Morgunblaðið - 22.03.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
5
Kona og
tvö börn
fundust
heil á húfí
Tveir menn í hrakn-
ingum í Bláfjöllum
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu
aðfaranótt mánudags konu og
tveggja barna sem farið var að
óttast um þegar ekkert spurðist
til hennar eftir að hún lagði af
stað frá Hafnarfirði til Kjóavalla.
Þau fundust siðan heil á húfi
snemma í gærmorgun í Kaldár-
seli. Um klukkan 8.30 mánudags-
morgun heyrði Hjálparsveit skáta
í Garðabæ neyðarkalli frá neyðar-
skýli í Bláfjöllum og þegar hún
mætti á staðinn fann hún tvo menn
sem fest höfðu bíl sinn á veginum
og leitað athvarfs í skýlinu.
Að sögn Stefáns Braga Bjarnason-
ar, svæðisstjóra björgunarsveitanna,
lagði konan af stað frá Hafnarfírði
um kl. 17.30 á sunnudag og ætlaði
upp á Kjóavelli. Þegar hún haðfið
ekki skilað sér tveim tímum seinna
fóru ættingjar hennar að óttast um
hana og skipulögðu leit. Ættingjarnir
keyrðu alla vegi á svæðinu og könn-
uðu aðrar leiðir. Þegar það bar ekki
árangur gerðu þeir lögreglu viðvart,
sem kallaði út Björgunarsveitina
Spora í Hafnarfirði um hálftíma eftir
miðnætti. Stefán segir að klukkutíma
síðar hafí þetta verið talið það alvar-
legt mál að svæðisstjórn björgunars-
veitann^ var kölluð út. Leitarsvæðið
var stórt og náði frá Krisuvíkuraf-
ieggjaranum upp að Rauðavatni.
Konan var á Subaru-bifreið og með
tvo drengi með sér, eins og fimm
ára. Hún festi bifreiðina í skafli á
veginum rétt hjá Kaldárseli og Stefán
segir að þá hafi enn verið bjart og
ekkert verið að veðri. Um kl. 22 hafi
síðan skollið á vitlaust veður og hún
þá séð þann kost vænstan aðjara í
húsið. Engin upphitun er þar og eng-
ar vistir.
Stefán segir að konan hafí brugð-
ist rétt við aðstæðunum, hún hafi
ekki farið langt frá bílnum auk þess
hefðu hún og börnin verið mjög vel
útbúin.
Leitin í fyrrinótt gekk vel, þrátt
fyrir að veður hafi verið mjög slæmt
fram eftir nóttu, mikill skafrenning-
ur, nánast ekkert skyggni og leitar-
svæðið erfítt yfírferðar. Klukkan
ijögur í nótt fór svo að blotna og
skafrennignurinn hætti.
Gekk illa að ná sambandi
með talstöðinni
Þórður Kjartansson var annar
tveggja sem lentu í hrakningum uppi
í Bláfjöllum. Hann sagði að hann og
Ásbjörn Grétarsson, hefðu ætlað í
smábíltúr og keyrt frá Hafnarfirði í
átt til skíðasvæðisins í Bláfjöllum.
Þeir festu bílinn um kl. 17.30 og
ákváðu að ganga í átt til skíðasvæðis-
ins. Þórður segir að þeir hafi vitað
af neyðarskýlinu en ekki verið vissir
hvort þeir væru á réttri leið. Þeir
hafi síðan séð skýlið eftir um 20
mínútna göngu.
Hann segir að þeir hafi strax reynt
að ná sambandi í gegnum talstöð sem
þar var en einhverra hluta vegna
hafi það ekki gengið. Þeir hafi síðan
ákveðið að fara aftur í bílinn og haft
með sér skóflu. Ekki hafi tekist að
moka bílinn út og þeir því gripið til
þess ráðs að sofa í bílnum.
Mikill skafrenningur var um nótt-
ina og hlóðst snjór upp beggja vegna
bílsins og í gærmorgun þegar birti
þurftu þeir Þórður og Árni að skríða
út um hliðarrúðu bílsins. Þeir fóru
aftur í neyðarskýlið og náðu þá loks
sambandi við björgunarsveitina sem
sótti þá um klukkan 10.30 í gær-
morgun. Hörður Már Harðarson,
formaður Hjálparsveitar skáta í
Garðabæ sagði að liðsmaður sveitar-
innar hefði heyrt neyðarkall félag-
anna um klukkan 8.30 í gærmorgun.
í fyrstu hafí ekki verið Ijóst hvaðan
kallið kom en þeir ákveðið að senda
könnunarhóp upp í neyðarskýlið og
þar hafi mennirnir fundist. Þeir hafi
verið kaldir og hraktir, enda ekki
búnir fyrir slíkar hrakningar.
LÆKNAR GETA
SPARAÐ
200-300
MILLJÓNIR
KRONAí
LYFJAKOSTNAÐI
ÁÞESSUARI.
VONANDI
GERA ÞEIRÞAÐ!
Heildarkostnaður við lyfjanotkun á
íslandi á árinu 1993 var u.þ.b. 5,1
milljarður króna.
Þetta er há fjárhæð. Ekkert bendir til
annars en að útkoman verði jafnvel
hærri á þessu ári.
Þegar sama virka lyfjaefnið er skráð
undir mismunandi lyfjaheitum, frá
mismunandi framleiðendum, eru þau lyf
köiluð SAMHEITALYF. Þetta eru lyf sömu
tegundar, samskonar lyf. Þau eru ekki
aðeins markaðssett hvert undir sínu
heiti, heldur eru þau einnig í ólíkum
umbúðum. LyTin eru engu að síður talin
jafngild (bio-equivalent) af
heilbrigðisyfirvöldum, enda gerðar til
þeirra nákvæmlega sömu gæðakröfur.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því
að samheitalyf geta verið á afar
mismunandi verði og stundum er sá
munur margfaldur.
Ef læknar ávísa ætíð á samheitalyf með
því að merkja (R) í stað (S) við lyfjaheiti,
þegar mögulegt er, má ætla að þessi
upphæð verði mun lægri en hér að
framan greinir, eða sem nemur 200-300
milljónum króna. Þetta sýnir okkur, hve
miklu skiptir fyrir íslenska sjúklinga og
þjóðarbú að skynsamlega sé staðið að
ávísun lyfja í landinu.
Læknar, sjúklingar, almenningur, tökum
höndum saman, lækkum lyfjakostnaðinn!
Aðhald og sparnaður í rekstri
veitir aukið svigrúm til betri
heilbrigðisþjónustu.
Merki læknir bókstafinn (§) við lyfjaheiti á lyfseðli, fær
sjúklingur eingöngu afgreitt tiltekið lyf. Merki læknir hins
vegar bókstafinn (S) við lyfjaheiti, fær sjúklingur afgreitt
ódýrasta samheitalyf í sama lyfjaflokki.
HEILBRIGÐIS' OG
TRYGGINGAMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS