Morgunblaðið - 22.03.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
13
Olöf og Edda á tón-
leikum í Operunni
ÓLÖF Kolbrún Harðardóttir sópran og Edda Erlendsdóttir píanó-
leikari koma fram á tónleikum Styrktarfélags íslensku óperunnar
nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30. A efnisskránni verða Liederkreis
nr. 39 eftir Robert Schumann og sönglög eftir Pjotr Tsjaikovskíj
og Sergei Rakhmaninoff. Tónleikarnir verða haldnir í íslensku
óperunni.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópr-
an þarf vart að kynna. Á undan-
fömum árum hefur hún sungið
mörg helstu sópranhlutverkin í
sýningum íslensku óperunnar, nú
síðast hlutverk Tatjönu í óperunni
Évgení Ónegín. Að auki hefur hún
tekið þátt í flutningi á margvís-
legri annarri tónlist, m.a. kirkju-
tónlist.
Edda Erlendsdóttir píanóleikari
hefur verið búsett í Frakklandi um
margra ára skeið. Hún hefur verið
5 fremstu röð íslenskra píanóleik-
ara um langt árabil og margoft
komið fram sem einleikari á ein-
leikstónleikum eða með sinfóníu-
hljómsveit, jafnt á íslandi sem er-
lendis. Edda er frumkvöðull að
sumartónleikum á Kirkjubæjar-
klaustri, en þar komu þær Ölöf
einmitt fyrst fram saman í flutn-
ingi ljóðasöngs fyrir nokkrum
árum.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Verk eftir Gunnar S.
Magnússon
Opnuð hefur verið myndlistarsýn-
ing Gunnars S. Magnússonar í Sýn-
ingarsalnum á Hverfísgötu 6, Reykja-
vík. Á sýningunni er fjöldi verka, flest
ný, en einnig eldri verk.
Gunnar S. er fæddur í Skeijafirði
í Reykjavík 1930. Að loknu námi í
Myndlistaskólanum í Reykjavík var
hann við framhaldsnám í Listaskól-
anum í Ósló (Statens kunstakademi)
1949-1952. Síðar var hann við mynd-
listarnám í Frakklandi, á Spáni, Ítalíu
og í Hollandi.
Gunnar S. kenndi myndlist við
Myndlistaskólann og Æfmgadeild
Kennaraskóla íslands. Árið 1957
beitti Gunnar S. sér fyrir stofnun
Sýningarsalarins á Hverfisgötu 8-10
í Reykjavík og var einn af forstöðu-
mönnum hans. Gunnar S. hélt sína
fyrstu opinberu sýningu með Félagi
íslenskra frístundamálara vorið 1947.
Fyrstu einkasýninguna hélt hann í
Ásmundarsal við Freyjugötu 1949 og
aðra sama ár á Akureyri. Hann hefur
haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum. Verk eftir hann
eru meðal annars í eigu Listasafns
íslands.
Sýningin var opnuð 19. mars og
er opin alla daga kl. 14-19. Sýning-
unni lýkur sunnudaginn 27. mars.
Eitt verka Gunnars S., Aero.
Rætt um Jón Gunnar
í nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b sýna
24 myndlistarmenn verk til heiðurs
Jóni Gunnari Ámasyni (1931-1989).
Af þessu tilefni verður umræðu-
kvöld í kvöld þriðjudaginn 22. mars
kl. 20.30, þar sem Guðbergur Bergs-
son mun lesa úr óbirtum ijóðabálki
um Jón Gunnar og Ólafur Gíslason
listfræðingur leggja út af ritgerð
sinni; Ferðin að hliði sólarinnar - leið
Jóns Gunnars frá óreiðu Dionysosar
að kosmískri reglu Apollós". Einnig
verður rætt um Súm-hreyfinguna,
sögulegt samhengi og samtímatengsl.
Sýningin er opin dalega frá kl.
14-18 og lýkur sunnudaginn 27.
mars.
'94 árgerðin af Elantra er enn
veglegri og öflugri en áður.
Bíllinn er búinn 1,8 lítra og 126
hestafla vél sem skilar bílnum góðri
snerpu hvort sem gírkassinn
er beinskiptur eða sjálfskiptur.
Elantra er 4,36 m á lengd og
1,7 m á breidd.
liimm mn m
mmm
# vökva og veltistýri
4 rafdrifnar rúður
samlæsing
# rafdrifnir speglar
i tölvustýrt útvarp og segulband
# 4 hátalarar
HYunoni
...til framtídar
ÁRMÚLA
Verð frd 1.345.000 kr.
ELANTRA
glæsilegur bíll
á góðu verði
s -U Ð U-R-t A N P S B-H A U T 2 2
GLÆSILEG AMERISK RUM
ilOl
DESIGNSInc.'
I rúmunum eru hinar vönduðu amerísku Sfjringmair
dýnur sem kírópraktorar mæla með. Þær eru byggðar
upp eftir MULTILASTIC PLUS kerfinu, sem tryggir jafnan
stuðning og beinan hrygg í svefni. @