Morgunblaðið - 11.05.1994, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Valskórinn
heldur vor-
tónleika
VALSKÓRINN lýkur fyrsta
starfsári sínu með vortónleikum
í Friðrikskapellu á afmælisdegi
Vals, í dag, miðvikudaginn 11.
maí, kl. 20.30.
Tónleikarnir verða tileinkaðir
tónskáldinu og Valsmanninum
Sigfúsi Halldórssyni og verða
m.a. ftutt nokkur þekktustu laga
hans, auk annarra íslenskra og
erlendra sönglaga. Gestir á tón-
leikunum verða átta Fóstbræð-
ur, tvöfaldur kvartett, sem
syngja nokkur lög. Valskórinn
er blandaður kór og félagar eru
nærri 30 talsins. Stjómandi
kórsins er Gylfi Gunnarsson og
undirleikari á tónleikunum verð-
ur Carl Möller. Að tonleikunum
loknum verða kaffiveitingar í
félagsheimilinu.
Tónlistarskóli
Keflavíkur
Vortónleik-
ar lúðra-
sveitarinnar
LÚÐRASVEIT Tónlistarskólans
í Keflavík heldur vortónleika í
Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld kl.
20.30.
Efnisskráin verður sú sama
og hljómsveitin mun flytja í tón-
leikaferð sinni um Frakkland í
lok maí en þar mun hljómsveitin
m.a. leika í Euro-Disney-
skemmtigarðinum.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru
27 talsins og 12 þeirra hafa í
vetur verið valdir ti! að leika með
Úrvalslúðrasveit Sambands ís-
lenskra skólalúðrasveita. Stjóm-
andi sveitarinnar er Karen Stur-
laugsson, yfirkennari blásara-
deildar Tónlistarskólans í Kefla-
vík.
Litla lúðrasveitin, undir stjórn
Sigrúnar Sævarsdóttur, mun
einnig leika á þessum tónleikum
auk þess sem frumflutt verða
Ijögur frumsamin verk eftir
nemendur skólans.
Aðgangseyrir að tónleikunum
verður 300 kr. fyrir fullorðna og
200 krónur fyrir böm yngri en
16 ára. Að tónleikunum loknum
verður tónleikagestum boðið upp
á kaffi.
Söngsmiðjan
Síðustu
tónleikar
vetrarins
SÍÐUSTU tónleikar vetrarins
verða í Ráðhúsinu í dag, mið-
vikudaginn 11. maí, kl. 20.30.
Þar mun nýstofnaður kór
Söngsmiðjunnar koma fram og
nemendur úr einsöngvaradeild
munu syngja ásamt hópi úr al-
mennri deild skólans.
Á efnisskrá verður aðallega
svokölluð svört tónlist, þ.e. ne-
grasálmar, sönglög eftir Foster
og syrpa af lögum úr söngleikn-
um Porgy og Bess eftir Gers-
hwin. Allir eru velkomnir.
Þjóðlaga-
diskur end-
urútgefinn
DISKURINN íslensk þjóðlög
hefur nú verið endurútgefínn og
er því aftur fáanlegur í öllum
helstu hljómplötuverslunum.
Þessi diskur kom út fyrir síðustu
jól hjá íslenskri tónverkamiðstöð
en á honum syngur Hamrahlíð-
arkórinn, undir stjóm Þorgerðar
Ingólfsdóttur, íslensk þjóðlög.
LISTIR
ÚTSKRIFTARHÓPUR Nemendaleikhússins.
Nemendaleikhúsið
Síðasta sýning
á Sumargestum
SÍÐASTA sýning Nemendaleik-
hússins í Lindarbæ á Sumargestum
eftir Maxím Gorkí í leikstjón Kjart-
ans Ragnarssonar verður í kvöld,
miðvikudagskvöld, 11. maí kl. 20.
í fréttatilkynningu segir: „Sýn-
ingin fékk mjög góða dóma og að-
sókn hefur verið með besta móti.
Fjórir gestaleikarar frá LR taka
þátt í uppfærslunni, þau Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Magnús Jóns-
son, Sigurður Karlsson og Þröstur
Leó Gunnarsson. Leikmynd og bún-
inga gerði Stígur Steinþórsson og
lýsingu hannaði Egill Ingibergsson.
Núna er útskriftarhópurinn að
undirbúa ferð á alþjóðlega leiklist-
arhátíð í Hallunda í Svíþjóð í lok
maí. Þangað var hópnum boðið sem
fulltrúa íslands með leikritið Draum
á Jónsmessunótt í leikstjórn Guð-
jóns Pedersen, sem sýnt var sl.
haust.
Þetta er í fyrsta skipti sem Nem-
endaleikhúsinu er boðið með verk
á leiklistarhátíð atvinnufólks og er
það að sjálfsögðu mikill heiður, seg-
ir þar ennfremur.
*
Urvalslisti sænskra bókmennta;
iienda
Stúlkan í skógin-
um í sjöunda sæti
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
BÓK Vigdísar Grimsdóttur, Stúlkan
í skóginum, sem kom nýlega út í
Svíþjóð var um síðustu helgi á lista
yfir tíu úrvalsbækur, sem fimmtán
sænskir gagnrýnendur velja reglu-
lega.
Eins og áður hefur verið skýrt frá
fékk bókin mjög góðar móttökur
meðal sænskra gagnrýnenda.
Listinn birtist í „Dagens Nyheter“,
„Göteborgs-Posten“ og „Sydsvenska
Dagbladet" fyrsta sunnudag í hvetj-
um mánuði og er settur saman af
fimmtán gagnrýnendum frá þessum
blöðum. Á honum eru bækur sem
komu út í apríl eða fyrr. í fyrstu fimm
sætunum eru sænskar bækur og ein
dönsk ljóðabók
eftir Inger
Christensen. I
sjötta sæti er bók-
in Mæður og dæt-
ur eftir - Jelenu
Bonner, eiginkonu
rússneska kjarn-
eðlisfræðingsins
Andrej Sakarovs.
Stúlkan í skóg-
inum er í sjöunda
sæti og er ný á listanum. Þess má
geta að bók danska rithöfundarins
Peter Höegs, sem kallast Lesið í
snjóinn á íslensku er einnig ný á list-
anum, en hún er í tíunda sæti.
Grímsdóttir
Söngskemmtun
Snæfellingakórsins
SNÆFELLINGAKÓRINN heldur
vortónleika í Seltjarnarneskirkju á
morgun, fimmtudaginn 12. maí, kl.
20.30.
Efnisskráin er fjölbreytt, bæði
innlend og erlend sönglög. Stjórn-
andi kórsins er Friðrik S. Kristins-
son. Undirleikarar eru Hildur Gísla-
dóttir á píanó og Anna Rún Frí-
mannsdóttir á selló. Boðið verður
upp á kaffiveitingar í hléi. Miðar
verða seldir við innganginn.
SNÆFELLINGAKÓRINN heldur vortónleika annað kvöld.
Óþekkti
bítillinn
KVIKMYNPIR
Iláskólabíó
BACKBEAT ***
Leikstjóri og handritshöfundur Iain
Softley. Aðalleikendur Stephen
Dorff, Sheryl Lee, Ian Hart. Bresk.
Polygram 1994.
Þeir fóru fyrstir, vinirnir og stofn-
endur Bítlanna, Stuart Sutcliffe
(Stephen Dorff) og John Lennon
(Ian Hart). En mikið var gengi
þeirra ólíkt. Stu, eins og Sutcliffe
var jafnan kallaður, dó úr heilablæð-
ingu rétt liðlega tvítugur, hættur í
tónlistinni, farinn að stunda málara-
list. Lennon náði hinsvegar tak-
markinu, heimsfrægðinni með The
Beatles og síðar sem einstaklingur,
en féll engu að síður frá langt fyrir
aldur fram. Öll þekkjum við sögu
Lennons en Stu er nánast óþekktur,
myndin Backbeat bætir þar úr.
Þá félagana í The Beatles
dreymdi unga um frægð og frama
í atvinnuleysinu og eymdinni í Liv-
erpool við upphaf sjöunda áratugar-
ins. Stu var þó jafnan klofinn í
ásetningi sínum, tónlistin og mál-
verkið toguðust á. Um þetta leyti
voru hljómsveitarmeðlimirnir fimm;
Lennon, Stu, Paul MacCartney, Ge-
orge Harrison og Pete Best, sem
barði trommurnar framá árið 1962.
Stefnan var tekin á Hamborg, þessa
gósenborg næturlífs og spillingar
sem hún var áður en eyðnin og
gámaflutningarnir slökktu á rauðu
ljósum Reeperbanans. Þeir byija á
botninum í St. Pauli en sól þeirra
fer smá-hækkandi. Að hluta til fyrir
tilstilli ljósmyndarans Astridar
(Sheryl Lee), sem skapaði þeim
ímyndina frægu; „Bítlahárið", sem
foreldrar um allan heim töldu víst
að gerði drengina þeirra að „sódóm-
istum“, einsog sagt var í þá daga,
og rakarar um allan hinn vestræna
heim hötuðu einsog pestina. Vita-
skuld var það fyrst og fremst tónlist-
in sem færði þá æ framar í sviðsljós-
ið og það var svo sannarlega hljóm-
grunnur fyrir „Bítlasándið" meðal
þeirrar kynslóðar sem þá óx úr
grasi. Látið mig um það! Það var
kominn tími fyrir gagngerar breyt-
ingar og þær nefndust The Beatles
(og ekki má gleyma The Rolling
Stones í þessu samhengi). Fram-
haldið er skráð á blöð sögunnar.
Þau Astrid og Stu urðu fljótlega
ástfangin, Lennon til mikillar ar-
mæðu því hann var líka hrifinn af
stúlkunni og valdi Stu þann kostinn
að setjast í listaskóla í Hamborg hjá
Astrid sinni þegar vinir hans lögð-
ust í víking og sölsuðu undir sig
heiminn. Áður en því marki var náð
var hann allur.
Sjálfsagt höfðar Backbeat best
til okkar sem erum á svipuðu reki
og hljómsveitarmeðlimirnir. Tónlist-
in er búin að vera þáttur af lífi okk-
ar frá fyrstu tíð, hljómsveitin og það
sem hún stóð fyrir á sínum tíma;
aukið frelsi á flestum sviðum, rödd
jafnaldra sem hinir
eldri og ráðsettari urðu
að hlusta á og taka til-
lit tii, var samnefnari
fyrir ungt fólk á önd-
verðum sjöunda ára-
tugnum. Sviðsmyndin
og umhverfið er trú-
verðugt. Búllurnar í
„Pálíinu“ ámóta gráar
og gleðisnauðar, þrátt
fyrir öll neonljósin og
glasaglauminn og þær
komu manni fyrir sjón-
ir á þessum árum sem
unglingsstrák í sigling-
um. Sem rétt missti af
hetjunum sínum því í
árslok 1962 voru þeir
orðnir of stórir fyrir
Reeperbanann. En
nærvera þeirra lá enn
í loftinu. Ekki síður
ætti yngra sem eldra
ÚR EINU besta atriði myndarinnar. The
Beatles búnir að slá í gegn en Astrid smá-
hverfur í aðdáendafjöldann. Hennar ævin-
týri lokið, annað að hefjast.
fólk að hafa ánægju af myndinni,
tónlist The Beatles er fyrir margt
löngu orðin sígild, kveikið bara á
útvarpinu.
Tónlistin er vitaskuld snar þáttur,
til að byija með kyija félagarnir
kunna slagara þessa tíma einsog
Good Golly Miss MoIIy, Money, Rock
’n Roll’n Music, síðan fer að bóla á
lögum einsog Mr. Postman og Twist
and Shout. Hún er hressilega flutt
af poppstjörnum samtímans, leikar-
amir eðlilegir á sviðinu, við sjáum
goðsögnina fæðast.
Sagan af Stu og þeim manneskj-
um sem honum þótti vænst um er
skýr þrátt fyrir þungavigt The Be-
atles og tónlistarinnar. Lennon og
Stu voru bestir vina síðan lenti
Astrid uppá milli þeirra en tilkoma
hennar leysti engu að síður ýmis
vandamál. Fyrst og fremst það að
Stu yfirgaf sveitina sem þeir vissu
undir niðri að var öllum fyrir bestu.
Vinátta Stu og Lennons er hiý og
einlæg þó gangi á ýmsu og ástar-
saga Stu og Astridar engu síður
falleg og öll þessi tilfinningamál eru
einkar vel meðhöndluð af leikurun-
um, og leikstjóranum/handritshöf-
undinum, svo áhorfandinn er jafnan
með á nótunum. í orðsins fyllstu
merkingu.
Leikararnir þrír í aðalhlutverkun-
um eru lítt þekktir. Kunnastur er
Dorff sem fer vel með hlutverk hins
skammlífa og hæfileikaríka Stu
Sutcliffes og Sheryl Lee gerir Astrid
ágæt skil. En langbestur er Ian
Hart í hlutverki erkibítilsins og stór-
rokkarans Johns Lennons sem átti
sér aðeins eitt takmark, nokkuð stórt
að vísu, að leggja undir sig heiminn.
Og tókst það. Hart dregur upp mjög
skýra mynd af hinum unga, metnað-
argjarna, kaldhæðna, orðheppna,
upprennandi lista- og byltingar-
manni sem átti eftir að breyta heim-
inum. Maðurinn á bak við Backbeat,
leikstjórinn og handritshöfundurinn
Iain Softley, er nafn sem maður
leggur á minnið. Honum hefur tekist
með eftirminnilegum hætti að flétta
saman óð til óþekkta Bítilsins og
fæðingar goðsagnarinnar í Ham-
borg.
Sæbjörn Valdimarsson
I
I
I
>
)
I
I
>
>
i
í
í
\
i
i
i
\
i
i
i
í
i
-