Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 16

Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994 Betri ríkisrekstur Samningsstjórnun - markmiðasetning og mat á árangri Fjármálaráðherra boðar til ráðstefnu um breytt vinnu- brögð innan ríkiskerfisins, sem eiga að auka skilvirkni og bæta þjónustu. Þau eru þáttur í stefnu fjármálaráð- herra um nýskipan í ríkisrekstri. Breytt vinnubrögð geta m.a. falið í sér að gerður er þjónustu- samningur á milli ráðuneytis og stofnunar þar sem tilgreint er hvaða þjónustu stofnun „selji“ ráðuneyti. Samningsstjórnun krefst skýrra markmiða um starfsemina, möguleika til að mæla árangur og um leið aukins sjálfstæðis stofnana. Ráðstefnan verður miðvikudaginn 23. mars nk. í sal 3 í Háskólabíói og hefst kl. 14.00. Ráðstefnan er opin öllum. DAGSKRÁ: Ráðstefnustjóri: Inga Jóna Þóróardóttir, viöskiptafrœðingur. 14.00 Ráðstefnan sett. FriÖrik Sophusson, fjármálaráöharra. 14.15 Hvað er samingsstjórnun? Haukur Ingibergsson, deildarstjóri i Hagsýslu ríkisins. 14.35 Samningastjórnun frá sjónarhóli fagráðuneytis. Þorkell Helgason, ráðuneytisstjóri iönaöar- og viöskipta- ráöuneytis. 14.45 Samningsstjórnun frá sjónarhóli ríkisstofnunar. Grímur Valdimarsson, forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. 15.00 KAFFIHLÉ 15.20 Tengsl gæðastjórnunar og samningsstjórnunar. Haukur AlfreÖsson, rekstrarverkfrœöingur. 15.35 Setning markmiða í ríkisrekstri og mat á árangri. Jón Birgir Jónsson, ráÖuneytisstjóri samgönguráöuneytis. 15.45 Almennar umræður. 16.15 Viðbrögð úr ólíkum áttum. Svanbjörg Thoroddsen, hagfrœöingur hjá rekstrarráðgjöf VSÓ og Hjálmar Árnason, skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. 16.30 Ráðstefnuslit Fjármálaráðuneytið, í samráði við Aðgerðarannsókna- félagið, Gæðastjórnunarfélagið, Hagræðingarfélagið og Stjórnunarfélag íslands. ----FJÁRMÁLARÁÐUNEVTIÐ------ Málþing um samkeppnisútboð og val ráðgjafa Fjármálaráðuneytið og Framkvæmdasýslan, í samstarfi við Félag ráðgjafarverkfræðinga og Arkitektafélag íslands, gangast fyrir málþingi um Samkeppnisútboð og val ráðgjafa í Borgartúni 6, föstudaginn 25. márs 1994 kl. 14.00- 16.30. Dagskrá þingsins verður sem hér segir: 1. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra setur málþingið. 2. Útboðsstefna ríkisins og kaup á þjónustu. Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. 3. Ríkið byggir - sjónarmið arkitekta. Ormar Þór Guðmundsson, formaður Arkitektafélags íslands. 4. Stefna FRV í útboðsmálum. Runólfur Maack, formaður Félags ráðgjafarverkfraöðinga. 5. Kostir samkeppnisútboða við val ráðgjafa. Steindór Guðmundsson forstöðumaður Framkvæmdasýslu ríkisins. 6. Samantekt. Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Árni Björn Jónasson, verkfræðingur og Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt. Ráðstefnustjóri verður Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar All,ir sem áhuga hafa á þessum málum eru velkomnir. þátttöku skal tilkynna til Framkvæmdasýslunnar í síma (91) 62 36 66 fyrir 24. mars n.k. Staðreyndir um sæstreng -1 eftir Jón Bergmundsson Á hátíðarstundu er gjarnan talað um að auðlindir landsins séu fólgn- ar í íbúum þess, fiskinum í sjónum og orkunni í fallvötnum og iðrum landsins. Þessar auðlindir skila þó ekki neinu nema þær séu nýttar og nú er svo komið að dregið hefur úr fiskveiðum vegna ofveiði síðustu ára. Öðru máli gegnir um orkulind- irnar, en aðeins hafa verið nýtt um 10% af þeím orkulindum sem hag- kvæmar eru til raforkuframleiðslu. Raforkunotkun á íslandi er með því mesta sem þekkist í heiminum á íbúa og fyrirsjáanleg aukning lítil án þess að til komi nýr stórnotandi orku. Til að gefa hugmynd um þær stærðir sem um er að ræða má nefna a,ð með núverandi vaxtar- hraða raforkunotkunar tæki það 80 ár að nýta næstu 10% orkulindanna án nýrrar stómotkunar. Af þessu má sjá að Islendingar hafa töluvert svigrúm til uppbyggingar nýrrar stóriðju og útflutnings raforku án þess að það komi niður á möguleik- um landsmanna á raforku til al- mennra þarfa. Að undanförnu hafa birst ýmsar blaðagreinar um raforkuútflutning um sæstreng ásamt umfjöllun í ljós- vakamiðlum. Sumt af því sem fram hefur komið er ekki í,samræmi við þá þekkingu sem fyrir hendi er í dag og því mun ég reyna að upp- lýsa nokkuð um þær tæknilegu for- sendur sem eru fyrir slíkum útflutn- ingi. Ég mun skipta greininni í þijá hluta, í fyrsta hlutanum sem hér fer á eftir er fj'allað um þróun und- anfarinna áratuga og það sem er að gerast í dag. I öðrum hluta verð- ur fjallað um sæstrenginn sjálfan og endabúnað hans. í þriðja hlutan- um verður fjallað um truflanir á rekstri sæstrengs og orkutöp vegna útflutnings raforku. í greinum sem þessum er einungis hægt að drepa á fáein atriði, en það er von mín að þessi skrif verði til að varpa ljósi á stöðu málsins í dag. Það sem gerir sæstreng frá ís- landi frábrugðinn öðrum sæ- strengslögnum milli landa er' eink- um þrennt, vegalengdin, hámarks- dýpi á leiðinni og sú staðreynd að um er að ræða opið úthaf. Til norð- urhluta Bretlandseyja eru um 950- 1.100 km eftir lendingarstað, en um 1.800 km til meginlandsins, Þýskalands eða Hollands. Há- marksdýpi er um 1.000 m á kafla milli Færeyja og Bretlands, en ann- ars 6-700 m milli íslands og Bret- landseyja. Dýpi í Norðursjónum er um eða innan við 100 m. Sæstrengur milli íslands og Bret- lands eða meginlands Evrópu yrði jafnstraumsstrengur þar sem ekki er hægt að flytja háspennta raforka meira en nokkra tugi km með rið- straumsstrengjum, en riðstraumur er alla jafna notaður í raforkukerf- um nútímans. Því þarf að breyta riðstraum í jafnstraum í sendienda, í þessu tilviki á íslandi, og síðan jafnstraumnum í riðstraum í mót- tökuenda og er það gert í svokölluð- um umriðilsstöðvum. Eina gerð strengja sem kemur til greina yfír svo langa vegalengd er með olíugegndreyptri pappírsein- angrun og mun því umfjöllun tak- markast við slíka strengi. Þróun sæstrengslagna Frá því fyrsti jafnstraums sæ- strengurinn var tekinn í rekstur milli meginlands Svíþjóðar og Got- lands árið 1954 hefur flutningsgeta slíkra strengja farið sífellt vaxandi. Flutningsgetuna má auka með tvennum hætti, annars vegar með því að hækka rekstrarspennuna og Jón Bergmundsson „Sumt af því sem fram hefur komið er ekki í samræmi við þá þekk- ingu sem fyrir hendi er í dag og því mun ég reyna að upplýsa nokk- uð um þær tæknilegu forsendur sem eru fyrir slíkum útflutningi.“ hins vegar með því að auka þver- mál leiðarans í strengnum og þar með leyfilegan rekstrarstraum. Báðir þessir þættir hafa stuðlað að vaxandi flutningsgetu strengja sem fram kemur í töflu 1. Sá strengur sem síðast kom í rekstur er þriðji strengurinn milli Noregs og Danmerkur, Skagerrak III, en hann kom í rekstur í nóvem- ber á síðasta ári. Um er að ræða 350 kV streng með 500 MW flutn- ingsgetu, en ákvörðun á rekstrar- spennu réðist af fyrirliggjandi jafn- straums loftlínum í Danmörku, frá landtaki strengsins norðvestan Ála- borgar að endastöð nálægt Viborg á Jótlandi. Framleiðsla sæstrengs milli suð- urodda Svíþjóðar og Lúbeck í Þýskalandi (Baltic strengur) er í fullum gangi og mun hann verða lagður nú í sumar. Þessi strengur er fyrir 450 kV rekstrarspennu og 600 MW flutning og verður lengsti sæstrengur til þessa, 250 km. Sæstrengslagnir næsta áratuginn Á allra næstu mánuðum er búist við útboði á streng milli Ítalíu og Grikklands, en með honum tengist raforkukerfi Grikklands öðrum löndum Evrópubandalagsins. Und- irbúningur og rannsóknir vegna strengsins hafa staðið undanfarin ár. Hámarksdýpi milli Ítalíu og Grikklands er um 1.000 m og því mjög áhugavert fyrir íslendinga að fylgjast með hvernig til tekst. Af öðrum strengjum sem eru í undirbúningi má.- nefna streng frá Danmörku til austurhluta Þýska- lands og hugmyndir Norðmanna um raforkuútflutnings til Þýskalands og Englands. Norðmenn gerðu á síðasta ári tvo samninga við Þjóð- veija um raforkuútflutning. Annar samningurinn var milii nokkurra rafveitna í Noregi og Preussen Elektra í Þýskalandi og verður raf- orka flutt fyrstu árin eftir Skager- rak strengjunum til Danmerkur og þaðan eftir danska raforkukerfinu til Þýskalands. Um aldamótin er síðan ráðgert að leggja streng milli Noregs og Þýskalands. Hinn samn- ingurinn var gerður milli annars rafveituhóps í Noregi og rafveitunn- ar í Hamborg um lagningu strengs innan fárra ára frá Noregi til Ham- borgar, en norsk yfirvöld sam- þykktu ekki samninginn þar sem þau töldu orkuverðið ekki nógu hátt til lengri tíma litið. Norðmenn hafa einnig verið að kanna mögu- leika á orkuflutningi til Englands og Hollands. Strengir frá Noregi yrðu um 550 km til Þýskalands eða Hollands, en um 700 km til Eng- lands. Við undirbúning að gerð orku- flutningsmannvirkja þarf að huga að mörgum þáttum sem áhrif hafa á hönnun. Taka þarf tillit til þess orkukerfis sem fyrir er og mark- miða með framkvæmdinni. Lagning sæstrengja er engin undantekning, flutningsgeta og rekstrarspenna þeirra takmarkast stundum af því kerfí sem fyrir er, en í öðrum tilvik- um er stefnt á eins mikla flutnings- getu og talið er unnt að ná með hagkvæmum hætti. í töflu 1 má sjá áhrif beggja atriða, spennuval á Cook Strait, Konti Skan III og Skagerrak III strengjunum réðist af því kerfi sem fyrir var, en við Fenno Skan og Baltic strengina var stefnt að því að hámarka flutnings- getuna. Höfundur er rafmagnsverkfræðingur, sem unnið hefur að athugunum á útflutningi raforku um sæstreng. Tafl* I Yfirlit yfir jafnstraums sœstrcngi. Strcngir mcö gcgndrcyptri pappírscinang jun Heiti Tcnging Rckstrar- spcnna Flutnings- gcta i hvcijum strcng Fjöldi strcngja og lcngd Mesta dýpi Ár kV MW fj x km m Gotland I Svlþjóö-Gotland 1S0 30 1 x 100 160 1954 Ermasund I Frakkland-England 100 80 - 2x51 60 1961 Konti Skan I Sviþjóö-Danmöric 285 250 1 x 87 80 1965 Sacoi Sardinia-Korsika-Ítalia 200 200 2x 119 500 1967 Vancouvcr I Út I Vancouvcr eyju 260 312 2x31 200 1968 Skagcrrak I&II Norcgur-Danmörk 250 250 2x 125 530 1976 Gotland II Sviþjóö-Gotland 150 160 1 x 100 160 1983 Ermasund II Fralddand-England 270 250 8x50 55 1986 Gotland III Svíþjóö-Gotland 150 160 1 x 100 160 1987 Konti Skan II Svíþjóö-Danmörk 285 300 1 x64 80 1988 Fcnno Skan Sviþjóö-Finnland 400 500 1 x 200 117 1989 Cook Strait Nýja Sjéland, milli S- og N-cyju 350 500 2x40 260 1991 Konti Skan III Sviþjóö-Danmörk 285 300 1 x64 80 1991 Skagcrrak III Noregur-Danmörk 350 500 1 x 127 550 1993 Baltic Sviþjóö-Þýskaland 450 600 1 x 250 112 1994

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.