Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuter
Rushdie
heiðraður
SALMAN Rushdie brosti
breitt eftir að hann hafði
veitt viðtöku verðlaunum
í Vín í gær. Var öryggis-
gæslan afar ströng við
athöfnina þar sem ír-
anska klerkastjórnin
dæmdi Rushdie til dauða
fyrir skrif hans árið 1989.
Malaví
Fyrstu lýð-
ræðislegn
þingkosn-
ingarnar
Zomba, Blantyre. Reuter.
The Daily Telegraph.
ÞING Malaví samþykkti í gær bráða-
birgðastjörnarskrá, en í dag ganga
landsmenn fyrsta sinni til lýðræðis-
legra kosninga, sem gætu bundið
endi á völd forsetans, Kamuzu
Banda. Nokkru fyrir kosningarnar
höfðu kjörstjórninni borist kvartanir
um hótanir og misbeitingu af hálfu
allra flokka, ekki síst flokks Banda,
Þingflokks Malaví (MCP). Um 3,7
milljónir af 9,7 milljónum Malavíbúa
hafa kosningarétt. Kosið verður um
177 þingsæti og er búist við því að
úrslit liggi fyrir á fimmtudag.
Nýja stjórnarskráin, sem tók gildi
á miðnætti, hefur
mætt harðri and-
stöðu ýmissa
þingmanna
MCP, sem hafa
sagt hana illa
unna og minna
•helst á stefnu-
skrá stjómmála-
flokks. Hún tak-
markar alræðis-
vald það sem
Banda hefur haft undanfarin þijátíu
ár og verður endurskoðuð á næstu
tólf mánuðum.
Stjórnarskráin er niðurstaða
starfshóps allra flokka, sem hóf störf
fyrr á þessu ári í kjölfar þess að
Banda leyfði starfsemi stjórnarand-
stöðuflokka, vegna þrýstings vest-
rænna þjóða en um 90% af tekjum
Malaví byggðust á fjárframlögum
þeirra.
Stjórnmálaskýrendur telja að
Banda kunni að tapa fyrir Samein-
uðu lýðræðisfylkingunni, flokki lýð-
ræðissinna og stjórnmálamanna sem
hafa yfirgefið flokk Banda, en Bak-
ili Muluzi, fyrrum framkvæmdastjóri
MCP, fer fyrir þeim. Þá kunna Lýð-
ræðisflokkur Malaví, sem stjóm-
málafræðingurinn Kamlepo Kalua
stýrir, og Lýðræðisbandalagið, undir
forystu verkalýðsforingjans
Chakufwa Chihana, að blanda sér í
baráttuna.
Talið er að Banda sé á tíræðis-
aldri. Hann gekkst undir heilaupp-
skurð í Suður-Afríku í október sl.
og hefur ekki náð sér sem skyldi,
t.d. hefur hann ekki sést í kosninga-
baráttunni. Þá var haft eftir eftirlits-
mönnum með kosningunum að fund-
ur, sem þeir áttu með Banda, hefði
verið einkennilegur. Forsetinn hefði
virst mjög ringlaður og aðeins verið
fær um að bjóða þá velkomna.
Kakili Mulzu
Glæpasamtök í Rússlandi með ríkisvalið í gíslingu
Glæpalýður ásælist
15.000 kjamaodda
New York. Reuter.
GLÆPASAMTÖK í Rússlandi hafa með skipulögðum hætti reynt að
komast yfir 15.000 kjarnaodda í því skyni að „taka sjálft ríkið í gísl-
ingu“ ef svo má segja. Var skýrt frá þessu í bandaríska tímaritinu The
Atlantic Monthly sl. sunnudag en nánar verður frá þessu máli sagt í
júníheftinu.
„Villta austrið" heitir skýrsla,
sem Seymour Hersh, sem hefur
meðal annars unnið til Pulitzer-
verðlaunanna, hefur tekið saman
en þar segir hann, að skipulögð
glæpastarfsemi í Rússlandi sé farin
að valda æ meiri áhyggjum þar í
landi og erlendis. Segir hann til
dæmis, að rússneska öryggismála-
ráðuneytið hafi lagt hald á 60 kíló
af mjög auðguðu úrani í borginni
ízhevsk í apríl sl. en það er „nóg í
þijár Hiroshima-sprengjur".
„Þá veldur það ekki minni
áhyggjum, að samkvæmt leyniþjón-
ustuheimildum, sem ekki hafa enn
verið staðfestar, var plútóni, tilbúnu
til að nota í sprengjur, smyglað frá
geymslu í Rússlandi til Norður-
Kóreu,“ segir í skýrslunni og tíma-
ritið segir, að Bandaríkjastjórn hafi
af þessu miklar og eðlilegar áhyggj-
ur. Segir það einnig, að bandarískir
embættismenn hafi ráðið ritstjórum
tímaritsins frá því að birta þessar
upplýsingar.
í niðurlagi skýrslunnar segir, að
„glæpasamtök í Rússlandi eru á
góðri leið með að taka ríkið í gísl-
ingu og hóta að svipta það yfirráð-
um yfir kjarnaoddunum, 15.000 að
tölu“. Segir einnig, að rússneska
stjórnin sé ófær um að gera grein
fyrir öllum sprengjunum og öllu
úrani og plútóni í hennar eigu og
sé það sönnun þess, að glæpasam-
tökin hafi haft aðgang að birgðun-
um.
BANDARÍSKI blúskóngurinn
B.B. KING var meðal þeirra sem
fram komu við opnun fyrsta
Hard Rock Café-staðarins í Pek-
Blúskóngurinn
B.B. King í Kína
Reuter
ing, höfuðborg Kína, á sunnu-
dag. Féll leikur B.B. King í
mjög góðan jarðveg hjá kín-
versku áhorfendunum.
Fundur hjá ESB um
friðaráætlun í Bosníu
FRANSKUR friðargæsluliði fylgist með svæðinu sem aðskilur
hverfi Bosníu-Serba frá öðrum í Sarajevo. Gætir hann borgar-
starfsmanna sem gera við braut sporvagna.
Genf, Brusscl, Sariy'evo. Rcuter.
BARDAGAR héldu áfram við Tuzla
í gær og talsmenn Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) sögðu að múslimar væru
að draga saman lið í Mið-Bosníu, á
sama tíma og enn ein tilraunin var
gerð til að stilla til friðar í landinu.
Hittust utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins (ESB) í Brussel í gær
til að ræða nýjustu friðaráætlun
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Rússlands og ESB frá því á föstu-
dag. Þá benti allt til þess að Al-
þjóðaráðstefnunni um málefni fyrr-
verandi Júgóslavíu yrði haldið
áfram næstu sex mánuði.
Harðir bardagar
Að undanfömu hafa margir hátt-
settir embættismenn, sem sækja
ráðstefnuna, kvartað yfir því að hún
sé ekki höfð með í ráðum varðandi
friðarumleitanir í Bosníu. Dregið
hefur úr umfangi ráðstefnunnar og
fram hafa komið efasemdir um
framtíð hennar eftir að fulltrúum
hennar mistókst að koma á friði í
janúar sl.
Á sunnudag skutu múslimskir
hermenn á sænska friðargæsluliða
nærri átakalínu við Igman-fjall, en
þaðan sést yfir Sarajevo. Hyggjast
SÞ auka gæslu á þeim slóðum til
að koma í veg fyrir átök. Útvarps-
stöð Bosníu-Serba sagði að músl-
imar hefðu ítrekað gert árásir við
Olovo-Kladanj víglínuna, við Tuzla,
Doboj og Teslic. Þá sagði króatíska
útvarpið að bardagar Serba og
múslima hefðu færst mjög í aukana
við Tuzla.
$ STUTT
Vopnahlé í
Nagomo-
Karabakh
ARMENAR og Azerar undirrit-
uðu í gær samning um vopna-
hlé í héraðinu Nagorno-Kara-
bakh. Vopnahléð tók gildi í
gærkvöldi og brottflutningur
herjanna frá hlutlausu svæði
sem myndað verður hefst 25.
þessa mánaðar. Armenskar
hersveitir fara þá af stærstum
hluta þeirra svæða sem þær
náðu á sitt vald í nokkrum stór-
sóknum í fyrra.
Fósturlátspilla
til Bandaríkj-
anna
UMDEILD frönsk fósturláts-
pilla verður prófuð á konum í
Bandaríkjunum samkvæmt
samningi sem framleiðendur
hennar í Frakklandi hafa gert
við bandarísk samtök, sem eru
ekki rekin í hagnaðarskyni. í
samningnum felst að franska
fýrirtækið veitir samtökunum
einkaleyfisréttinn i Bandaríkj-
unum. Fyrirtækið hafði neitað
að setja pilluna á markað þar
af ótta við mótmæli andstæð-
inga fóstureyðinga.
Zhírínovskíj
til Slóvakíu
RÚSSNESKI þjóðernissinninn
Vladímír Zhírínvoskíj fer í
tveggja daga
heimsókn til
Slóvakíu á
laugardag á
eigin vegum.
„Eg tel að
ekki komi upp
nein ' vanda-
mál nema
Zhírínovskíj
valdi hneyksli,“ sagði embætt-
ismaður í rússneska sendiráð-
inu í Bratislava þegar hann var
spurður hvort Zhírínovskíj fengi
að koma til landsins.
1.600 tonnaf
sprengiefni
springa
UM 1.600 tonn af sprengiefni
sprungu í eldsvoða í stórri
vopnageymslu í austurhluta
Rússlands á sunnudag. Nokkr-
ar sprengjur og flugskeyti féllu
á bæinn Bolshoj Kamen, nokkr-
um kílómetrum frá geymslunni.
Um 3.000 íbúar voru fluttir frá
bænum Novonezhino vegna
sprengingarinnar, en hennar
varð m.a. vart í hafnarborginni
Vladívostok, í 100 km fjarlægð.
Karl prins í
Pétursborg
KARL Bretaprins kom í gær
til Pétursborgar í ljögurra daga
heimsókn.
Þetta er í
fyrsta sinn
sem einhver
úr bresku
konungsfjöl-
skyldunni fer
til borgarinn-
ar frá því
bolsévikkar
myrtu Nikulás II og fjölskylda
hans, sem var skyld bresku
konungsfjölskyldunni, eftir
byltinguna 1917.
Karl prins