Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ1994 53 BREF TIL BLAÐSINS Byrgja skal bana- brunninn Hjalla- braut í Hafnarfirði Frá Jóhanni G. Reynissyni: NÝJASTA nýtt í heilsuverndinni eru svonefndir H-bæir, Hafnarfjörður er einn þeirra, en meginmarkmið kaupstaðanna, sem skipa sér með formlegum hætti undir H-ið, er að stuðla að almennu heiibrigði íbú- anna og þeirra sem sækja þá heim. Vor vinmargi kaupstaður í hrauninu mun því væntanlega leggja aukna rækt við vellíðan þegna sinna og þá ekki síst með slysavörnum. Fylgi hendur hug með H-ið, sem eflaust er, má af göfugum markmið- um ráða að við, íbúar Norðurbæjar- ins í Hafnarfirði, getum farið að anda léttar. Einkum ætti að birta yfir framtíðarhorfum foreldra barna sem hafa kosið að „gera sér hreið- ur“ í nágrenni við Hjallabraut. Og það er einmitt þessi Hjalla- braut sem hér er í brennidepli. Hún stendur nefnilega á engan hátt und- ir nafni, ef við höfum í huga hinn vel þekkta erfiðasta hjalla, hvort sem sú merking er uppspretta nafn- giftarinnar eða ekki. Á Hjallabraut eru vart nokkrir slíkir hjallar, erfið- ir eða auðveldir, fyrir hraðskreiðar sjálfrennireiðar nútímans að yfir- stíga. Skipulagsvilla frá upphafi Hjallabrautin er tvöföld að mest- um hluta og sómir sér ágætlega sem kappakstursbraut fyrir misvitra ökumenn. Það fyrirkomulag býður heim stórhættulegum, hröðum framúrakstri svo dæmi sé tekið. Það getur þó varla hafa átt að vera upphaflegt hlutverk hennar. Nei, svo er ekki. Að því er næst verður komist er Hjallabrautin tvöföld vegna þess að hún átti að iétta umferðarþunga af Reykjavíkurvegi. I gegnum Norðurbæinn átti að leiða þungafiutninga niður að höfn, svo dæmi sé tekið. Nú er staðan sú að höfnin „hefur færst úr stað“ ef svo má segja. Þungamiðja starfseminn- ar er við suðurbakkann. Þar með er forsenda löngu brostin fyrir tvö- faldri akbraut í hvora átt eftir Hjallabraut og í raun fáránlegt að við því hafi ekki verið brugðist fyrir löngu. Fyrir utan þá skoðun greinar- höfundar að þessar tvöföldu akrein- ar hafi verið skipulagsvilla frá upp- hafi. Hér má þó ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að nokkrir metrar brautarinnar hafa verið þrengdir. Ibúar á þeim slóðum tala vel um þróunina. Undirskriftasöfnun Nokkrir Norðurbæingar hafa undanfarið safnað undirskriftum íbúa í grennd við Hjallabrautina. Tilgangurinn er að þrýst verði á bæjaryfirvöld að takmarka mögu- leika til hraðaksturs eftir Hjalla- braut. Söfnunin hefur gengið fram- ar björtustu vonum. Hvarvetna er vitaskuld tekið vel í framtakið og oftar en ekki hafa safnarar vart lokið kynningu á undirskriftasöfn- uninni þegar feginsamleg rödd kveður við björtum rómi: Auðvitað skrifa ég undir það! Af samtölum sínum við nágranna hinnar hjallasnauðu slóðar hafa safnarar ráðið að þrenging niður í eina akrein í hvora átt myndi njóta hvað mestrar hylli. Hámenntaðir skipulagssnillingar hljóta að geta fundið heppilega lausn þar sem vel er búið að af-, aðreinum og öðru því sem tilheyrir góðu umferðar- skipulagi. Ef vel tekst til heldur umferðin sér niðri með sjálfri sér og hæðir og hólar, sem njóta iieldur lítilla vinsælda meðal íbúa í Norð- urbæ, gætu reynst óþarfi. Með framkvæmdum eins og þeim, sem hér hafa verið lauslega reifaðar, niætti einnig auka það svæði sem gangandi vegfarendur og hjólandi hafa til umráða með gang- og hjól- t'eiðastígum. Sums staðar meðfram brautinni, þar sem ekki eru gang- stéttir, má til dæmis sjá troðnar slóðir líkt og sauðkindin myndar í sveitinni. Sú staðreynd sýnir glögg- lega að þörfum gangandi vegfar- enda er ekki sinnt sem skyldi. Slysagildra En fyrst of fremst er Hjailabraut- in slysagildra. Af tölum, sem feng- ust hjá lögreglunni í Hafnarfirði, má ráða að bæjaryfirvöld hafa skellt skollaeyrum við viðvörunum um þá vá sem greinilega steðjar þarna að Hafnfirðingum. Hér er átt við þá staðreynd að hátt í 80 árekstrar og slys á Hjallabraut hafa verið til- kynnt til lögreglunnar í Hafnarfírði á þremur árum. Þá eru ótalin þau óhöpp sem ökumenn hafa gert upp sjálfir með tjónatilkynningum eða öðrum hætti. Eldri og lífsreyndari íbúar í ná- grenni Hjallabrautar en við „ung- lingarnir", sem að undirskriftasöfn- uninni stöndum, segja þetta hafa verið reynt áður, tvisvar frekar en einu sinni. Þær aðgerðir hafí engan árangur borið. Engu að síður skrifa þeir enn og aftur undir áskorun til bæjaryfirvalda, sjálfsagt í þeirri von að hafnfirskt lýðræði standi ekki á brauðfótum. Uppgjöf er ekki á dag- skrá og höfnun myndi einungis verka sem olía á þann eld sem greinilega logar í bijóstum Norð- urbæinga. Barnmargt hverfi Nú er ætlunin að fá einhveiju framgengt. Hjallabrautin er hrein- lega umkringd börnum enda má HJALLABRAUT virkar sem kappakstursbraut fyrir mis- vitra ökumenn, segir í grein Jóhanns, segja að Norðurbærinn hafi hlotið hið göfuga hlutverk að vera útung- unarstöð okkar Hafnfirðinga. Þar bytja mörg, ung pör að búa, þar koma mörg börnin undir og þar slíta þau (fyrstu pörunum af) barnskón- um — sem eru sennilega flest inni- skór af því það er stórhættulegtað leika sér úti! Með hraðatakmörk- unum eins og þrengingu mætti draga mjög úr hættunni. Því auðvit- að er hið æðsta H ekki tákn fyrir hættu heldur hamingju! Við stefnum þangað í krafti samtakamáttarins. Fyrir okkur, íbúa í Hafnarfirði, er búseta okkar þar fyrst og fremst spurning um líf — ekki dauða. Við skulum byrgja þann banabrunn sem Hjallabrautin óumdeilanlega getur talist áður en Hafnfirðingar nútíðar og framtíðar detta ofan í hann. JÓHANN G. REYNISSON, blaðamaður og einn af forsvars- mönnum söfnunar undirskriftanna. YUCCA GULL komið aftur YUCCA GULL er gott fyrir þig ef: • Meltingin er í ólagi • Þú þjáist af uppþembu eða ristilvandamálum • Þú vilt grennast • Líkaminn virðist ekki losna við uppsöfnuð eiturefni Yucca gull er frábær náttúruleg afurð sem unnin er úr Yuccaplöntunni. Plantan er unnin frostþurrkuð, svo sem flest lifandi ensým haldi næringargildi sínu. Duftið er í gelatínhylkjum sem eru auðuppleysanleg. Yucca gull inniheldur Saponin sem flýtir fyrir niðurbroti fæðunnar og hraðar meltingunni. Fæst Betra lífi, Borgarkringlunni, hjá: Grænu línunni, Laugavegi, Reykjavík, Versl. Fersku, Aðalgötu, Sauðárkróki, Heiisuhorninu, Skipagötu, Akureyri, Versl. Miðbæ, Hringbraut, Keflavík, Heilsubúðinni, Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði, Tánni, Garðarsbraut, Húsavík. Snyrtivöruversl. Mirru, Hafnarstr. 17, R.vík. Sendum í póstkröfu hvert Einkaumboð á íslandi á land sem er. Einnig greiðslukortaþjónusta. Nýtt kortatímabil hefst í dag. becR/Élic Borgarkringlan, " KRINQLUNNM-sli™ 811380 - kjarni málsins! Útivist á ári fjölskyldunnar S.V.F.R. á veiðimessu í Perlunni 12. maí - 15. maí 1994 Hvað færð þú út úr því að gerast félagi í S.V.F.R.? Þetta er spurning sem margir spyrja, jafnvel félagar í S.V.F.R. ÞETTA FÆRÐ ÞÚ: • Forgang að nokkrum bestu lax- og silungs- veiðiám landsins. • Veiðimanninn, tímarit stangveiðimanna. Tvímælalaust vandaðasta tímarit um veiði á markaðinum - sent til þín þrisvar á ári. • Veiðifrétttir, fréttablað S.V.F.R. allt að níu sinnum á ári • Fluguhnýtingarnámskeið - úrvals kennarar. • Kastnámskeið - fagmenn sjá um kennslu. • Skemmti- og kynningarkvöld á veturna. • Aðgang að umtöluðustu árshátíð ársins. • Frí veiðileyfi í Elliðavatni og stefnt að fríum veiðileyfum í fleiri vötnum. • Afslátt hjá veiðiverslunum, hótelum, bílaleigum, greiðastöðum, öðrum veiðifélögum, bensínstöðvum • Aðgang að fullkomnum veiðikortum. • Leiðsögn upp með þekktum laxveiðiám. Allt þetta fyrir aðeins 8.500 kr. inntökugjald og síðan ársgjald kr. 5.000. Við veitum leiðsögn á Veiðimessunni í eftirtöldu Sogið föstudaginn 13. maí kl. 20.30, Hítará i og I laugardaginn 14. maí kl. 15.00, Langá Fjallið sunnudaginn 15. maí kl. 15.00. Besta og mesta úrval lax- og silungsveiðileyfa færð þú hjá okkur Dæmi: Gljúfurá, laxveiði. Verð frá kr. 8.600. Norðurá I og II, laxveiði. Verð frá kr. 9.800. Norðurá Flóöatangi, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 2.200. Langá Fjallið, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 5.200. Hítará I, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 7.800. Hítará II, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 2.500. Miðá, Dölum, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 3.200. Tungufljót, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 3.800. Stóra Laxá, lax- og silungsveiði. Verð frá kr. 8.000. Sogið, öll svæði, lax- og silungssveiði. Verð frá kr. 3.400. Snæfoksstaðir, laxveiði. Verð frá kr. 4.500. Laugabakkar, laxveiði. Verð frá kr. 950. Sérlega hagstæð greiðslukjör sem gera öllum kleift að fara í alvöru veiði. Allar frekari upplýsingar veittar á veiðimessunni og á skrifstofu okkar. Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Háaleitisbraut 68 (Austurveri), sími 686050. Opið alla virka daga frá kl. 9.00-18.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.