Morgunblaðið - 22.03.1994, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
Ótrúlegar breyting-
ar og framþróun
á skömmum tíma
- segir fyrrum heimsmeistari í dansi, Trine Dehli
Morgublaðið/Golli
Jón Pétur Úlfljótsson og Kara Arngrímsdóttir, margfaldir Islands-
meistarar í dansi.
___________Pans________________
Jóhann Gunnar Arnarsson
Laugardaginn 19. mars var haldin
í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ
íslandsmeistarakeppni í 10 dönsum,
með ftjálsri aðferð. Keppnin var
haldin af Dansráði íslands, að
venju, og fór hún mjög vel fram.
Keppendur, sem voru uppundir 100,
dönsuðu þar af mikilli list og leikni
eins og vera ber á slíkum degi.
Fjölmenni var samankomið í
íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ
síðastliðinn laugardag, en þar stóð
Dansráð Islands fyrir 10 dansa
keppni, með frjálsri aðferð. I 10
dansa keppni sem þessari er keppt
annars vegar í standard-dönsum og
hinsvegar í suður-amerískum döns-
um. Stigahæstu pörin úr báðum
greinunum samanlögðum eru pörin
sem hljóta verðlaun.
Alls var keppt í fimm flokkum;
12-13 ára, 14-15 ára, 16-18 ára,
19 ára og eldri og loks í flokki at-
vinnumanna. Flokkamir voru mis-
íjölmennir en alls voru keppendur
í fijálsu keppninni upp undir 100.
Áð venju hófst keppnin á inn-
marsi og þá setti forseti Dansráðs
Islands, Heiðar Ástvaldsson, keppn-
ina. Að setningarathöfn lokinni var
sýnt dansatriði frá World Class og
kom það skemmtilega á óvart.
Sjálf keppnin hófst á því að keppt
var í flokki 14-15 ára. Þetta var
fjölmennasti hópurinn og því við
hæfi að þau hæfu keppnina. Dans-
inn hjá þeim var sérlega fallegur
og skemmtilegur á að horfa. Mér
fannst þó tónlistin í þessum flokki
ekki nógu kraftmikil, sérstaklega í
jive-inu sem a.m.k. virkaði allt of
hægt, en ekki er neitt við keppend-
ur að sakast í þeim efnum.
Næstur á dagskránni var flokkur
12-13 ára. Að mínu mati var þar á
ferðinni jafnasti hópurinn og var
keppnin þar því hörðust. Þama vora
líka á ferðinni ein efnilegustu dans-
pör sem við íslendingar eigum. Að
öðram flokkum ólöstuðum var þessi
skemmtilegastur á að horfa og e.t.v.
sá flokkur sem sýnt hefur hvað
mesta framför á undanfömum
misserum.
Og enn hélt keppnin áfram og
þá var komið að flokki 16-18 ára.
Þar kenndi margra skemmtilegra
grasa, innlendra og aðfluttra! Þama
vora á ferðinni þrautreyndir dansar-
ar sem hafa verið í fremstu röð í
gegnum árin, þó svo að þau séu
ekki mörg. Mér þótti sérstaklega
gaman að sjá hve vel „systkina-
danspör“ ganga vel upp, en þau era
nú sífellt algengari bæði á inn-
lendri og erlendri grandu. Það sem
e.t.v. er skemmtilegast í þessum
flokki er að þau vora tvö! Einnig
var þama erlendur dansari, sem er
nýlunda í íslenskri keppni, og setti
hann og daman hans svo sannar-
lega góðan og mikinn svip á keppn-
ina.
í flokki para 19 ára og eldri
kepptu einungis 3 pör. Þrátt fyrir
hve pörin vora fá var beðið eftir
þessum flokki með eftirvæntingu,
því þama voru á ferðinni einir af
okkar bestu dönsuram til margra
ára, með nýja dansfélaga. í vetur
hefur borið nokkuð á því að dansar-
ar era að skipta um félaga og aðr-
ir að byija aftur eftir nokkra hvfld,
það er e.t.v. mest áberandi í þessum
flokki og virðast þær breytingar
hafa verið til góðs í flestum tilvik-
um. Hér var heldur ekkert gefið
eftir og dansað af fullum krafti.
Stoit íslenskra dansara, atvinnu-
mennimir, vora síðastir í röðinni
að venju. Þar vora einnig 3 pör;
Haukur Ragnarsson og Esther Inga
Níelsdóttir, Jón Pétur Úlfljótsson
og Kara Amgrímsdóttir og Ragnar
Sverrisson og Unnur Berglind Guð-
mundsdóttir. Þau sýndu öll frábær-
an dans og öraggan. Það sem e.t.v
er skemmtilegast með atvinnupörin
er hvað þau era öll ólík en góð á
^ÓNÍUHLJOMS VEITflv
tlflSKÓLflblÓI
LflUQfiepfKímn 26. nm
Kl. 14.30
simi
Níu ára sonur trúðsins
tekur þátt í tónleikunum
tvfiðasala á skrifstofu hljómsvffltaririnar í Háskólabíói
alla virka daga kl. 9 - 17 o^Við innganginn
við upphaf tónleikanna.
SiriFÓMÍl HLJ0MSVEITIM
Systkinin Ami Þ. Eyþórsson og Erla S. Eyþórsdóttir fóru á kostum
og stóðu uppi sem sigurvegarar í flokki 16-18 ára.
sinn máta. Oft er, þar sem um lítið
samfélag er að ræða, að allir steyp-
ast í sama mót, en svo er ekki í
þessu tilviki, sem betur fer.
Eftir fyrrihluta keppninnar var
höfð eins dans keppni, með grann-
aðferð (basic). Þar voru á ferðinni
mun fleiri flokkar en í frjálsu keppn-
inni, bæði yngri og eldri, og er það
vel. Eins dans keppnin gekk hratt
fyrir sig og „rann“ ljúft í alla staði.
Það er alltaf gaman að sjá yngstu
keppenduma spreyta sig og var það
einnig nú sem áður. Þar fírmst mér
dansinn einna einlægastur og kepp-
endur einna einbeittastir. En í heild
var eins dans keppnin skemmtilegt
innlegg í skemmtilegan dag.
Skipulag keppninnar síðastliðinn
laugardag var með nokkru öðra
sniði en venjulega hefur verið í 10
dansa keppni hér á landi. Nú var
verið að prafukeyra nýtt tölvukerfi
við útreikninga stiga, sem Níels
Einarsson danskennari hefur hann-
að. Það byggist á því, að í raun er
bara keppt í einum dansi, þannig
að þó par komist einungis áfram í
einum dansi, fær það að sýna hann
aftur. Og par sem kemst áfram í 4
dönsum af 5 sýnir þá bara þá dansa
sem það komst áfram í. Þetta kerfi
er gert að erlendri fyrirmynd, en
hefur upp á margt nýtt og sniðugt
að bjóða. Að sögn Níelsar hyggst
hann reyna að flytja kerfíð út, því
í því sé margt sem önnur sambæri-
Ieg erlend kerfí hafí ekki og á hann
von á góðum viðtökum.
Dómaramir í keppninni vora ekki
af verri endanum. Þeir voru: Trine
Dehli frá Noregi, en hún er þrefald-
ur heimsmeistari í 10 dönsum og
einnig hefur hún unnið heimsmeist-
aratitil í suður-amerískum dönsum,
sem áhugamaður. í stuttu samtali
eftir keppnina sagðist hún hafa
verið spennt að koma aftur til ís-
lands, því hún hafi komið hingað
árið 1985 í keppni sem þá var hald-
in hér á landi. Hún viðurkennir að
þá hafi sér nú ekki litist á blikuna
með íslenskan dans, en framfarim-
ar síðan þá séu geysimiklar og
undraverðar. Sérstaklega fínnst
henni yngstu bömin efnileg og
mörg hver mjög svo frgmbærileg á
erlendri grundu! Einn dómaranna
kom svo frá frændum okkar Dön-
um, en það var Ib Lindholm. Hann
er hátt skrifaður sem danskennari
í Danmörku og rekur þar eigin
skóla. Hann hefur sér það til frægð-
ar unnið að komast í 5. sæti á
heimsmeistaramóti í suður-amer-
ískum dönsum og einnig var hann
5 sinnum í danska landsliðinu í
dansi, sem er meðal þeirra sterk-
ustu á alþjóðlegan mælikvarða. Og
síðastan og alls ekki sístan ber að
nefna Freddie Boultwood frá Eng-
landi. Til fjölda ára hefur hann ver-
ið mjög áberandi í breskum dans-
heimi og þar af leiðandi „restinni"
af heiminum. Hann keppti við góð-
an orðstír sem dansari og er nú
formaður British Council of Ballro-
om Dancing (Dansráðs Bretlands).
Að sögn keppnisstjóra, Þorbjarg-
ar Þórisdóttur, fór keppnin vel fram
í alla staði. Og þó svo að dálítil töf
hefði orðið á dagskránni virtist hún
ekki hafa komið að sök, þó svo það
væri alltaf leiðinlegt þegar það
gerðist.
Kynnar voru Anna Norðdahl og
Margrét Arnþórsdóttir og stóðu
þær sig vel, svo og allir starfsmenn
keppninnar, sem voru fjöimargir.
I heild vár þessi keppni hin
skemmtilegasta á að horfa og Dans-
ráðinu og íslenskum dönsurum til
mikils sóma í alla staði. Áhorfend-
ur, sem voru ríflega 1.200, virtust
skemmta sér hið besta og hvöttu
sitt fólk dyggilega með ýmsu móti.
Að danskeppninni lokinni hélt svo
hver til síns heima og flestir heldur
en ekki glaðir í bragði, eftir vel
heppnaðan og skemmtilegan dag.
Urslit í 10 dansa keppninni
12-13 ára:
1. Sigursteinn Stefánsson/Elísabet S. Haraldsd. DJK
2. Brynjar Ö. Þorleifsson/Sesselja Sigurðardóttir ND
3. Benedikt Einarsson/Berglind Ingvarsdóttir ND
4. Trausti Eysteinsson/Margrét H. Jónasdóttir DSM
5. Baldur Gunnbjömsson/Ásta S. Snorradóttir DHR
6. Hjörtur Hjartarson/Laufey L Sigurðardóttir ND
14-15 ára:
1. Davíð A. Einarsson/Eygló K. Benediktsdóttir DJK
2. Ólafur M. Sigurðsson/Hiida B. Stcfánsdóttir ND
3. Þorvaldur S. Gunnarss./Berglind Magnúsd. DAH
4. SigurðurG. Sigmarsson/EyrúnMagnúsdóttir DJK
5. Ágúst M. Ágústsson/Sigríður L. Tómasdóttir ND
6. Daníel Traustason/Hrefna R. Jóhannsdóttir DHR
16-18 ára:
1. ÁmiÞ.Eyþórsson/ErlaS.Eyþórsdóttir DJK
2. Scott B. Todd/Jóhanna E. Jónsdóttir DSH
3. Ólafur J. Hansson/Kolbrún Ýr Jónsdóttir DHÁ
4. HalldórÖ. Óskarss./Dagbjört R. Bjamadóttir DJK
5. Einar G. Ingvarsson/Lóa Ingvarsdóttir ND
6. Eggert T. Guðmundss./Guðfinna Bjömsdóttir DJK
19 ára og eldri:
1. Gunnar M. Sverrisson/Anna B. Jónsdóttir DAH
2. Þröstur Jóhannsson/Fjóla R. Þorleifsdóttir ND
3. Magnús Ingimundars./Vala Hermannsdðttir DHÁ
Atvinnumenn:
1. Jón Pétur Úlfljótsson/Kara Amgrimsdóttir
2. Haukur Ragnarsson/Esther Inga Níelsdóttir
3. Rapar Sverrisson/Unnur Berglind Guðmundsd.