Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR íslenskt hráefni með þjóðlegu ívafi íslenskir framreiðslu- nemar komu, sáu og sigruðu í norrænni nemakeppni í Svíþjóð fyrir skömmu. ÍSLENSKIR framreiðslunemar báru sigur úr býtum í norrænni nemakeppni, sem fram fór í Svíþjóð dagana 22.-24. apríl. í forkeppni, þann 1. febrúar sl. í Hótel- og veit- ingaskóla Íslands, kepptu nemar í framreiðsiu og matreiðslu sín í milli um þátttökuréttinn. Sigurvegarar í framreiðsiu voru Brynja Guðnadótt- ir og Ragnar Freyr Pálsson, nemar á Hótel Sögu. Sigurvegarar í mat- reiðslu voru Hákon Már Örvarsson, nemi á Fiðlaranum á þakinu, og þess var tekið við keppnisslit hversu góð samvinna og skipulögð vinnu- brögð hefðu verið milli matreiðslu- og framreiðslunema íslenska liðsins meðan á keppninni stóð, en tekið er tillit til fjölmargra þátta í keppni sem þessari. Sem dæmi má nefna tímasetningar, burðartækni, mót- töku gesta, fyrirskurð á kjöti, drykkjarval, persónulega fram- komu og hreinlæti. Hvað varðar lið matreiðslunema er m.a. tekið tillit til samsetningar á hráefni, frum- leika, faglegrar matreiðslu, skipu- lags, vinnutækni, meðferð hráefnis út frá næringarfræðilegu sjónar- miði, hreinlætis, hagkvæmni, nýt- ingu, bragðs og tímasetningar. Norræn nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu hefur verið haldin árlega síðan 1982. ísland hefur tek- ið þátt í henni sl. 8 ár með mjög góðum árangri; þetta er í fjórða Morgunblaðið/Þorkell FRAMREIÐSLUNEMARNIR Ragnar Freyr Pálsson og Brynja Guðnadóttir ásamt matreiðslunemunum Hákoni Má Örvarssyni og Einari B. Guðmundssyni. Einar B. Guðmundsson, nemi á Hótel Óðinsvéum. Skilyrði fyrir þátttöku í for- keppninni er að nemar séu ekki undir 7,5 í einkunn í faggreinum, með 90% skólasókn og undir 23 ára aldri. Mikil vinna Iiggur að baki þátttöku í keppni sem þessari og stunda keppnisliðin verklegar æf- ingar undir leiðsögn valinkunnra meistara í greinunum í 3 mánuði fyrir keppni. I ár nutu nemar leið- sagnar Ragnars Wessmans, mat- reiðslumeistara í Grillinu, og Trausta Víglundssonar, veitinga- stjóra á Hótel Sögu. Sigurvegaramir, Brynja og Ragnar Freyr, sýndu framúrskar- andi árangur við val á vínum sem og í eldsteikingu á eftirrétti, borð- dekkingum og skreytingum. Til skipti sem íslenskir framreiðslunem- ar koma heim með gullið. Keppnin verður hérlendis í apríl 1996. „Aðalmarkmið Norrænu nema- keppninnar er að hvetja nema í matreiðslu og framreiðslu til bættr- ar frammistöðu og stuðla að kynn- ingu meðal nema hinna norrænu þjóða. Sú stefna hefur verið tekin að nota íslenskt efni matreitt með þjóðlegu ívafi. Þannig nýtum við þetta tækifæri til að kynna íslenska framleiðslu og íslenskt gæðahrá- efni,“ segir Arney Einarsdóttir, fræðslustjóri hótel- og veitinga- greina, en fræðsluráðið er í for- svari fýrir skipulagningu og fram- kvæmd keppnrhnar fyrir hönd Sam- bands veitinga- og gistihúsa, Félags framreiðslumanna og Félags mat- reiðslumanna. Uppskriftirnar Morgunblaðið/Þorkell MATREIDSLUNEMARNIR Hákon Már Örvarsson og Einar B. Guðmundsson buðu í vikunni blaðamönnum og öðrum gestum að smakka á kjúklingaböku og ananasskyrfrauði. Kjúklingabaka og ananasskyrfrauð ÍSLENSKU matreiðslunemarnir, sem þátt tóku í norrænu nema- keppninni í Svíþjóð fyrir skömmu, þeir Hákon Már Örvarsson og Einar B. Guðmundsson, láta okkur í té að þessu sinni uppskriftir að ljúffengri kjúklingaböku og ananasskyrfrauði, sem er sérstaklega frískandi eftirréttur. Þessir tveir réttir voru meðal þess sem íslenska keppnisliðið bauð upp á. Uppskriftirnar eru fyrir átta manns. Kjúklingabaka með rauðvínssósu Kjúklingafars 275 g kjúklingur, úrbeinaður og hamflettur 1 eggjahvíta 150 ml rjómi 50 ml vermouth Viz tsk. múskat 250 g snjóbaunir 4 blöð fílódeig Rusty kartöflur 3 bökunarkartöflur, flysjaðar og skornar í þunna strimla Vi msk. salvía salt, pipar og estragon 1 blaðlaukur, hreinsaðurog skolaður 50 g sveppir, smótt skornir salt og pipar brauðmylsna eggjarauða, þeytt með örlitlu vatni Kartöflurnar settar í heita olíu- borna pönnu. Kryddaðar með salti, pipar og estragon. Kjúklingakjötið hreinsað og sett í matvinnsluvél. Eggjahvítum bætt við og hrært vel. Kryddað með múskati, salti, pipar og vermouth. Hrært vel í vélinni. Farsið tekið úr vélinni og marið í gegnum sigti. Rjóminn er léttþeyttur og hrærður varlega saman við farsið með sleif. Kælt. Blaðlaukurinn skorinn í ræmur og forsoðinn ásamt sveppunum. Kryddað með salti og pipar. Þurrk- að vel á pönnunni og smá brauð- mylsna sett út í. Blandan er sett yfir steiktu kartöflurnar. Kjúkl- ingafarsið smurt yfir og ofan á það kemur fílódeig, sem sett er óreglulega yfir og síðan penslað með eggjarauðunni. Bakað í ofni í 10 mín. við 180 gráður. Rauðvínssósa 3 dl rauðvín 50 g smótt skorinn laukur 500 g kalt smjör Laukur smátt saxaður og hvit- aður í smjöri. Rauðvíni bætt út í og síðan þykkt með smjörinu. Kjúklingurinn tekinn úr ofninum og raðað á diska. Rauðvínssósa sett á diskana og bakan skreytt með smátt skornum og snöggs- teiktum snjóbaunum. Ananasfrauð með kara- mellusósu 250 g skyr 1 dl rjómi Vi dl ananassafi 3 matarlímsblöð 50 g sykur 1 dós ananas, skorinn í bita 1 -2 stk. ferskur „baby‘‘-ananas Skyr er þeytt og ijómi hálf- þeyttur. Sykri blandað í skyrið og ijómanum bætt út í. Matarlím er linað upp í vatni og brætt í safan- um. Ananasbitunum er blandað í skyrið með matarlíminu. Steypt í hringlaga mót. Ananassneiðar af „baby“-ananas vættar í karamell- usósu og settar ofan á skyrfrauðið. Karamellusósa 300 g sykur 2 di vatn 1 dl rjómi líkjör, amaretto smó sítrónusafi Sykur er bræddur með sítrónu- safa. Vatni og ijóma er hellt yfir. Látið smá sjóða um stund. Örlítið af líkjör er bætt í til bragðbætis. styðjum D-listann Guðni Guðmundsson organisti Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir hjúkrunarfræðingur Jón Viðar Arnórsson lektor við Tannlæknadeild Birgir Ás Guðmundsson heyrnar og talmeinafræðingur Ragnar Agústsson skipstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.