Morgunblaðið - 12.05.1994, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
ÞAÐ VAR ekki
minn vilji að gera
málfni Fæðingarheim-
ilis Reykjavíkur að
pólitísku bitbeini. Þar
sem Pétur Jónsson,
framkvæmdastjóri
Ríkisspítalanna og 4.
maður á R-lista, verð-
ur uppvís að svo ótrú-
legu þekkingarleysi í
gi-ein sinni 15. apríl
sl. verð ég hins vegar
að svara honum.
Því miður féllu
lokaorðin niður í grein
minni 21. apríl. Þau
áttu að vera aðvörun
til Reykvíkinga í komandi kosning-
um, aðvörun sem ég set fram eftir
kynni mín af vinnubrögðum
Kvennalistans, eins og ég hef áður
greint frá. Ég segi við
Reykvíkinga: „Allir
vilja hreppa heimasæt-
una, en gætu setið
uppi með staða meri
sem hvorki kemst aft-
ur á bak né áfram.“
Það var nákvæmlega
það sem gerðist þegar
vinstri flokkamir voru
við völd 1978-1982.
Þá voru þó Alþýðu-
flokkur og Alþýðu-
bandalag tveir flokk-
ar. Guð má vita í hvað
mörgum pörtum þeir
eru núna.
Erfitt á ég líka með
að skilja að íbúar Reykjavíkur
muni kjósa yfir sig flokk sem talar
um umboðsmann borgarbúa en
vill ekki að atkvæði Reykvíkinga
og Reyknesinga séu jafngild og
annarra. Þarna á ég við Framsókn-
arflokkinn.
Ég á líka erfitt með að ímynda
mér að Sigrún Magnúsdóttir taki
við skipunum frá Ingibjörgu Sói-
rúnu ef svo illa færi að R-listinn
færi með sigur af hólmi í komandi
kosningum.
Það sem ég óttast þó mest er
að Pétur Jónsson komist í þá að-
stöðu að sitja báðum megin við
borðið í málefnum Fæðingar-
heimilisins. Þá er ég viss um að
Fæðingarheimilið verður ekki opn-
að til frambúðar í maí næstkom-
andi.
Pétur fer með rangt mál
í grein Péturs Jónssonar 15.
apríl fer hann með þvílíkt bull-og
talar af slíkri vanþekkingu að ég
stórefast um að hann hafi nokkurn
tímann komið inn fyrir dyr á Fæð-
ingarheimilinu. Ég skora á hann
að skýra hvemig hann hefur hugs-
að sér að útfæra rekstur Fæðingar-
heimilisins. Á að taka hluta af 2.
hæð handa konum í glasafrjóvgun?
Það er tæplega hægt öðruvísi en
taka setustofu sængurkvenna en
setustofan hefur mikla þýðingu
Heimasætuna
eða merina
Fríða Einarsdóttir
Framsóknarmenn sækj-
ast eftir atkvæðum
Reykvíkinga á R-lista,
segir Fríða Einars-
dóttir, en þeir vilja ekki
að atkvæði Reykvíkinga
vegi jafn þungt og fólks
í öðrum kjördæmum í
kosningum til Alþingis.
fyrir þá hugmyndafræði sem starf-
semi Fæðingarheimilisins hefur
verið byggð á. í setustofunni sitja
allar konur saman til borðs, tengsl
þeirra verða betri og stofnanabrag-
ur hverfur.
Pétur talar einnig um að gera
þurfi miklar endurbætur á Fæðing-
arheimilinu. Hann lætur þess óget-
ið að aðalkostnaðurinn við endur-
bætur er vegna flutnings glasa-
fijóvgunardeildar.
Allt tal hans um að Árni Sigfús-
son hafi komið í veg fyrir að barna-
deild Landakots yrði flutt á annan
sængurkvennagang Fæðingar-
deildar Landspítalans er algjörlega
út í hött, enda stóð til að bæta
aðstöðu fæðandi kvenna, eða hvað
Pétur? Að minnsta kosti sögðust
Kvennalistakonur beijast fyrir því
að svo yrði. En sennilega hefur
það verið eins og annað hjá þeim
sem fórnað var fyrir stólana.
Áskorun til Reykvíkinga
Ég skora á Reykvíkinga að lesa
stefnuskrá R-listans vandlega. Þar
segir ekkert um hvernig á að fram-
kvæma þau loforð sem þar eru
gefin. Ekki breyta bara breyting-
anna vegna, það er alltof mikið í
húfi til þess. Spyrjið þá sem muna
tímabilið 1978-1982, þá átti líka
að stofna embætti umboðsmanns
borgarinnar, það náðist ekki sam-
staða um það frekar en svo margt
annað. Annars hélt ég að borgar-
fulltrúar væru umboðsmenn borg-
arbúa? Ég vona að Reykvíkingar
sjái í gegnum þá grímu sem vinstri
flokkarnir fela sig á bak við í bili
og hreppa heimasætuna ekki mer-
ina.
Höfundur er Ijósmóðir.
f
i
I
I
I
I
TÖLVUR Í BYGGINGARIÐNAÐI
Ráðstefna á Hallveigarstíg 1 dagana 16.-19. maí nk.
DAGSKRÁ MÁNUDAGINN 16. MAÍ:
RÁÐSTEFNUSTJÓRI:
Kl. 08.30 Skráning - afhending ráðstefnugagna.
Kl. 09.00 Ráðstefnan sett.
Kl. 09.05 Borgarsamfélag á tölvuöld
Kl. 09.25 Tölvunotkun í kennslu í byggingardeild
Tækniskólans.
Kl. 09.45 Hagnýting upplýsinga með
núverandi hugbúnaði.
Kl. 10.05 Tölvuvædd hönnun.
Kl. 10.30 KAFFI.
Kl. 10.45 Notkun töivustýringa við
hefðbundna framleiðslu.
DAGSKRA
Sveinn Hannesson, framkvstj. Samtaka iðnaðarins.
Árni Sigfússon, borgarstjóri.
Eyþór R. Þórhallsson, lektor við
Tækniskóla islands, byggingadeild.
Guðni Guðnason, verkfræðingur,
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Rúnar Hauksson, deildararkitekt Húsameistara ríkisins.
Ingvar Kristinsson, deildarstjóri
framleiðslutæknid. Iðntæknistofnunar.
Kl. 11.05 REYNSLA FYRIRTÆKJA AF TÖLVUVÆÐINGU
Tölvuvæðingin og raunveruleikinn.
Reynsla af tölvuvæddri hönnun á verkfræðistofu.
Breytingar, gallar og gæði.
Steinþór Grímsson, forstj. Fjölnis.
Kristján Sveinsson, verkfræðingur,
Verkfræðistofu Sig. Thoroddsen.
Ólafur Jakobsson, stjórnunarfr. Háskólanum á Akureyri.
Kl. 11.35 UMRÆÐUR.
Ki. 12.00-13.00 HÁDEGISHLÉ.
FRAMHALD RÁÐSTEFNU
RÁÐSTEFNUSTJÓRI:
Kl. 13.00 Verklýsingar, útboð, tilboð,
áætlanir, eftirlit og stjórnun.
Kl. 13.20 Samskipti milli tölva.
Kl. 13.40 Útboðsbankar hérlendis og erlendis.
Kl. 14.00 Samskiptakerfi Pósts og síma í nútíð
og framtíð.
Kl. 14.20 Framtíðarmöguleikar tölvutækni í
ísl. bygg.iðnaði.
Kl. 14.40 REYNSLA AF TÖLVUVÆÐINGU
Áætlunargerð og stjórnun.
Uppbygging Kringlunnar.
Haraldur Sumarliðason, form. Samtaka iðnaðarins.
Guðmundur Ásmundsson, verkfr.
hjá Samt. iðnaðarins.
Óskar Hauksson, framkvæmdastj. EAN á íslandi.
Ásgeir Jóhannesson, ráðgjafi í útboðsmáium.
Magnús Hauksson, yfirverkfr.
Gagnaþjónustudeildar.
Magnús Þór Jónsson, dósent Verkfræðideild H.l.
Sigurður Einarsson, verkfr. Istaki.
Gísli Rafnsson, byggingatæknifr., Byggðaverki h.f.
Kl. 15.00 UMRÆÐUR.
Kl. 15.25 RÁÐSTEFNUSLIT.
KL. 15.30 OPNUN SÝNINGAR Sighvatur Björgvinsson, iðnaðarráðherra.
HRESSING í BOÐI IÐNAÐARRÁÐUNEYTISINS.
Upplýsingar í síma 61 11 11
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
§ ÞJÓNUSTAN HF.
SUMARÁÆTLUN M/S HERJÓLFS
Gildir frá 6. maítil 4. sept. 1994.
Frá
Vestmannaeyjum
Alla daga 08.15
Föstudaga
og sunnudaga 15.30
Frá
Þorlákshöfn
12.00
19.00
Auk þess á
fimmtudögum
í júní og júlí 15.30 19.00
ATH.: Allar seinniferðir eru kl. 19.00 frá Þorlákshöfn.
Ferðir skipsins falla niður 22. maí (hvítasunnudag)
og 5. júní (sjómannadag).
A öðrum í hvítasunnu verða tvær ferðir eins og á
sunnudögum.
Þá getur áætlunin breyst dagana 29. júlí til 1. ágúst
vegna Þjóðhátíðar Vestmannaeyja.
Heriólfur h$.
Sími 98-12800, myndsendir 98-12991
Vestmannaeyjum.
...blabib
- kjarni málsins!
Sjábu hlutina í víhara samhengi!
með ONE TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskileg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt
o kreminu er einfaldlega
rúllað á hársvæðið og
skolað af í sturtu eða
baði eftir tiltekinn tíma
(sjá leiðb.)
o húðin verður mjúk
- ekki hrjúf
o ofnæmisprófað
Útsölustaðir:
Hagkaup, apótek
ogfleslar snyrti-
vöruverslanir.
Sensitive
fyrir viðkvæma húð.
Regular
- fyrir venjulega húð.
i