Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Könnun Félagsvísindastofnunar á högum atvinnulausra 1993 13% ekki að leita sér að vinnu ÞRETTÁN af hundraði þeirra sem skráðir voru án atvinnu í ársbyrjun 1993 sögðust ekki vera að leita sér að vinnu tveimur mánuðum síðar. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla ís- lands gerði árið 1993. Einnig kemur fram að 41% þeirra sem skráðir voru án vinnu við upphaf ársins hafi ver- ið komnir aftur í vinnu í marsbyijun. Gefín var út rannsóknaskýrslan Atvinnulausir á íslandi 1993, eftir Guðbjörgu Jónsdóttur og Stefán Ólafsson forstöðumann Félagsvís- indastofnunar, í kjölfar könnunar- innar. í henni vartekið 1.000 manna úrtak úr hópi 7.000 sem skráðir voru án atvinnu við upphaf ársins. Aðstæður þeirra voru kannaðar tveimur mánuðum síðar, eða í mars- byijun. Þar af sögðust 13% ekki vera að leita sér að atvinnu. Fram kemur að 41% atvinnulausra hafi verið komnir til vinnu aftur í mars- byijun, einkum fólk í sjávarútvegi og er sú ályktun dregin að skamm- tímaatvinnuleysi hafi átt við 5% úr- taksins. Segir Stefán Ólafsson að með einföldunum og nauðsynlegum fyrirvara um niðurstöður könnunar- innar megi umreikna núverandi íjölda atvinnulausra. Samkvæmt þeim útreikningum séu 87% þeirra sem nú eru skráðir atvinnulausir að leita sér að starfi, þar af 61% að fullu starfi. Um 15% séu að leita eftir hlutastarfi og 24% eftir hvoru sem býðst. Einnig kemur fram að þegar mið sé tekið af skammtímaat- vinnuleysi, til dæmis tengdu fisk- veiðum og -vinnslu, komi í ljós að langtímaatvinnuleysi eigi frekar við í iðnaði, verslun og þjónustu, einkum í höfuðborginni. < Lítil íbúð í Hafnarfirði Til sölu 38 fm 2ja herb. ósamþykkt kjallaraíb. við Hverf- isgötu. Þarfnast endurbóta. Tilboð óskast. Árni Gunntaugsson hrl., Opið f dag Austurgötu 10, sími 50764. Kl. 11-16. Eigrnahöllixi Suóurlandsbraut 20, 3. hæó. Sími 68 OO 57 Eignahöllin - fasteignasala Suðurlandsbraut 20,3. hæð, sfmi 680057. Opið kl. 9-18 virka daga, kl. 11-14 laugardaga. Hefur eignin þín (íbúð eða hús) ekki selst? Ef til vill getum við hjálpað. Eignin má ekki týnast í ofstórri söluskrá. Hjá Eignahöllinni er hver einasti aöili mikilvægur. Viö viljum veita góða ogpersónulega þjónustu. Skoðum og verðmetum án skuldbindinga og þér að kostnaðarlausu alla helgina. SigurðurS. fViium, sölustjóri, heimasími 627788. 011 Kfl 01 07A L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I IwU'tlO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasau Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna: Góð íbúð - gott verð - langtímalán í suðurenda við Dvergabakka 3ja herb. íb. á 3. hæð. Parket. Stórar sólsvalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 3,3 millj. Verð aðeins kr. 5,8 millj. Á góðu verði á úrvalsstað Mjög gott einnrar hæðar timburh. um 150 fm á stórri ræktaðri eignar- lóð í Skerjafirði. Eignaskipti mögul. Vinsamlegast leitið nánari upplýs- inga. Góð séríbúð á góðu verði 3ja herb. ekki stór en vel skipul. íb. við Hraunbæ. Sérinng. Verönd á vesturhlið. Langtímalán um kr. 3,7 millj. Laus fljótl. í nágrenni Árbæjarskóla Gott einb. á einni hæð á glæsil. lóð og nýl. stórt raðh. á frábæru verði. Nánari uppl. aðeins á skrifstofunni. Lftil sérfbúð - stór bílskúr Einstaklingsíb. 2ja herb. tæpir 50 fm á jarðh./kj. við Laugarnesveg, mjög góð. Sérinng. Sérhiti. Góð sérgeymsla. Stór og góður bílks./vinnu- húsn. 49,8 fm. Verð aðeins kr. 4,5 millj. Glæsileg fbúð - góður bílskúr f suðurenda við Jöklasel 2ja herb. (b. 65 fm. Sérþvottah. Sólsvalir. Góð sameign. Bílsk. 26 fm. Vinsæll staður. Á söluskrá óskast í nágrenni Menntaskólans við Sund húseign með rúmg. bílsk. Má vera hús með 5-6 herb. íb. og 2ja herb. íb. **• AIMENNA Opið í dag kl. 10-14. ...... .......... Glæsii. einstaklingsib. til sölu í vesturborginni. LAUGAVEG118 S?MAR^TÍ5Ö^2T377 FASTEIGNASAL AH Morgunblaðið/Þorkell AÐGÆSLU er þörf á heimilum þar sem litlar hendur geta náð til eiturefna. Upplýsingamiðstöð vegna eiturefna verður opnuð á Borgarspítala Slysum á börnum hefur fækkað ANNARRI útgáfu handbókar um slys af völdum efna í heima- húsum, viðbrögð og varnir við þeim, verður dreift á heimili 0-5 ára barna á næstunni. Frá því fyrri útgáfa bókarinnar var gef- in út, árið 1986, hefur slysum á ungum börnum vegna hvers kyns eiturefna á heimilum fækk- að um þriðjung að því er fram kemur í máli Brynjólfs Mogens- en forstöðulæknis á slysa- og bæklunardeild Borgarspítala. A bilinu 50-60 lítil börn slasast nú að jafnaði vegna eiturefna í heimahúsum í Reykjavík á hverju ári. Brynjólfur sagði að ekki liði á löngu þar til opnuð yrði upplýsingamiðstöð vegna eiturefna á Borgarspítala. Fyr- irspurnir og upplýsingar sem þar kæmu fram yrðu notaðar í frekara forvarnarstarfi. Rit- stjórn handbókarinnar var í höndum þeirra Jóns Baldursson- ar, yfirlæknis á slysadeild Borg- arspitala, Onnu Bjargar Ara- dóttur, hjúkrunarfræðings, og Herdísar L. Storgaard hjúkrun- arfræðings og barnaslysavarn- arfulltrúa Slysavarnafélags ís- lands. Herdís sagði að bókin hæfist á kafla um skyndihjálp og meðferð við bruna. „Þar á eftir er nýr kafli um evrópskar merkingar á eiturefnum og fjall- að er um skordýrastungur. Þær geta verið hættulegar. Sérstak- Iega þegar lítil börn stinga sig í kringum munn eða á hálsi,“ sagði hún. Því næst tekur við tafla um einstök eiturefni. Nafn efnis er tilgreint, hætta og verk- un, skyndihjálp og geymsla. Að lokum er sérstakur kafli um hættulegar plöntur í umhverfi barna. Á 19.000 heimili Herdís sagði að bókinni yrði dreift á 19.000 heimili 0-5 ára gamalla barna og gefin foreldr- um nýfæddra barna. Aðrir gætu nálgast hana á heilsugæslustöð- um og væri ástæða til að hvetja fólk til að festa kaup á henni. Handbókin kostar 500 kr. Að bókinni standa Slysavarnarfé- lag Islands, Slysavarnarráð Is- lands og Landlæknisembættið. Könnun lögreglunnar Fimmti hver bíll ólæstur LÖGREGLAN á Suðvestur- landi gerði sameiginlega könn- un 18. maí sl. um það hvernig viðskilnaði ökumanna og um- ráðamanna ökutækja væri háttað. Lögreglumenn könn- uðu um 3.200 ökutæki á til- teknum svæðum á nefndum tíma. í Jjós kom að rúmlega 20% Ökutækjanna reyndust ólæst að meðaltali. Hlutfalls- lega flest voru ökutækin læst í Reykjavík, um 85%, en fæst í fámennari bæjunum, eða um 65%. Niðurstaða könnunarinnar var sú að mjög margir skilja við ökutækin sín ólæst, sér- staklega að næturlagi. I þeim ökutækjum skildu lögreglu- menn eftir miða þar sem eig- endum þeirra var bent á ákvæði umferðarlaga, sem mælir svo fyrir um að ökumað- ur skuli búa svo um ökutækið að aðrir geti ekki fært það úr stað. Þá var þeim sömu, þar sem það átti við, bent á að skilja aldrei eftir lausleg verð- mæti, s.s. veski, tösku eða annað eftir í ökutækinu, jafn- vel þó því hefði verið læst. Eigendum ólæstra ökutækja var bent á að læsa jafnan öku- tækjum sínum til þess að draga úr líkum á að óviðkomandi gæti komist inn í þau með auðveldum hætti. Árlega er u.þ.b. 200 ökutækjum á þessu svæði ekið af stað í óþökk eig- enda eða umráðamanns þess, stundum með hrikalegum af- leiðingum. í 8 ökutækjum höfðu eig- endur skilið eftir lyklana í kveikjulás. Lögreglumenn tóku þá lykla í sína vörslu, en létu eftir skilaboð til eigend- anna um að þeir gætu nálgast þá á næstu lögreglustöð. Áhyggjur Dana vegna veiki í hestum á Islandi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÁHUGAMENN um íslenska hesta í Danmörku og víðar eru áhyggjufull- ir yfir faraldrinum, sem heijaði á hesta á íslandi á dögunum, þar sem ljóst er að meðan hann gengur verður ekki um útflutning hesta að ræða. Samkvæmt Bo Simonsen formanni hestamannafélagsins Topps á Jótlandi og Jens Præstholm varaformanni félagsins er í sjálfu sér ekki undarlegt að sjúkdómur komi upp. Vegna tíðra ferða til og frá íslandi hafi aðeins verið spurning um hvenær, en ekki hvort, svona faraldur gæti komið upp. Præstholm og Simonsen sögðu að áratugum saman hefðu íslensk- ir hestar verið blessunarlega lausir við sjúkdóma, sem væru algengir annars staðar og eftir því sem þeim skildist nú væri ekki um óþekktan sjúkdóm að ræða. Með auknum samgöngum mætti segja að fyrr eða síðar hlyti smit að ber- ast. Erlendir hestamenn sæktust eftir að vinna með hesta á íslensk- um sveitabæjum og íslenskir hesta- 1800 fm lóð til sölu Ein af síðustu lóðunum á Arnarnesi. Útsýni yfir Snæ- fellsn. og sjóinn. Veðursæid og kyrrð. Verð 1.900 þús. Uppiýsingar í síma 657307. menn sæktu mót eða ynnu tíma- bundið með hesta erlendis. f ljósi þess sem nú hefði gerst væri brýnt að koma upp einhvers konar sjúk- dómsvarnaráætlun, sem tæki mið af hugsanlegu smiti. Einangrun hefði þann ókost að ef smit kæmi upp á annað borð, legðist sjúkdóm- urinn harðar á íslensku hestana, því þeir hefðu ekkert ónæmi. Er- Iendis tíðkast skipulagðar bólu- setningar, en varla er raunsætt að bólusetja gegn sjúkdómum, sem enn eru óþekktir á íslandi. Einangrunin hefði ljóslega tekist vel hingað til og forðað íslenskum hestum frá algengum, erlendum sjúkdómum. Erlendis hafa eigend- ur íslenskra hesta orðið að berjast gegn þeim sjúkdómum, sem al- gengir eru á hverjum stað. Simons- en sagðist sjálfur flytja inn hesta. Fyrsta hálfa árið eftir að þeir kæmu út, léti hann þá bara hvíl- ast. Það væri sá tími, sem þeir þyrftu til að jafna sig og aðlagast breyttum aðstæðum. Annars væri það engum erfiðleikum háð að flytja inn Islenska hesta og þeir væru ekki móttækilegri fyrir sjúk- dómum en aðrir hestar. Hátt verð fyrir góðan hest I Danmörku eru um tíu þúsund íslenskir hestar og þeim fer fjölg- andi. Þokkalegur reiðhestur þar kostar 200-300 þúsund íslenskar krónur, en gæðingar og keppnis- hestar kosta á bilinu þijár til fjórar milljónir. í Danmörku eru um tíu ræktunarstöðvar fyrir íslenska hesta. í Englandi eru íslenskir hestar, um alla Norður-Evrópu, niður Þýskaland og I Austurríki og Sviss. Nýlega var stofnaður ís- lenskur hestaklúbbur á Ítalíu. Samkvæmt Simonsen fluttist fyrr- um félagi Topps til Bandaríkjanna fyrir um tuttugu árum og tók þá með sér hestana sína. Frá honum hafa þeir síðan breiðst, út um Bandaríkin og einnig til Kanada.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.