Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 46

Morgunblaðið - 17.05.1994, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR t Maðurinn minn, HARRÝ S. UCKERMAN, Brekkustíg 29b, Njarðvík, lést að morgni 15. maí í sjúkrahúsi Keflavíkur. Sveinbjörg E. Rasmusdóttir. t Elskuleg móðir okkar, HULDA INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, frá Hóli f Hjaltastaðaþinghá, síðast til heimilis i Æsufelli 2, er látin. Geir Ómar Kristinsson, Guðný Harpa Kristinsdóttir, Ásdís Petra Kristinsdóttir, Kristinn Birgir Kristinsson, Yngvi Örn Kristinsson. t Maðurinn minn og bróðir, EINAR GUÐMUNDSSON frá Túni iFlóa, er látinn. Herdís Jónsdóttir, Unnur Guðmundsdóttir og systkini. + Ástkær móðir okkar, KRISTÍN GÍSLADÓTTIR, Skipasundi 70, lést á Kanaríeyjum 14. maí. Guðrún B. Árnadóttir, Inga B. Árnadóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÍDA KAMILLA ÞÓRARINSDÓTTIR frá Gautsstöðum, Tjarnarlundi 16C, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 13.30. Erla Stefánsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Sigurður Kristinsson, Svandís Stefánsdóttir, Einar Fr. Malmquist, Elsa Stefánsdóttir, Jóhann Friðgeirsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Ástkær systir okkar, STEFANÍA (TORFADÓTTIR) ERVIN, Havre De Grace Md., Bandaríkjunum, lést 10. maí. Guðmundur Torfason, Einar Torfason, Hrönn Torfadóttir, Mikkalína Ásgeirsdóttir, Gunnar Torfason, Vilborg Torfadóttir, Kristján Ásgeirsson, Karólína Ásgeirsdóttir. Islenskur efnlviður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. fiS. HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677 Leitið upplýsinga. ifi HREFNA TYNES Kær vinkona mín, Hrefna Tynes, er fallin, eða eins og við skátar segjum er „farin heim“. Það fjölgar um einn í himnaríki, sagði ein vin- kona Hrefnu, þegar hún frétti lát hennar. Hrefna var eins og sáðmað- ur og eitt dæmi um sáðkornin henn- ar er þriðja erindið úr kvæðinu Úlf- ljótsvatn: Finnst þér ekki sem þú lítir inn í landsins eigin sál, sem þú heyrir blæinn hjala blítt og steininn hafa mál, finnir angan ungra blóma færa frið í huga þinn? Gerðu skjyldu þína skáti, vertu ávallt viðbúinn. Sáðkornin hennar Hrefnu virðast yfirleitt hafa fallið í fijóan jarðveg, því að margoft sá hún þau bera góðan ávöxt. - Hrefna hefur komið víða við, bæði innan skátahreyfing- arinnar og á öðrum vettvangi. í tvo áratugi, 1948-1968, var hún vara- skátahöfðingi. Hún var mjög oft fulltrúi skáta bæði innanlands og utan. Alls staðar var hún ljósber- inn, sem tendraði ljósið og miðlaði ungum og öldnum af lífgleði sinni og visku. Allt til dauðadags starfaði Hrefna með St. Georgsgildunum á íslandi og í nokkur ár var hún lands- gildismeistari. St. Georgsgildin eru alheimssamtök eldri skáta, sem hafa það að leiðarljósi að ljá þeim lið, sem á þurfa að halda. Gildin hafa styrkt skátahreyfinguna á ís- landi og einnig hafa gildin styrkt skáta í þróunarlöndum, í samvinnu við alþjóðabandalög skáta. + Sonur okkar, bróðir og mágur, GUÐMUNDUR GYLFI SÆMUNDSSON, lést í Landakotsspítala að morgni 16. maí. Stefania ívarsdóttir, l'var Sæmundsson, Guðný Hinriksdóttir, Sæmundur Magnússon, Lúðvfk Andreasson. + Móðir okkar og tengdamóðir, GYÐRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, Selbúðum, andaðist á Hrafnistu 15. maí. Minningarathöfn verður í Dómkirkjunni föstudaginn 20. maí kl. 15.00. Útför hennar verður gerð frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardag- inn 21. maí kl. 14.00. Margrét Helgadóttir, Erlendur Einarsson, Ásdi's Helgadóttir, Rodger Hodgson, Jón Helgason, Guðrún Þorkelsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN SIGURÐUR BJÖRNSSON fyrrverandi póstafgreiðslumaður, ísafirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu, ísafirði, 14. maí. Sigríður Áslaug Jónsdóttir, Erling Þór Hermannsson, Gréta Þórðardóttir, Sesselja Áslaug Hermannsdóttir, Páll Zophoníasson, Ásthildur Inga Hermannsdóttir, Kristján Rafn Guðmundsson, Björn Hermann Hermannsson, Jensína Guðmunsdóttir, Jón Gestur Hermannsson, Berta Gunnarsdóttir, Ásdis Sigrfður Hermannsdóttir, Árni Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT J. LILLIENDAHL, verður jarösungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 18. maí kl. 15.00. Gústaf Lilliendahl, Anna María Lilliendahl, Jónas Rafn Lilliendahl, Margrét Katrfn Erlingsdóttir, Atli Lilliendahl, Inge Heinrich, Margrét Lilliendahl, Helgi E. Kristjánsson og langömmubörn. + Faðirokkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORLEIFUR SIGURÐSSON, Baldursgötu 22a, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 18. maí kl. 15.00. Jóna Þorleifsdóttir, Sigurður E. Þorvaldsson, Sigurður Fossan Þorleifsson, Kristfn Jónsdóttir, Hilmar Þorleifsson, Borghildur Guðjónsdóttir. í tilefni 80 ára afmælis Hrefnu, árið 1992, ákvað Bandalag ís- lenskra skáta að gefin yrði út bók í virðingar- og þakklætisskyni fyrir það mikla starf sem hún hefur innt af hendi í þágu skátahreyfingarinm ar. Bókin nefnist Tendraðu ljós. í henni eru sögur og landsþekktir söngvar. Hörpuútgáfan á Akranesi gaf bókina út svo sómi er að, enda er framkvæmdastjóri útgáfunnar gamall og góður skáti. Mér eru ofarlega í huga nokkur kvöld, þegar Hrefna og ritnefndin sátu saman. Þá lét Hrefna sig ekki muna um að syngja ljóðin sín um leið og við röðuðum þeim niður eftir efni. Þá var sem fjötrar ellinnar leystust upp og við urðum ungar í annað sinn, en gleðin og æskan ljómuðu um andlit hennar. Þessar stundir verða okkur ógleymanlegar. Þegar ég hugsa um þessa samveru kemur í huga mér litla, ljúfa vísan hennar Hrefnu um gömlu skátana: Já, árin færast yfir og ellin sýnir lit, gamall skátahópur ber þess merki. Hví skyldi maður örvænta þó aðeins sjáist slit? í sálum okkar gleðin er að verki. I bókinni Lífsgleði, sem kom út árið 1992, á Hrefna frásögn sem aðallega fjallar um lífsreynslu henn- ar á efri árum. Þar segir hún m.a.: „Mér hefur títt verið hugsað til þess að elliárin séu nokkurskonar sólarlag mannsævinnar. Sólarlagið er fagurt engu síður en sólarupp- koman. Og sólarlag finnst mér eitt af því fegursta sem til er af hendi skaparans." í sömu bók segir Hrefna: „Mér finnst það vera lýs- andi fyrir lífsviðhorf mitt og trúna. Hvort sem dauðinn kemur á morgun eða eftir 10 ár, þá gildir það sem segir í þessu fallega versi eftir sr. Hallgrím Pétursson: Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesú í þína hönd. Síðast þegar sofna fer sitji guðs englar yfir mér.“ Þannig var sólarlagið hennar Hrefnu. Skátar á íslandi kveðja og þakka fyrir allt, sem Hrefna Tynes hefur gefið þeim. Sérstakar þakkir og kveðjur eru færðar frá vinkonun- um í Félagi eldri kvenskáta. - Ég og fjölskylda min þökkum Hrefnu áralanga vináttu, sem aldrei bar skugga á. Fjölskyldu Hrefnu send- um við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. _ Áslaug Friðriksdóttir. Hrefna Tynes er farin heim. Hún Hrefna, sem horfði á okkur með ljómandi leiftrandi augum, sem vermdi okkur með brosinu sínu bjarta, sem hlýjaði okkur með góð- látlegum, glaðlegum og silfurtær- um hlátrinum sínum, hún Hrefna okkar. Þeir voru margir sem „áttu“ Hrefnu Tynes. Ljósálfurinn og ylfingurinn sem nutu nærveru og leiðsagnar henn- ar, þeir „áttu“ Hrefnu. Skátastúlkan og skátadrengur- inn, sem lifðu sig inn í söngva henn- ar og frásagnarheim, þau „áttu“ Hrefnu. Gildisskátarnir vítt um landið, sem eiga í minningasjóði sínum ógleymanlegar skátastundir með Hrefnu Tynes, blandaðar hjarta- hlýju og hugsjónaeldi, lífsgleði og lífsvisku, þeir „eiga“ Hrefnu alla og óskipta. Og „eignarhaldið" er gagnkvæmt. Hrefna á okkur öll, skátasystkinin sem höfum átt því láni að fagna að ganga með henni götuna fram á veg. Þannig var og er hún Hrefna okkar. Hrefna var einstaklega vel gerð kona, sem lét víða til sín taka á félagslegum vettvangi. Og alls stað- ar fylgdi henni góðvild og gleði, kærleikur og kraftur. Það fundu allir þeir sem með henni störfuðu. Þeir komu betri menn en áður eftir ERFIDRYKKJUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.