er að sýna fram á það
að maðurinn (Homo Sapiens) er
búinn þeirri náttúru að þó heyrnina
vanti opnast leið til máltöku gegn-
um sjónina, svo fremi að heyrnar-
laus börn fái tækifæri til að alast
upp í táknmálsumhverfi. Það era
þessi undur sem hefðu fyrir löngu
átt að breyta viðhorfum til heyrnar-
lausra.
Táknið fyrir „heyrnarlaus", vísi-
fingur og langatöng lögð þétt upp
að eyranu með „döv“-munnhreyf-
ingu, hefur ekki merkinguna að
heyra ekki meðal heyrnarlausra,
eins og flestir halda, heldur þýðir
fremur „við“ eða „samfélag heyrn-
arlausra"; hefur með öðrum orðum
jákvæða merkingu til samsömunar
fyrir hópinn, en ekki læknisfræði-
Leifur Sigurðsson
Kvígsstöðum, Anda-
kílshreppi
Fæddur 19. maí 1939
Dáinn 6. janúar 1994
Þó dauðinn sé jafn óijúfanlegur
hluti lífsins og dagurinn nóttinni,
eru það ávallt jafn erfiðar stundir
þegar tíðindi berast af því að einn
úr hópnum er skyndilega og án við-
vörunar að því er virtist kallaður
burt úr lífi þessa heims. Þannig var
það um morguninn hinn 6. janúar
sl. þegar starfsfólk Bændaskólans
á Hvanneyri var að mæta til vinnu
sinnar og þau tíðindi spurðust að
þá um nóttina hefði einn af starfsfé-
lögunum, Leifur Sigurðsson á
Kvígsstöðum í Andakíl, verið
skyndilega kallaður yfir móðuna
miklu. Engum sem dagana á undan
áttu samskipti við Leif gat til hugar
komið að þau verk eða orðaskipti
yrðu þau seinustu hérna megin
grafar. Hann yrði ekki framar þátt-
takandi í þeim margvíslegu umsvif-
um sem fylgir því að sinna bústörf-
um við skólabúið á Hvanneyri og
— Minning
ekki yrði framar teknar rispur um
þjóðmálin yfir kaffitári í loðdýra-
húsunum, hann hefur sagt sitt síð-
asta orð. Þannig þjóta minninga-
leiftur gegnum hugann um leið og
reynt er að gera sér grein fyrir hinni
óumflýjanlegu staðreynd að Leifur
á Kvígsstöðum sé allur.
Leifur Sigurðsson var fæddur 19.
maí 1939 að Efri Þverá í Fljótshlíð
og var af rangæsku bergi brotinn.
Frambernsku sína lifði-hann í Hlíð-
inni fríðu en fluttist með foreldrum
sínum til Reykjavíkur barn að aldri.
Hann sagði þó aldrei skilið við sveit-
ina, dvaldi þar löngum og átti aust-
ur í Fljótshlíð sitt annað heimili öll
bernsku- og unglingsárin. Hann var
alla tíð sveitamaður að eðlisfari og
sýndi sveitastörfum og landbúnaði
áhuga þegar á unga aldri.
Þegar almennri skólagöngu þess
tíma var lokið hleypti hann heim-
draganum og settist í Bændaskól-
ann á Hvanneyri haustið 1956 og
lauk þaðan búfræðiprófi vorið 1958.
Ekki er að efa að Borgarfjörðurinn
hefur heillað því fáum árum síðar
eða í maí 1964 tekur hann til ábúð-
ar jörðina Kvígsstaði sem er í næsta
nágrenni Hvanneyrarskólans og
átti hann þar heimili sitt til dauða-
dags. í fyrstu var búskapurinn aðal-
starf hans en smám saman þurfti
að afla tekna með vinnu utan bús
og urðu þau störf umfangsmeiri
með hveiju ári. Síðasta áratuginn
vann hann nær einvörðungu að
störfum utan bús.
Leifi á Kvígsstöðum kynntist ég
fyrst fyrir um 20 árum þegar ég
settist að á Hvanneyri og þá sem
nágranna. Síðar urðu kynni okkar
mun nánari þegar hann gerðist
starfsmaður skólabúsins á Hvann-
eyri haustið 1980, fýrst sém starfs-
maður í fjósi og fjárhúsum og fjósa-
meistari um skeið eða til vors 1984.
Frá hausti 1989 og til dauðadags
var hann starfsmaður við hirðingu
loðdýra á skólabúinu. Leifur var vel
greindur að eðlisfari en fremur fá-
skiptinn og hafði sig ekki mikið í
frammi en það kom þó fljótt í ljós
að hann lét ekki hlut sinn fyrir
neinum og var staðfastur á skoðun-
um sínum. Trúmennska og alúð í
verkum voru honum eiginleg og
lagði hann.sig fram um að skila
verkum þeim sem honum var trúað
fyrir vel af hendi. Hann var afar
Gunnar Salvarsson
„Ef markmið okkar er
réttlátara þjóðfélag
með áherslu á gildi ein-
staklingsins, eins og
sýnist að sumu leyti
vera markmið lagasetn-
ingar síðustu ára, verð-
ur að stíga skrefið til
fulls og viðurkenna ein-
staklingana eins og þeir
eru með þeim frávikum
sem gerir mannlífið
fjölskrúðugt.“
lega túlkun á líffræðilegum galla
eins og hamrað er á af heyrandi
meirihlutanum.
Leiðir til viðhorfsbreytinga
Viðhorf fólks til samkynhneigðra
hafa gjörbreyst á fáeinum árum.
Áhugavert væri að bera saman
minnihlutahópa, eins og heyrnar-
lausa og samkynhneigða, skilgreina
t.d. ástæðurnar fyrir árangri sam-
kynhneigðra í viðhorfsbreytingu
samfélagsins til þess að velta fyrir
sér hvort svipaðar leiðir væri hægt
að fara til þess að framkvæma við-
horfsbreytingu í þágu heyrnar-
lausra. Eg veit ekki hveiju samkyn-
hneigðir þakka árangur sinn en ég
læt mér detta í hug að þar komi
einkum til tvennt; nýtt hugtak og
öflug fræðsla. Áður fyrri fólst for-
dæming samfélagsins í garð þessa
hóps ekki síst í nafngiftinni sem
brúkuð var; „kynvillingur". Hug-
takið var neikvætt, fól í sér að ein-
staklingurinn var afbrigðilegur,
gallaður. Með því að breyta um
nákvæmur um að mæta á rétum
tíma til vinnu sinnar á hveiju sem
gekk. Það var ekki alltaf auðvelt
að komast þann stutta spotta sem
er milli Kvígsstaða og Hvanneyrar
í misjöfnum vetrarveðrum nánast
fýrir fótaferðartíma eins og þurfti
til að sinna morgunverkum í fjósi.
Leifur Sigurðsson var gæfumað-
ur í einkalífi sínu. Hann kvæntist
eftirlifand konu sinni Særúnu Æ.
Karlsdóttur 20. maí árið 1964 og
eiga þau fjögur mannvænleg börn
sem nú eru öll uppkomin og komin
með fjölskyldur. Særún var manni
sínum ávallt mikil stoð og stytta
og bjó honum og börnum þeirra
hlýlegt og fallegt heimili. Seinustu
árin unnu þau bæði hjá Bændaskól-
anum á Hvanneyri
Leifur Sigurðsson hefur lokið
hugtak og nota gegnsætt hlutlaust
orð, „samkynhneigð", var unnt að
kalla fram nýjan skilning almenn-
ings á tilvist þessa minnihiutahóps.
Samhliða var unnið öflugt fræðslu-
starf.
Heyrnarlausir eru að burðast
með hugtak sem felur í sér skort
eða vöntun, heymarlausir. Þegar
minnihlutahópar eru skilgreindir út
frá læknisfræðilegum annmörkum
verða til fordómar, vantrú á getu
hópsins og einstaklinganna til af-
reka því það er einblínt á það sem
vantar (þó þeir sem fæddir eru án
heyrnar finni ekki fyrir neinum
missi) en ekki á margvíslega hæfí-
leika þeira eða það sem gerir þá
einstaka, t.d. ótrúlega öflugt sjón-
skyn og sjónrænt tungumál, í tilviki
heyrnarlausra. í öðru lagi eru
heyrnarlausir málminnihlutahópur
sem á erfítt með að koma á frai^n
færi öflugri fræðslu vegna þess að
fáir skilja móðurmál þeirra. Staða
þeirra væri líkastil skárri ef unnt
væri að fara sömu leið og samkynj
hneigðir — en vandinn er að finna
nýtt hugtak og koma á víðtækri
fræðslu. Það er hins vegar þegar
ákveðin andúð uppi meðal heyrnar-
lausra varðandi hugtak eins og
„heyrnleysingjar"; það þykir niðr-
andi að nota það orð í dag og hlýt-
ur að kalla á nafnbreytingu á
Heyrnleysingjaskólanum. Við
sjáum hversu niðrandi hugtakið er
þegar við yfirfærum það, aldrej;
myndi t.d. hvarfla að okkur að nota
hugtakið „sjónleysingi" yfir blinda.
Af hveiju þá „heyrnleysingi" fyrir
daufa?!
Mætti blása nýju lífi
í hugtakið „daufur“?
Einhvern tíma á vegferð okkar
gegnum söguna glopruðum við nið-
ur hugtakinu „daufur“ yfir heyrnar-
lausa. Það hefur reyndar ekki feng-
ið jákvæða merkingu í málinu, en
hugtakið sjálft gefur ekki til kynna
skort en vöntun, það er að því leyti
hlutlaust og ég gæti ímyndað mér
að það gæti gefið heyrnarlausuu^
sbr. þá samkynhneigðu, tækifæri
til að auka skilning á hópnum í
samfélaginu út frá nýjum forsend-
um, þ.e. sem mál- og menningar-
minnihluta en ekki sem „fatlaða".
Það er líka kostur við hugtakið
„daufur“ að það afmarkar þennan
hóp frá öðrum heyrnarskertum og
heyrnarfirrtum, munnhreyfingin í
íslenska táknmálinu með hugtakinu
yfir þennan málminnihlutahóp er
„döv“ og enn er ótalinn sá kostur
að „daufur" er í stíl við norræn
nöfn og ensk, sbr. „döv“, „dove“,
„deaf‘.
Höfundur er skólastjóri
Heyrnleysingjaskólans en er í
ársleyfi frá störfum ogstundar
nám við háskólann íBristoI í
Bretlandi.
--------------------------------f
hinsta dagsverki hérvistar sinnar
og Bændaskólinn á Hvanneyri sér
nú á bak traustum og trúum starfs-
manni og þakkar verkin hans. í dag
þegar hann er kvaddur hinstu
kveðju í Hvanneyrarkirkju er okkur
nágrönnum hans og samstarfsfólki
efst í huga söknuður yfir þeim missi
sem okkar litla samfélag hefur orð-
ið fyrir. Við erum einnig þakklát
fyrir samverustundir og samskipti
áratuganna þriggja sem liðnir eru
síðan hann settist hér að. ylF
Við fjölskyldan og samstarfsfóllf
ið á Hvanneyri flytjum Særúnu og
fjölskyldunni á Kvígsstöðum dýpstu
samúðarkveðjur og biðjum algóðan
Guð að varðveita þau og veita þeim
huggun og styrk í sárum harmi.
Magnús B. Jónsson,
Hvanneyri.
Guðmundur Andrés Guð-
mundsson — Minning
Fæddur 16. nóvember 1915
Dáinn 1. janúar 1994
Okkur langar með nokkram orð-
um að minnast afa okkar. Það var
alltaf gaman að heimsækja afa og
ömmu. Þótt við komum óvænt þá
var alltaf tekið á móti okkur með
mikilli hlýju og kærleika.
Afi, við munum sakna þínjpikið.
Við vitum að þú ert á góðum stað
og þér líður vel.
Elsku amma, megi guð styrkja
þig í sorg þinni.
Bryndís Guðlaug, Kristinn
og Kristín Helga.