Morgunblaðið - 11.05.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 15
ERLEIMT
Deilt um
myndir
Honeckers
MIKIL deila stendur nú um
málverkasafn Ericlis Honec-
kers, fyrrverandi Ieiðtoga aust-
ur-þýskra kommúnista, en það
er geymt í aðalstöðvum PDS,
arftaka kommúnistaflokksins
gamla. Er það að flestu leyti
dæmigert fyrir hina kommún-
ísku list og myndirnar þykja svo
ómerkilegar, að jafnvel gömlu
harðlínumennirnir vilja ekki sjá
þær uppi á vegg hjá sér. Þeir
vilja samt ekki láta þær af
hendi. Treuhand-stofnunin, sem
sér um að einkavæða gömlu rík-
iseigurnar í Austur-Þýskalandi,
hefur skipað PDS að afhenda
málverkin strax eða eiga á
hættu málssókn en Dietmar
Bartsch, gjaldkeri jPDS, er al-
veg gallharður: ,,„Ég veit vel,
að það er það vitlausasta af öllu
vitlausu að hætta á málssókn
út af þessum myndum, þær eru
allar sem ein einskisvirði, en
við munum samt ekki sleppa
þeim.“
Fyrir PDS snýst málið heldur
ekki um myndirnar, heldur um
eignarréttinn. PDS segir, að
málverkin, rúmlega 400 talsins,
hafi verið gefin flokknum og
gefendurnir verið austur-þýskir
listamenn, sem voru trúir hug-
sjóninni, eða að ráðamenn í
öðrum kommúnistaríkjum hafi
gefið þau Honecker.
HONECKER á villigaltarfeldi. Gjöf frá fyrrverandi einræðis-
herra Eþíópíu, Mengistu Haile Mariam.
Sem dæmi um myndirnar má
nefna mynd af Honecker á villi-
galtarfeldi, sem Mengistu Haile
Mariam, fyrrverandi Eþíóp-
íuforseti, gaf honum 1989,
mynd af Kastró og ótal myndir
í sósíalrealískum stíl, fagnandi
stálverkamenn og annað í þeim
dúr. Ekki sér enn fyrir endann
á þessari deilu en menningar-
málaráðherrar fimm þýskra
fylkja munu brátt koma saman
til að ákveða hvað gera eigi við
fjöldann allan af öðrum lista-
verkum, sem söfnuðust saman
hjá hinu opinbera eða svoköll-
uðum stjórnmálaflokkum í
Austur-Þýskalandi. Vilja sumir
geyma þau í rannsóknarskyni
en aðrir vilja, að þau verði hluti
sýningar um „Listir í einræðis-
rikjum 20. aldar".
John Major enn á móti
þjóðaratkvæðgreiðslu
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráð-
herra Bretlands, neitaði
enn í gær að verða við vax-
andi kröfum innan íhalds-
flokksins um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um stöðu
Breta í sameiningarferlinu
innan Evrópusambandsins.
Hafa þó sumir Evrópu-
sinnanna tekið undir þær í
þeirri von, að með þjóðarat- j0hn M^jor
kvæðagreiðslu verði fundin
leið út úr þeim átökum, sem eru
að rífa flokkinn í sundur og grafa
undan stöðu Majors.
í síðustu viku varð íhaldsflokkur-
inn í þriðja og síðasta sæti í sveitar-
stjórnarkosningum í Bretlandi og
ekki er útlitið betra fyrir Evrópu-
þingskosningarnar í næsta mánuði.
Major sagði hins vegar á
þingi í gær, að hann hefði
ekki breytt þeirri skoðun
sinni, að þingið ætti að
skera úr um þátttöku Breta
í sameiningarmálum Evr-
M ópusambandsríkjanna.
JÞeir, sem reka áróður
fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslu, segja, að á ráð-
stefnu, sem muni endur-
skoða Maastricht-samning-
inn 1996, muni verða bætt við svo
mikilvægum ákvæðum, að þau verði
að bera undir kjósendur sérstaklega
en Major segir, að enn sé svo lang-
ur tími þar til ráðstefnan verði hald-
in, að enginn geti vitað hver niður-
staða hennar verði. Andstæðingar
þjóðaratkvæðagreiðslu halda því
líka fram, að hún muni alls ekki
binda enda á klofninginn í flokkn-
um, heldur aðeins sýna, að hann
sé óbrúanlegur.
Málaferli á hendur Bandaríkjaforseta
Lögfræðikostn-
aður gæti leitt
til gjaldþrots
Washington, Cranston. The Daily Telegraph. Reuter.
EMBÆTTISMENN Hvíta hússins leita nú leiða til að standa straum
af þeim gríðarlega kostnaði, sem talið er að Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti verði að greiða til lögfræðinga sinna vegna Whitewater-málsins
og ákæru um kynferðislega áreitni. Tímaritið Time giskaði á að kostnað-
urinn næmi nú þegar um 17 milljónum króna og að hann gæti hæg-
lega tvöfaldast. Ljóst er að lögfræðikostnaðurinn mun koma illa við
pyngju forsetahjónanna og lýsti forsetafrúin, Hillary Clinton, því yfir
í síðustu viku að þau hjónin væru ekki milljónamæringar. Hún hefur
ennfremur líkt hinni miklu gagnrýni á forsetahjónin við nornaveiðar.
Lögfræðingar Hvíta hússins velta
nú þeim möguleika fyrir sér að kom-
ið verði á fót styrktarsjóði, sem fylg-
ismenn forsetans gætu greitt í. Bruce
Lindsey, ráðgjafi forsetans, sagði að
Hvíta húsið myndi ekki eiga hlut að
slíku, heldur aðeins ráðleggja um
möguleg úrræði. Verði sjóðurinn að
veruleika mun forsetinn ekki fá vitn-
eskju um hverjir greiði í hann.
Forsetinn þarf að verja sig í tveim-
ur málum, Whitewater og ákæru
Paulu Jones um kynferðislega
áreitni. Robert Bennett, mikilsmet-
inn lögfræðingur, sem taka mun síð-
ara málið að sér fyrir forsetann,
hefur sagt það „æsifréttarusl með
lögfræðiívafi". Systir Jones hefur
haft eftir henni að hún „finni pen-
ingalykt" af málinu.
Þjónusta Bennetts er ekki ókeypis,
kollegar hans segja kostnaðinn geta
farið upp í eina milljón dala, um 73
milljónir isl. en það væri nóg til að
gera forsetann gjaldþrota.
Rógsherferð
í sjónvarpsviðtali á mánudag
hvatti Clinton landsmenn til að láta
um stund af gagnrýni á persónulegar
gjörðir hans áður en hann tók við
forsetaembættinu, og einbeita sér að
þeim vandamálum sem nú blasa við.
Vísaði hann til orða A1 Gore, vara-
forseta, sem sagði að öfl, sem hefðu
verið ósátt við útkomu kosninganna,
gerðu allt sem í þeirra valdi stæði
til að gera þau ómerk.
Paula Jones hefur stefnt
Clinton Bandaríkjaforseta
fyrir kynferðislega áreitni.
Gagnrýni á forsetahjónin hefur
verið gríðarleg og í viðtali við banda-
ríska tímarítið Vanity Fair segir Hill-
ary Clinton þá sem stundi „noma-
veiðarnar“ vera fólk sem þjáist af
ofsóknaræði og sé með sífelldar sam-
særiskenningar á takteinum. Segir
forsetafrúin að hægrimenn hafi kom-
ið á fót leynilegum miðstöðvum, sem
hafi það að markmiði að eyðileggja
mannorð forsetahjónanna.
Skólavörðustígur 16, 2. hæð. KINVERSKA NUDDSTOFAN
Ertu að farast í höfðinu eftir að hafa
unnið við tölvuna allan daginn?
Er hálsinn svo stífur að þú getur
varla horft til hliðar?
Eru axlirnar svo aumar að þú
spennist allur upp?
Eftir aðeins fjögur til fimm skipti gæti líðan
þín verið orðin allt önnur.
Opið alla daga, einnig um helgar.
Símar 27305 og 623134
ÍHiklu meira en veniule? fólarlandaferð!
Samvinnuferðir - Landsýn og Atlasklúbburinn bjóða til sumarveislu.
;
Einn af mörgum:
Magnus Scheving
þoifimimeistarinn sjálfur heldur mönnum
í fínu formi!
Jk verfSi 7
Sam vinMferlli -LaMs h
Það verður eldhress
stemmning á sólarströndum
okkar í sumar á ári
fjölskyldunnar. Allt fulltaf
bráðskemmtilegum gestum
og hugmyndaríkum
fararstjórum sem gefa
ferðinni allt í senn
spennandi, menningarlegan
og sprenghlægilegan blæ!
: ;.: .
Veldu sólarlandaferð
þarsem grín, listræn
tilþrif, söngur, spenna,
slökun og spilakúnstir
tryggja þér sumar-
ævintýri í sérflokki.
EUROCARD.
(DATIAS
- nýtur sérkjara!
1 4000 kr. afsláttur í pakkaferðir
fyrir alla þá sem eru með
Atlas- e.ða Gullkort frá
Eurocard.
> 5000 kr. afsláttur á mann til
Benidorm 30. júni og til Cala
d*0r 28. júní.
) Viðtæk tryggingavernd, hafi
a.m.k. helminyur ferðar
verið greiddur með kortinu.
> Möguleiki á einni af 30
bónusferðum á 30 kr!
> Ótal vildarkjör að auki.’
I Nú er rétti tíminn til að fá
sér Eurocard!
(Atlasklúbbnum eru allir handhafar
ATLAS- eða Gullkorta frá Eurocard.
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Simbrél 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241 •
Hótel Söflu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Halnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 65 11 55 • Símbróf 91 - 655355
Keflavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Simbrét 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Simbrét 93 -111 95
Ttkuréyfl:'R5aTfúslörgrTí'S“96 -'7770(r*'SmiBféf W-1 TTnr»WIÍIMIII||li. l/U!TmaHfHlTrgm 38‘‘'S.'98 -T12TT *9TmbrGr98 -12792 '■
ÖATLAív®
EUROCARD