Morgunblaðið - 22.01.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
45
Nýir menn í nýja sljóm
Frá Karli Valdimarssyni:
í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokksins
sem fram fer eftir nokkra daga
stendur okkur sjálfstæðismönnum
til boða að endumýja framboðslist-
ann til borgarstjómar Reykjavíkur.
Ég er í hópi þeirra sem telja að
tímabært sé orðið að nýir menn
fái að spreyta sig í borgarmálun-
um.
Ég held raunar að endumýjun
framboðslistans hafi aldrei verið
nauðsynlegri en nú, þegar vinstri
flokkamir hafa sameinast og tefla
meðal annars fram fólki sem ekki
situr í borgarstjórn nú. Við þessar
aðstæður er ómögulegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn bjóði aðeins fram
gömlu borgarfulltrúana sína sem
flestir hafa setið í borgarstjóm í
áratug eða lengur.
Þetta er sagt með fullri virðingu
fyrir þessum ágætu borgarfulltrú-
um sem flestir hafa staðið sig
ágætlega. En nýja menn þarf til
að taka viðfangsefnin nýjum tök-
um, bregðast við breyttum aðstæð-
um og ekki síst koma nýjum hug-
myndum í framkvæmd.
Af nýjum frambjóðendum mæli
ég hiklaust með Gunnari Jóhanni
Birgissyni lögmanni í ömggt sæti.
Ég hef fylgst með skrifum hans
um nokkurt skeið og held að þar
fari maður sem treysta megi til
AmalRún
brýturísinn
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
ÉG VIL mælast til þess að fólk hér
á landi geri sig ekki að auðvirðileg-
um sakborningum með afstöðu
sinni gegn Amal Rún, því hún á
það svo sannarlega ekki skilið. Út-
varpsstöðin Bylgjan ætti að sýna
sóma sinn í þvi að láta ekki annað
eins níð um einstaklinga eins og
þeir hafa komið á framfæri fyrir
mannhatara frá sér fara. Þetta er
alveg yfirgengilegt og era þessir
menn sem ráðist hafa á Amal Rún
Qase á Bylgjunni sekir um mann-
orðsníð sem er svo alvarlegt að það
gæti þýtt nokkurra ára fangelsi.
Ég vil því krefjast þess af út-
varpsstöðinni Bylgjunni, að þeir
krefjist nafns og heimilisfangs fólks
sem þar talar.
Varðandi Amal Rún vil ég segja
að kominn er tími á að jafn traust-
ur ríkisborgari og hún komist til
áhrifa í íslensku þjóðfélagi, ekki
síst vegna hraðra breytinga í heim-
inum. Amal Rún Qase hefur haft
kjark til að brjóta ísinn í því efni
og á margfaldan heiður skilinn og
virðingu.
ÞORLEIFUR KR. GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33,
Reylqavík.
VELVAKANDI
STYÐJUM HILMAR
GUÐLAUGSSON
ÞESSA dagana er að færast líf
5 prófkjör okkar sjálfstæðis-
manna vegna borgarstjórnar-
kosninganna í vor og er það vel.
Sjálfstæðisflokkurinn er eins
og allir vita stærsti stjórnmála-
flokkur landsins, flokkur allra
stétta. Verkalýðsforinginn
Magnús L. Sveinsson hefur lýst
því yfir að hann gefi ekki kost
á sér í komandi kosningum. Það
gladdi mig því mjög þegar Hilm-
ar Guðlaugsson gaf kost á sér
á nýjan leik, en Hilmar er eini
maðurinn úr verkalýðsarmi
Sjálfstæðisflokksins sem gefur
kost á sér til prófkjörs. Til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn standi
undir nafni sem flokkur allra
stétta, þá skora ég á alla sjálf-
stæðismenn í Reykjavík að
styðja Hilmar Guðlaugsson í 4.
sætið.
ÞAKKIRTIL
AMAL RÚNAR
BM vildi koma á framfæri þökk-
um til Amal Rúnar fýrir orð í
tíma töluð. Þar á hann við grein
hennar, Kvennalistinn er hugs-
anavilla, sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. fimmtudag. Hann
segir þetta orð í tíma töluð.
DÚKKUVIÐGERÐIR
EF einhver getur tekið að sér
viðgerðir á dúkkum er sá hinn
sami beðinn að hafa samband í
sima 94-3436. Sigrún.
T AP AÐ/FUNDIÐ
Kerrusvunta og
teppi töpuðust
MARGLIT græn svunta af
kerruvagni og þykkt grænt og
fjólublátt barnateppi töpuðust
sunnudaginn 9. janúar í flutn-
ingum frá Keflavík til Reykja-
víkur. Finnandi vinsamlega
hringi í Helgu í síma 91-32485.
Húfa fannst
SVÖRT skinnhúfa fannst á
Austurgötu S Hafnarfirði sl.
þriðjudag. Eigandi má hafa
samband í síma 54335.
Slæða týndist
DIOR-slæða, svört í grunninn
með rauðu og grænu rósa-
mynstri, tapaðist þann 4. janúar
á móts við Freyjugötu 32-34 um
fimmleytið. Slæðan er eigandan-
um dýrmæt. Hafi einhver fundið
slæðuna er viðkomandi vinsam-
lega beðinn að hringja í síma
666596.
Handtaska tapaðist
SVÖRT slitin leðurhandtaska
sem innihélt m.a. vínrautt seðla-
veski með skilríkjum o.fl. tapað-
ist á Laugavegi eða Skólavörðu-
stíg laugardaginn 8. janúar eða
sunnudaginn 9. janúar. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 25711.
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAUGU töpuðust
miðvikudaginn 19. janúar, lík-
lega á bílastæðinu við Austur-
ver. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 92-15148.
Kápa tapaðist
SÁ eða sú sem tók svarbláa tere-
lynkápu í misgripum á
Kringlukránni í byijun desemn-
ber er vinsamlega beðinn að
skila henni aftur á Kringlukr-
ána.
GÆLUDÝR
Kettlingar
TVEIR rúmlega tveggja mán-
aða kettlingar, svartir og hvítir,
fást gefins á gott heimili. Upp-
lýsingar í síma 671780.
að koma fram í borgarstjóm nú-
tímalegum sjónarmiðum og standa
vörð um hagsmuni okkar skatt-
greiðenda sem viljum að farið sé
af ráðdeild og fyrirhyggju með
útsvarið okkar.
Virðingarfyllst,
KARL VALDIMARSSON,
bifreiðastjóri,
Brekkustíg 19,
Reykjavík.
Til hvers?
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
Ég hef löngum haldið að það
væri starfsregla hjá fjölmiðlum,
sem vandir era að virðingu sinni,
að láta fram koma í fréttum og
umræðum fleiri en eitt sjónarmið
ef um álitamál er að ræða. Þar
virðist ég hafa vaðið í villu og
svíma. Að minnsta kosti era aðrir
siðir tíðkaðir þegar um áfengismál
er að ræða.
Á sunnudaginn var skýrði
fréttamaður frá breytingum á
starfsemi áfengisverslunarinnar í
Svíþjóð og Finnlandi. Þær breyt-
ingar munu gerðar eftir valdboði
frá Belgíu. Að vísu var fréttin ekki
ný, síður en svo, nema kannski í
augum fréttamanna Sjónvarpsins
og íslenskra áfengisbraskara. Eðli-
legt hefði flestum fundist að fá til
viðræðu forstjóra ÁTVR eða stað-
gengil hans út af þessari frétt þar
sem þar á bæ er sjálfsagt betur
vitað um þessa hluti en annars
staðar hérlendis. Það var þó ekki
gert heldur var kallaður til alþing-
ismaður Verslunarráðsins sem mér
skilst að Norðlendingar hafi kosið
á þing og talaði hann við sjálfan
sig um þetta mál eins og hann er
vanur.
Hlutleysisbrot Sjónvarpsins var
þó ekki það versta heldur hitt að
íslenskur alþingismaður skuli
hlakka yfir því framan í alþjóð að
íslenskt löggjafarvald hafi að hluta
verið fært til Brussel (ekki Kaup-
mannahafnar), til einhverra skrif-
ræðismanna sem vinna undir stöð-
ugri ágengni og þrýstingi stiga-
manna (lobbýista) miður þokka-
legra hagsmunahópa. Til hvers var
þá barátta Jóns Sigurðssonar,
Benedikts Sveinssonar og annarra
forystumanna í sjálfstæðisbaráttu
fyrir flutningi löggjafarvalds og
dómsvalds heim til Islands?
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTIN G AR
Víxlun í línuriti
Á miðsíðu Morgunblaðsins í gær
birtist línurit eða kort yfir útláns-
vexti banka og sparisjóða. Þau mis-
tök urðu við gerð kortsins, að víxl-
un varð á stöplum Búnaðarbanka
og sparisjóðanna. Grunnvextir yfir-
dráttarlána sparisjóðanna eru 13,5,
en hjá Búnaðarbanka eru þessir
vextir 12%. Hér fylgir réttur hluti
línuritsins, sem birtist í gær.
Utlánavextir banka
og sparisjóða
frá 21. janúar 1994
Yfirdráttarlán
(grunnvextir)
13.7S% 13,50%
L
Stuðningsmenn
Árna Sigfússonar
f 2. sætið
í prófkjöri sjólfstæðismanna
hafa opnað kosningaskrif-
stofu ó Suðurlandsbraut 4,
símar 6841 66 og 6841 54
Opið fró hódegi dag hvern
og fram eftir kvöldi.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
auglýsir eftir tilboðum í eftirtaldar eignir á
Dalsbraut 1, Akureyri, (áður eignir íslensks
skinnaiðnaðar).
Geymsluhúsnæði á jarðhæð (staðsett á móti
afgreiðslu Vífilfells) alls 814m2(92 m2, 512
m2, 210 m2.
1. hæð í gömlu sútunarverksmiðjunni alls
2.171 m2(337 m2, 1.173 m2, 151 m2,510m2).
2. hæð í sama húsi (áður skóverksmiðjan
Strikið) alls 1.463 m2 (1.194 m2, 269 m2.
Upplýsingar gefur Sturla Haraldsson.
Eignaumsýsla útlánastýring,
Austurstræti 11, Reykjavík.
Sími 606282.
SJONVORP FRAMTIÐARINNAR
BJÓÐAST NÚ Á FRÁBÆRU VERÐI
UPPFYLLA STHANGAR
KRÖFUR UM GÆÐI
LEIÐANDI A SlNU SVIDI
UIVIFRAWI ALLT GERÐ MEÐ
ÞIG í HUGA
AUÐVELD STJÓRNUN FÁIR
TAKKAR Á FJARSTÝRINGU
HEYRNARTÆKJATENGI
SCART-TENGI
INNILOFTNET
TEXTAVARP FÁANLEGT
SKARPUR 14" SKJAR'
HIGH FOCUS
SJÁLFVIRK STOÐVA-
STILLING - APS
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
EGLA
- röö ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlaiundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
*£ígt
f!"