Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. APRII, 1994
25
Magnús Guðjónsson er kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Dýrfirðinga á Þing-
eyri. KD er stærsti hluthafinn í fisk-
vinnslu- og útgerðarfélaginu Fáfni hf.,
en það er stærsti vinnuveitandinn á
Þingeyri.
en skipin eru færanleg en frystihús-
in ekki. Þetta sést vel á þeirri til-
færslu sem orðið hefur á aflaheim-
ildum héðan af þessu svæði við að
7 togarar hafa farið. Kvótakerfinu
verður ekki breytt nema með gífur-
legri eignaupptöku af útgerðinni og
ótrúlegt að það gengi þegjandi og
hljóðalaust fyrir sig.“
En hvað um veiðileyfagjald?
„Þessi atvinnugrein er að sligast
af skuldum. Ég sé ekki hvernig hún
á að standa betur ef hengdar eru
meiri álögur á hana og get ekki séð
hvernig veiðileyfagjald getur leyst
kvótavandann. Ég er hræddur um
að þessi leið sé ekki vænleg til
árangurs."
Nýjar vinnsluaðferðir
Minnkandi sjávarafli og skertar
veiðiheimildir hafa komið niður á
Fáfni hf. líkt og öðrum útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækjum. Til að
afla hráefnis og halda uppi atvinnu
er fyrirtækið í vaxandi mæli að
fara út í fullvinnslu sjófrysts fisks
af Sléttanesinu og einnig er keypt
sjófryst hráefni af innlendum og
erlendum skipum. Að sögn Magnús-
ar hefur tekist að halda uppi fullri
vinnu í frystihúsinu allt síðasta ár
og það sem af er þessu ári. A Þing-
eyri er ekkert atvinnuleysi og frek-
ar að fólk hafi skort til starfa.
Húsnæðisekla hefur staðið í vegi
fyrir því að fólk flytji á staðinn.
Fáfnir hefur staðið fyrir vöruþró-
un á afurðum úr sjófrystum fiski.
Úthafskarfi er hausaður og heil-
frystur um borð í frystitogaranum
en verður fullunninn og settur í
neytendaumbúðir á Þingeyri. Karf-
inn verður síðan seldur í stórmörk-
uðum í Evrópu. Þróunarstarfið við
fullvinnslu karfans var unnið í sam-
vinnu Fáfnis hf. við þróunarsetur
íslenskra sjávarafurða, Iceland
Seafood Ltd. í Bologne-sur-Mer í
Frakklandi og Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins. Með þessari full-
vinnslu í neytendaumbúðir tvöfald-
ast útflutningsverðmætið.
Tilraun hefur einnig verið gerð
með fullvinnslu Rússaþorsks á
Þingeyri. Þorskurinn er þíddur og
skorinn í bita sem síðan eru laus-
.frystir. Sá hluti fisksins sem ekki
nýtist í þessa bita er unninn í blokk.
Að sögn Magnúsar hefur lítið
verið keypt af ferskum fiski á mörk-
uðum hér innanlands og er þar fyrst
og fremst um að kenna samgöngu-
erfiðleikum sem standa í veginum
fyrir greiðum fiskflutningum. Auk
afla af heimabátum hefur Fáfnir
keypt fisk af bátum á Bíldudal sem
landað er á Tálknafirði og fluttur
þaðan sjóleiðina til vinnslu á Þing-
eyri.
Atvinnan skiptir mestu
Samgöngubætur eru fólki hug-
leiknar á Þingeyri. Á vetrum eru
lokaðar leiðir til suðurs frá Dýra-
firði, sá sem vill aka til Bíldudals,
sem er í Arnarfirði næst fyrir sunn-
an, verður að aka norður um Djúp
og alla leið suður til Stykkishólms,
taka þaðan feiju yfir á Bijánslæk
og aka síðan norður í Amarfjörð.
Flugsamgöngur eru góðar við Þing-
eyri, bæði flogið til Reykjavíkur og
svo póstflug á milli fjarða. Land-
samgöngur eru um Breiðadalsheið-
ina til ísafjarðar, nýlega hefur ruðn-
ingsdögum ljölgað í þijá í viku, svo
fremi snjóflóðahætta loki ekki leið-
um. Sem kunnugt er munu væntan-
leg jarðgöng greiða mönnum leið
undir þénnan erfiða fjallgarð til ísa-
fjarðar. En skipta göngin miklu
fyrir þróun atvinnulífs og byggðar
á Þingeyri?
„Göngin eru mikilvægur þáttur
í að tengja svæðið í eina heild, eink-
um byggðirnar þijá sem næst
göngunum liggja, það er Isafjörð,
Suðureyri og Flateyri. Þingeyri
liggur nokkuð fjær, en vegna Dýra-
ijarðarbrúarinnar sem nýlega var
vígð og ganganna mun ekki taka
nema um 40 mínútur að aka til
ísafjarðar. Samgöngur eru mikil-
vægar og stuðla að sterkari byggð,
Ur rekstri Fáfnis hf. 1988 til 1993
í milljónum kr.
Velta
924
Fjármuna- (á verðlagi 1993)
myndun Hagnaður/Tap
AFKOMA Fáfnis hf. var erfið í fyrra og missir togarans Sléttaness frá
veiðum var fyrirtækinu erfiður. Velta fyrirtækisins endurspeglar afla-
samdráttinn þau ár sem Magnús Guðjónsson hefur verið framkvæmda-
stjóri Fáfnis. Fjármunamyndun gefur til kynna það veltufé sem komið
hefur frá rekstrinum.
en eru þó ekki meginforsenda
byggðar að mínu mati. Ég held að
það skipti mestu að það sé sterkt
atvinnulíf á staðnum og að þar sé
lífvænlegt fyrir fólk. Stóru þétt-
býliskjarnarnir eru ágætir en þeir
þurfa líka á jaðarbyggðum að halda.
Ef jaðarbyggðirnar flosna upp held
ég að stóru bæirnir fylgi á eftir.“
Dugmikið starfsfólk
Þrátt fyrir erfiðleikana í fyrra
er engan bug að finna á Magnúsi.
Hann segir að fyrirtækin hafi góðu
og dugmiklu starfsfólki á að skipa
og það sé tilbúið að leggja mikið á
sig til að vinna fyrirtækin út úr
erfiðleikunum. „Menn hafa trú á
því að þessi rekstur eigi framtíð
fyrir sér, ekki síst í ljósi þeirra
möguleika sem hafa skapast með
breyttu skipulagi og nýjum vinnslu-
aðferðum."
Velkomin til
Norðurlanda!
Kynntu þér hagstæð kjör og spennandi ferðamöguleika næst þegar
þú ferðast til Norðurlanda.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða Flugleiða eða
ferðaskrifstofuna þína.
Heigarfargjöld ^' Lukkufargjöld
Keflavík-Kaupmannahöfn..........28.400.............................33.700
Keflavík-Osló...................28.400.............................33.700
Keflavík-Bergen.................30.100.............................33.700
Keflavík-Stavanger.............. 30.100 33.700
Keflavík-Stokkhólmur............28.400............................ 33.700
Keflavík-Gautaborg..............33.600........................... 33.700
Kef lavík-Jönköping.............33.600.......................... 33.700
Keflavík-Kalmar.................33.600.............................33.700
Keflavík-Malmö..................30.100.............................33.700
Keflavík-Norrköping.............33.600.............................33.700
Keflavík-Vaxjö..................33.600.............................33.700
Keflavík-Vásterás...............33.600.............................33.700
Keflavík-Örebro.................33.600.............................33.700
Keflavík-Helsinki...............34.200............................ 38.500
Kef lavík-T ampere..............34.200............................ 38.500
Keflavík-Turku..................34.200............................ 38.500
Hámarksdvöl helgarferða er 4 nætur, lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags.
50% barnaafsláttur fyrir 2-12 ára börn.
Hámarksdvöl iukkufargjalda er 1 mánuður, lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags.
Kaupa þarf farmiða lukkufargjalda 7-14 dögum fyrir brottför.
50% afsláttur fyrir 2-18 ára börn og unglinga ef þau eru í fylgd með fullorðnum
fjölskyldumeðlimum.
Innlendur flugvallarskattur 1.340 kr., danskur 710 kr., sænskur 130 kr. og norskur 590 kr.
SAS, sími 622211. Flugleiðir, sími 690300.
FLUGLEIÐIR