Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir pú 'ATT VArALAUST Vlt> pA 5WPREVNP AOpizrZOSTAPUft »nn OWcak HEFue rsweie> NSi'rr Sl/MANÚ/MER ? Tommi og Jenni &vo MAesr nvtt ap ^ LÆEA.i UPPLV5IW6A(2NA(2 FLÆÞA YPHf /MANN, GRem/í OlHG - n J k*TA. l I tjl Dye*-? D'Nö ^ (t>AO Z/i-L ) sOOhg / v/sr£N6iNAi ( FAfZA ©KFS/Distr. Ferdinand BREF TTL BLAÐSLNS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Um byggðanöfn „Bræður munu berjast...“ Frá Steingrími Gaut Kistjánssyni: HINN 10. maí sl. birtist eftir mig grein í blaðinu þar sem ég and- mæli þeim skilningi að nauðsynlegt sé að nöfn sveitarfélaga hafi við- hengin -hreppur, -kaupstaður eða -bær að síðari lið. í 110. tbl. 18. þ.m. birtist grein eftir Pétur Gaut Kristjánsson þar sem tekið er hraustlega undir meginsjónarmiðin í grein minni og kann ég honum bestu þakkir fyrir það og að vekja athygli á henni. Að formi til er svargreinin, þrátt fyrir efnisinnihaldið, það sem kalla mætti svæsna árásargrein og mætti því álíta að í uppsiglingu væri löng og hörð ritdeila eða þá að árásar- formið væri notað til að breiða yfir óverðskuldað skjall. Þar sem grein- arhöfundur er bróðir minn. þykir mér rétt að taka fram að ekki er um samantekin ráð okkar bræðra að ræða; við höfum ekki stofnað til neinskonar skjallbandalags. Ég var grandalaus um skrif Péturs þar til grein hans var komin til blaðs- ins. Langur vegur er frá að nokkur fjandskapur sé milli okkar bræðra og óverulegur ágreiningur um aukaatriði getur ekki réttlætt þá misnotkun á síðum blaðsins sem persónulegar ritdeilur vilja verða. Ekki er heldur að vænta skoð- anaskipta í stíl þeirra Helga Hálf- danarsonar og Hrólfs Sveinssonar, enda varla á annarra færi. Þetta eiga sem sagt ekki að vera neins- konar einkaslagsmál og vona ég að fleiri verði til að leggja orð í belg og er sú von engan veginn háð því að tekið sé undir mín sjónarmið í einu og öllu. STEINGRÍMUR GAUTUR KRISTJÁNSSON. -----♦■■■♦ ♦--- Ferðasaga íljóði Frá Erlingi Dagssyni: AMMA mín Ingunn Guðmundsdóttir var tengd uppsveitum Árnessýslu á síðasta fjórðungi 19. aldar. Hún kvaðst hafa í bemsku lært ferðasögu í Ijóði og lærði ég fyrstu tvö erindin. Þau em þannig: Eg var á ferð um fólva nóttu foræði vóð um grýtta slóð. Tók mig að syija undir óttu á hæð hjá vörðu kyrr því stóð. Byltu mér veitti bróðir hels þá bjarminn lýsti fagra hvels. Ei er mér ljóst hve lengi ég gisti lúinn véböndum dauðans í Þegar að upp reis yfir lýsti óhljóðum skvaldri harki gný. Reykbræluhnettir hófu köf hátt sem úr verstu kolagröf. Nú langar mig að spyrja hvort nokkur lesandi blaðsins kannist við þetta ljóð og geri mér viðvart ef svo er. Með bestu þökk fyrir birtinguna. ERLINGUR DAGSSON, Barðavogi 24, Reykjavík, sími 683915. Er Sigrún Magnús- dóttir með eða á móti einkavæðingu? Frá Páli Emi Líndal: EINS OG algengt er með fram- sóknarmenn er erfitt að átta sig á því hvað Sigrún Magnúsdóttir vill, þ. á m. það hvaða starfsemi Reykjavíkurborg á að annast og hvaða ekki. Hún sagði í ræðu í borgarstjórn Reykjavíkur 5. des. 1991: „... mér finnst það svona dálít- ið skondið að við skulum reka fjöl- ritunarstofu. Það er líka skondið að við skulum reka tryggingafélag. Það er í sjálfu sér afar skondið að við skulum vilja reka pípugerð. Við rekum trésmiðju, við rekum mal- bikunarstöð, við rekum grjótnám, við eigum orðið fjölda húsa undir veitingarekstur og við borgum með þessum rekstri í mörgum tilfellum. Og við eigum hlutabréf í ólíkleg- ustu fyrirtækjum." Fróðlegt væri að vita hvað Sig- rúnu Magnúsdóttur finnst t.d. „skondið“ við að reka Húsatrygg- ingar Reykjavíkur. Vill hún einka- væða brunatryggingar húsa í Reykjavík eða ekki? Hún veit að borgarbúar njóta ótrúlega góðra kjara varðandi brunatryggingar húsa hjá Húsatryggingum Reykja- víkur. Hún veit að tryggingafélög- in hafa að undanförnu sóst eftir lagabreytingum til þess að komast í þessi viðskipti á grundvelli EES- samningsins, þótt hann banni ekki óbreytt ástand a.m.k. fyrst um sinn. Rétt er að Sigrún Magnús- dóttir svari því skýrt og greinilega fyrir kosningar, hvort hún vill einkavæða húsatryggingar í Reykjavík og hvað henni finnst „skondið“ við þá starfsemi og aðra þá starfsemi sem hún talaði um í ræðu sinni. PÁLL ÖRN LÍNDAL, Laugamesvegi 62, Reykjavík. Gagnasafn Morgnnblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.