Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR ANNA MARÍA EINARSDÓTTIR + Anna María Einarsdóttir fæddist í Klettsbúð á Hellissandi 29. nóvember 1897. Hún lést í Reykjavík 3. maí 1994. Anna var dóttir hjón- anna Einars Hákonarsonar út- vegsbónda og Jónínu Jónsdótt- ur frá Klettsbúð, en ólst upp frá barnsaldri hjá hjónunum Jóhönnu Björnsdóttur og Há- koni Hákonarsyni, föðurbróð- ur sínum. Hún bjó á Hellis- sandi til ársins 1947, en fluttist þá til Reykjavíkur. Arið 1956 fór hún aftur vestur með son- um sínum, en hélt enn til höf- uðborgarinnar eftir rúman áratug. Síðan átti hún heima í Reykjavík. Börn Önnu sem hún eignaðist með Axel Claus- en verslunarmanni eru Arreboe, f. 1918; Dagmar, f. 1922; Haukur, f. 1924; Heríuf, f. 1926; Guðmundur, f. 1930 og Friðrik Áskell, f. 1933. Son- ardóttir Önnu, Jóhanna Guð- mundsdóttir, f. 1951, ólst upp þjá henni. Útför Önnu verður gerð frá Kópavogskirkju á föstudaginn. ' MIG LANGAR til að minnast móður minnar sem lést þann 3. þessa mánaðar. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða síðustu árin enda ævidagarnir orðnir nokkuð margir. Dagsverkin voru orðin mörg og löng og það var ekki alltaf dans á rósum að sjá sex böm- um farborða og vera einstæð móðir á mjög erfiðum tímum. Móðir mín var úr hópi sex systkina en nú er að- eins eitt eftir, Guð- mundur, sem dvelur á Hrafnistu. Stuttu eftir að móðir mín fæddist tók föðurbróðir hennar Guðmundur Hákon og kona hans Jóhanna Bjömsdóttir hana í fóstur og ólst hún upp hjá þeim. Þegar ég man eftir mér sem litlum dreng þá var Guðmundur Hákon látinn. Jóhanna amma bjó með móður minni og hugsaði hún um börn og bú meðan móðir mín var að vinna við að vaska saltfisk og á sumrin við að þurrka fiskinn, breiða hann og bera í stæður. Oft var það okkar hlutverk að fylgjast með flaggi sem dregið var upp við Munaðarhól sem gaf til kynna á morgnana að það ætti að breiða fiskinn og aftur á kvöldin þegar taka skyldi hann saman. Við fórum oft með móður okkar og lékum okkur rétt við reitinn og fylgdumst með þegar fólkið var að vinna við fiskinn. í þá daga voru engin dag- vistunarheimili fyrir börnin og fjaran og hraunið voru aðalstaðirn- ir til að leika sér í og þurftu þá þeir eldri að gæta að þeim sem yngri voru. Svona gekk þetta fyrir sig í þá daga og það urðu sjaldan slys á börnum því þau lærðu sjálf að forðast hætturnar. Móðir mín fór stund- um til Reykjavíkur í fiskvinnu um sumar- tímann og þurfti hún þá að koma okkur bömunum fyrir. Hún vann ýmist á Kirkju- sandi eða Melshúsum á Seltjarnar- nesi. Móðir mín var mjög trúuð kona og hún trúði líka á huldufólk og álfa og sagði hún okkur oft sögur af því þegar huldukonurnar voru að birtast sér til að fá lánaða hina og þessa hluti og ef eitthvað týndist hafði huldufólk fengið það lánað. Ábyggilega hefur henni oft liðið illa þótt hún léti ekki bera á því, hvorki við okkur né nokkra aðra, því það hefur reynt mikið á að vinna í köldum húsum á daginn við að vaska fisk og þurfa síðan að þvo þvotta á kvöldin eða á nótt- únni af okkur bömunum. En hún sýndi æðruleysi enda kröfurnar ekki miklar og oft heyrði ég hana segja þegar eitthvað bjátaði á að þegar neyðin væri stærst væri hjálpin næst, og það virtist 'rætast úr þessu á jákvæðan hátt. Við erum fimm bræðurnir og ein syst- ir. Mig langar að láta fylgja með ljóðlínu sem ég lærði hjá ömmu minni: Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þoma sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðin er allt það skal ég launa þér. Eg held að ég geti talað fyrir hönd okkar allra systkinanna að við höfum reynt að launa henni alla þá umhyggju sem hún sýndi okkur. Þetta gekk svoleiðis fyrir sig að þegar við uxum úr grasi héldum við heimili með henni systkinin hvert af öðru þar til hún þurfti að fara á sjúkrastofnun. Hún eignaðist ekki mikið af ver- aldlegum hlutum og ef henni var gefið eitthvað þá gaf hún það oft- ast einhveijum öðrum, enda ekki Gail flísar f Mvím ¥ # Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 + Útför SVEINBJÖRNS S. SVEINSSONAR, Teygingarlæk, sem andaöist í sjúkrahúsinu á Selfossi 8. maí, verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 14. maí kl. 14.00. Sigurður Sveinsson, Sveinbjörg G. Ingimundardóttir, Ólafur J. Jónsson. t Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, RAGNAR HJÁLMAR RAGNARSSON, Hjallabraut 6, Hafnarfiröi, sem lést 8. maí, verður jarðsunginn frá Víðstaðakirkju föstudaginn 13. maí kl. 15.00. Birkir Freyr Ragnarsson, Sindri Rafn Ragnarsson, Ása Hjálmarsdóttir, Ragnar Konráðsson og systkini. langt að sækja gjafmildina til mömmu sinnar, Jónínu í Klettsbúð. Ég man þegar ég var lítill drengur og beljan hafði borið í Klettsbúð sendi hún mig með mjólk á flöskum út um plássið til þess að gefa gömlu fólki og börnum sem ekki höfðu mjólk. Móðir mín var mjög hjarta- hlý og mátti ekkert aumt sjá. Þótt við værum svona mörg heima í litlu húsi tók hún oft til sín börn sem hvergi áttu athvarf annars staðar um stundarsakir. Húsið sem við bjuggum í var 35-40 fermetrar en það virtist alltaf vera nóg pláss og oft var glatt á hjalla í Dagsbrún á kvöldin um veturna þegar ungt fólk á svipuðum aldri og við systk- inin kom í heimsókn. Sagðar voru sögur, oftast draugasögur, eða sögur af einhveijum fyrirbrigðum sem erfitt var að útskýra. Móðir mín tók vel á móti þessum krökk- um og fengum við að vera heima með vini okkar. Hún tók stundum þátt í félagslífi á staðnum. Aðal- lega var það kvenfélagið sem hún starfaði alla tíð í og átti þar marg- ar vinkonur. Hún fór stundum í ferðalög með þeim á sumrin og þótt það væri bara suður í Borgar- fjörð eða norður í land talaði hún um það og lifði í endurminningum í mörg ár eins og hún hefði farið í hnattreisu því það var glatt á hjalla þegar kvenfélagskonur voru á ferð. Gleðin var alls ríkjandi inn- an þessa hóps sem þekkst hafði í áratugi. Ég vil færa henni mínar þakkir fyrir það sem hún gerði fyrir mig þegar hún tók dóttur mína Jóhönnu innan við eins árs í fóstur. Hún dvaldi hjá ömmu sinni og bræðrum til tvítugs eða þar til hún stofnaði eigið heimili. Og studdu þau hana til mennta og reyndust henni sem bestu foreldrar. Núna síðustu árin hefur það mætt mest á Dagmar systur minni og Jóhönnu dóttur minni að hlú að henni og hjálpa, einnig hefur Haukur bróðir minn verið hjá henni þar til hún þurfti að flytjast í Hátún en svo að Skjóli. Að endingu vil ég kveðja hana með bæn sem hún kenndi mér þegar ég var lítill. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Að lokum viljum við systkinin senda öllu starfsfólki á Skjóli okkar innilegasta þakklæti fyrir alla þá umönnun og þann kærleika sem henni var sýndur þar. Guðmundur Jóhann Clausen. Hvert getum við farið? Getum við skroppið í Kópavog? Þetta var amma vön að segja meðan hún hafði heilsu og þrek. Nú er hún að leggja í sína síðustu för þangað þar sem útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju. Amma var alla sína ævi mikill Kópavogsbúi, þrátt fyrir að hún byggi síðustu árin í Reykjavík. Amma var vinmörg og skemmtileg í vinahópi, því hún hafði lag á því að koma okkur til að hlæja. Á langri lífsleið kynntist hún mörgum góðum vinum, sem héldu tryggð við hana alla ævi. Flestir eru þeir horfnir á braut. Það eru því eflaust margir til að taka á móti henni hinum megin. Amma var fædd og uppalin á Hellissandi. Hún var ung sett í fóstur hjá föðurbróður sínum, Há- koni, og konu hans, Jóhönnu. Amma átti góða bemsku. Hún elskaði og dáði fósturföður sinn og hún talaði um það alla ævi hve gaman það hefði verið að horfa á hann vinna. Hún sagði alltaf með stolti „hann Hákon pabbi minn“ með sérstakri áherslu. Hann gerði þetta sko svona. Hákon var mjög góður smiður og byggði mörg hús á Hellissandi. Einnig pijónaði hann og saumaði allt á þær mæðgurnar. Jóhanna, fósturmóðir ömmu, bjó hjá henni alla ævi þar til hún and- aðist háöldrað. Amma giftist aldr- ei, en hún eignaðist sjö börn með afa mínum, Axel Clausen. Þau era öll á lífi nema stúlka sem dó nokk- urra mánaða gömul. Amma var sterk og stjómsöm kona. Hún þurfti að vera það því það var enginn leikur að sjá éin farborða sex bömum og gamalmenni á þess- um áram. Hún vann sem kaupa- kona á Búðum, vaskaði fisk í Krossavík, vann í saltfiski á Kirkjusandi og flakaði fisk í frysti- húsinu. Hann var því oft langur vinnudagurinn hjá henni, en hún lifði í endurminningunni um þenn- an tíma og hafði gaman af að segja frá. Amma flutti tvisvar frá Sandi og suður til Reykjavíkur. Hún bjó lengi í Furagerði 1 og sat þá oft við gluggann og fylgdist með um- hverfinu eða spilaði við íbúana. Síðustu tvö árin var amma orðin þreytt og heilsan misgóð. Þegar henni leið vel þá var hún alltaf til- búin að fara í heimsókn eða bíltúr með okkur, annars sagði hún bara: „Ég ætla að leggja mig, komdu seinna.“ Amma var 54 ára þegar hún tók mig, sonardóttur sína, í fóstur og ól mig upp. Amma var bæði góð og ströng. Það var ekk- ert sem hún ekki vildi gera fyrir mig og börnin sín. Síðasta hálft annað árið dvaldist amma á hjúkr- unarheimilinu Skjóli, þar sem hún naut góðrar hjúkrunar þar til kall- ið kom aðfaranótt 3. maí. Ömmu var hvíldin kærkomin eftir erfiða daga. Guð blessi minningu hennar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Jóhanna Clausen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.