Morgunblaðið - 11.05.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 2 7
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
Á að breyta breyt-
inganna vegna?
KOSNINGABAR-
ÁTTAN fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar
virðist nú vera komin á
fullan skrið og farið að
skýrast á hvað fram-
boðslistarnir tveir ætla
að leggja áherslu í mál-
flutningi sínum. Fram-
bjóðendur bræðings-
lista Framsóknar-
flokks, Alþýðufiokks,
Alþýðubandalags,
Kvennalista, Nýs vett-
vangs og hugsanlega
fleiri flokksbrota, hafa
aðeins lagt áherslu á
eitt atriði; þeir segjast
vilja breyta. Þegar
spurt er hveiju eigi að breyta og
hvað eigi að koma í staðinn verða
svörin hins vegar æði óskýr og þoku-
kennd.
Er kosið um Ráðhús og Perlu?
Eitt af þeim atriðum, sem R-lista-
fólkið nefnir, þegar spurt er út í
breytingarhugmyndir þeirra, er að
það vilji ekki að borgin leggi fé í
að byggja stórbygging-
ar eins og Ráðhús
Reykjavíkur og Perluna
á Oskjuhlíð. Þessar
tvær byggingar eru
nefndar til sögunnar í
annarri hverri ræðu og
blaðagrein, sem frá R-
listanum kemur. Það er
eins og fólkið átti sig
ekki á, að byggingu
þessara mannvirkja er
lokið. Ákvarðanir um
þær voru teknar á kjör-
tímabilinu 1986 til
1990 og í kosningum
1990 fengu kjósendur
tækifæri til að segja
álit sitt á þeim. Niður-
staðan þá var stærsti sigur sjálf-
stæðismanna til þessa. Því er út í
hött að ætla að láta kosningarnar
nú snúast um Ráðhús og Perlu, ekki
síst í ljósi þess að engin áform eru
uppi af háifu sjálfstæðismanna um
að ráðast í nýjar framkvæmdir af
þessari stærðargráðu. Áherslan á
þetta atriði sýnir dæmalausa mál-
efnafátækt.
Þeir vilja breyta, segir
Friðjón Friðjónsson,
en þegar spurt er,
hveiju breyta eigi, verða
svörin óskýr og þoku-
kennd.
Lýðræði eða lýðskrum
Annað atriði, sem talmenn R-list-
ans nefna oft, er að þeir vilji gera
borgina „opnari og lýðræðislegri“.
Það á aðallega að gera með því, að
stofna embætti „umboðsmanns borg-
arbúa“ og koma á fót „skýrri hverfa-
skiptingu“, með það fyrir augum, að
íbúamir geti haft „raunveruleg áhrif"
á nánasta umhverfí sitt og þá þjón-
ustu, sem veitt er í hverfinu.
Um umboðsmanninn er það að
segja, að annaðhvort verður hann
bara kvörtunarfulltrúi, án nokkurra
valda, eða að hann verður einhvers
konar „aukaborgarstjóri". Það skyldi
Friðjón
Friðjónsson
þó aldrei vera ætlunin, að nota þetta
embætti til að búa til nýja valda-
stöðu fyrir einhvern forystumann
vinstri flokkanna, til að draga úr
völdum Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur?
Hugmyndin um að færa vald út
í hverfin virðist vera afskaplega
ómótuð. Hún er svo óljóst orðuð í
stefnuskrá R-listans, að líklega er
aðeins um innantómt skrum að
ræða. Ef R-listafólkið ætlar sér hins
vegar að setja á stofn einhvers kon-
ar hverfastjórnir, er hætt við að þar
yrði aðeins um að ræða kostnaðars-
ama viðbót við stjórnkerfi borgarinn-
ar. Staðreyndin er sú, að þótt
Reykjavík sé stór borg á íslenskan
mælikvarða er hún fremur lítil á
alla aðra mælikvarða. Hverfin eru
það iitlar einingar, tengslin á milli
þeirra það náin og vegalengdir stutt-
ar, að sérstakar hverfastjórnir eru
einfaidlega óþarfar, og geta jafnvel
leitt til kjördæmapots innan borgar-
innar og óhagræðis af ýmsu tagi,
fyrir svo utan kostnaðinn, sem starf-
ræksla þeirra gæti haft í för með sér.
Þessar tillögur R-listans um „opn-
ari og lýðræðislegri" borg bera það
með sér að vera ekki settar fram
vegna lýðræðisástar. Þær eru ein-
faldlega lýðskrum manna, sem ekk-
ert hafa raunverulega fram að færa.
Og það sem eftir stendur, þegar
málflutningur R-listamanna er skoð-
aður ofan í kölinn, er aðeins það,
að þeir vilja breyta breytinganna
vegna. Það kann ekki góðri lukku
að stýra.
Höfundur er nemi í
stjórnmálafræði.
Skólí gleði og ánægju
ÞAÐ AÐ láta velferð barnanna
ekki ganga fyrir öðru er merki um
það, að menn taki sig ekki nægilega
hátíðlega sem menningarþjóð. Að
við látum það yfir okkur ganga, að
börnum og unglingum séu ekki
sköpuð viðunandi skilyrði til þrosk-
andi umhverfis, náms og vellíðunar
alls staðar sem við getum, er merki
þess, að við höfum látið blekkja
okkur um hver sé rétt forgangsröð
í siðuðu þjóðfélagi.
Sú stofnun, sem við getum sam-
an haft mest áhrif á til þess að
freista þess að skapa þessi skilyrði,
er skólinn, allt frá dagvistun til loka
framhaldsnáms.
Eitt af meginverkefnum Reykja-
víkurlistans eftir komandi kosning-
ar verður að vinna að fullkominni
einsetningu grunnskólans, með
þeirri kennslu og þeim leik og öðru
starfi, sem börn og unglingar eru
í þörf fyrir á viðkvæmasta ævi-
skeiði sínu. Það verður einnig eitt
af meginverkefnum Reykjavíkur-
listans, að búa svo um hnútana, að
skólinn verði raunverulegt athvarf
og starfsvettvangur
barna og unglinga, þar
sem þeim verður sinnt
og að þeim hlúð eins
og þau eiga rétt á.
Heit og
næringarrík máltíð
í skólanum
Eðlilegur starfsdag-
ur barna og unglinga
í skólanum felur í sér
nám, þjálfun margs
konar, leik og samveru,
hvíld og hressingu.
Skóli Reykjavíkurlist-
ans er líka staður gleði
og ánægju, staður vin-
áttu og góðra minninga rétt eins
og_heimili okkar eiga að vera.
I einsetnum skóla Reykjavíkur-
listans verður heit máltíð í boði
fyrir alla nemendur um miðbik
starfsdagsins. Trúlega eigum við
flest, sem ekki höfum kynnst því
að fá heita næringarríka máltíð í
skólanum, erfitt með að gera okkur
grein fyrir því, hversu þýðingarmik-
il sú stund er, ekki
aðeins sem hluti af for-
varnarstarfi í heil-
brigði, heldur einnig
sem liður í vellíðan fjöl-
margra barna, sem oft-
ar en ekki fá ekki
nægilega mikið né rétt
fæði á degi hveijum.
Útrýmum einelti
með aðstoðarfólki
Stórfjölga þarf að-
stoðarmönnum kenn-
ara í skólum og starfs-
fólki til umsjónar og
eftirlits. Einelti, aga-
leysi og slæm um-
gengni eru landlæg vandamál í
mörgum skólum borgarinnar og
þau stafa ekki síst af því, að börn
og unglingar eru eftirlitslaus hvert
með öðru í frístundum í stað þess
að eiga þess kost að finna til sam-
veru fullorðins fólks í skólanum.
Þessi umbótastefna þarf að ná
ofar í skólakerfið en verið hefur og
Reykjavíkurlistinn vill leggja fram-
Vinna verður að full-
kominni einsetningu
grunnskólans, segir
Helgi Pétursson, svo
að skólinn verði raun-
vemlegt athvarf.
haldsskólum borgarinnar lið. Sof-
andaháttur ríkisvaldsins í málefn-
um framhaldsskóla hefur valdið
því, að framhaldsskólar í Reykjavík
hafa dregist aftur úr hvað varðar
frágang bygginga, tæknivæðingu
og nýsköpun og skortir oft tengsl
við atvinnulífið. Þessu munum við
ekki una, enda er það Reykvíking-
um lífsnauðsynlegt, að ungt fólk
borgarinnar fái tækifæri til fjöl-
breyttrar menntunar, bæði bóklegr-
ar og verklegrar.
Höfundur skipar 11. sæti
R-listans.
Helgi Pétursson
Árni Sigfússon
um kappræður
Tilbúinn
hvenær
sem er
„VIÐ ERUM tilbúin til að
mæta stjórnmálaflokkunum í
R-listanum hvar og hvenær
sem er. Ég hef
þegar lýst því
yfir og ítreka
það hér með,“
segir Ámi
Sigfússon,
borgarstjóri, um áskorun Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
og sjö efstu manna Reykjavík-
urlistans um kappræður um
borgarmál.
„Mér virðist áskorunin eiga
að vera svar við þeirri eðlilegu
spurningu okkar hveijir séu í
forsvari hvers málaflokks.
Svari þeirra er hér svarað í
fyllstu vinsemd. Hins vegar bíð
ég enn eftir svari við fyrri
spurningunni. Hver á t.a.m.
að sinna skólamálum. Er það
Alfreð Þorsteinsson ? Og hver
t.d. íþróttamálum," sagði Árni.
Hann sagðist ekki vita hvenær
af áðurnefndum kappræðum
gæti orðið. Hins vegar hefði
hann vitneskum um að
umræðuþættir af því tagi væri
í undirbúningi hjá einhveijum
íjölmiðlum.
Auglýst í sjónvarpi
Sjálfstæðisflokkurinn hafn-
aði þeirri tillögu Reykjavíkur-
lista að reynt yrði að komast
að samkomulagi um að birta
ekki auglýsingar í sjónvarpi
fyrir komandi kosningar. Árni
sagði að ástæðan væri af
tvennum toga. í fyrsta lagi
væri eðlilegra að ræða við
stjórnmálasamtök um sam-
komulag fyrir allt landið held-
ur en aðila sem ekki væri al-
veg ljóst fyrir hveija talaði um
staðbundið svæði. í öðru lagi
hefðu Sjálfstæðismenn verið
aðilar af samkomulagi af þessu
tagi sem ekki hefði haldið.
„Við viljum fá að kynna okkar
verk og teljum þörf á að gera
það í gegnum fjölmiðla,“ sagði
Árni að lokum.
Hann vildi ekki segja álit
sitt á tillögu minnihluta um
eflingu hafnarsvæðisins fyrr
en að lokinni afgreiðslu hafn-
arstjórnar.
28.MAI
Ámi er okkar maður
Stefán Hilmarsson
tónlistamiaður
Sigurlaug Lövdahl
María Sólveig Héðinsdóttir
skólastjóri
Eiríkur Orn Pálsson
tónlistarmaður
'T T T TiTTÍiíl li iTbÍbíMi
Hmrik Olafsson
leikari