Morgunblaðið - 22.01.1994, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
TmicH
ffiOÁBOU
NÖTHING
A KENNETH BRANAGH FILM
spæ jari sem á á
hættu að færast of
mikið í fang!
YS OG ÞYS ÚT AF ENGU
Ný hörkugóð spennumynd frá Tony Scott sem leikstýrði „Top Gun“.
„...skondið sambland af „The Getaway" og „Wild at Heart", mergjuð
ogeldheitástarsaga...sönnásteródrepandi.“ ★ ★ ★ A.l. Mbl.
Sýnd kl. 9 og 11.15. B.i. 16 ára.
Sannkölluð stórmynd með úrvals leikurum sem hefur fengið fra-
bæra dóma. „Fyrirtaks skemmtun, ærslafullt og hressilegt bió
sem svikurengan." ★ ★ ★ A.l. Mbl.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI22140
★ ★ ★ ★
NEW ÝORK POST
★ ★★★
EMPIRE
★★★ ★★★
Rás 2 MBL.
MICHAEL KEATON
KEANU REEVES
DENZEL WASHINGTON
KENNETHBRANAGH
ROBERT SEAN LEONARD
EMMA THOMPSON |
CHRISTIAH SLATER
PATRICIA ARQUETTE
é Dennis HOOPER
Val KILMER
f Gary OLDHftM
Brad PITT
f0*" Christopher WALKEN
LAj^* ★★★
Hp^ 1.1. Mll.
★★★★
Slity Secanil
Pieiiw
f laiirlt
QUEHTIN TftRAMTIMO
Lelkstjirl
TONY SCOTT
INDOKINA
Sýndkl.9.15.
Síðustu sýningar.
B. i. 14ára.
Bráðfyndin fjölskyldumynd.
Sýnd kl. 3 og 5.10.
BRAÐFWDÍN^oBSSÍMýW
meb
islensku taii
An Adventurc
65 MillionYears In l’heMaking.
Sýnd kl. 3 og 7. B.i. 10 ára.
Meiriháttar grínbomba þar sem gert er stólpagrin að stórmyndum á
borð við „Fatal Attraction" og „Basic Instinct".
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára.
■ í KOLAPORTINU
verða um helgina á annað
hundrað böm og unglingar
meðal seljenda þar sem þeim
verður gefín ókeypis aðstaða
til hvers konar fjáröflunar-
starfsemi. Þetta er í annað
sinn sem Kolaportið efnir til
slíks sérdags en börnum og
unglingum er að sjálfsögðu
velkomið að fá þar sölubása
alla markaðsdaga. Tilgang-
urinn með þessu er að vekja
athygli barna og unglinga á
því hvernig þau geta notað
Kolaportið til að afla fjár á
heiðarlegan hátt með eigin
vinnu og hugvitsserni. Til að
örva hugmyndaflug ung-
mennanna - mun Kolaportið
veita sérstaka viðurkenningu
og verðlaun fyrir frumleg-
ustu fjáröflunarstarfsemina.
Áskorendaeinvígi FIDE-heimsmeistarakeppninnar
Anand og Salov sigursælastir
Skák
Margeir Pétursson
TVEIR stórmeistarar hafa tek-
ið örugga forystu í áskorenda-
einvígjum sínum í Wijk aan Zee
í Hollandi sem nú standa yfir.
Indverjinn Vyswanathan An-
and hefur unnið tvær skákir í
röð af reynda rússneska einvíg-
ismanninum Artúr Júsupov.
Anand stendur þeim Kasparov
og Karpov næstur á stigum og
þykir líklegur áskorandi þeirra
beggja, en sem stendur eru
tvær heimsmeistarakeppnir í
gangi. Rússinn Valerí Salov
hefur einnig tveggja vinninga
forskot en hann mætir landa
sínum, Alexander Khalifman.
Salov hefur unnið tvö löng og
ströng endatöfl með hvitu
mönnunum í sannkölluðum
Karpov-stíl.
Eftir er að tefla fimm skákir í
einvígjunum sex og stefnir í æsi-
spennandi baráttu í flestum
þeirra. Tvítugi Frakkinn Joel
Lautier jafnaði metin gegn Jan
Timman með laglegum sigri í
þriðju skákinni. Hollendingurinn
Van der Sterren jafnaði gegn
Gata Kamsky með sigri í annarri
skákinni, en koltapaði svo þeirri
þriðju í aðeins 25 leikjum. Allar
þrjár skákir þeirra hafa unnist á
svart.
Eftir glæsitaflmennsku í fyrstu
skákinni hefur 18 ára gamla rúss-
neska „krónprinsinum" Vladímír
Kramnik ekki tekist að auka for-
skot sitt á Júdasín frá Israel. Eina
einvígið sem er í járnum er á
milli þeirra Michael Adams frá
Englandi og Boris Gelfand, Hvíta-
Rússlandi. Þrjár hörkuskákir
þeirra hafa allar orðið jafntefli.
Eftir að hafa haldið öruggu
jafntefli með svörtu í fyrstu skák-
inni hefur Artúr Júsupov ekki
verið svipur hjá sjón. Hann fékk
engar bætur fyrir peðsfórn í ann-
arri skákinni og Anand vann hana
léttilega. Hann virtist þó ekkert
læra af þessu og eftir að hafa
jafnað taflið í þriðju skákinni
hugðist hann hrifsa til sín frum-
kvæðið með peðsfórn, en reiknaði
ekki dæmið rétt út:
Hvítt: Vyswanathan Anand
Svart: Artúr Júsupov
Spánski leikurinn
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3.
Bb5 - a6, 4. Ba4 - d6, 5. c3
Í fyrstu skákinni svaraði Anand
fáséðri Steinitz-vörn andstæð-
ingsins með 5. Bxc6+, en komst
ekkert áfram.
5. - Bd7, 6. d4 - Rge7, 7. Be3
- h6!?, 8. Rbd2 - g5, 9. dxe5
- dxe5, 10. h4 - g4, 11. Rh2
- h5, 12. Rhfl - Rg6, 13. g3
- Be7, 14. Bc2 - Be6, 15. Bb3
- Dd7, 16. Bxe6 - Dxe6, 17.
Db3 - Dxb3, 18. axb3 - 0-0
Hér kom einnig til greina að
leika 18. — a5, en Júsupov virðist
þegar hafa valið ranga áætlun.
19. b4 - b5, 20. Rb3 - a5?, 21.
Rxa5 — Rxa5, 22. bxa5 — c5,
23. Rd2 - Ha6, 24. Rb3 - Hc8,
25. Ke2 - c4, 26. Rcl - b4,
Eða 26. - Bd8, 27. Hdl -
Bxa5, 28. Hd5 - Hb8, 29. b4 -
cxb3, 30. Rxb3 — Hba8, 31. c4!
með vinningsstöðu.
27. Hdl - bxc3, 28. bxc3 -
Bd8, 29. Ha4 - Rf8, 30. Hd5 -
f6, 31. Ra2 - Hca8
32. Hxd8! - Hxd8, 33. Rb4 -
Haa8, 34. a6 - Re6, 35. Rd5 -
Hxd5, 36. exd5 - Rc7, 37. d6
- Rb5, 38. Hb4 - Rxc3+, 39.
Kd2 - Rd5, 40. Hb7 - c3+, 41.
Kc2 — Hxa6, 42. Hb8+ og svart-
ur gafst upp.
Þröstur þriðji í Noregi
Þröstur Þórhallsson, alþjóðleg-
ur skákmeistari, náði góðum
árangri á opnu móti í Gausdal i
Noregi sem lauk um miðjan jan-
úar. Þröstur byrjaði illa og átti
því ekki möguleika á að hreppa
áfanga að stórmeistaratitli, en
með glæsilegum endaspretti
komst hann upp í þriðja til fjórða
sætið. í næstsíðustu umferð sigr-
aði hann Jonathan Tisdall, helsta
stórmeistaraefni Norðmanna, og
tefldi síðan úrslitaskák við banda-
ríska stórmeistarann Nick deF-
irmian sem lauk með jafntefli.
Þröstur hefur einn áfanga að stór-
meistaratitli, náði honum einmitt
í Gausdal sumarið 1991.
Tveir aðrir Islendingar tóku
þátt á mótinu. Ungu skákmenn-
irnir Ólafur B. Þórsson og Krist-
ján Eðvarðsson hlutu báðir fjóra
vinninga. Sjö stórmeistarar tefldu
á mótinu í Gausdal og margir al-
þjóðlegir meistarar.
Urslit mótsins:
1.-2. Nick deFirmian, Bandaríkjun-
um, og Thomas Ernst, Svíþjóð, 7
v. af 9 mögulegum
3.-4. Þröstur Þórhallsson og Einar
Gausel, Noregi, 6V2 v.
5.-10. Rune Djurhuus, Noregi, Loek
Van Wely, Hollandi, Patrick Lyr-
berg, Svíþjóð, Igor Rausis, Lett-
landi, Klaus Berg, Danmörku, og
Heikki Westerinen, Finnlandi, 6 v.
Skákþing Reykjavíkur
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur
meistari, hefur unnið allar sex
skákir sínar á Skákþingi Reykja-
víkur 1994 sem nú er rúmlega
hálfnað. Sævar hefur tekið ör-
ugga forystu á mótinu. I fyrra
sigraði Guðmundur Gíslason með
fullu húsi vinninga, 11 v. af 11
mögulegum.
Staðan eftir 6 umferðir:
1. Sævar Bjarnason 6 v.
2. Matthjas Kjeld 5 v.
3. -7. Magnús Örn Úlfarsson, Áskell
Örn Kárason, Haraldur Baldursson,
Arnar E. Gunnarsson og Tómas
Bjömsson 4 'h v.
8.-13. Jón Viktor Gunnarsson, Ólaf-
ur B. Þórsson, Kristján Eðvarðsson,
Hli'ðar Þór Hreinsson, Bragi Þor-
finnsson, Oddur Ingimarsson 4 v.
14. Róbert Harðarson 3'/2 v. og
frestuð skák.
Kvennaflokkur:
1. Svava B. Sigbertsdóttir 3 v. af 3.
2. -3. ína B. Ámadóttir og Anna
B. Þorgrímsdóttir 2 v.
Unglingaflokkur:
1. Bergsteinn Einarsson 4 v. af 4.
2. Björn Þorfinnsson 3'/2 v.
3. -5. Davíð Guðnason, Einar Hjalti
Jensson og Jón Viktor Gunnarsson
3 v.
■ OPIÐ hús verður sunnudag-
inn 23. janúar í Nýja Dansskólan-
um, Reykjavíkurvegi 72, Hafn-
arfirði. Þar ætla þeir nemendur
sem fara til keppni í Blackpool 2.
apríl nk. að vera með kaffisölu og
bjóða fólki að koma og skoða skól-
ann. Auk kaffisölunnar verður
dansfatamarkaður í skólanum.
■ NÁMSSJÓÐUR Verslunar-
ráðs íslands styrkir árlega tvo
námsmenn til framhaldsnáms er-
lendis á háskólastigi eða í sam-
bærilegu námi, enda tengist námið
atvinnulífinu. Að þessu sinni er
hvor styrkur 195.000 krónur og
fer styrkveitingin fram á aðalfundi
Verslunarráðsins 23. febrúar nk.
Með umsókn á að vera stutt en
greinargóð lýsing á námi og
áformum það varðandi, en með
þarf að fylgja Ijósrit af prófskír-
teini, staðfesting á skólavist og
ný ljósmynd af umsækjanda. Um-
sóknir verða að berast i síðasta
lagi föstudaginn 28. janúar nk.