Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 7

Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 7 Mokveiði á Dohrnbanka Kofri fyllti sig á tveimur döerum ísafirði. ^ * RÆKJUVEIÐISKIPIÐ Kofri kom til Súðavíkur á sunnudag með fullfermi af rækju, eftir fimm daga túr. Aflann fékk skipið á pörtum úr tveim dögum á Dohrnbanka. Að sögn skipstjórans, Jónasar Hrólfssonar, var mjög góð veiði þegar hægt var að toga, en veður hamlaði veiðum. Hann sagðist hafa verið með um fimm tonn í hali eftir eins og hálfs tíma tog í flest skiptin sem hann náði að toga. Lægsti hlutur skipverja eftir miðunum norður af landinu, eru nú þennan fimm daga túr eru rúmar . mörg skip komin á Dohrnbankann, 200 þúsund krónur krónur. eða á leið þangað, því bæði er að Þrátt fyrir góðan afla á rækju- þar fæst stærri og verðmeiri rækja auk þess sem veiðar þarna eru utan kvóta. Kofri er ísfiskveiðiskip og getur því verið takmarkað úti. Þess vegna fer hann og önnur ísfiskveiði- skip sjaldan á Dohrnbankann, vegna þess hve eritt er með veiðar. í þetta sinn fór þó allt vel og urðu þeir frá að hverfa með 45 tonn, því meira komst ekki í skipið. Mikil vinna hefur verið í rækj- unni í Súðavík undanfarið og er unnið yfir 20 tíma á sólarhring á tveim vöktum. Tvö skip landa rækju hjá Frosta hf., hitt er Haffari, en hann kom með fullfermi af miðun- um norður af landinu í síðustu viku og fékk 17 tonn í tveim fyrstu höl- unum á Dohrnbanka fyrr í vikunni, en þá missti hann trollið, og varð að fara til Súðavíkur eftir vírum til að slæða það upp. Úlfar Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Með fullfermi Rækjutogarinn Kofri kemur til hafnar í Súðavík með fullfermi af rækju af Dohrnbanka * 4i,a«asa*a <orR!. Dönsuðu úr sér hroll- inneftir hrakninga á heiðum Suðureyri. GRUNNSKÓLINN á Suðureyri hélt sína árlegu árshátíð föstu- daginn 18. mars sl. Elstubekk- ingum grunnskólanna á Flat- eyri og Þingeyri var boðið á árshátíðina sem saman stóð af leiksýningu og dansleik. Fjöru- tíu nemendur sóttu súgfirsku krakkana heim, tuttugu frá hvorum stað. Komu þeir akandi kl. 19.30 í góðu veðri yfir Breiðadals- og Botnsheiðar. Þegar á leiksýningunni stóð, tveimur tímum siðar, var skollin á norðaustan stórhríð. Flateyringarnir ákváðu þá að gista á Suðureyri þar sem fregnir af heiðunum voru ekki góðar. Þingeyringarnir, sem voru á tveimur mjög öflugum fjallabílum, ákváðu að freista þess að komast yfir heiðarnar áður en þær lokuð- ust og fóru af stað strax eftir leik- sýninguna. Þegar þeir voru komnir að vega- mótum Botns- og Breiðadalsheiða varð ekki lengra komist vegna snjóa og skafrennings. Ekki tók þá betra við því niður- koman og skafrenningurinn var slíkur að þeim tókst ekki að snúa bifreiðunum við og komast til baka til Suðureyrar. Var þá gripið til þess ráðs að fá bóndann í Botni, Björn Birkis- son, til þess að fara á dráttarvél með snjóblásara og hjálpa bílunum til byggða aftur. Gekk það hægt, en örugglega, þrátt fyrir vonsku- veður. Voru þeir komnir aftur til Suðureyrar kl. 2.00. Þegar til Suðureyrar var komið var ákveðið að framlengja dans- leikinn, svo að krakkarnir gætu dansað úr sér mesta hrollinn eftir hrakningana á heiðinni. Á meðan börnin þeyttust um dansgólfið, þeyttust velunnarar skólans um allan bæinn og söfnuðu saman 40 dýnum og svefnpokum svo að allir þessir óvæntu gestir fengju þokka- legan nætursvefn. Gist var síðan í Grunnskólanum á Suðureyri um nóttina. Daginn eftir var leitað til Land- helgisgæslunnar með aðstoð og brást hún ljúfmannlega við að vanda og flutti börnin, ásamt fylgdarliði, til síns heima á Flat- eyri og Þingeyri með varðskipi. Að sögn skólastjóra Grunnskól- ans á Suðureyri, Brynju Blumen- stein, þótti krökkunum þetta hið mesta ævintýri, og verður þessi ferð eflaust lengi í minnum höfð. Bifreiðir ferðalanganna verða hins vegar að gista Súgandafjörð þar til næst verður mokað yfir heiðar. - Sturla (3) k Orka 113 kcal* Orka 473 kJ* Prótín 4 g* Kolvetni 21,4 g* Fita 2,1 g* Natríum 314 mg* Kalíum 105 mg*. A-vítamín 38% (RDS) Ríbóflavín 27% (RDS) C-vítamín 25% (RDS) Cheerios Jám 58% (RDS) m Þíamín 27% (RDS) Níasín 27% (RDS) Kalsíum 5% (RDS) D-vítamín 10% (RDS) B6-vítamín 25% (RDS) Fólínsýra 25% (RDS) FÆÐUHRINGURINN Það er samhengi á milli mataræðis og heilsu. Heilsan er dýrmæt og þess vegna er ætíð skynsamlegt að huga að samsetningu fæðunnar sem við neytum. Cheerios er ríkt af hollustuefnum og inniheldur sáralítið af sykri og fitu. í hverjum Cheerios „fæðuhring“ er að finna bragð af góðum, trefjaríkum og hollum mat; fyrir fólk á öllum aldrL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.