Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR
Fulltrúi í byggingarnefnd segir bílastæðagjöld ekki greidd vegna sinnuleysis yfirvalda
GUNNAR H. Gunnarsson, fulltrúi
minnihlutaflokkanna í byggingar-
nefnd Reykjavíkur, lagði tii á fundi
nefndarinnar 4 miðvikudag að hús-
eigendum fjögurra eigna í Reykjavík
verði gefinn frestur til 1. júlí nk. til
að taka bílastæði í húsnæði sínu í
notkun sem slík og hætta að nota
þau sem vörugeymslur. í greinargerð
með tillögunni segir Gunnar að hús-
eigendur komist undan því að greiða
bílastæðagjöld og að fyrirtæki sem
gerist brotleg fái forskot í sam-
keppni við önnur fyrirtæki í sömu
greinum vegna sinnuleysis bygging-
aryfirvalda. Málinu var frestað til
næsta fundar byggingarnefndar sem
verður 26. maí.
Tillaga Gunnars nær til eftirtalinna
bílastæða: Fjórtán bflastæði á baklóð
við Einholt 6 sem nú hefur verið
breytt í yfírbyggt lagerpláss, notað
af Pólum hf., þrjú bflastæði í kjallara
Laugavegs 97 sem nú eru notuð sem
lager af verslunum á 1. hæð hússins,
sextán bílastæði í kjallara Þverholts
18 sem nú eru notuð sem lager af
heildversluninni I. Guðmundssyni hf.
og átján bflastæði í kjallara Þverholts
17-19 sem notuð eru sem lager fyrir
Smjörlíki hLfijiQna£.vjiLað þfla
in verði tekf
Atvinnuróffur að
mati eins eigenda
samþykktum byggingamefndarteikn-
ingum fyrir 1. júlí nk. að viðlögum
5.000 kr. dagsektum.
f útreikningum í greinargerð
Gunnars kemur fram að eigendur
áðurnefndra eigna hafi sloppið við
að greiða bílastæðagjöld sem myndu
í dag nema samtals rúmlega 39 millj-
ónum' króna.
Treysti borgarbúum
Hilmar Guðlaugsson, formaður
byggingarnefndar Reykjavíkur,
sagðist lítið geta sagt um málið fyrr
en hann væri búinn að fá grein-
argerð og skýrslu frá byggingarfull-
trúa um málið en það yrði á næsta
fundi nefndarinnar.
arðist treystá
kvæmt teikningum. „Ég sem formað-
ur hef ekki tök á því og það er held-
ur ekki á mínu verksviði að vera úti
um allan bæ,“ sagði Hilmar. Hann
sagði að húsnæði væri tekið út af
byggingarfulltrúa í upphafi. Síðan
væru brögð að því að fólk breytti
því eftir á og það væri undir hælinn
!agt hvort byggingarnefnd frétti af
þeim breytingum, hún gæti engan
veginn haft yfirlit yfir öll hús í bæn-
um.
Hilmar sagði að byggingarfulltrúi
myndi skoða það húsnæði sem Gunn-
ar tiltekur í tillögu sinni og taka síð-
an á þeim málum á viðeigandi hátt.
Atvinnurógur
argerð Gunnars H. Gunnarssonar
atvinnuróg. Hann segir að bygging
Póla hf. á baklóð hafi verið sam-
þykkt á fundi byggingamefndar 8.
ágúst 1985. „Eina óleyfilega við
bygginguna var að gafl er lokaður.
Það var m.a. gert vegna innbrots-
mála og til að starfsmenn Seðlabank-
ans liðu ekki fyrir sjónmengun á lóð
Póla.“
Grímur sagði að embættismanni
Reykjavíkurborgar hefði verið til-
kynnt munnlega að gaflinn yrði rof-
inn strax og beiðni kæmi fram um
það. Um bílastæðin sagði Grímur
að þau væru næg innandyra hjá
fyrirtækinu, bílastæðin væru ein-
ungis skipulögð á annan hátt en
gert var.ráð fyrir í upphafi. Fyrir-
'téékið værí'Jjví’ekki aÖ
undan neinum greiðslum til borgar-
sjóðs.
Smjörlíki hf. er eigandi Þverholts
17-19. Fyrirtækið er i greiðslustöðv-
un og Sól rekstararfélag, sem lána-
drottnar fyrirtækisins stofnuðu í júlí
í fyrra, leigir allar eignir, þ.á m. fast-
eignir, af Smjörlíki um óákveðinn
tíma.
Engin þörf fyrir bílastæði
Árni Gunnarsson er framkvæmda-
stjóri Sólar rekstrarfélags. Hann seg-
ir að umrætt bílageymsluhús hafi
verið byggt árið 1987 um leið og
vörugeymsla sem hýsir tölvustýrðan
lager. Bilastæðahusið hafi verið
byggt eins og reglur segja til um
þótt engin þörf hafi verið fyrir það
vegna þess að lagernum fylgdu eng-
ir viðbótarstarfsmenn. Bílageymslan
hafi því verið tekin undir framleiðslu-
starfsemi þegar umsvif fyrirtækisins
jukust. Árni segir að borgaryfirvöld-
um hafi verið þetta Ijóst öll þessi ár.
„Við gætum hæglega breytt þessu
aftur í bílastæði en þau myndu bara
standa tóm því það er engin þörf
fyrir þau,“ segir Árni.
Hvorki náðist í eigendur bíla-
_geymslna; í Þverholti 18 pé^ Ljauga-
Íff^im/mnjíil BWon fm h u[a-19rlk
Kosningabaráttan harðnar
Ekki persónuníð
segir Arni - rætnar
árásir segir Alfreð
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN bar upp spurninguna „Á bak við
hvaða grímu felur Alfreð Þorsteinsson sig?“ í heilsíðuauglýsingu
í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Árni Sigfússon borgarstjóri segir
að spurningum um það hvemig hlutverkaskipan yrði hjá R-lista
eftir kosningár, ef hann ynni meirihluta, hafi aðeins verið svarað
með þögninni hingað til og þess vegna hljóti spurningar sem þessi
að vera hluti af kosningabaráttunni. Alfreð Þorsteinsson segir illa
komið fyrir Sjálfstæðisflokknum ef Ámi og hans félagar telji
vænlegra að standa fyrir persónulegum árásum á andstæðinga
sína en að ræða málefnalega um borgarmál.
Ámi Sigfús-
son borgarstjóri
segir að kjós-
endur hafi viljað
fá skýrar fram
hvernig hlut-
verkaskipan yrði
hjá R-lista eftir
kosningar ef
hann ynni meiri-
hluta. Því sé
hins vegar ein-
göngu svarað
með þögninni.
„Átta frambjóð-
endur úr fjórum
flokkum fela sig
á bak við R-
listagrímurnar.
Mér er sagt að
fjölmargir kjós-
endur - og ég
hef einnig heyrt
frá mörgum þeirra, spyiji til dæm-
is um hlutverk Alfreðs Þorsteins-
sonar. í því felst auðvitað ekkert
persónuníð. Það er eingöngu spurt
um hans hlutverk því hann er vel
falinn í þessari baráttu. Slíkar
spurningar hljóta að vera hluti af
kosningabaráttunni úr því að eng-
in svör hafa fengist. Hins vegar
tel ég að baráttan vinnist á mál-
efnalegri umfjöllun þó að spurn-
ingar sem þessar séu hluti af kosn-
Auglýsingin, sem birtist í
Morgunbiaðinu í gær.
ingabaráttunni,“
sagði Ámi.
Rætnar árásir
Alfreð Þor-
steinsson segir
að ef Árni Sig-
fússon og hans
fólk telji væn-
legra að standa
fyrir persónu-
legum árásum á
andstæðinga
sína en að ræða
málefnalega um
borgarmál þá sé
illa komið fyrir
Sjálfstæðis-
flokknum. „Ég
tel Reykvíkinga
vita fyrir hvað
ég stend enda
hefur málflutn-
ingur minn í borgarmálum ávallt
verið fyrir opnum tjöldum," segir
Alfreð. Þá segist hann sannfærður
um að framsóknarmenn og aðrir
sem ósáttir séu við auglýsinga-
stefnu sjálfstæðismanna muni
fylkja sér um R-listann „eftir
þessar rætnu árásir sem ég og
Sigrún Magnúsdóttir höfum orðið
fyrir frá Sjálfstæðisflokknum í
auglýsingum í Morgunblaðinu,"
segir Alfreð.
Gatnamót skoðuð
Morgunblaðið/Kristinn
ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri, og Stefán Her-
mannsson, borgarverkfræðingur, skoðuðu í gær
gatnamótin á mótum Vesturlandsvegar og Höfða-
bakka. í vegaáætlun er gert ráð fyrir mislægum
gatnamótum þar og segir Stefán að einnig verði
gerð ný brú yfir Sæbraut og munu vegaslaufur
þar breytast. Þá verði Vesturlandsvegur breikkað-
ur að gatnamótunum við Sæbraut. Hann segir fé
til framkvæmdanna ekki á fjárlögum þessa árs,
en þó verði jafnvel hægt að hefjast handa í haust.
Morgunblaðið/Knstinn
Arkitektar kynna mál sín
STJÓRN Arkitektafélags íslands kynnti Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóraefni R-Iistans, í
gær þau mál sem eru efst á baugi innan félagsins.
Stjórn félagsins mun einnig eiga fund með Arna
Sigfússyni, borgarstjóra, á næstunni og kynna
honum málin. Ormar Þór Guðmundsson, formaður
Arkitektafélagsins, segir að félagið vilji semja við
borgina um hvernig staðið vérði að vali á arkitekt-
um, einnig vilji þeir sjá fleiri arkitekta í vinnu hjá
borginni. Þá kynnti stjórnin Islenska arkitektaskól-
ann og óskaði eftir stuðningi við hann og ræddi
um stofnun Byggingalistasafns. Á myndinni eru
frá vinstri Helga Benediktsdóttir, ritari Arkitekta-
félagsins, Ormar Þór, Sigurður Halldórsson, gjald-
keri, og fremst er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóraefni R-listans.
Göng undir Bústaðaveg
ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri,
segir að fái Sjálfstæðisflokkurinn
umboð til að stjórna borginni
áfram muni hann beita sér fyrir
því að byggð verði undirgöng
undir Bústaðaveg við Sléttuveg.
Með undirgöngunum er ekki
síst stefnt að því að bæta mögu-
leika aldraðra til að ferðast um
hverfið, en mjög margir aldraðir
búa í nágrenninu.'
Talað hefur verið um að göng-
in komi til með að kosta 60-80
milljónir.