Morgunblaðið - 17.05.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra um kjaradeilu meinatækna
Ekkí hefur verið rætt
um bráðabirgðalög
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Frið-
rik Sophusson fjármálaráðherra segja að í
ríkisstjórn hafi ekki verið rætt um að setja
bráðabirgðalög á verkfall meinatækna.
Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráð-
herra segir að þær raddir verði æ hávær-
ari sem krefjist þess að höggvið verði á
hnútinn í deilunni.
í greinargerð frá samninganefnd ríkis, borgar
og Landakots eftir að upp úr kjaraviðræðum við
meinatækna slitnaði í fyrrinótt segir að ekki sé
hægt að ganga lengra til móts við meinatækna
á grundvelli leiðréttingar launakjara og virðast
þeir ætla að halda áfram verkfalli í þeim til-
gangi að knýja fram launahækkanir umfram
aðrar stéttir. Ekki hefur verið boðað til nýs fund-
ar í deilunni.
Staðhæft er í greinargerðinni að komið hafi
verið til móts við rök um samræmingu og hækki
meðallaunaflokkur meinatækna hjá ríkinu um
tvo launaflokka. Meðaldagvinnulaun meina-
tækna yrðu um 94.400 kr., þ.e. svipuð launum
hjúkrunarfræðinga, og heildarlaun, miðað við
janúar sl., 137.500 kr. að jafnaði.
Deilumál
Fram kemur að viðræður hafi staðið um þijú
atriði síðustu daga. MTÍ hafi krafist sérstakrar
hækkunar fyrir þá meinatækna sem eru við
stofnanir utan Reykjavíkur en þeir eru þegar á
6-12% hærri launum en meinatæknar í Reykja-
vík. Hafí verið fallið frá þeirri kröfu að mestu.
Auk þess krefjist félagið þess að meinatæknar
sem eru í hæstu launaflokkunum, þ.e. yfirmeina-
tæknar, hækki enn frekar en boðið hefur verið
þótt engin rök séu fyrir slíkri hækkun. Og loks
kreljist það þess að u.þ.b. helmingur almennra
meinatækna og deildarmeinatækna hækki um
einn launaflokk til viðbótar því sem boðið hefur
verið fyrir þessa hópa.
Miðlunartillaga
Guðmundur Árni sagði að tími gæti verið
kominn til að sáttasemjari bæri fram miðlunartil-
lögu. „En engu að síður vil ég trúa því að með
viðræðum eigi að vera hægt að leiða málið til
!ykta,“ sagði Guðmundur og sagði að þrátt fyr-
ir skoðun sína væri því ekki að leyna að þær
raddir yrðu háværari sem krefðust þess að
höggvið yrði á hnútinn. Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari segir málum þannig háttað að
miðlunartillaga gæti fremur spillt fyrir en hitt.
Hann segist þegar hafa stungið upp á að gerðar-
dómur yrði fenginn í málið en því verið hafnað.
Staðan rædd
Á fundi sem Friðrik Sophusson ijármálaráð-
herra hélt með samninganefnd ríkisins, forráða-
mönnum spítalanna í Reykjavík, landlækni og
Guðmundi Árna Stefánssyni heilbrigðisráðherra
var staðan í deilunni rædd.
Friðrik segir að ekki sé á dagskrá að stjóm-
völd grípi inn í verkfallið. „Kjaradeilu á borð við
þessa á að leysa í kjarasamningum," segir hann.
„Það hafa verið gerðir kjarasamningar við allan
þorra launþega f landinu án þess að um launa-
hækkanir hafí verið að ræða. Við getum ekki
samið við einn hóp um að hann fái meira en hinir.“
Tónleikar Bjarkar
Vekja at-
hygli ytra
FYRIRHUGAÐIR tónleikar
Bjarkar Guðmundsdóttur, sem
Morgunblaðið og Smekkleysa
standa að 19. júní, hafa vakið
töluverða athygli ytra og hafa
tugir blaðamanna boðað komu
sína. Miðasala hefst í dag.
D-listinn í Kópavogi
Gunnar
bæjar-
stjóraefni
GUNNAR Birgisson efsti maður
D-listans í Kópavogi lýsti því
yfir á fundi hjá íbúasamtökum
vesturbæjar í Kópavogi í gær
að hann yrði bæjarstjóraefni
D-listans í komandi kosningum.
Gunnar sagði að eftir áskomn
meðframbjóðenda sinna og ann-
arra hefði hann ákveðið að gefa
kost á sér sem bæjarstjóri, stæði
flokknum embættið til boða eft-
ir kosningar.
Heimsókn forsetans til Slóvakíu
Islensk ljóð
á slóvakísku
VIGDÍS Finnbogadóttir, for-
seti íslands, mun fá að gjöf
litla bók sem inniheldur þýð-
ingar á verkum fjögurra ís-
lenskra skálda er hún heldur
til Slóvakíu síðar í þessari viku.
í tengslum við opinbera
heimsókn forseta íslands verða
ljóð þessi einnig birt í nokkmm
stærstu dagblöðum Slóvakíu.
Ljóðin þýddi Milan Richter,
næstráðandi í sendiráði Slóv-
akíu í Ósló, sem einnig sér um
samskiptin við ísland.
Ljóðin fjögur eru eftir skáld-
in Stefán Hörð Grímsson,
Lindu Vilhjálmsdóttur, Matthí-
as Johannessen og Hannes
Sigfússon.
Milan Richter er skáld og
þýðandi, hefur gefið út sex
ljóðabækur og birt rúmlega 30
þýðingar. Hann var nýlega á
ferð á íslandi og orti þá með-
fylgjandi ljóð, „Milli elda og
ísa“ sem hér birtist í íslenskri
þýðingu.
Milan Richter
Milli elda og ísa
Eftir stundar ökuferð frá dynþungu djúpi Gullfoss
og dökkbrúnum hraunbreiðum í hlíðum Heklu
áðum við á klettum Þingvalla,
með dal í rökkurmóðu undir fótunum...
„Þetta er Alþingi, fyrsta þingið okkar,
fólk hvaðanæva að kom hér saman
til að setja ný lög,
stofna til hjónabandá,
og vemda tunguna."
Með útréttri hendi klauf Pétur klettinn
og um hann hlykkjaðist malbikaður vegur
í átt að snævi þöktum fjöllum.
í þessari rökkurmóðu í október
sá ég skáld og goða
og unga menn með síðfexta hesta
hafa yfir lög og ljóð,
kaupa og selja og liggja ljóshærðar stúlkur
innan um búðir og tjöld úr vaðmáli
- í sumarnóttinni, undir bláleitum ljóma
sólar sem aldrei sest.
Milli elda og ísa,
miðja vegu milli Þórs og Guðs,
milli sagna og vegarins sem bugðast
að Geysi og Gullfossi...
Dynþungi þeirrar tungu
kemur alltaf aftur og lifir
eins og þúsund ára söngur hvala,
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
ÞESSARI bifreið verður sennilega ekki ekið meir eftir útafakstur á Grindavíkurvegi í gærdag.
Gjörónýt
bifreið og
þrír á
sjúkrahús
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
í opinberri heimsókn í Tékklandi
Rætt um afstöðu
þjóðanna til ESB
Prag. Morgunblaðið.
VACLAV Havel forseti Tékklands tók á móti forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, ásamt fylgdarliði, í Prag-kastala við upphaf þriggja daga
opinberrar heimsóknar forsetans til Tékklands í gær.
Á blaðamannafundi með forset-
unum sagði Vaclav Havel að með
heimsókninni gæfíst tækifæri til
þess að skiptast á skoðunum um
þau málefni sem efst væru á baugi
og afstöðu þjóðanna tveggja, meðal
annars til Evrópusambandsins, sem
báðar þjóðimar stæðu utan við.
Forseti Islands lýsti ánægju sinni
með heimsóknina og minnti á að
löngum hefði verið menningarsam-
band milli þjóðanna og að samband
þeirra í millum hefði ávallt verið
gott.
Havel forseti Tékklands sagðist
minnast með ánægju heimsóknar
til íslands en sú heimsókn var með-
al þeirra fyrstu sem hann fór í sem
forseti. í fylgdarliði forseta íslands
eru Sighvatur Björgvinsson iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra og Eiður
Guðnason sendiherra íslands í
Prag, auk embættisriianna.
Forseti íslands rifjaði upp að for-
seta Tékklands hefði í fyrstu verið
boðið til íslands sem leikritaskáldi,
til að vera viðstaddur frumsýningu
á einu verka sinna, og svo að segja
í miðri æfingu hefði hann orðið for-.
seti. Tók forsetinn undir orð Havels
um ágætt samband milli landanna,
viðskipti þeirra á milli væru stöðug.
Sýning á verkum Errós
I dag munu frú Vigdís Finnboga-
dóttir og fylgdarlið meðal annars
hitta Vaclav Klaus forsætisráð-
herra Tékklands og þingmenn
tékkneska þingsins. Síðdegis verð-
ur Vigdís viðstödd opnun sýningar
á verkum Errós sem haldin er í
boði borgaryfirvalda í Prag í lista-
safni háskólans. í framhaldi af
opnun sýningarinnar efnir forseti
íslands til móttöku til heiðurs for-
seta Tékklands.
Grindavík. Morgunblaðið.
ÞRÍR drengir á tvítugsaldri voru
fluttir á sjúkrahús eftir að bif-
reið sem þeir voru í var ekið
utaf á Grindavíkurvegi um miðj-
an dag í gær. Bifreiðin er talin
gjörónýt.
Bifreiðin var á leið til Grinda-
vxkur er ökumaður missti stjórn
á henni á Gfghæð. Hún fór yfir
á gagnstæðan vegarhelming og
flaug þar um 120 metra í stór-
grýti og niður klettabelti. Far-
þegarnir þrír voru allir fluttir á
sjúkrahús og var einn þeirra út-
skrifaður að lokinni skoðun en
tveir lagðir inn til frekari skoð-
unar og var ekki vitað um líðan
þeirra þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Bifreiðin er gjörónýt en það
má telja farþegunum til happs
að hún lenti á fjórum þjólum
eftir flugferðina og reyndist erf-
ítt að koma henni af slysstað því
þjólbarðar hennar keyrðust upp
i grindina við höggið þegar hún
lenti í storgrýtmu.