Morgunblaðið - 22.01.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 109 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
/
1 ■%■ IftftólvAh !39|
; OS
W >8mL
Morgunblaðið/Þorsteinn Guðbjartsson
77/ hafnar á Þingeyri
VARÐSKIPIÐ Ægir kom með skipverja Mána
ÍS, sem sökk 11 sjómílur vestur af Barða á
fímmtudag, til Þingeyrar um kvöldið. Tveimur
skipveijanna, Ólafi Gunnarssyni stýrimanni og
Jens A. Jónssyni vélstjóra, var bjargað en Jón
Andrésson skipstjóri fórst. Reynir Gunnarsson,
útgerðarmaður Mána, telur sennilegt að hann
hafi látist úr vosbúð. Mennirnir biðu á sjötta
tíma í gúmbát eftir aðstoð. Hann segir að þeir
muni hafa lent í sjónum í vinnufatnaði, þ.e.
gúmmígöllum, áður en þeir komust í gúmbát-
ana. Enginn tími hafí unnist til að fara í þurr-
búninga. Á innfelldu myndinni sést Sigurður
Finnbogason frá Gúmbátaþjónustu Vestfjarða
yfirfara gúmbátana úr Mána.
Saltkaup og Hafnarbakki í beinni
samkeppni um saltsölu og dreifingu
Saltkaup hf. verða
dótturfyrirtæki SÍF
Allt hlutafé keypt fyrir 3 milljónir króna
SIF (Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda) hefur gengið frá sam-
komulagi við alla eigendur að Saltkaupum hf. í þá veru að SÍF kaup-
ir öll hlutabréfin í Saltkaupum á genginu 0,2 og kaupverðið er rúm-
ar þijár milljónir króna. Saltkaup verður rekið sem dótturfyrirtæki
SÍF og SÍF yfirtekur þannig allar eignir og skuldir Saltkaupa. Gunn-
ar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þessi ákvörðun hefði verið tekin, til þess
að styrkja stöðu SÍF gagnvart saltfiskframleiðendum. Gunnar Órn
segir SIF meta samkeppnina við Hafnarbakka á þann veg, að Hafnar-
bakki stundi undirboð á salti, tU þess að halda markaðshlutdeild
sinni. SIF muni ekki fara út í undirboð.
Gunnar Örn sagði að SÍF væri
nú með saltflutningamálin til skoð-
unar. „Við gerðum tilraun með
Hvítanesið, sem hefur flutt fyrir
okkur saltfisk og fengum það til
þess að flytja fyrir okkur salt til
baka heim og það virðist ætla að
ganga ágætlega," sagði Gunnar
Örn. Hann sagði að saltflutningarn-
ir yrðu boðnir út og Saltkaup myndu
taka lægstu boðum i flutningana.
„Samstarf við Hafnarbakka
/Eimskip í þessu sambandi, verður
líklega með þeim hætti, að þeir, sem
aðrir, geta boðið í saltflutningana
fyrir okkur,“ sagði Sighvatur
Bjamason formaður SÍF í samtali
við Morgunblaðið, „en umboðssala
saltsins og dreifmg verður í okkar
höndum.“
Hafnarbakki, dótturfyrirtæki
Eimskips, hefur á milli 60 og 70%
saltmarkaðarins hér á landi, en
Gunnar Örn væntir þess að Salt-
kaup nái til sín stærri hlutdeild
markaða'rins á næstunni.
Gunnar Örn kvaðst gera sér von-
ir um að Saltkaup gætu boðið salt-
ið til saltfiskframleiðenda á sam-
keppnisfæru verði. „Við munum
einnig geta boðið upp á ýmsa mögu-
leika, varðandi fjármögnun á þessu.
En við vitum að Hafnarbakkamenn
hafa að undanförnu verið að selja
saltið á ótrúlega lágu verði, hreinu
undirverði. Við ætlum okkur ekki
að taka þátt í slíkum undirboðum
og ef þeir telja sig geta selt á þessu
verði áfram, þá þeir um það,“ sagði
Gunnar Örn.
Listi lagður fram í gær yfir kaupendur hlutafjár í SR-mjöli hf
Sjötíu og sjö starfsmenn
eru í hópi 178 kaupenda
Jón Andrésson
Maðurinn
sem fórst
meðMána
MAÐURINN sem fórst þegar
Máni IS 54 sökk 11 sjómilur vest-
ur af Barða eftir hádegi á
fimmtudag var skipstjóri bátsins
og hét Jón Andrésson. Hann
fæddist 30. september árið 1937
og var því á 57. aldursári þegar
^phann lést.
V Jón lætur eftir sig eiginkonu og
sex börn, þau yngstu á unglings-
aldri.
Sonur hans, Jens A. Jónsson vél-
stjóri, var skipveiji á Mána og
bjargaðist ásamt Ólafi Gunnarssyni
stýrimanni.
Jón Andrésson var til heimilis á
Brekkugötu 36 á Þingeyri.
FULLTRÚAR kaupenda að SR-
mjöli hf. afhentu sjávarútvegs-
ráðuneytinu í gær lista yfir þá
sem vilja eiga aðild að kaupsamn-
ingnum við ríkissjóð. Alls eru
nöfn 178 einstaklinga og félaga
á listanum, þar af eru 77 starfs-
menn SR-mjöls. Enginn einn að-
ili að kaupunum mun samkvæmt
listanum eiga meira en 7,5% hlut
í SR-mjöli. Samþykki sjávarút-
vegsráðuneytisins þarf fyrir nýj-
um aðilum en skrifað var undir
kaupsamning 29. desember á síð-
asta ári og var kaupverðið á
hlutabréfum rikisins i SR-mjöli
725 milljónir króna.
Upphaflega áttu 21 útgerðarfé-
lag, Sjóvá-Almennar hf., Draupnis-
sjóðurinn, Eignarhaldsfélagið Al-
þýðubankinn hf., fímm sveitarfélög
og olíufélögin þtjú aðild að kaup-
samningnum en skrifað var undir
samninginn með fyrirvara um að
auká mætti við kaupendahópinn að
fengnu samþykki seljanda.
Tugur lífeyrissjóða
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur um tugur lífeyris-
sjóða bæst í hópinn en flestir sjóð-
irnir tengjast Draupnissjóðnum og
Eignarhaldsfélaginu Alþýðubank-
anum. Þá hefur Þróunarfélagið
bæst aftur í hópinn, en félagið var
ekki aðili að kaupsamningnum þótt
það.hafi upphaflega verið í kaup-
endahópnum. Sveitarfélögin fjögur
þar sem síldarbræðslur SR-mjöls
eru, leggja öll fram lítið hlutafé auk
eins olíufélaganna þriggja.
Stjóm kjördæmisráðsins hefur
ekki komið saman sl. viku vegna
málsins þar sem reynt hefur verið
að ná sáttum um uppstillingu eftir
óformlegum leiðum á undanförnum
dögum.
Gæti stefnt í uppgjör
Fulltrúar Birtingar hafa lýst sig
samþykka því að Guðrún Ágústsdótt-
ir skipi annað sæti á framboðslistan-
um en vilja á móti að fulltrúi Birting-
ar verði í fimmta sætinu. Ákveðinn
hópur innan ABR hefur ekki verið
Verðbréfamarkaður íslands-
banka mun kanna fjárhagslega
stöðu þeirra aðila sem bæst hafa í
hópinn og verður kaupendalistinn
borinn undir fjármálaráðuneytið og
reiðubúinn að samþykkja það þar
sem Birting er mun minna félag inn-
an kjördæmisráðsins.
Reynt verður að ná samkomulagi
yfir helgina og er stefnt að stjórnar-
fundi í kjördæmisráðinu strax eftir
helgina en ef sættir takast ekki eru
mestar líkur á að fram fari opið for-
val í flokknum um frambjóðendur.
Er búist við að þá muni vakna upp
fornar væringar á milli ABR og Birt-
ingar og gæti stefnt í uppgjör innan
flokksins, sem myndi rista djúpt og
forsætisráðuneytið áður en hann
verður samþykktur. Nýir eigendur
taka við fyrirtækinu um mánaða-
mótin og er hluthafafundur fyrir-
hugaður 1. febrúar.
hafa áhrif á forval innan flokksins
fyrir alþingiskosningarnar að ári, að
sögn eins viðmælanda blaðsins.
------♦ ♦ ♦------
Fundað um
„skinkumálið“
STJÓRNARFLOKKARNIR fund-
uðu í gærkveldi til að freista þess
að ná samkomulagi í svokölluðu
„skinkumáli" í kjölfar þess að
Hæstaréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að Hagkaup hafi verið í
fyllsta rétti að flytja inn danska
skinku á dögunum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var jafnvel talið að sam-
komulag væri á næstu grösum. Fyr-
irhugað var að halda áfram funda-
höldum. Sjá nánar á bls. 18 og 25.
Kosningabandalag minnihlutaflokka í borgarstjórn
Agreiningur um val fram-
bjóðenda í Alþýðubandalagi
KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefur ekki komist
að niðurstöðu um hvernig skuli standa að vali fulltrúa fiokksins í 2. og
5. sæti á sameiginlegan framboðslista minnihlutaflokkanna fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í vor. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur ekki tekist að leysa ágreining sem uppi er milli forystumanna
innan Alþýðubandalagsfélagsins í Reykjavík og Birtingar um hvort
jafnræði eigi að ríkja milli félaganna við val fulltrúa á listann.