Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Snorri Aðalsteinsson
Fremst til vinstri situr Bára Hreiðarsdóttir og við hlið hennar Margrét Júlidóttir. Fyrir aftan þær f.v.
eru Anna Sigurðardóttir, sparisjóðsstjóri, Anna Halldórsdóttir og Inga Kristín Sveinbjðrnsdóttir.
BANKAR
Met í innlánum undir
stjórn kvenna
Fátítt er að peningastofnanir á
íslandi séu reknar eingöngu
af konum. Þó er málum svo háttað
í Sparisjóði Hornafjarðar og ná-
grennis. Einnig geta konumar stát-
að af Islandsmeti í innlánsaukningu
bankastofnana milli áranna 1992
og ’93, sem var 63,6%, en meðaltal-
ið var 9,7% á landinu. Innlán ársins
voru um 280 milljónir króna, en
voru um 170 milljónir árið áður.
„Við erum auðvitað mjög stoltar,
því hér koma engir karlmenn inn
fyrir dyr nema sem viðskiptavinir,“
sagði sparisjóðsstjórinn Anna Sig-
urðardóttir og bætti við að innláns-
aukningin árið áður hefði verið rúm
32%.
Hún telur skýringuna á þessari
gífurlegu aukningu megi að hluta
rekja til þess að stutt sé síðan bank-
inn var stofnaður eða í maí 1991.
Minni sveiflur séu hjá bönkum sem
eru orðnir fastari í sessi. Við þeirri
spumingu hverjir væm að tapa inn-
lánum á þetrra kostnað vildi hún
ekki gefa neitt beint svar. „Hér er
öflugur og stór Landsbanki, þar sem
innlánin em miklu stærri. Eg býst
þó fastlega við að eitthvað hafí flust
frá þeim til okkar. Einnig má láta
sér detta í hug að sú almenna inn-
lánsaukning sem orðið hefur á svaeð-
inu hafí frekar komið til okkar. Ég
hef hins vegar engar tölur í höndun-
um, því opinberar tölur um hvert
og eitt útibú Landsbankans em ekki
komnar fram,“ sagði hún.
Fædd og uppalin á Hornafirði
Anna er fædd og uppalin á
Homafírði og þekkir því vel til þar.
„Ég hef verið hér alltaf af og til
meðfram því að vera í skóla. Ég
lauk masters-prófí í opinberri
stjórnsýslu í Bandaríkjunum um
áramótin 1990/91 og hafði aðeins
unnið nokkra mánuði í fjármála-
ráðuneytinu þegar mér bauðst þetta
starf,“ sagði hún. Anna er ein
þriggja kvenkyns sparisjóðsstjóra á
Islandi en hinar tvær em báðar á
Akureyri. Önnur er í Sparisjóði
Akureyrar og Amameshrepps og
hin í Sparisjóði Glæsibæjarhrepps.
Þegar hún var spurð hver við-
brögð viðskiptavinanna urðu þegar
kom í ljós að eingöngu kvenmenn
höfðu verið ráðnir svaraði hún að
ekki hafi borið á öðm en þeim hafi
líkað það vel. „Það er auðvitað hent
svolítið gaman að þessu því hér inn-
andyra em bæði skrifstofur Vá-
tryggingafélagsins og lögfræðingur
sem er fasteignasali. Þær em báðar
konur, þannig að hér á kaffistofunni
em ekki einu sinni karlmenn í kaffí-
tímanum. Einu karlmennimir era
eins og áður segir viðskiptavinimir."
Bæði íslendingum og
Dönum hefur tekist vel
til með talsetningu á
Aladdín.
VIÐURKENNINGAR
Danir fá hrós fyrir Aladdín
Islendingar eru ekki
þeir einu sem fá hrós
fyrir góða talsetningu á
teiknimyndinni Aladd-
ín. Nú hafa Danir einn-
ig hlotið hól fyrir sína
útgáfu. í skeyti sem
útibú Walt Disney í
Danmörku barst í hend-
ur kemur fram að
danska útgáfan sé með
þeim bestu í heimi.
Sannast hér enn einu
sinni hvað íslendingar
og Danir eru frábærar
þjóðir!
HÚSAVÍK
Guðni Helgason
íþróttamaður ársins
Guðni Rúnar
Helgason, 17 ára
ungur og efnilegur
knattspymumaður,
var valinn íþróttamað-
ur ársins á Húsavík.
Guðni Rúnar leikur
með Völsungi, en
hann lék einnig alla
leiki, sem landslið 18
ára og yngri háði á
síðasta ári. Hann hef-
ur nú gert samning
við enska knattspym-
uliðið Sunderland og
leikur með unglingal-
iði þess í vetur. Guðni
Rúnar stundar fleiri
íþróttir og varð í sum-
ar Norðurlandsmeist-
ari í golfi.
Þeir sem næst
komu titlinum vora
Anný Björg Pálma-
dóttir, Amar Arn-
grímsson, Lilja Frið-
riksdóttir og Sveinn
Bjömsson.
Titilinn Völsungur
ársins er veittur þeim
ungmennum sem
skara fram úr í íþrótt-
um og félagsstörfum.
Hlutu hann að þessu sinni Jóhanna
Gunnarsdóttir og Unnar Þór Garð-
arsson. Varðveita þau bikar sem
Morgunblaðið/Silli
Standandi eru Völsungar ársins Jóhanna
Gunnarsdóttir og Unnar Þór Garðasson. Á
milli þeirra með bikarinn er Helgi Kristjáns-
son faðir Guðna Rúnars sem nú dvelur í
Englandi.
gefinn hefur verið í minningu
Hallmars Freys Bjamasonar sem
lengi var formaður Völsunga.
Duff McKagan, bassaleikari GNR, þenur hrjúf raddböndin.
UMDEILT
Lag Mansons á nýrri
skífuGNR
Bandaríska þungarokkssveitin
Guns n’ Roses sendi nýverið
frá sér skífu sem kom aðdáendum
sínum í opna skjöldu. í stað hins
hefðbundan skammts af nötrandi
þungarokki í bland við ljúfar ballöð-
ur, kom skífa full af gömlum lögum
eftir hina og þessa tónlistarmenn.
Það er sundurleitur hópur og vom
rokkararnir krafðir svara. Þeir tjáðu
mönnum að lög þessi væm eftir
sveitir þær og einstaklinga sem
höfðu haft hvað mest áhrif á þá í
tónlistinni á ámm áður. Þegar menn
höfðu fyrirgefið víxlsporið fékk skíf-
an eðlilega umfjöllun og þótti þegar
að var góð vera öldungis frábær.
En hljómsveitin var mjög gagnrýnd
vegna eins lags á plötunni og allt
fram á síðustu mínútu stóð jafnvel
til að það yrði ekki með. Það er lag-
ið við „Look at your Game Girl“ sem
reyndist vera eftir fjöldamorðingj-
ann Charles Manson, en sem kunn-
ugt var hann höfuðpaur hóps ung-
menna sem myrtu fímm manns í
Los Angeles árið 1969. Meðal hinna
myrtu var leikkonan Sharon Tate,
eiginkona leikstjórans Roman Pol-
anski, en hún gekk með bam þeirra
hjóna undir belti.
Slash, gítarleikari GNR, sagði um
þetta, að þeir félagarnir hefðu verið
reiðubúnir að sleppa laginu er al-
mannarómur taldi að Manson, sem
situr í steininum og afplánar lífstíð-
ardóm, myndi fá prósentur af sölu.
Sagði Slash að það hefði ekki komið
til greina af þeirra hálfu, en er látið
var á það reyna kom í ljós að prósent-
umar myndu þess í stað renna til
sonar Pólveq'ans Voiytek Frykowski,
en hann var góður vinur Polanskis
og einn hinna myrtu. Frykowski
yngri er búsettur í Póllandi. Þetta
var ákvæði úr dómi frá árinu 1971.
„Það breytti öllu og við emm kátir
með það. Skífan hefði ekki verið söm
án þessa lags,“ bætti Slash við.
Hinn ungi Frykowski fær nú
óvæntan glaðning, því GNR er gif-
urleg söluvara. Seljist skífan, sem
heitir annars „The Spaghetti Incid-
ent“, í milljón eintökum, fær Pólverj-
inn 62.000 dollara í sinn hlut.