Morgunblaðið - 17.05.1994, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
14 k gull Verðkr. 3.400
Stúdentastjaman
hálsmen eða prjónn
tlðugaveg 5 - sími 13383.
| 5 i ^ÁRA .y /—' Reiðskólinn Hrauni
H. Grímsnesi Reiðskóli fyrir 10-15 ára unglinga 9 daga námskeið með fullu fæði
í( Verð kr. 25.800,-
Júní Júlí Ágúst
/jr Reiðskólinn 1 ÍX 7.-15.1 10.-18.1 4.-12.1
IkiM 18.-26.1/II 20.-28.1/II 15.-23.1/III
ll/lll framhaldsnemendur
Reiðskólinn Hrauni
þar sem hestamennskan hefst!
Ferðabær
Aðalstræti 2 (Geysishús)
Sími623020
Grilllijónusta ffyrir einstaklinga,
fyrirtæki og félagasamtök
Toku* ai okto gnllresiur KynniS ykkur verðið og þjónusíina
HvarsemenUpptilfjalla,
undir húsveggnum og
alls staðar þar á milli. *Una’
Sumar og vetur.
Fyrir 40 - 600 manns.
Mætum með allt á staðinn;
diska, glös, hnífapor o.þ.h.
Hafsteinn Gilsson matreiðslumeistari,
simi: 91-666189, bilasimi: 985-28430
Ath.: Útvegum
veislutjöld fyrír
50 - 500 manns
Vjð
eRurTl'
afmæli
i aagl
Wð erum 7 áre / dag og eins
og önnur afmælisböm fögn-
um við áfanganum. Okkur
langar að þakka viöskipta-
vinum okkar samstarfiö og
bjóða þá, og aö sjálfsögðu
alla aöra, velkomna að vera
með okkur þar til við verðum
2ja, 3ja, 4ra...
borgarkiungi.au
C 6 8 7 2 6 6
... eða eins lengi og allir
eru glaðirl
I DAG
Farsi
SKÁK
llmsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Bad Wöris-
hofen í Þýskalandi í vor kom
þessi staða upp í viðureign
Þjóðverjanna H. Kraft, sem
hafði hvítt og átti leik, og
Tessmer. Hviti biskupinn á
b3 stendur í uppnámi en hvít-
ur kærði sig kollóttan um það
Sjá stöðumynd.
:30. He3! (Hótar 31. Rf6+,
en að leika þvi strax hefði
verið stórlega misráðið. Eftir
30. Rf6+ - Bxf6, 31. Bxf6
bjargar svartur sér með 31. —
Dxh3+), 30. — Dc7, 31.Rf6+
- Kf8, 32. Dh7! - Hxb3 (Nú
standa margir sterkir leikir
til boða, t.d. 33. Dxg7+, en
hvítur fann laglegt kæfingar-
mát:) 33. Dg8+! — Rxg8, 34.
Rh7 mát!
VELVAKANDI
svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þakkar góða
þjónustu
JENNÝ Hallbergsdóttir
hringdi til Velvakanda
því hún vildi koma eftir-
farandi á framfæri fyrir
hönd ánægðra gesta.
„Við viljum benda á
mjög góðan kínverskan
veitingastað er heitir
Singapore v/Reykjavík-
urveg 68, Hafnarfirði.
Þar er maturinn sérlega
góður, á vægu verði og
þjónusta öll til fyrir-
myndar. Þar er svo sann-
arlega hægt að eiga
notalega kvöldstund.
Þökkum fyrir okkur."
Gæludýr
Kettlingur
fæst gefins
SEX mánaða gullfalleg
læða af blönduðu
skógarkyni, sem er grá
og hvít með hvítar
loppur, þarf að fá gott
heimili. Uppl. í síma
870624.
Donna er
týnd
NORSKUR skógaköttur
hvarf að heiman frá sér
aðfaranótt laugardags-
ins. Hún er brún, svört
og hvít, mjög loðin,
eymamerkt og er sárt
saknað. Geti einhver gef-
ið upplýsingar um hana
vinsamlega hringið í
Bryndísi í síma 811575
eða vinnusíma 620062.
Tík vantar
gott heimili
ÍSLENSK-collie árs-
gamla tík vantar gott
heimili. Uppl. í síma
673708.
COSPER
Það verður ekkert mál að selja húsið ef allir draugarn-
ir eru innifaldir í verðinu.
Þær styrktu Rauða kross íslands
ÞESSAR stúlkur héldu 1.483 krónur. Þær heita
nýlega hlutaveltu til Hulda, Sandra, Erla og
styrktar Rauða krossi Is- Marta.
iands og varð ágóðinn
Víkverji skrifar...
Sjálfsagt hefur mörgum brugðið
við að sjá útreikninga, sem
birtust hér í blaðinu í fyrradag, þar
sem borinn er saman endurgreiðsla
á tveimur lánum, sem tekin voru
1979. Upphæðin var sú sama í báð-
um tilvikum en annað lánið verð-
tryggt en hitt óverðtryggt. Niður-
staðan er sú, 15 árum seinna, að
sá sem tók verðtryggða lánið
greiddi 64% hærri upphæð en sá,
sem tók óverðtryggða lánið.
Kannski er hér komin að ein-
hverju leyti skýring á útlánatöpum
bankanna eða hvað?
XXX
Samtök fískvinnslustöðva hafa
sent frá sér upplýsingar þess
efnis, að 2,5 milljarða halli hafí
orðið á rekstri 32 sjávarútvegsfyrir-
tækja í landinu á síðasta ári. Þetta
eru athyglisverðar tölur í ljósi þess,
að hvert fýrirtækið á fætur öðru,
sem skráð er á hlutabréfamarkaði
héfur sent frá sér tölur um hagnað
á síðasta árj. Er nú ekki kominn
tími til að hagsmunasamtök sjávar-
útvegsins hætti að senda frá sér
meðaltöl af þessu tagi, sem segja
ekkert. Það er a.m.k. lágmarks-
krafa, að samtökin gefi sundurlið-
aðar upplýsingar um afkomu þeirra
fyrirtækja, sem hlut eiga að máli,
svo að menn geti betur áttað sig á
heildarmyndinni.
xxx
Athyglisverður skoðanamunur
er kominn upp í hvalveiðimál-
um á milli fulltrúa innan stjómar-
flokkanna. Björn Bjarnason, for-
maður utanríkismálanefndar, hefur
ítrekað lýst þeirri skoðun, nú síðast
hér í blaðinu í fyrradag, að við ís-
lendingar værum betur komnir inn-
an Alþjóða hvalveiðiráðsins. Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra, hefur tekið í sama streng.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, beitti sér á sínum tíma
fyrir úrsogn úr ráðinu og hefur ít-
rekað óbreytta afstöðu í þeim efn-
um. Matthías Bjarnason, alþingis-
maður hefur tekið undir með Þor-
steini.
Ekki sakar að geta þess, að
Morgunblaðið lagðist á sínum tíma
gegn úrsögn úr Alþjóða hvalveiði-
ráðinu.
xxx
að vekur óneitanlega mikla at-
hygli, að Edward Derwinski,
hefur tekið að sér að gerast aðal-
ræðismaður Islands í Chicago.
Derwinski var fyrir nokkrum árum
einn af æðstu stjórnendum banda-
ríska utanríkisráðuneytisins. Það
skiptir miklu máli fyrir svo litla
þjóð, sem okkur íslendinga, að
maður með slík tengsl og áhrif skuli
reiðubúinn til að taka að sér trúnað-
arstörf fyrir okkur með þessum
hætti. Utanríkisráðuneytið hefur
unnið töluvert afrek með þessari
tilnefningu.