Morgunblaðið - 17.05.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 15
Verðbólga í Rússlandi
þykir heldur á niðurleið
og því hefur rússneski
seðlabankinn lækkað
vexti í 200%.
Vextirnir
lækkaðir
í 200%
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI seðlabankinn
hefur lækkað endurfjármögn-
unarvexti úr 205% í 200% og
er um að ræða aðra vaxtalækk-
unina á tveimur vikum. Er
ástæðan sú, að verðbólga í
Rússlandi er heldur á niðurleið.
Verðbólgan hefur lækkað
verulega það sem af er árinu
og raunvextir eru nú orðnir
jákvæðir. Samkvæmt vaxtaút-
reikningum Rússa svara 200%
endurfjármögnunarvextir til
16,7% mánaðarvaxta og eru
þeir því töluvert umfram mán-
aðarverðbólgu eins og hún var
í apríl eða '9,7%. í grein, sem
Víktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra skrifar og birt var í
einu Moskvublaðanna í gær,
segir hann, að fylgt verði að-
haldssamri stefnu í peninga-
málum og í grein eftir hann í
The Financial Times spáir hann
því, að mánaðarverðbólgan
verði komin 7-8% fyrir árslok.
Kaupæði
hjá Tékkum
Prag. Reuter.
MIKIL eftirspurn olli því, að
hætt var við sölu á 114 fyrir-
tækjum í Tékklandi en þau átti
að selja ásamt öðrum í annarri
einkavæðingarhrinu stjórn-
valda. Var eftirspurnin allt að
48-föld hvað sum þeirra varð-
aði.
Mest var eftirspurnin eftir
hlutabréfum í stærstu brugg-
húsunum í Tékklandi, Pivovar
Radegast, en sá háttur er hafð-
ur á, að fari eftirspurnin fram
úr framboðinu er efnt til ann-
arrar útboðsumferðar og þann-
ig koll af kolli þar til eftirspurn
og framboð standast nokkurn
veginn á. Er það gert til að
tryggja eðlilegt verð fyrir
hlutabréfín. I fyrsta einka-
væðingarútboðinu í Tékklandi
voru seld nærri 1.500 fyrirtæki
en þau 200, sem ekki seldust
þá, eru nú meðal þeirra 860,
sem eru til sölu.
VIÐSKIPTI
Vextir af innlánum frá öðrum
degi en af útlánum frá fyrsta degi
Danir deila um
vaxtaútreikning
SÍÐAR í þessum mánuði hefjast í
Danmörku málaferli, sem að
minnsta kosti bankarnir þar í landi
munu fylgjast vel með. Eigast þar
við umboðsmaður danskra neytenda
og einn bankanna, Bikuben, og
málið snýst um það hvorum megin
hryggjar 20 milljarðar ísl. kr. skuli
liggja, hjá bönkunum eða hjá við-
skiptavinum þeirra.
Það er umboðsmaðurinn, sem
höfðar málið, og tilefnið er það, að
bankarnir reikna fyrst vexti af inn-
lánum frá öðrum degi eftir að pen-
ingarnir eru lagðir inn. Séu þeir
lagðir inn á föstudegi, eru vextir
reiknaðir frá mánudegi. Sá, sem
tekur lán í bankanum, verður hins
vegar að greiða af því vexti frá
fyrsta degi. Þar við bætist, að ieggi
maður ákveðna upphæð inn á reikn-
ing að morgni dags og taki hana
út síðar sama dag á hann á hættu
að þurfa að borga vexti. Er skýring-
in á því sú, að hvað vaxtaútreikning
varðar fer reikningurinn í mínus
þegar upphæðin er tekin út.
Samtök danskra lánastofnana
vilja viðhalda þessu kerfi og benda
á, að þær geti ekki greitt vexti af
peningainneign viðskiptavinanna
fyrr en hún hafi verið lögð inn í
seðlabankanum. Það á þó aðeins
við þegar um er að ræða reiðufé
en talsmenn neytenda segja, að
langflestar innborganir á reikninga
séu millifærslur á milli reikninga.
Talsmenn lánastofnana segja, að
tapi þær þessu máli muni þær verða
að ná þessum 20 milljörðum króna
með öðrum hætti, til dæmis með
því að hækka þjónustugjöldin.
I M P E X
Sterkt • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
am
0DEXIQN
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI31 ■ SÍMI 62 72 22
Islandsbanki býður
ókeypis myndatöku vegna
Debetkorta!
íslandsbanki býbur
viöskiptavinum sínum
ókeypis myndatöku
vegna Debetkorta.
Ókeypis myndataka fer
fram í eftirtöldum
útibúum íslandsbanka
á höfubborgarsvœöinu:
Debetkortiö erísenn staögreiöslukort,
hraöbankakort, persónuskilríki og tékkaábyrgö-
arkort. Þá er einnig ódýrara aö nota Debetkort
en aö greiöa meö tékka.
Notaöu tœkifœriö og sœktu um Debetkort
núna á meöan þér býöst ókeypis myndataka
og kortagjald. Þetta tilboö stendur aöeins í
takmarkaöan tíma.
Lœkjargötu 12.............. kl. 09:1 S - 16:00
Bankastrœti 5.............. kl. 11:00 - 16:00
Háaleitisbraut 58.......... kl. 13:00 - 16:00
Suðurlandsbraut 30......... kl. 13:00- 16:00
Stórhöfða 17................ ki 11:00- 16:00
Kringlunni 7............... kl. 11:00 - 16:00
Þarabakka 3................ kl. 09:15 - 16:00
Dalbraut 3................. kl. 13:00 - 16:00
Strandgötu 1............... kl. 13:00- 16:00
Einnig er boöiö upp á ókeypis myndatöku í
útibúum utan höfuöborgarsvœöisins.
ÍSLANDSBANKI