Morgunblaðið - 10.04.1994, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994
45
eftir Árno Motthíasson
ÞAÐ ÞARF sterk bein til
að þola meðlætið ekki
síður en mótlætið og í
tilfelli Kurts Cobains,
söngvara, lagasmiðs og
leiðtoga Nirvana, einnar
vinsælustu rokksveit
heims síðustu ár, bar
velgengnin hann ofurliði.
Eftir því sem vinsældir
hljómsveitarinnar urðu
meiri fannst honum erf-
iðara að eiga við athyg-
lina, afæturnar og eitur-
lyfin og svipti sig loks lífi
sl. föstudag, aðeins 27
ára gamall. Þar með lauk
sögu einnar áhrifamestu
rokkhljómsveitar vestur-
álfu í upphafi þessa ára-
tugar.
Saga hljómsveitarinn-
ar Nirvana var æv-
intýri, sem hafði á
sér dökkar hliðar ekki síður
en ljósar. Sveitin varð ófor-
varandis vinsæl haustið 1991
og ruddi brautina fyrir nýja
tónlistarstefnu, Seattle-rokk
eða „gninge“-rokk, sem gaf
af sér grúa annarra vinsælla
hljómsveita um heim allan.
Þannig skaust hlédrægur og
tilfínningaflæktur tónlistar-
maður, sem hellti úr skálum
gremju sinnar af miskunnar-
lausri hreinskilni, upp á
stjörnuhimininn, sem varð
honum að aldurtila.
Landlægt þunglyndi
Kurt Cobain og Chris Nov-
oselic, sem breytti nafni sínu
fyrir skemmstu í Krist til að
undirstrika króatískan upp-
runa sinn, fæddust og ólust
upp í smábænum Aberdeen
í Washington-fylki, skammt
frá Seattle. Bæjarbúar lifa á
skógarhöggi og Cobain lýsti
því í viðtölum i upphafi
frægðarferils hljómsveitar-
innar að líf í bænum hafi
verið erfitt, atvinnulíf ein-
hæft og hagsveiflur hafi allar
magnast í bænum; bæjar-
bragur hafi verið daufur,
þunglyndi landlægt og mikið
um áfengis- og eiturlyfja-
neyslu. Kurt og Krist voru
snemma utangarðs, sérstak-
lega Kurt, sem bjó við erfiðar
heimilisaðstæður. Þeir sáu
báðir tónlistina sem leið til
að einangra sig frá dapurleg-
um umheiminum. Tónlistin
sem hreif þá, sérstaklega
Cobain, var bandarískt pönk;
hröð og hörð rokktónlist með
ruddalegum og ágengum
textum. Ekki var mikill
hljómgrunnur fyrir slíkri tón-
list í Aberdeen og fyrsta
hljómsveitin sem þeir félagar
stofnuðu, og hét Nirvana,
hermdi eftir Creedence Cle-
arwater Revival. Cobain spil-
aði á trommur í þessari
fyrstu útgáfu af Nirvana, en
Novoselic á bassa. Það var
þó snar þáttur í pönkinu að
aðal góðrar hljómsveitar var
að vera öðruvísi og leika eig-
in tónlist, og smám saman
náðu frumsamin lög yfir-
höndinni. Snemma árs 1986
var Nirvana búin að taka á
sig þá mynd sem síðar átti
eftir að skjóta sveitinni á
toppinn um heim allan; tón-
listin var hrátt og ruddalegt
rokk, með sterkum laglínum
sem báru uppi hálf öskraða
texta Cobains, sem fjölluðu
um ýmislegt ókræsileg, eins
og ofbeldi, limlestingar,
ást/hatur og eiturlyfja-
neyslu. Cobain var orðinn
viðurkenndur leiðtogi sveit-
arinnar þegar hér var komið,
enda samdi hann flestöll lög-
in og söng að auki, en því
til viðbótar hafði hann fært
sig frarnar á sviðinu og lék
á gítar.
Framan af var ekki mikill
áhugi fyrir Nirvana og þeirri
tónlist sem sveitin lék, enda
má segja að hún hafi fallið
á milli skilgreininga; tónlistin
var of aðgengileg til að telj-
Fnegðín
ast pönk, of hrá til að teljast
popp og of kæruleysisleg til
að teljast þungarokk.
Eftir mögur misseri, þar
sem hljómsveitin spilaði eins
og hún ætti lífið að leysa,
þó tónleikagestir væru iðu-
lega lítið fleiri en hljómsveit-
armeðlimir, kom stóra tæki-
færið þegar Sub Pop-útgáfan
fór þess á leit við sveitina
að hún hljóðritaði smáskífu.
Eftir útkomu þeirrar skífu
fékk Nirvana tilboð um að
spila víða í Seattle, þó áhorf-
endur hafi þar verið lítið
fleiri. Sub Pop hafði þó það
mikla trú á hljómsveitinni að
hún hljóðritaði breiðskífuna
Bleach á mettíma. Tónlistin
var sem fyrr hrá og ágeng,
en textarnir voru farnir að
taka á sig ákveðnari mynd
og margur sá í þeim herhvöt
kynslóðar sem fannst hún
ekki hafa neinu að að hverfa;
engar bjartar hugsjónir og
fátt um vænlega framtíðar-
drauma, ef menn á annað
bórð vildu ekki hella sér út
í ameríska drauminn.
í kjölfar bneiðskífunn^r
lagði Nirvana í sína fyrstu
tónleikaför, allir hljómsveit-
armeðlimir, sem þá voru fjór-
ir, saman í einni smárútu og
iðulega var sofið á jörðinni
ef vel viðraði, til að losna út
úr sendibílnum.
Snemma árs gerði Sub Pop
Nirvana tilboð um sjö breið-
skífu samning, en sveit-
armenn voru efins um að
fyrirtækið væri nógu traust
til að semja við það til svo
langs tíma. Þeir héldu til Los
Angeles og komust þar á
samning hjá DGC-útgáfunni.
Fyrir þá útgáfu hljóðrituðu
þeir svo aðra breiðskífu sína,
Nevermind, sem gefín var
út í september 1991.
Nirvanaæði
Nevermind sló þegar ræki-
lega í gegn, en sveitarmenn
og útgáfan höfðu gert sér
vonir um að selja mætti af
plötunni um 250.000 eintök
á löngum tíma, ef vel væri
að málum staðið. Mánuði eft-
ir útgáfuna var salan komin
vel yfir milljón, og 400.000
pintök seldust af plötunni á
1 .rémö'rtC --------------
viku hverri. Niivanaæði var
skollið á í Bandaríkjunum og
lagið Smells Like Teen Spir-
it, einkennislag MTV-kyn-
slóðarinnar, sem fær allt
matreitt og gerilsneytt ofan
í sig, varð geysivinsælt. Millj-
ónirnar streymdu í kassann
og skyndilega þegar Nirv-
ana-liðar náðu því sem allar
hljómsveitir stefna að, fé og
frama, komust sveitarmenn
að því að þetta væri kannski
ekki það sem þeir hefðu helst
kosið. Mesta pressan var á
Cobain sem leiðtoga sveitar-
innar og hann kunni því af-
skaplega illa að vera í sviðs-
ljósinu. Stuttu eftir útgáfu
plötunnar fór Nirvana í
þriggja mánaða tónleikaferð
um Bandaríkin og Evrópu,
en um sama leyti fór Kurt
að verða kvalinn af ókenni-
legum magakvilla sem gerði
honum ókleift að hreyfa sig
langtímum saman vegna
óbærilegra kvala. Vegna
umstangsins í tónleikaferð-
inni og þess að hvergi gafst
tími til að leita læknis, greip
hann til þess ráðs sem marg-
ar rokkstjörnur hafa áður
gert og fór að neyta eitur-
lyfja til að deyfa kvalirnar
og ekki síst að skýla sér fyr-
ir sviðsljósinu. Skyndilega
átti hljómsveitin ógrynni fjár
og því hægur vandi að verða
sér út um heróín, sem Coba-
in varð fljótt háður. Heróínið
gerði honum líka smám sam-
an ókleift að þola pressuna
og eftir hörmulega tónleika
í París í lok ferðarinnar gafst
hljómsveitin upp á öllu sam-
an, aflýsti því sem eftir var
af tónleikaferðinni og hélt
heim til Seattle.
Þegar heim var komið
kynnti Cobain sambýliskonu
sína, söngkonuna Courtney
Love, fyrir heróíninu og sam
an tókst þeim að koma sér
svo á kaf í heróínfíkn að
næstu átta mánuðir urðu að
samfelldri þoku, eins og
Cobain lýsti því síðar. Félag-
ar Cobains í Nirvana, sem
var orðin að tríói, Krist Nov-
oselic og Dave Grohl, létu sér
nægja brennivínið, og meira
að segja lítið af slíku, þvi
þeir sáu hvernig Cobain var
að koma sér út úr heiminum
Nevermind hélt áfram að
seljast og í janúarbyijun
1992 velti hún Michael Jack-
son úr efsta sæti bandaríska
breiðskífulistans. Novoselic
hefur lýst því að um þetta
leyti hafi lítið verið hægt að
tala við Cobain eða Love, þar
sem þau hafi eytt öllum
stundum í vímumóki uppi í
rúmi. Cobain hafði þó það
mikla döngun í sér að hann
fór í afvötnun stuttu áður en
mikil tónleikaför sveitarinnar
átti að hefjast í janúarlok og
Love líkai Til að byija með
virtist allt hafa gengið upp
og fyrstu dagar ferðarinnar
voru vel heppnaðir. Þegar
komið var fram í aðra viku
ferðarinnar var Cobain aftur
móti farinn að finna til
magakvalanna aftur og sem
KURT COBfllN, söngvari,
lagasmiður og leiðtogi
hljómsveitarinnar
Nirvana, svipti sig lífi á
föstudag
forðum fannst honum besta
leiðin til að geta lokið við
tónleikaferðina að byija á
eiturlyfjum aftur. Cobain átti
um þetta leyti í útistöðum
við blaðamenn og reyndar við
tónlistariðnaðinn allan má
segja, því hann var óspar á
yfirlýsingar um það hve hon-
um þótti sölumennskan í
kringum tónlistina ógeðfelld,
ekki síst í kringum tónlist
Nirvana; útgefendur og aðrir
í tónlistariðnaðinum litu ekki
á tónlistina sem list, heldur
sem vaming sem selja þyrfti
eins og hveija aðra niður-
suðuvöru. Þeim væri sama
hvað væri í dósinni bara ef
hægt væri að selja það og
til þess væm öll meðul leyfi-
leg. Blaðamenn vom undir
sömu sök seldir í hans aug-
um, þeir tækju þátt í þessari
sölumennsku af miklum
áhuga og væru ekki heldur
vandir að meðulum; skrifuðu
það sem yki sölu blaða þeirra,
óháð sannleiksgildi. Verst af
öllu fannst honum sú útreið
sem kona hans, Courtney
Love, fékk í fjölmiðlum, sem
stimpluðu hana valdasjúka
afætu og gerðu því skóna að
hún hefði laðast að Cobain
til þess eins að komast yfir
fé hans. Þetta stríð hans tók
á sig ýmsar myndir og gerði
hann næsta varkáran í sam-
skiptum við blaðamenn og
sumar yfirlýsingar hans um
þá og þeirra iðju bentu til
þess að hann hefði snert af
ofsóknaræði. Þetta allt varð
til þess að ýta undir fíknina
aftur og ekki leið á löngu
áður en Cobain og Love voru _
komin í sama fenið og forð-
um. Það varð svo ekki til að
auðvelda þeim hjónakornum
lífið þegar spurðist að Love
væri ólétt. Hún hætti þegar
heróínneyslu sinni, en þegar
barnið fæddist, heilbrigð
stúlka, var það tekið af henni
á þeirri forsendu að hún hefði
neytt heróíns á með-
göngunni. Um síðir fengu
þau barnið aftur, en Cobain
tók þetta nærri sér, sem von-
legt var, og kenndi fjölmiðl-
um um, enda höfðu þeir velt
sér upp úr slúðri um að Love
hefði haldið áfram heróín-
neyslu löngu eftir að hún
vissi sig þungaða.
Poppheiminum gefið
langt nef
í upphafi árs 1992 var svo
komið að Novoselic og Grohl
höfðu fengið sig fullsadda
af fíkniefnavímu og tilfínn-
ingaflækjum Cobains. Það
gekk líka fjöllunum hærra
að Nirvana hefði lagt upp
laupana og myndi ekki hljóð-
rita aðra plötu, nokkuð sem
Cobain virtist kæra sig koll-
óttan um. Á endanum bráði
þó nóg af honum til að gera
aðra tilraun til að sigrast á
heróínfíkninni og snemma
árs fór hann aftur í meðferð,
að þessu sinni öllu lengri og
strangari. Ekki var minna
um vert að hann leitaði sér
lækninga við magakvillanum
dularfulla, sem greindist sem
taugaklemma í mjóhrygg, og
fyrir vikið tókst að sigrast á
kvillanum. Eftir þetta var
hljómsveitinni ekkert að van-
búnaði að hljóðrita næstu
breiðskífu. Þeir félagar
ákváðu að hafa hana hrárri
en síðustu breiðskífu, meðal
annars til að gefa útgáfu
þeirra og poppheiminum
bandaríska langt nef, og
platan var hljóðrituð og
hljóðblönduð á tveimur vik-
um, en alls fór um
klukkustund í að
vinna hvert lag.
Gagnrýnendur vissu
og vart hvernig ætti
að taka plötunni, sem
bar heitið In Utero,
og plötukaupendur
voru ekki vissir held-
ur þó platan hafi selst
gríðarvel fyrstu vik-
Ymislegt varð þó til
að bregða fæti fyrir sveitina,
og til að mynda neituðu ýms-
ar stærstu plötuverslanir
Bandaríkjanna að selja plöt-
una þar sem á henni var
mynd upp úr kennslubók í
líffræði, þar sem sást barn í
móðurkviði. Myndin þótti of
dónaleg (þess má geta hér
til’gamans að á metsöluplöt-
unni Nevermind er mynd af
tæplega eins árs barni í sund-
laug, en ýmsir vildu banna
þá plötu vegna þess að tippi
barnsins sést á myndinni).
Textar Cobains voru og beitt-
ari en nokkru sinni og hann
tók jafnan afstöðu gegn kerf-
inu, ekki síst voru á plötunni
hörð baráttulög fyrir réttind-
um kvenna. Þrátt fyrir þetta
seldist platan í vel á aðra
milljón eintaká, sem var
reyndar alllangt frá vinsæld-
um Nevermind, en afar gott
miðað við inntak og umbún-
að.
I viðtölum sem birtust við
Cobain um þetta leyti virtist
sem hann hefði náð áttum í
lífinu; hann talaði um það
hve mikið yndi hann hefði
af því að vera faðir og að
eiga ijölskyldu og gerði lítið
úr því þó Love og hann ættu
það til að rífast heiftarlega.
Það kom því mörgum aðdá-
endum hans í opna skjöldu
þegar fréttir bárust af því
að hann hefði fallið í dauðadá
vegna fíkniefnaneyslu í Róm
á tónleikaferð um Evrópu
fyrir fáum vikum. Nirvana
sleit þegar tónleikahaldi og
Cobain hélt heim til Seattle,
til að reyna enn einu sinni
að sigrast á eiturlyfjafíkninni
og flækjunum og mótsetn-
ingunum í sjálfum sér. Síð-
astliðinn föstudag virðist svo
sem honum hafi orðið lífið
ofviða og hann skaut sig í
höfuðið á heimili sínu.
Kurt Cobain dó ungur,
eins og of algengt er í rokk-
heiminum. Honum tókst ekki
að sigrast á smádjöflunum
sem ofsóttu hann og áttaði
sig ekki á því fyrr en um
seinan að eiturlyfin voru ekki
leiðin til sáluhjálpar. Cobain
lést 27 ára gamall, á sama
aldri og Jimi Hendrix, sem
var einnig Seattle-tóníistar-
maður, Jim Morrison og Jan-
is Joplin, sem frægðin varð
einnig að aldurtila, og líkt
og með þau standa menn
orðlausir yfir sóuninni á
hæfileikum. Vinnuheiti hans
á síðustu plötu Nirvana var
I Hate Myself and Want to
Die, eða ég hata mig og þrái
dauðann. Lag með þessu
heiti var gefið út á safnplötu
á síðasta ári og í ljósi sögunn-
ar er það nöturlegur minnís-
varði.
• ■ ■... . ..............j iin iiiiirjwmiFrinrfinHiiiiiii«BmffiwTOinTiTrTrTiTn,"i,,"‘a'’‘”""‘j‘nTnBTirMwmmiTBíiiff^