Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Meintur fjárdráttur bankamanns
Bótakröfur
20 milljónir
Á NÆSTU vikum verður kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykja-
víkur í máli fyrrum þjónustustjóra í útibúi íslandsbanka í Grafar-
vogi. Hann er sakaður um fjárdrátt í starfi sínu með því að hafa
dregið sér fé af reikningum viðskiptamanna og fært í heimildar-
leysi fé á milli reikninga til að reyna að dylja fjárdrátt sinn.
Þorskkvóti
víða á þrotum
INNAN við fimmtungur er eftir af
þorskkvótanum þegar tæplega þriðj-
ungur lifir af kvótaárinu. Liðlega
þriðjungur er eftir af karfakvótan-
um, en nálægt 60% af kvótum fyrir
ýsu, ufsa, grálúðu og skarkola.
Kvótavandræði hafa leitt til þess
að útgerðir eru að taka þorskkvóta
á leigu fyrir 75 kr. kílóið sem er
aðeins 10-15 kr. undirþví verði sem
þær fá að meðaltali fyrir fiskinn á
fiskmörkuðunum.
Hlutfallslega minnst er eftir af
þorskkvóta á Snæfellsnesi. Byggðar-
lögin á Vestfjörðum og Reykjanesi
eiga almennt eftir 15-20%, Flateyr-
ingar hafa þó alveg lokið við sinn
kvóta og Þingeyringar eiga aðeins
eftir 5%. Einna mest er eftir á Siglu-
firði, 65%, og á Þórshöfn, 54%.
■ Kvótinn/C8
íslandsbanki gerir 17 milljóna
króna bótakröfu á hendur mannin-
um í málinu og einnig hefur ein-
staklingur gert um 3 milljóna
króna bótakröfu á hendur honum.
Fjölmörg tilvik
Maðurinn hefur játað stóran
hluta sakargifta en um fjölmörg
tilvik er að ræða. Upp komst um
fjárdráttinn í ársbyijun 1993 en
talið er að fjárdráttinn hafi maður-
inn að mestu leyti framið á árinu
1992.
Flókið mál
Málið er flókið því í einhverjum
tilvikum er maðurinn talinn hafa
dregið sér fé af einum reikningi
og flutt inn á annan til að reyna
að fela fyrri úttektir. Því er ekki
ljóst hver hagnaður hans var af
fjárdrættinum.
Maðurinn hefur ekkert endur-
greitt af þeim fjármunum sem
hann dró sér. Bankinn hefur greitt
út bætur til reikningseigenda.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Komnarheim
GUÐRUN Margrét Gunnarsdóttir og dætur henn-
ar, Nadine og Denise, komu til íslands í gær-
kvöldi frá Amman í Jórdaníu. Þangað komu þær
frá Sanaa í Jemen á sunnudag á vegum Samein-
uðu þjóðanna, en bardagar hafa geisað á milli
Norður- og Suður-Jemena frá í byrjun maí. Á
stærri myndinni sést afi Guðrúnar Margrétar,
Ólafur Guðmundsson, og faðir hennar, Guðmundur
Eiríksson, veifa dætrum hennar. Á milli dætranna
. stendur Edda Gísladóttir, móðir Guðrúnar Mar-
grétar. Á minni myndinni faðmar Guðrún Margrét
ömmu sína, Guðrúnu Ólafsdóttur. Edda sagði í
samtali við Morgunblaðið að henni hefði liðið illa
að vita af dóttur sinni og fjölskyldu hennar í Jem-
en og hún sé fegin að þetta hefði allt farið vel.
Hún þakkaði starfsfólki utanríkisráðuneytisins
fyrir aðstoðina við að koma Guðrúnu Margréti frá
Jemen, hjálp þess hefði verið ómetanleg.
Meinatæknar heimila þrjár hjartaaðgerðir í þessari viku
Morgunblaðið/Þorkell
Gluggað í atvinnuauglýsingar
ÞESSIR meinatæknar notuðu stund milli stríða á sáttafundi
með viðsemjendum í Karphúsinu í vikunni til að skoða atvinnu-
auglýsingar í Morgunblaðinu.
Sex aðgerðir
þykja lágmark
MEINATÆKNAR heimiluðu á mánudag undanþágur fyrir þrjár hjarta-
aðgerðir í þessari viku, sem eru helmingi færri aðgerðir en heimilaðar
voru á fyrstu vikum verkfallsins. Þá verður bráðaaðgerðum sinnt eftir
þörfum, án þess að til undanþága þurfi að koma.
„Við hefðum þurft heimildir
fyrir að minnsta kosti tvöfalt fleiri
aðgerðum og þó að meinatæknar
leyfí þijár aðgerðir nú, er hins
vegar allsendis óvíst um fram-
haldið,“ segir Jónas Magnússon,
yfírlæknir á handlækningadeild
Landspítala. Jónas segir 200
manns bíða eftir hjartaþræðingu,
en af þeim verði hugsanlega þriðj-
ungur settur á biðlista til hjarta-
aðgerðar, um 65-70 manns.
Meinatæknar hafa verið á stöð-
ugum fundum með viðsemjendum
sínum síðustu fjóra daga. Edda
Sóley Óskarsdóttir, formaður
Meinatæknafélagsins, vildi ekki
gefa upp hvort þokast hefði í sam-
komulagsátt í gær. Sáttafundur
hefur verið boðaður kl. 13 í dag
hjá Ríkissáttasemjara.
„Þjóðfélagið gerði meira veður
út af flensu sem fimmtán hross í
Víðidal fengu á dögunum en þessu
verkfalli og áhrifum þess á heil-
brigðiskerfið, þó að ólíku sé sam-
an að jafna. Aðeins á þessari deild
hafa áhrif verkfallsins kostað
þjóðarbúið 10 milljónir á viku, og
nú eru fimm vikur liðnar án þess
að lok virðist innan seilingar,“
segir Jónas Magnússon.
Krökktaf
tognrum
á Reykja-
neshrygg
MILLI 30 og 40 togarar hafa und-
anfarnar vikur verið að úthafs-
karfaveiðum rétt utan við landhelg-
ismörkin á Franshól og Reykjanes-
hrygg. Nokkuð hefur borið á því
að sumir togaranna fari ekki í öllu
eftir siglingarreglum. Eins hefur
leikið grunur á að sum skipanna
hafí lætt sér yfir landhelgismörkin.
Auk íslenskra togara, bæði undir
íslenskum og erlendum fánum, eru
þama rússnesk skip, norsk, japönsk
og skip frá Panama. Landhelgis-
gæslan hefur fylgst með þessu
svæði bæði úr lofti og af sjó. Farið
hefur verið um borð í nokkra tog-
ara til eftirlits og afli og veiðarfæri
könnuð. Samkvæmt heimildum
blaðsins var íslenskum eftirlits-
mönnum neitað að fara um borð í
norskan togara á Reykjaneshrygg-
1 MORGUNBLAÐINU þessa
dagana taka lesendur eftir nokkr-
um breytingum á niðurröðun
efnis blaðsins. Markmiðið er að
færa saman tengda efnisþætti,
þannig að þeir verði aðgengilegri
Efnisskipan í Morgunblaðinu
fyrir lesendur. Á myndinni hér að
neðan er sýnt hvar helstu efnis-
þætti er að finna. Dagskrá ljós-
vakamiðlanna er nú á öftustu
opnu blaösins ásamt dagbók og
veðurkorti. íþróttaopnan færist
- Viðskipti/Atvinnulíf
innlendar fréttir. Staksteinar
verða aftarlega í blaðinu í grennd
við Bréf til blaðsins, Velvakanda
fram um eina opnu. Teikmng og Víkverja og ýmsa þjónustu-
Sigmunds verður á sama stað og tengda þætti.
áður — á blaðsíðu 8 — innan um
Listir
- Aðsendar greinar
Baksíða,-1 Dagbók-
innlendar Veður
Útvarp/
fréttir Krossgáta Sjónvarp
Iþróttir
50 1 48 48 \ 47 \ 46 45 \ 44
\ Velvakandi \
Kvikmynda- Fólk í J Stjörnuspá Bréf til -'
auglýsingar fréttum Víkverji blaðsins
Staksteinar Þjónusta
Peningamarkaður Miðopna
Sérblað dagsins eru íþróttir