Morgunblaðið - 22.03.1994, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1994
OFTHE
Stjömubíó frumsýnir
stórmyndina
DREGGJAR
DAGSINS
★ ★★★ G.B. DV.
★ ★★★ Al. MBL.
Byggð á Booker-verðlaunaskáld-
sögu Kazuo Ishiguro.
Frá aðstandendum myndanna
Howards End og A Room With A
View er komið nýtt meistaraverk.
TILNEFND TIL 8 ÓSKARS-
VERÐLAUNA
þ.á m. fyrir besta karlleikara í aðalhlutverki
(Anthony Hopkins), bestu leikkonu í aðal-
hlutverki (Emma Thompson) og besta leik-
stjóra (James Ivory).
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.30.
MORÐGATAÁ
M AIM HATTAIM
Nýjasta mynd meistarans
Woody Allen.
★ ★★G.B.DV.
★ ★★ J.K. Eintak
Sýnd kl. 7 og 9.
Miðav. kr. 400.
HU rn í sKiniii kfikiyiMtelrm í Sliimkíí líiiui í sui NlliS. i inllm m ínrili-
kttli Jktnli' ttnin' n MsMh í iridlr StHmkKt. Vtit b. N.II liiiin.
FLEIRI POTTORMAR
Sýnd kl. 5. Miðav. kr. 350.
I KJOLFAR MORÐIIMGJA
Sýnd kl. 11. B. i. 16 ára. Miðav. 350 kr.
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
Stóra svið kl. 20:
• GLEÐIGJAFARNIR eftir Neil Simon.
með Árna Tryggvasyni og Bessa Bjarnasyni.
8. sýn. mið. 23/3 brún kort gilda, uppselt. Sýn. lau. 26/3, upp-
solt, mið. 6/4 fáein sæti laus, fös. 8/4 uppselt, fim. 14/4 fáein
sæti laus, sun. 17/4 fáein sæti laus, mið. 20/4.
Litla svið kl. 20:
• EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar
Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende.
Fim. 24/3 uppselt, fös. 25/3 uppselt, sun. 27/3 fáein sæti laus,
fim. 7/4, lau. 9/4 uppselt, sun. 10/4, mið. 13/4, fös. 15/4.
Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu.
ATH. 2 mlðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000.
• LEIKLESTURÁ GRÍSKUM HARMLEIKJUM
ÍFIGENÍA ( ÁLÍS eftir Evripides, laugard. 26. mars kl. 15,
AGAMEMNON eftir Æskilos, kl. 17.15 og ELEKTRA eftir
Sófókles kl. 20.00. Miðaverð kr. 800,-
Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga.
Tekið á móti miðapöntunum í sfma 680680 kl. 10-12 alla
virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
LINDARBÆ-SÍMI21971
Sumargestir
eftir Maxim Gorki,
i leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
3. sýning í kvöld kl. 20, uppselt.
4. sýning miðv. 23. mars kl. 20.
5. sýning mán. 28. mars kl. 20.
#
Stóra sviðið ki. 20.00:
• GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Á morgun, uppselt, - fim. 24. mars, uppselt, - lau. 26.
mars, uppseit - fim. 7. apríl, uppselt, - fös. 8. apríl, upp-
selt, - sun. 10. apríl, uppselt, - sun. 17. apríl, uppselt, -
mið. 20. apríl, uppselt, - fim. 21. apríl, örfá sæti laus, -
sun. 24. apríl - mið. 27. apríl, uppselt, - fim. 28. april, upp-
selt, - lau. 30. aprfl, uppselt.
• ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller.
Fös. 25. mars - lau. 9. apríl, næstsíðasta sýning, - fös.
15. apríl, sfðasta sýning.
• SKILA BOÐA SKJÓÐA N eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Sun. 27. mars kl. 14, örfá sæti laus, - sun. 10. apríl kl. 14,
nokkur sæti laus, - sun. 17. aprfl kl. 14.
• ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Lau. 26. mars kl. 14. Allra síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30:
• BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca
Fös. 25. mars, fáein sæti laus, sun. 27. mars - lau. 9. apríl
- fös. 15. apríl. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er
unnt að hleypa gestum f salinn eftir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.00:
• SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén
Aukasýning lau. 26. mars. Síðasta sýning. Ekki er unnt að
hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin.
• LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS
( kvöld kl. 20.30:
LORCA-dagskráin frá 28. febrúar, endurtekin aðeins þetta
eina kvöld.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti
símapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Græna linan 996160.
Muniö hina glæsilegu þriggja rétta máltíö ásamt
dansleik.
LEIKHÚSKJALLARINN
ÞAR SEM LÍFIÐ ER LIST -
I S L E N S K A
LEIKHÚSiÐ
MU11«». ItllTUIOLn 21. SÍMI 12(321
VÖRULYFTAN
eftir Harold Pinter
i leikstjórn Péturs Einarssonar.
Föstud. 25. marskl. 20.00.
Laugard. 26. mars kl. 20.00.
Sunnud. 27. mars kl. 20.00.
Ath. fáar sýningar eftir.
Mlðapantanir í Hlnu húsinu,
síml 624320.
L E I
K H U 51
Seljavegi 2, S. 12233
Skjallbandalagið
sýnlr leiksýninguna
• Dónalega dúkkan
eftir Dario Fo og Fröncu Rame
f leikstjórn Marfu Reyndal.
Öil hlutverk Jóhanna Jónas.
8. sýn. fös. 25/3 kl. 20.30.
9. sýn. lau. 26/3 kl. 20.30.
10. sýn. sun. 27/3 kl. 20.30.
Sfðasta sýning.
Miðapantanir í síma 12233 og
11742, allan sólarhringinn.
UR DAGBÓK
LÖGREGLUIMNAR
REYKJAVIK:
18. -. 21 mars 1994
Á tímabilinu var tilkynnt
um 42 umferðaróhöpp og 5
umferðarslys. í liðinni viku
var samtals tilkynnt um 111
árekstra og 11 umferðar-
slys. í þessum óhöppum
skemmdust nálægt 250
ökutæki og flytja þurfti 25
einstaklinga á slysadeild
vegna meiðsla. Telja má að
í vikunni hefðu rúmlega 400
ökutæki skemmst meira og
minna í umferðaróhöppum
á starfssvæði lögreglunnar
í Reykjavík. Spurningin er
hvort ekki sé orðið tímabært
að ökumenn staldri nú við
og fari að hugsa sinn gang??
Óvenjulegt atvik átti sér
þó stað á föstudagskvöld.
Þá lenti slasaður maður í
árekstri. Hann hafði verið
að hjálpa vinkonu sinni við
flutninga og brotnað við það
að fá skáp á fótinn. Vinkon-
an ætlaði að aka manninum
á slysadeild, en þá tókst
ekki betur til en svo að bif-
reið hennar lenti í árekstri
þegar henni var ekið út af
bifreiðastæðinu við húsið.
Aðfaranótt laugardags
var tilkynnt um umferðar-
slys á svipuðum slóðum. Það
varð þegar farþegi í leigu-
bifreið ákvað skyndilega að
stíga út úr bifreiðinni án
þess að gera sér grein fyrir
því að hún var þá á ferð.
Maðurinn lenti á götunni,
en meiðsli hans voru talin
minniháttar.
Ekki var margt fólk í
miðborginni aðfaranætur
laugardags og sunnudags.
Þó þurfti að fjarlægja þaðan
nokkra fullorðna undir
áhrifum áfengis sem og 7
unglinga undir 16 ára aldri,
sem voru þar utan dyra eft-
ir kl. 22 á föstudagskvöld.
Þeir voru færðir í unglinga-
athvarfíð og síðan sóttir
þangað af foreldrum sínum.
Hellt var niður áfengi hjá
þeim, sem höfðu það undir
höndum, en höfðu ekki náð
lögleyfðum áfengisneyslu-
aldri. Athvarfíð verður opið
næstu helgi. Þá verður sem
endranær gerð sérstök leit
að unglingum á eða við mið-
bæjarsvæðið.
Um helgina var tilkynnt
um 16 innbrot og 11 þjófn-
aði. M.a. hljóp vel þjálfaður
og fótfrár prestur uppi þjóf
eftir að sá hafði leyft sér
að taka óftjálsri hendi hljóð-
kerfí kirkjunnar. Prestur
náði verðmætunum, en þjóf-
urinn gengur laus, enda
virðist ekki skipta máli
hvort hann er handtekinn
eða ekki.
Aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um að tveir pilt-
ar hefðu brotist inn í sölut-
urn í Austurborginni. Vegf-
arandi, sem veitti þeim at-
hygli, reyndi að hafa hendur
í hári piltanna, en þeir veitt-
ust þá að vegfarandanum
með þeim afleiðingum að
flytja þurfti hann á slysa-
deild. Piltamir vora hand-
teknir og vitað er hver sá
þriðji er. Einn þeirra hefur
áður komið við sögu hlið-
stæðra mála hjá lögreglu.
Lögreglan hefur reynt að
vekja athygli á nauðsyn þess
að taka þurfti skilvirknis-
lega á málum þeirra, sem
sýnt hafa af sér slíka hátt-
semi, en lítinn hljómgrunn
fengið hjá hlutaðeigandi
aðilum.
Aðfaranótt laugardags
var tilkynnt um að menn
væru að brjótast inn í bif-
reiðir við bílasölu í austur-
borginni. Þegar lögreglan
kom á staðinn hafði þeim
tekist að brjótast inn í eina
bifreið, stela úr henni geisla-
spilara og hátölurum og
hverfa á brott í bifreið.
Glöggur sjónarvottur hafði
séð skráningarnúmer bif-
reiðarinnar og skömmu síð-
ar voru mennimir handtekn-
ir af lögreglunni í Kópa-
vogi. Þar reyndist um utan-
bæjarmenn að ræða. Þeir
voru færðir í fangageymslu
lögreglunnar í Reykjavík. í
bifreið þeirra fannst þýfi.
Á laugardagskvöld var
tilkynnt um lausan eld í
húsi á Teigunum. Kona, sem
verið hafði að elda í fondu-
potti, slasaðist töluvert þeg-
ar potturinn sprakk skyndi-
lega. Feiti fór á konuna og
mun hún hafa brennst illa.
Hún var flutt á slysadeild.
Aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um reyk í bíl-
skúr í Vesturbænum. í ljós
kom að eldur logaði í skúrn-
um. Húsráðandanum tókst
að slökkva eldinn. Talið er
að einhver hafi tekið sig til
og kveikt í rusli í skúmum.
Ekki urðu neinar skemmdir.
Á sunnudag notfærði ein-
hver kona sér góðsemi
tveggja annarra í sitthvoru
húsinu í austanverðum
Þingholtunum. í báðum til-
vikum buðu konurnar
ókunnu konunni innfyrir og
bám í hana beina, en upp-
götvuðu síðan að veski
þeirra vom horfín. Veski
annarrar þeirra fannst við
ruslatunnu í nágrenninu,
peningalaust.
Tæplega 100 ökumönn-
um var veitt áminning eða
þeir sektaðir vegna brota á
stöðvunarskyldu, fyrir að
virða ekki rautt ljós eða
notuðu ekki bílbelti. Lög-
reglan á Suðvesturlandi hef-
ur beint athygli sinni sér-
staklega að þessum verk-
efnisþáttum að undanförnu
og mun gera það áfram, auk
þess sem hún mun halda
áfram að kanna viðhorf veg-
farenda til forgangsröðunar
umferðarverkefnisþátta hjá
lögreglu.
Tónleikar
á Tveim-
ur vinum
TÓNLEIKAR verða á veit-
ingastaðnum Tveimur vin-
um í kvöld kl. 22. Þar koma
fram rokksveitirnar Glott
og Kol. Hljómsveitirnar
sem hafa starfað í nokkurn
tíma hafa lífið haft sig í
frammi á tónleikasviðinu
en ætla nú að gera þar
bragabót á.
Hljómsveitin Glott er skip-
uð gamalkunnum nöfnum úr
tónlistarlífínu þeim Valgarði
Guðjónssyni, Stefáni Karli
Guðjónssyni, Arnóri Stefáns-
syni, Ellerti Ellertssyni og
Kristni Steingrímssyni.
Hljómsveitina Kol skipa
þeir Benedikt Sigurðsson,
Arnar Halldórsson, Ævar
ísberg, Hlynur Guðjónsson
og Sváfnir Sigurðsson.
p U M>
Metsölublað á hverjum degi!
Kvikmyndin „Gran SoI“ er ein þeirra mynda sem sýnd
er á basknesku kvikmyndahátíðinni í Háskólabíói.
Basknesk kvikmynda-
vika í Háskólabíói
HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ stendur fyrir basneskri kvik-
myndaviku dagana 22. til 28. mars. Sýndar verða fjórar
nýjar myndir frá Baskahéruðum Spánar en þar hefur kvik-
myndagerð verið í mikilli uppsveiflu. Baskar hafa lengi
staðið í baráttu við spænsku ríkisstjórnina í Madríd og
krafist sjálfsstjórnar og má greina þau átök í mörgum
myndanna. Myndirnar sem sýndar verða eru:
„Las Cartas de Alou“ eftir streitu, hryðjuverk og ást.
Montxo Armendaríz. Hún
fjallar um Alou sem er ólög-
legur innflytjandi frá Senegal
og fellir hug til Carmen sem
hvetur hann til að setjast að
en hann er rekinn úr landi.
„Gran Sol“ eftir Ferran Lla-
gostera er sjómannaharmleik-
ur byggður á bók Ignacio
Aldecoa. Sjómenn á veiðum
undan ströndum írlands lenda
í erfíðleikum og verða að snúa
LEIKFÉL. AKUREYRAR s.96-24073 Hann snýr aftur og freistar til hafnar. Þeir geta ekki snú- gæfunnar. Harmsaga. Carm- ið tómhentir heim og í barátt- en leikur Eulalia Ramón eigin- unni tekur Ægir sinn toll. kona Carlos Saura. „Tasio“ eftir Montxo Arm- „Dias de Humo“ eftir Anton endariz er saga Baskahéraðs- Eceiza segir frá Pedró sem ins smættuð í sögu veiðiþjófs- yfirgaf fyrir tveimur áratug- ins Tasios. Stoltur og fullur um fjölskyldu, vini og heima- frelsisþrár neitar hann að láta land. Á fimmtugsaldri snýr leggja á sig bönd. Hann varð- hann til baka og kemst að því veitir frelsi sitt með því að að allt er breytt. Hann finnur brjóta lögin, veiðiþjófnaðurinn
9 ÓPERUDRAUGURINN 1 Samkomuhúslnu Kl. 20:30: Frums. fös. 25/3 uppselt, lau. 26/3 örfá sœti laus, mlö. 30/3, skírdag 31/3, lau. 2/4 örfá sœti laus, 2. í páskum 4/4. • BAR PAR SÝNT I ÞORPINU, HÖFÐAHLlÐ 1, kl. 20.30. Sun. 27/3 uppselt, þri. 29/3, fim. 7/4. Ath.: Ekkl er unnt að hleypa gestum í sallnn eftlr að sýning er hafin. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18.
hatúr, þjóðfélagslega tog- er tákn frelsis og sjálfstæðis.