Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 4

Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Úthlutað til félaga í borginni STJÓRN Afreks- og styrktar- sjóðs Reykjavíkur sem skipuð er fulltrúum frá íþrótta- og tómstundaráði og íþrótta- bandalagi Reykjavíkur hefur ákveðið eftirfarandi úthlutun úr sjóðnum: Þeir sem hlutu 300.000 kr. úthlutun: Blakdeild Víkings vegna árangurs og starfsemi á vegum deildarinnar, Knatt- spymufélagið Þröttur vegna barna- og unglingastarfs í knattspyrnudeild og blakdeild félagsins, Knattspymufélagið Fram vegna starfs í yngri flokkum knattspyrnudeildar, ÍR knattspyrnudeild vegna barna- og unglingastarfs og Knattspyrnufélag Reykjavíkur vegna Islandsmeistara í meist- araflokki kvenna. 200 þúsund Þeir sem hlutu 200.000 kr. úthlutun: Skíðadeild Ármanns, vegna Hauks Antonssonar, Golfklúbbur Reykjavíkur vegna Siguijóns Amarssonar, Skylm- ingafélag Reykjavíkur vegna bama- og unglingastarfs og vegna erlendra samskipta, Júdódeild Ármanns vegna Hall- dórs Hafsteinssonar, Karatefé- lagið Þórshamar vegna Ás- mundar ísaks Jónssonar, Skautafélag Reykjavíkur vegna starfsemi fyrir börn og ungl- inga, Fimleikadeild Ármanns vegna árangursríks starfs á vegum deildarinnar og Skíða- deild Víkings vegna barna- og unglingastarfs. Margeir vann í Danmörku MARGEIR Pétursson sigraði á Alþjóðaskákmóti Unibank sem lauk 1 Kaupmannahöfn á sunnudag. Hann hlaut 6 vinn- inga af 9 mögulegum, vann 3 skákir og gerði 6 jafntefli. Margeir vann Danana Erling Mortensen og Henrik Danielsen í tveimur siðustu skákunum. Mortensen varð annar með ö'A vinning og síðan komu ungveij- amir Sax og Hazai með 5 vinn- inga hvor. Þresti Þórhallssyni gekki ekki vel á mótinu og hlaut 2 Vi vinning. Skoðanakönnun DV Fylgisaukn- ing D-listans SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar DV sem blaðið birti í gær um fylgi fram- boðslistanna í Reykjavík hefur D-listi Sjálfstæðisflokksins aukið fylgi sitt vemlega miðað við síðustu skoðanakönnun blaðsins, og fengi R-listinn 8 borgarfulltrúa en D-listinn 7 fulltrúa ef kosið væri nú. Niðurstöður skoðanakönn- unarinnar urðu þær að D-list- inn naut stuðning 33,7% að- s_purðra og R-listinn 37,8%. Oákveðnir voru 20,2% og 8,3% neituðu að svara, en það er mun hærra hlutfall en í undan- gengnum könnunum DV. Sé einungis tekið mið af þeim sem afstöðu tóku í könnun DV sögð- ust 47,1% styðja D-listann og 52,9% R-listann, og er munur- inn á fylgi listanna nú 5,8 pró- sentustig. Miðað við könnun DV í lok apríl eykst fylgið við D-listann um 5,9 prósentustig á kostnað R-lista, en mest reyndist bilið milli framboðsþá var það 26,6%. FRÉTTIR Omega-3 fitusýrur finn- ast í íslensku lambakjöti Stefán B. Sigurðsson prófessor við lækna- deild Háskólans. KINDAKJÖT reyndist hafa óvenju- mikið af fitusýrum, sem áður var talið að eingöngu fengjust úr fiski. Lægri dánartíðni Hér- aðsbúa heldur en frænda þeirra í Kanada er rakin til þess að meira er af góðu kól- esteróli í blóði Hér- aðsbúa. Víðtækar rann- sóknir leiddu óvænt í ljós að ein helsta fæða Héraðsbúa, íslenskt lambakjöt, inniheldur Omega-3 fitusýrur og fjallar Benedikt Sig- urðsson hér um nið- urstöðurnar. NIÐURSTÖÐUR viðamikilla rann- sókna sem staðið hafa frá árinu 1979 á heilsufari íbúa á Fljótsdalshéraði og Vestur-íslendinga í Kanada, með tilliti hjarta- og æðasjúkdóma, voru kynntar á Egilsstöðum nú um helg- ina. Upphafsmaður rannsóknanna er Jóhann Axelsson prófessor við Há- skóla íslands. Upplýsingar er hann hafði undir höndum bentu til þess að dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma íslendinga í Kanada, sem voru enn óblandaðir íslendingar, væri töluvert hærri en á Islandi. Kólesteról í miklu magni hefur verið talið mikill skaðvaldur í manns- líkamanum. Það er hins vegar niður- staða Jóhanns og samstarfsmanna hans að miklu skipti hvers eðlis kól- esterólið er, því af því finnast fleiri en ein tegund. Samanburðarrann- sóknir á Vestur-íslendingum í Kanada og á hópi fólks af Héraði staðfestir þetta. Magn kólesteróls í Héraðsbúum er meira en íslendinganna í Kanada, en engu að síður er dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma, lægri hér en þar. Munurinn felst í því að íslendingamir vestanhafs hafa meira af óæskilegu kólesteróli heldur en Hérðasbúar. Einn aðila rannsóknarinnar, Stef- án B. Sigurðsson prófessor við læknadeild Háskóla ísland, segir það einstakt að geta borið saman svo erfðafræðilega líka hópa. Munurinn á dánartíðni stafi því af umhverfí manna og mataræði. Að hans sögn virðist sem íslenska sauðkindin gæti átt nokkum hlut að máli. Gott og slæmt kólesteról Að sögn Stefáns voru þær niður- stöður sem fengust við mælingu á kólesteróli í hrópandi ósamræmi við eldri niðurstöður. Almennt var talið að kólesteról væri aðalorsakavaldur hjarta- og æðasjúkdóma, en tiltölu- lega stutt er síðan farið var að greina á milli svo kallaðs góðs kólesteróls (HDL) og slæms kólesteróls (LDL). Samkvæmt öllu hefði dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma átt að vera hærri á Héraði en í Kanada ef eingöngu er miðað við mælt kólesteról í blóði. Sé hins vegar tekið mið af hlutfalli góðs kóleste- róls og slæms, þá kemur í Ijós að mun meira er af því góða í Hérð- aðsbúum en frændum þeirra í Kanada. Stefán segir að niðurstöður rannsóknanna er lúta að kólesteról- magni í blóði og lágrar dánartíðni Héraðsbúa hafi verið dregnar í efa í fyrstu. Margar rannsóknir séu til þar sem sýnt er fram á hið gagn- stæða. Meðal annars sé finnsk rann- sókn sem leiði í ljós að hátt hlutfall kólesteróls í Finnum er aðalástæða hárrar dánartíðni þar í landi af völd- um hjarta- og æðasjúkdóma, enda sé hlutur slæms kólesteróls hár þar. Aðstoð frá sauðkindinni Við- rannsóknir hefur komið í ljós, að sögn Stefáns, að hlutur svokall- aðra Omega-3 fitusýra er um þrisvar sinnum hærri í blóði Héraðsbúa en íslendinga í Kanada. Omega-3 er eingöngu talin finnast í sjávarfangi og þeir sem borða mikinn fisk hafa hátt hlutfall af henni í sér. Þessar fítusýrur eru taldar gæddar þeim eiginleikum að vinna á móti myndun hjarta- og æðasjúkdóma. Hinn hái hlutur Omega-3 í Hér- aðsbúum kom því á óvart, þar sem vitað er að þeir borða lítið af fiski. Skýringanna var því ekki að leita þar. Lýsisneysla var rannsökuð fyrst enda eðlilegast að Omega-3 kæmi þaðan. Niðurstöður sýndu að orsak- irnar var ekki að finna þar. Þá kom íslenska sauðkindin til skoðunar. Rannsóknum á fitusýru- greiningum stjómar Guðrún Skúla- dóttir lífefnafræðingur í samvinnu við Sigrúnu Guðmundsdóttur mat- vælafræðing. Úr þeim sýnum sem tekin hafa verið, virðist sem lamba- kjötið hafi að geyma óvenjumikið magn þessara góðu og hollu fítu- sýra, sem áður var talið að eingöngu fengjust úr físki. Rannsakað var kjöt af bæ sem var nálægt sjó og enn- fremur af bæ sem var langt inni í landi. Enginn marktækur munur var á milli þeirra sýna. Fóður bætt með fiskimjöli Stefán segir að það virðist ótrú- lega algengt að fóður kinda sé drýgt með fiskimjöli og þá helst um fengi- tímann og um sauðburðinn. Bæði sé kindum gefið fískimjöl og lýsi og auk þess eru graskögglar drýgðir með fiskimjöli. Þar sé líklega að leita skýringanna á þessu háa hlutfalli Omega-3 fitusýru. Nú liggi hins veg- ar fyrir að sannreyna þessar niður- stöður með sýnum frá fleiri bæjum og frá fleiri svæðum. Segir Stefán þetta sýna að sauð- kindin og maðurinn eru það sem þau éta. Betri framleiðsla, aukin sala Stefán telur þessar niðurstöður, ef þær reynast óyggjandi, geti stuðl- að að aukinni notkun sjávarfangs við fóðrun sauðfjár. Slíkt auki á næring- arlegt gildi kjötsins. Og ef það reyn- ist eina kjötið í heiminum sem inni- haldi þessar æskilegu fitusýrur, seg- ist hann ekki í vafa um að slíkt sé hægt að nota til auglýsingar. Andlát ÁRMANN KRISTINSSON ÁRMANN Kristinsson, fyrrverandi sakadóm- ari, lést á heimili sínu 12. maí síðastliðinn 67 ára_ að aldri. Ármann var fæddur í Reykjavík 21. nóvem- ber 1926. Foreldrar hans voru Kristinn Ár- mannsson, rektor Menntaskólans í Reykjavík og Þóra Árnadóttir, húsfreyja. Ármann lauk stúdents- prófí frá MR 1946 og prófí í lögfræði frá Háskóla íslands 1952. Hann stundaði nám í refsirétti og ríkisrétti í Kaupmannahöfn 1952- 1956. Ármann var skipaður fulltrúi hjá sakadómaranum í Reykjavík 1957 og skipaður sakadómari 1962. Hann starfaði sem sakadómari til 1990 þegar honum var veitt lausn. Ármann lætur eftir sig eiginkonu, Paulu Sejr Sörensen. PÉTUR EGGERZ PÉTUR Eggerz, fyrr- verandi sendiherra, lést 12. maí, tæplega 81 árs að aldri. Pétur fæddist þann 30. maí árið 1913 í Vík í Mýrdal, sonur hjón- anna Sigurðar Eggerz ráðherra og Solveigar Kristjánsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1933 og lög- fræðiprófí frá Háskóla íslands árið 1939. Hann gengdi ýmsum störfum í utanríkis- ráðuneytinu og varð sendiherra í Þýska- landi með aðsetur í Bonn frá 1978 ogjafn- framt sendiherra í Austurríki og Sviss frá sama tíma. Honum var veitt lausn frá störfum árið 1983. Pétri Eggerz voru veittar ýmsar viður- kenningar fyrir störf sín. Hann lætur eftir sig tvö uppkomin börn, Solveigu og Pál Ólaf. Morgunbiaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Margrét Bára og Hrísla MARGRÉT Bára Þorkelsdóttir og tíkin Hrísla spókuðu sig um í góða veðrinu í fjörunni við Arnarstapa. Margrét Bára, sem býr Bjargi, sagðist oft vaða og leika sér í fjörunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.