Morgunblaðið - 17.05.1994, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Rauðir
líkamningar
EITT verka Dönu Roes.
Lýsing Hamsuns
MYNPLIST
Straumur
MÁLVERK
Dana Roes
Til 22. maí. Opið 14-18. Aðgangur
ókeypis.
ÞAð var mikið að gerast í Hafnar-
firði laugardaginn 7. maí, því þá
opnuðu nokkrar athyglisverðar sýn-
ingar dyr sínar, auk þess sem staðar-
haldarinn að Straumi, Sverrir Ólafs-
son, bauð til uppákomu í tilefni opn-
un nýrra gestavinnustofa í Listamið-
stöðinni.
Sjálfur var hann þó fjarri, því
hann hafði verið kallaður á listahátíð
á Spáni, en það sýnir kannski hversu
innvígðir menn eru þar í heimsmenn-
ingunni nú um stundir!
Ekki verður annað sagt en að fólk
hafi verið með á nótunum, og kunn-
að að meta gjörninga Gaflara á
menningarsviðinu daginn þann, því
að allsstaðar var fullt út úr dyrum.
í vistlegum nýjum vinnustofum
opnaði sýning á verkum eldri nema
við Myndlistarskóla Hafnarfjarðar,
en í gömlu vinnustofunni, sem þó er
ekki par gömul, kynnir bandaríska
listakonan og Fulbright styrkþeginn
Dana Roes nokkur málverk sín, sem
hún hefur unnið á staðnum
Eitt af því sem einkennir myndlist
samtímans er rannsókn yfirborðsins,
að skifta því niður í einingar og brjóta
upp sjálf grunnmál þess. Það má
einnig nefna ferlið, að búa til ný
grunnmál, stokka myndflötinn 'upp
og leika sér með tvívíða ytri byrði
hans á ýmsa vegu. Ekki endilega
hvað efnislega dýpt áhrærir, heldur
er í þessu tilviki sjálf grindin tekin
til meðferðar. Oftar en ekki nota
gerendur einungis einn grunnlit við
þessa iðju til að undirstrika hinn
formræna áhersluþátt. Á stundum
er þetta líkast því að hafa sjálfa
bakhlið málverksins fyrir framan sig,
eða ýmsa þætti hennar, og það eru
gömul sem ný sannindi, að hún getur
á stundum búið yfir býsna sérstæðri
fegurð. Og að sjálfsögðu er bakhliðin
náskyld forhliðinni, sem ailir eru
ekki jafn meðvitaðir um.
Dana Roes notar hárauðan grunn-
lit, sem hún skarar stundum með
svörtum og grátóna formum, bæði
formlegum sem óformlegum. Mýkir
harða burðargrind með bogaformi
er gengur svo til í gegnum allan flöt-
inn, og bogaformið getur verið hrein
og skipulögð lína sem og óformleg
loftræn fyrirferð. Verknaðinn nefnir
hún á móðurmáli sínu „The Red
body“, sem vísar til þess að innri
byrði líkama mannsins er rautt.
Gjömingurinn er kannski ekki svo
áhrifamikill í vinnustofurýminu,
vegna þess að maður hefur séð svo
margar hliðstæður, en vafalítið munu
sumar myndanna njóta sín betur, er
þær hafa hleypt heimdraganum og
fá einsog sjálfsvitund meðal annarra
og ólíkra myndverka.
Frammi liggur mjög smekklegt og
handhægt kynningarrit, og ritar
Kerry Moore stuttan en greinargóð-
an formála, en hann er því miður á
ensku, sem markast af því að vera
fyrst og fremst ætlaður til kynningar
á öðrum breiddargráðum. Hönnun
og prentun annaðist Prentbær, og
er litgreining og allur frágangur með
því besta sem hér hefur sést.
Bragi Ásgeirsson.
MYNPLIST
Norræna húsiö
MYNDLÝSINGAR
Hákon Bleken
Til 22. maí. Anddyri, opið alla daga
10-19. Aðgangur ókeypis.
NORÐMENN kunna að nýta sína
listamenn og gera það betur og
gaumgæfilegar en aðrar Norður-
landaþjóðir, viðurkenna enda nauð-
syn listamanna í nú-
tímaþjóðfélagi og
haga sér eftir því.
Meðal þess sem þeir
gera, er að veita þeim
viðamikil verkefni við
lýsingu ritverka bestu
skálda og rithöfunda
þjóðarinnar og spara
þar litlu til, og minnist
ég hátíðarútgáfu
ýmissa öndvegisrit-
höfunda þeirra t.d.
Kristínar Lafransdótt-
ur eftir Sigrid Undset,
sem Hákon Stenstad-
svold lýsti um árið.
Það er eitt að lesa
bækur, en svo er hitt, að einnig er
hægt að lesa í umhverfi sitt og samt-
íð og hér koma sjónmenntir til sög-
unnar. Með því að lýsa bækur er
mögulegt að veita þeim sjónræna
dýpt og þar með víkka skynsvið le-
sandans.
Þetta vissu menn til forna, og
þannig voru tekstar handrita iðulega
ríkulega myndskreyttir, en við upp-
götvun Gutenbergs, og seinna sívax-
andi útbreiðslu prenttækninnar urðu
mikil hvörf. Má helst líkja þessu við
lestrarnám, því að samfara því að
bamið Iærir að Iesa og ný veröld
opnast því, tapast upprunaleg og
skynræn tilfmning þess fyrir línum,
litum og formum.
Þetta segja rannsóknir okkur, og
þær segja okkur einnig að ljósmynd-
in getur ekki komið í stað skynrænn-
ar lýsingar hinnar skapandi hendi,
sem telst framlenging sálarinnar.
í anddyri Norræna hússins sjáum
við dæmi um slíka virkjun skapandi
kennda, sem er lýsing bókarinnar
„Mysterier" (Leyndardómar) eftir
Knut Hamsun.
Hákon Bleken, höfundur mynd-
anna, er eins og fram hefur komið,
með þekktustu myndlistarmönnum
Norðmanna í dag, og hann er einn
fimmmenninganna, sem eiga verk á
hinni mikilsverðu sýningu Gruppa 5
í Hafnarborg þessa dagana.
Það er áberandi
norskt yfirbragð yfir
lýsingunum og þó eru
þær mjög opnar í anda
hins ftjálsborna út-
hverfa innsæis, heyra
undir það sem á fag-
máli nefnist expres-
sjónismi. Og vafalítið
er þetta sýn lista-
mannsins á atburða-
rásinni í sjálfu ritmál-
inu, án þess að hann
sé beinlínis að kort-
leggja hana. Frekar að
hann bregði upp
augnabliksmyndum af
markverðum atburðum
og skilum í ritverkinu.
Líti maður á lýsingamar sem sjálf-
stæð listaverk, eru þær að vísu
áhrifaríkar sumar hveijar en stand-
ast naumast samanburð við það sem
maður hefur séð best frá hendi þessa
listamanns. Það er hins vegar ekki
áfellisdómur yfir þeim, heldur bregð-
ur ljósi á ólíkt verklag við tilorðningu
listaverka og að lýsing bókmennta-
verks markar gerandanum ákveðnar
skorður. Þessar staðreyndir hefur
Bleken að vísu reynt að sprengja
með því að beita hugarfluginu til
hins ítrasta, en við það verða sumar
myndanna lausar í forminu og yfir-
bragð þeirra líkt og úr fókus. En
innan um eru frammúrskarandi og
tjásterkar myndir svo sem „Minutt-
en“ og konuandlit sem'mun eiga að
vera ímynd Mörtu Gude í bókinni.
Bragi Ásgeirsson.
Dýrin í
Hálsaskógi
Þingeyri - Bamaleikritið Dýrin
í Hálsaskógi eftir Thorbjöm
Egner í uppsetningu Tónlistar-
skólans á Þingeyri var frumsýnt
í Félagsheimiiinu á Þingeyri
þann 6. maí sl. Þátttakendur í
sýningunni voru um fimmtíu
talsins eða allir nemendur tón-
listarskólans og leikstjóri var
Sigurður Blöndal, kennari. Und-
irleik annaðist „Stórsveit dýr-
anna“, en það er tíu manna
hljómsveit skipuð nemendum og
kennurum skólans. Útsetning
tónlistar var í höndum þeirra
Helgu Aðalheiðar Jónsdóttur,
skólastjóra Tónlistarskólans, og
Guðmundar Vilhjálmssonar, tón-
listarkennara. í aðalhlutverkum
voru þau Þórður Sigmundur Sig-
mundsson og Signý Leifsdóttir.
Atriði úr Dýrunum í
Hálsaskógi.
Leirverk í
galleríinu
„Hjá þeim“
HELGA Björnsdóttir opnar
sýningu á leirverkum í gallerí-
inu „Hjá þeim“ Skólavörðu-
stíg 6b, á morgun miðvikudag-
inn 18. maí kl. 16.
Sýningin verður opin fram til
11. júní, virka daga frá kl. 12-18
og laugardaga kl. 10-14.
Nýlistasafnið
Kynningá
írskrinú-
tímamyndlist
KYNNING verður haldin á
írskri nútímamyndlist og að-
stæðum _ myndlistarmanna í
Norður-írlandi í Nýlistasafn-
inu Vatnsstíg 3b, í dag þriðju-
daginn 17. maí íd. 20.30.
Myndlistarkonan Amanda
Kay Dunsmore sem býr og starf-
ar í Belfast mun standa fyrir
þessari kynningu. Amanda er
hér í boði Menningarmálanefnd-
ar írlands og er markmið hennar
að koma á tengslum milli íslands
og Irlands.
Sýndar verða svipmyndir frá
daglegum viðburðum í Belfast
ásamt litskyggnum af verkum
um 20 myndlistarmanna sem
starfa í Belfast. Ennfremur verð-
ur sýnt myndband sem ber heit-
ið „The Trouble with Art“, þar
sem tekin eru viðtöl við nokkra
írska myndlistarmenn. Að lokum
mun Amanda kynna eigin verk,
en hún opnar sýningu í setustofu
Nýlistasafnsins sama dag. Upp-
lýsingar um tengiliði og vinnu-
stofumöguleika á írlandi munu
liggja frammi og írsk tónlist verð-
ur leikin. Allir eru velkomnir.
Málverk
og prjóna-
fatnaður
Húsavík - Astrid Ellingsen og
Bjarni Jónsson sýna listaverk sín
í Safnahúsinu á Húsavík. Þau
hafa áður sýnt verk sín í bæn-
um. Astrid sýnir prjónafatnað
og Bjarni sýnir myndir, sem
einkum sýna atvinnuhætti ís-
lendinga á árum áður.
Sumarskólinn sf.
Sumarönn frá 30. maí-30. júní 1994
Nám fyrír framhaldsskólanemendur. Yfir 60
áfangar eru í boði. Námið er yfirleitt matshæft milli
skóla. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja flýta sér
í námi eða bæta fyrir gamlar syndir! Taka má tvo áfanga.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrir starfsmenn fyrirtœkja í markaðs-
frœðun^ffyostrarhagfrœði, stjórnun, sölu-
tœkni og þjóðhagfrœði. Námið er ætlað þeim sem
litla þekkingu hafa á þessu efni. Verð kr. 16.900.
Tölvunám fyrir starfsmeM&tfyrirtœkja í
Windows, Word Og Excenflsmib er ætlað þeim
sem litla eða enga tölvukunnáttu hafa. Verð kr. 16.900.
Nám fyriL'ófaglœrt fólk á sjúkrahúsum í líf-
fœraý$gi\ífeðlisfrœði, heilbrigðisfræði og
skyndihjálp. Námið er matshæft í framhaldsskóla.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrír alm<^0i$ í aðhlynningu aldraðra
og sjúkra í heimahúsum. Verð kr. n.900.
Nám í uppeldisfræði fyrir foreldra, dazihlttur
og aðstoðarfólk á leikskólum. Verð kr. T&900.
Reyndir kennarar eru í öllum námsgreinum.
Innritun er í Fjölbrautaskólanum í
Breibholti 17.-30. maí frá kl. 16:00-18:00.
EEEESi
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjélfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar. 880900, 880901,880902 og 880915.
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík,
Ármúlaskóla, alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningum.
Aðstoð við kjörskrárkærur.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins! Vinsamlega látið okkur vita um
aila kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k.
Reyitjavi k
0