Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell INGIBJÖRGU Sólrúnu Gísladótuir var boðið á fund lijá Vímu- lausri æsku i gær til þess að kynna sér starfsemina. Vekur athygli á tvískinnungi í áfengismálum INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans, gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn á fundi sem hún mætti á hjá Vímu- lausri æsku fyrir að reyna að ná til ungs fólks með því að bjóða því bjór á lækkuðu verði. Hún sagði sérkennilegt af Sjálfstæðisflokknum að gera þetta á sama tíma og Reykjavíkurborg væri að styðja SAA fjárhagslega í baráttu gegn drykkju ungs fólks. í síðustu viku sendi Sjálfstæðis- flokkurinn ungum kjósendum í Reykjavík bréf þar sem þeim er boðið til skemmtunar á fimm veit- ingahúsum í borginni laugardags- kvöldið 7. maí. A veitingahúsun- um var gestum boðið upp á bjór og gos á lækkuðu verði. Ung- menni allt niður í 18 ára aldur fengu þetta boð. Ingibjörg Sólrún gagnrýndi þetta og sagði að það gerðist á sama tíma og sjálfstæðismenn í borgarstjóm væru að veita íjár- munum til SÁÁ í þeim tilgangi að hjálpa samtökunum í sínu for- varnarstarfi. Hún sagði að sama kvöld og þessi skemmtun sjálf- stæðismanna fór fram hefði birst auglýsing í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Hvernig eiga for- eldrar að bregðast við þegar ung- lingurinn þeirra kemur í fyrsta skipti drukkinn heim.“ Á fundinum sögðu talsmenn Vímulausrar æsku að borgin gæti vel beitt sér af meiri krafti í bar- áttunni gegn drykkju og vímu- efnaneyslu ungs fólks. Með því að stilla saman íþrótta- og tóm- stundaráð, félagsmálastofnun, skólamálaráð og fleiri borgar- stofnanir gæti borgin gert stórt átak í þessari baráttu. Á síðustu árum hefur Reykja- víkurborg lagt tugi milljóna í námsefni Lions quest og sögðust talsmenn Vímulausrar æsku vera mjög ánægirð með þennan myndarlega stuðning. Hann eigi vonandi eftir að skila sér í minnu drykkju ungs fólks. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á að þeir sem berjast gegn vímu- efnaneyslu ungs fólks reyni að stilla saman strengi sína og geri fræðsluna markvissa. Hún sagðist telja að hingað til hafi vantað nokkuð upp á að þessi fræðsla hafi verið nægilega markviss. Menn hafi of mikið verið að vinna hver í sínu horni. Vímulaus æska hefur einmitt það á stefnuskrá sinni að fá marga aðila til að koma að þessu starfi og samræma forvarnirnar. Ingibjörg Sólrún sagðist fagna þessu framtaki. Átak til að stöðva áfengisdrykkju barna og unglinga Morgunblaðið/Þorkell FULLTRÚAR fjölda félagasamtaka og opinberra aðila mættu á stofnfund átaksins „Stöðvum unglingadrykkju". Dæmi um að 9 ára börn neyti áfengis SAMTÖKIN Vímulaus æska í sam- ráði við Fræðslumiðstöð í fíkniefna- vörnum efndi í gær til stofnfundar átaks til að stöðva áfengisdrykkju ungmenna á íslandi, en verndari átaksins er frú Vigdís Finnboga- dóttir forseti íslands. Mættu á fund- inn 70-80 fulltrúar frá opinberum aðilum, ýmsum félagasamtökum og stjómmálaflokkum. Samkvæmt upplýsingum þeirra sem að átakinu standa er áfengisdrykkja orðin mælanleg allt niður í 11 ára aldur hér á landi, og jafnvel eru dæmi um að 9 ára börn séu farin að neyta áfengis. Meira en fimmti hver 13 ára unglingur neytir áfengis, og í hópi 16-20 ára eru 85% unglinga farnir að neyta áfengis. í þeim hópi em um 55% komin með fastmótaða drykkjuhegðun áður en löglegum aldri til að neyta áfengis hefur ver- ið náð. Markmið átaksins „Stöðvum unglingadrykkju" er m.a. að koma á viðhorfsbreytingu hjá þjóðinni hvað varðar áfengisdrykkju barna og unglinga og gera þjóðinni um- búðalaust grein fyrir áfengis- diykkju barna og skaðsemi hennar. Þarf þjóðarvakningu Á stofnfundinum kom m.a. fram máli Valdimars Jóhannessonar að 85% ungmenna á aldrinum 16-20 ára neyttu áfengis. Sagði hann markmið átaksins að sexfalda tölu þeirra ungmenna sem ekki drekka, eða í 90%, og helst að koma alfarið í veg' fyrir drykkju unglinga. „Eng- inn einn aðili getur náð slíkum árangri, hvað sem_ hann heitir, Vímulaus æska, SÁÁ, bindindis- samtök af ýmsu tagi, áfengisvarna- ráð o.s.frv. Einn verður hver aðili eins og karlinn á kassanum og fær kannski athygli meðan gengið er framhjá og kannski eilítið glott. Hér þarf þjóðarvakningu, hér þurfa allir ábyrgir aðilar þjóðarinnar að taka saman höndum. Einn dropi holar ekki steininn, en ef droparnir eru nógu margir og falla nægjan- lega þétt þá holast steinninn fyrr en varir,“ sagði hann. „Þetta er brýnasta verkefni sem við er að glíma á íslandi í dag að mínu mati,“ sagði Valdimar einnig. Fjórtán manna stjórn Á fundinum var kosin fjórtán manna stjórn átaksins, en sérstök framkvæmdanefnd verður skipuð fulltrúum úr henni og fram- kvæmdastjóra átaksins. Stjórnina skipa: Ragnar Gíslason, skólastjóri, Ómar Smári Ármannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, Áskell Kára- son, forstöðumaður Unglingaheim- ilis ríkisins, Elísa Wium, fram- FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN gerði könnun 1. til 5. maí síðastlið- inn fyrir Reykjavíkurlistann. Spurt var: Hvoru treystir þú bet- ur í borgarstjóraembættið, Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur eða Árna Sigfússyni. 46,5% treystu Ingibjörgu betur og 31,4% treysti betur Arna, 22% svöruðu ekki spurningunni. Ef aðeins eru teknir þeir sem afstöðu tóku treystu 59,7% Ingibjörgu betur og 40,3% treystu betur Árna. Spurðir um atvinnumál, treystu 45,2% Ingibjörgu Sólrúnu betur, en kvæmdastjóri Vímulausrar æsku, Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar í fíkniefnavörn- um, Unnur Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjórn ÍSÍ, Gylfi Guð- mundsson, skólastjóri, Biynjólfur Mogensen, yfirlæknir, Pálmi Matt- híasson, sóknarprestur, Snjólaug Stefánsdóttir, yfirmaður Útideildar Reykjavíkur, Erlendur Kristjáns- son, æskulýðsfulltrúi, Aldís Yngva- dóttir, deildarstjóri í menntamála- ráðuneyti, Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður meðferðarheimilis- ins Tinda, og Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi. 28,8% Árna betur, 26% svöruðu ekki. Af þeim sem tóku afstöðu treysti 61,1% betur Ingibjörgu og 38,9% treystu betur Árna. Varðandi lausn á félagslegum vandamálum í borginni, treystu 56,8% Ingibjörgu Sólrúnu betur en 23,1% Árna, 20,1% svaraði ekki spurningunni. Ef aðeins eru teknir þeir sem svöruðu treysti 71,1% Ingi- björgu betur og 28,9% treystu betur Árna. Könnunin var gerð í síma. Svör fengust frá 681 og var nettósvar- hlutfall 72,6%. Skoðanakönnun fyrir R-listann Fleiri segjasttreysta Ing’ibjörgu en Áma Inga Jóna Þórðardóttir svarar ummælum Sigrúnar Magnúsdóttur Ómerkilegir pólitískir tilburðir að sem snýr að mér í þessu máli er að Sigrún hefur vikum saman venð með ákveðnar árásir á mig þar sem hún hefur verið að reyna að gera tortryggileg störf sem ég vann fyrir borgarstjóra 1992. Ég var í þessu ráðgjafarstarfi í tæpt ár og fól samningurinn í sér að á þeim tíma gerði ég ekki annað. Fyrir þessa tæplega 11 mánaða vinnu fékk ég 1.930 þúsund krónur að launum, þar með er talinn ýmiss kostnaður vegna verkefnisins. Þegar um er að ræða ráðgjafar- vinnu er ýmist óskað eftir einni heildarskýrslu eða unnið er með stjórnanda eða yfirmönnum að til- teknu máli í lengri tíma. Um heild- arskýrslu var ekki að ræða í þessu tilfelli. Á vinnufundum með borgarstjóra greindi ég honum frá athugunum mínum, hugmyndum og tillögum á hveiju stigi. Það er síðan hans sem stjórnanda að vinna úr því og ákveða hvað skuii gert, hverju er hafnað, hvað skuli unnið frekar o.s.frv. Það er mikill mis- skilningur sem Sigrún hefur haldið fram að ég hafi verið ráðin til að skrifa einhveija eina skýrslu. Sigrún hefur Iíka verið að dylgja um það hvað hafi verið gert. Mark- miðið með vinnunni var að ná fram hagræðingu með almennum sparn- aði, útboðum og breyttu rekstrar- fyrirkomulagi. Þar er um 20-30 verkefni að ræða. Þau varða t.d. pípugerð, jarðboranir, malbikunar- stöð og gijótnám, Bílastæðasjóð, Reykjavíkurhöfn, Skýrsluvélar rík- isins og Reykjavíkur og útboð á ýmsum sviðum. Varðandi hita- og rafmagnsveitur vil ég sérstaklega taka fram að þar var gerð tillaga um að skipa starfshóp til að kanna hagkvæmni þess að sameina fyrir- tækin. Markús Örn hefur gert grein fyrir þessum verkefnum. - Það er hins vegar ekki fyrr en núna í kosningabaráttunni sem Sigrún fer verulega að gera þetta að umtalsefni. Nú er hún að gera tortryggilegt starf sem ég vann um eins árs tíma og sem fullkom- lega eðlilega að var staðið. Þar að auki er hún að reyna að telja fólki í borginni trú um að ég hafi feng- ið einhveijar óeðlilegar greiðslur undir borðið. Þetta er algjörlega óþolandi því þarna er um að ræða heils árs vinnu. Hver einasti stjórn- andi fyrirtækis þekkir slík vinnu- ►INGA Jóna Þórð- ardóttir viðskipta- fræðingur var í árs- byrjun 1992 fengin til að taka að sér verkefni fyrir þáver- andi borgarstjóra, Markús Orn Antons- son, sem fólst í því að kanna ýmsa þætti í rekstri borgarinn- ar. Inga Jóna, sem skipar 3. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar- kosninganna, er ósátt við ummæli og skrif Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa, sem skipar 1. brögð. Þegar starfsemi einstakra stofnana og fyrirtækja er skoðuð koma óhjákvæmilega í ljós ýmis viðkvæm atriði og það gefur auga- leið að menn dreifa ekki slíkum gögnum. Þessi tilraun Sigrúnar til að gera þetta tortryggilegt vegna þess að hún fær ekki skýrslu í hendurnar er dæmalaus og sýnir annað tveggja. Annað hvort kann hún ekki betri skil á nútíma stjórn- unarháttum og rekstri eða - ef hún gerir það - lætur stjórnast sæti R-listans, um þessi störf hennar og telur að hún sé að gera tortryggilegt starf sem unnið hafi verið á fullkomlega eðlilegan hátt. Ingu Jónu þykir með ólík- indum að kona í efsta sæti á lista vinstri flokkanna skuli ráðast með þessum hætti á efstu konu á lista Sjálf- stæðisflokksins og segist vona að fram- ganga Sigrúnar sé undantekning á vinnubrögðum kvenna í stjórnmálum almennt. af annarlegum hvötum. í mínum huga eru þetta ómerkilegir póli- tískir tilburðir sem dæma sig sjálf- ir. Vinnubrögð eins og þessi ástunda ekki stjórnmálamenn sem hafa sjálfsvirðingu og vilja láta taka sig alvarlega. Mér þykir skjóta skökku við að kona skuli beita svona vinnubrögðum, m.a. með hliðsjón af því að konur hafa ætíð talað um að aukin þátttaka þeirra í stjórnmálum myndi hafa | í för með sér allt annað yfirbragð á þeim,“ segir Inga Jóna að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.